Morgunblaðið - 27.04.2021, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 2021
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Það er hreint út sagt skelfilegt að
planta fárveiku fólki eftirlitslausu
úti í móa. Með þessu er Reykjavík-
urborg einfaldlega að kuska af sér
vandann og henda honum til hliðar
svo hann sjáist ekki lengur,“ segir
Baldur Borgþórsson, varaborgar-
fulltrúi Miðflokksins, og vísar til
smáhýsaverkefnis borgarinnar.
Greint var frá því hér í Morgun-
blaðinu um helgina að mikil óregla
og sóðaskapur einkennir nýja smá-
hýsabyggð í Gufunesi í Reykjavík.
Eru útköll lögreglu þangað afar tíð
og staðsetning húsanna verið gagn-
rýnd af mörgum enda íbúar einangr-
aðir frá allri nauðsynlegri þjónustu.
Baldur tekur undir þessa gagnrýni
og segist hafa varað við uppbygg-
ingu húsanna í Gufunesi og eftirlits-
leysinu. Segir hann það einungis
leiða til enn meiri og harðari neyslu.
„Það er ekki hægt að halda því
fram að þetta séu skaðaminnkandi
úrræði. Eins og þetta er framkvæmt
núna er þetta ekkert annað en
neyslurými og það eykur einungis
vandann. Þetta gerir ekkert gagn.
Ég tel nær að koma þessu fólki, sem
er jú fárveikt, í alvöruúrræði sem
skila einhverjum árangri,“ segir
Baldur og bendir á að hann hafi
meðal annars talað fyrir viðeigandi
meðferðarúrræði fyrir alla aldurs-
hópa, strangri eftirmeðferð, ráðgjöf
og viðeigandi stuðningi.
„Það hefur, að mínu mati, frá degi
eitt verið röng nálgun í þessu máli.
Og dæmin sanna það, ástandið úti á
Granda hefur ekki verið gott og nú
er sama staða komin upp í Gufunesi.
Þar hefur borgin meira að segja
ákveðið að leigja ekki út fimmta hús-
ið eins og til stóð. Fullyrt hefur verið
að eftirlit sé haft með þessum svæð-
um en svo er alls ekki. Ég veit til
þess að inn í sum smáhýsi hefur ekki
nokkur einasti maður frá borginni
komið í um ár. Ef það er eftirlit með
fólki þá hreinlega skil ég það ekki.“
Hrúga af ónotuðum smáhýsum
Á geymslusvæði Reykjavíkur-
borgar í Skerjafirði standa yfir 20
smáhýsi. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins hafa þau staðið þar
óupphituð og afskipt í rúmt ár.
Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæð-
isflokksins, segir ljóst að smáhýsa-
verkefni Reykjavíkurborgar hafi
verið illa unnið frá upphafi.
„Staðarvalið, kostnaðurinn og
fleiri þættir sem þessu tengjast bera
það með sér að þetta verkefni er afar
illa unnið. Það hefur lítið verið gert
allt kjörtímabilið til að koma þessu í
gagnið en á sama tíma er búið að
setja gríðarlegan pening í þetta.“
Aðspurður segir Eyþór ljóst að
hundruð milljóna króna hafi runnið
til verkefnisins. „Ég gæti trúað því
að fermetraverð smáhýsis sé yfir
einni milljón. Svo dagar þau bara
uppi á geymslusvæði. Þetta er mjög
sorglegt,“ segir hann.
Með fleiri staði í sigtinu
Heiða Björg Hilmisdóttir, formað-
ur velferðarráðs og borgarfulltrúi
Samfylkingar, segir smáhýsin mikil-
vægt úrræði fyrir marga. Reynslan
sýni þó að bæta þurfi þjónustu.
„Það er líka betra að hafa svona
inni í miðri byggð fremur en í jaðr-
inum,“ segir hún og bætir við að hún
eigi von á því að uppbygging hverf-
isins muni bæta ástandið.
Þá segir hún það almennt ganga
illa að útvega lóðir undir smáhýsi.
Hún eigi þó von á uppbyggingu smá-
hýsa í Laugardal, Ártúnshöfða,
Vogabyggð og Hlíðahverfi. „Von-
andi kemst það fljótlega af stað.“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Langtímageymsla Hér sést hluti þeirra smáhýsa sem geymd eru á svæði Reykjavíkurborgar í Skerjafirði.
Smáhýsin „ekkert
annað en neyslurými“
- Fermetraverð á smáhýsi sagt vera yfir einni milljón króna
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Landsnet hefur ákveðið að kæra
höfnun Sveitarfélagsins Voga á um-
sókn um framkvæmdaleyfi fyrir
Suðurnesjalínu 2 til úrskurðarnefnd-
ar umhverfis- og auðlindamála.
Byggir fyrirtækið kæru sína á því að
öll skilyrði laga fyrir veitingu fram-
kvæmdaleyfis hafi verið uppfyllt og
því sé höfnun Voga ólögmæt, auk
þess sem hún veki upp mörg álitamál
sem nauðsynlegt sé að fá skorið úr
um.
Landsnet hefur lengi undirbúið
styrkingu flutningslína milli höfuð-
borgarsvæðisins og Suðurnesja.
Niðurstaðan eftir endurtekið um-
hverfismat og valkostagreiningu var
að leggja loftlínu sem liggja á að
mestu meðfram núverandi Suður-
nesjalínu. Bæjarstjórnir Hafnar-
fjarðar, Grindavíkur og Reykjanes-
bæjar höfðu samþykkt að veita
framkvæmdaleyfi fyrir lagningu lín-
unnar áður en Sveitarstjórn Voga
hafnaði því. Vogamenn telja að of
mikil umhverfisáhrif fylgi fram-
kvæmdinni til þess að hún sé réttlæt-
anleg og vilja að lagður verði jarð-
strengur meðfram Reykjanesbraut.
Flestir landeigendur höfðu sam-
þykkt lagningu loftlínunnar.
„Fagleg niðurstaða“
„Við erum búnir að fara í endur-
tekið ítarlegt umhverfismat og mat á
öllum valkostum. Þetta er fagleg
niðurstaða,“ segir Guðmundur Ingi
Ásmundsson, forstjóri Landsnets,
þegar hann er spurður hvers vegna
fyrirtækið leggi áherslu á loftlínu-
kostinn. Hann bætir því við að þegar
jarðhræringar hófust á Reykjanesi
hafi einnig verið farið að huga sér-
staklega að öryggisþættinum. Það
mat hafi styrkt fyrri niðurstöður.
Landnet nefnir í tilkynningu að loft-
línur þoli betur jarðskjálfta en jarð-
strengir auk þess sem möguleikar
séu á að verja möstur háspennulínu í
lofti fyrir hraunrennsli með varnar-
görðum.
„Við störfum eftir lögum og
reglum sem gilda um okkar starf-
semi. Loftlínukosturinn uppfyllir all-
ar kröfur sem gerðar eru til fram-
kvæmda okkar á meðan jarðstrengs-
kosturinn gerir það ekki,“ segir
Guðmundur Ingi þegar hann er
spurður að því hvort tillögur Voga-
manna um jarðstreng komi alls ekki
til greina. Segir hann að lagning
jarðstrengs sé umtalsvert dýrari en
loftlínu og samkvæmt stefnu stjórn-
valda hafi Landsnet ekki heimildir til
að leggja í verulegan umframkostn-
að við jarðstreng, nema að gefnum
tilteknum forsendum sem ekki séu
fyrir hendi á Suðurnesjum. Leggur
Guðmundur Ingi áherslu á að val-
kostir við Suðurnesjalínu 2 hafi verið
metnir á sama hátt og línur um allt
land.
Öll skilyrði fyrir
framkvæmda-
leyfi uppfyllt
- Landsnet kærir synjun Voga
Tölvuteikning/Landsnet
Suðurnesjalína Loftlínan á að
liggja samsíða núverandi línu.
Í baráttu við COVID-19
býður Donnamaska, grímur
og andlitshlífar sem eru
gæða vara frá DACH og
notuð um allan heim.
Vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Öryggið í fyrirrúmi fyrir lærða sem leika
Sími 555 3100 www.donna.is
Type II 3ja laga
medical andlitsgríma
FFP3 Respirator Comfort
andlitsgríma með ventli
FFP3 High-Risk
andlitsgríma
Andlitshlíf
móðufrí
C-gríma Pandemic
Respirator andlitsgríma
Sindrastóll
Hönnuður: Ásgeir Einarsson (1927-2001)
Sindrastóllinn er bólstraður
með íslenskri lambagæru.
Verð frá: 199.000 kr.
Sólóhúsgögn ehf. Gylfaf löt 16-18 112 Reykjavík 553-5200 solohusgogn. is