Morgunblaðið - 27.04.2021, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 2021
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 g Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 g Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 g alnabaer.is
Við erum sérhæfð í gluggatjöldum
alnabaer.is
TWIN LIGHT RÚLLUGARDÍNA
Páll Vilhjálmsson rifjar upp brotHelga Seljan á siðareglum
RÚV:
- - -
Helgi taldi sigmega flétta
saman gildisdómum
og fréttum. Þegar
hallaði á Helga í hér-
aði tók hagsmuna-
hópurinn RÚV málið
upp á alþingi göt-
unnar.
Bubbi Morthens
fékk rauðan dregil
fyrir fésbókar-
færslu. Með íhygli
fræðimannsins
komst poppsöngvarinn að þeirri nið-
urstöðu að Helgi færi með „nakinn
sannleika“. Samherjaböggið varð
heilagur sannleikur í meðförum
Bubba.“
- - -
Næst sagði PV frá virkjun pírataí þágu glataðs málstaðar:
„„Fordæmalaust túlkunarstríð“
heitir það á píratísku og þykir vont
að hráar fjölmiðlalygar fái ekki við-
töku sem sannindi.“
Niðurstaða „RÚV“ og Bubba
bloggara var: „Það sem slær mann
sérstaklega er þögn þingmanna.“
Hvaða þingmenn munu nema skila-
boðin og gleypa fluguna? „Fjölmiðill
sem skilur ekki muninn á áróðri og
frétt er siðferðilega og faglega
gjaldþrota,“ segir PV réttilega.
- - -
Forðum tíð hjólaði Helgi Seljanopinberlega og með þjósti í þá-
verandi útvarpsstjóra, sem var á för-
um úr sínum stól. „RÚV“-Helgi
krafðist svara frá útvarpsstjóranum
um innri mál RÚV. Páll M. brást
snöfurmannlega við, enda átti Helgi
lítið inni, en hann gerði þó enn hróp
að Páli. Viðbrögðin gleymast seint:
„Þú ættir að skammast þín, þú ert
óþverri,“ og virtist bæta við að Helgi
væri skíthæll. Helgi sagði viðbrögð
Páls barnaleg. Páll: „Það er skárra
að vera barn en skíthæll.“
Helgi Seljan
Er yfirstjórn RÚV
hrædd við Helga?
STAKSTEINAR
Páll Magnússon
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Sigurbjörg Hervör Guð-
jónsdóttir, ein stofn-
enda og fv. formaður
Félags heyrnarlausra,
lést á Hrafnistu í Hafn-
arfirði 2. apríl sl., 90 ára.
Hervör fæddist á
Hesti í Önundarfirði 27.
janúar 1931. Foreldrar
hennar voru Guðjón G.
Guðjónsson og Guð-
björg Sveinfríður Sig-
urðardóttir, bændur á
Hesti.
Hervör sleit barns-
skónum á Hesti en hún
greindist heyrnarlaus í
frumbernsku. Við sjö ára aldur fór
hún til Reykjavíkur til að hefja nám í
Málleysingjaskólanum í Stakkholti,
síðar nefndur Heyrnleysingjaskólinn.
Hervör lauk unglingaprófi með af-
burða námsárangri og stundaði nám
við Húsmæðraskóla Reykjavíkur árin
1946-1947. Lengst af starfaði hún við
Borgarspítalann í Reykjavík ásamt
félags,- uppeldis- og húsmóður-
störfum eftir að börnin fæddust.
Hervör var einn af stofnendum Fé-
lags heyrnarlausra árið 1960, sat í
stjórn í 17 ár, þar af sem formaður í 9
ár. Þá var hún í framkvæmdanefnd
félagsins frá 1974-1989, var formaður
táknmálsnefndar 1985-1989, auk
fleiri trúnaðarstarfa. Hervör var
fyrsta heyrnarlausa konan á Íslandi
sem fékk bílpróf.
Eftirlifandi eigin-
maður Hervarar er
Guðmundur K. Egils-
son, f. 1928., fv. verk-
stjóri og forstöðu-
maður Minjasafns
Orkuveitu Reykjavík-
ur. Þau gengu í hjóna-
band á 25 ára afmæl-
isdegi Hervarar árið
1956.
Börn Hervarar og
Guðmundar eru Bryn-
dís talmeinafræð-
ingur, Magnús, ráð-
gjafi og hestabóndi í
Svíþjóð, Ragnheiður Eygló, verk-
efnastjóri í upplýsingatækni, Guðjón
Gísli viðskiptafræðingur og María
Guðrún viðskiptafræðingur. Barna-
börnin eru 19 talsins.
Hervör og Guðmundur túlkuðu og
aðstoðuðu heyrnarlausa áður en
túlkaþjónusta varð að veruleika á Ís-
landi. Í formannstíð Hervarar eign-
aðist félagið eigið húsnæði og fyrsta
táknmálsorðabókin var gefin út. Þau
hjón voru gerð að heiðursfélögum Fé-
lags heyrnarlausra á 25 ára afmæli
félagsins.
Hervör verður jarðsungin frá Frí-
kirkjunni í Reykjavík 30. apríl nk. kl.
15. Streymt verður frá útförinni og
hægt að nálgast slóðina á mbl.is/
andlat.
Andlát
Hervör Guðjónsdóttir
Tilkynningum sem bárust til barna-
verndarnefnda vegna vanrækslu
fjölgaði verulega á árinu sem liðið er
frá því að kórónuveirufaraldurinn
hófst eða um 19,2% frá 1. mars í
fyrra til loka febrúarmánaðar sl.
Þetta kemur fram í nýrri umfjöllun
Barnaverndarstofu.
„Slíkt hið sama á við um tilkynn-
ingar vegna ofbeldis. Frá 1. mars
2020 hafa borist óvenju margar til-
kynningar vegna ofbeldis á mánuði.
Því til stuðnings má nefna að meðal-
fjöldi mánaðarlegra tilkynninga
vegna ofbeldis á tímabilinu 1. mars
2020 til 28. febrúar 2021 var 315 til-
kynningar, sem er um eða yfir hæsta
gildi áranna á undan.
Því er ljóst að talsverð aukning á
tilkynningum vegna ofbeldis og van-
rækslu gagnvart börnum hefur orðið
síðan faraldur hófst,“ segir í frétt á
vefsíðu Barnaverndarstofu.
Barnaverndarstofa hefur nú unnið
greiningu á tilkynningum til barna-
verndarnefnda á tímabili faraldurs-
ins til samanburðar við árin á undan.
Þar kemur meðal annars fram að til-
kynningum vegna ófæddra barna
hefur fjölgað.
„Á tímabilinu 1. mars 2020 til 28.
febrúar 2020 voru tilkynningarnar
3% fleiri en 12 mánuðina fyrir skil-
greint upphaf Covid-19-faraldursins.
Meðalaukning slíkra tilkynninga á
síðastliðnum fimm árum hefur verið
3,5% og er því sú fjölgun tilkynninga
sem sést hefur undanfarna 12 mán-
uði ekki eins mikil og búast hefði
mátt við.
Á 12 mánaða tímabili eftir upphaf
Covid-19-faraldursins bárust 68,2%
fleiri tilkynningar en 12 mánuðina
fyrir faraldurinn,“ segir þar. Bent er
á að tilkynningar þar sem óttast er
að heilsu eða lífi ófædds barns sé
stefnt í hættu eru almennt fáar, 5-10
í mánuði á landsvísu.
Fleiri tilkynntu vanrækslu og ofbeldi
- Tilkynningum til barnaverndarnefnda vegna ófæddra barna fjölgaði