Morgunblaðið - 27.04.2021, Page 11

Morgunblaðið - 27.04.2021, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 2021 Netverslun skornir.is SMÁRALIND www.skornir.is Flex&Go Í skóna er notað hágæða leður sem og náttúruleg efni, sem gerir það að verkum að skórnir falla vel að fætinum og eru einstaklega þægilegir. Verð 17.995 Stærðir 36-42 Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Við erum í skýjunum með það hvernig til tókst og ákaflega stolt af okkar fólki,“ segir Kristján Þór Magnússon, sveitarstjóri Norður- þings. Mikill viðbúnaður var á Húsavík á sunnudagskvöld þegar Óskars- verðlaunin voru afhent. Myndband við lagið Húsavík – My Home Town úr kvikmyndinni Eurovision Song Contest: The Story of Fire Saga var sýnt og lagið átti möguleika á að hljóta Óskar. Lagið hlaut á endanum ekki náð fyrir augum óskars- akademíunnar en heimamenn eru stoltir af þeirri athygli sem Húsavík hefur fengið að sögn Kristjáns. Og hyggjast nýta sér athyglina. „Það hefði verið algjör rúsína í pylsuendanum að vinna en eftir stendur að þetta er búið að vera al- gjört ævintýri að hafa fengið að taka þátt í þessu. Það er magnað að hafa náð að klára þetta verkefni á svo stuttum tíma. Samtakamátturinn á staðnum var rosalega mikill. Mér fannst magnað hvað allir voru til- búnir að leggja dægurþras til hliðar þegar raunverulega þurfti á að halda,“ segir sveitarstjórinn. Kristján játar því að eitthvað hafi ævintýrið kostað sveitarfélagið. Kostnaðurinn hafi þó ekki verið tek- inn saman „Jújú. Auðvitað fellur alltaf til einhver kostnaður við svona. Í beinum kostnaði eru þetta samt ekki stórar tölur fyrir sveitar- félagið. Sérstaklega ekki þegar horft er til þess að þetta er auglýsing fyrir samfélag okkar, og reyndar Ísland allt, sem býðst ákaflega sjaldan. Fyrirtæki og einstaklingar hér horfðu til þess og létu hlutina ganga án þess að telja krónur. Það var eng- inn að hugsa um hvað menn ætluðu að rukka heldur var horft á þetta sem tækifæri.“ Fyrst minnst er á fyrirtæki í bæn- um þótti mörgum gaman að sjá aug- lýsingar í tengslum við beina út- sendingu RÚV frá hátíðinni. Sýningarrétturinn var ekki tryggð- ur fyrr en undir lok síðustu viku og því gafst ekki langur tími til auglýs- ingasölu. Augljóst var þó að norð- lensk fyrirtæki sáu sér leik á borði þar. „Sveitarfélagið kom ekkert að þessu en ég er ánægður fyrir hönd okkar góðu fyrirtækja. Það var gam- an að sjá menn gera sig breiða þar. Ég er líka ánægður með að RÚV skyldi taka á sig rögg og leysa þetta með útsendinguna. Það skipti máli.“ Kristján segir að fram undan séu fundahöld um það hvernig best sé að hamra járnið og nýta sér þá athygli sem Húsavík hefur fengið að und- anförnu. „Við eigum eftir að setjast yfir framhaldið og hvernig við munum nýta okkur þennan meðbyr. Þegar við höfum hvílt okkur í 2-3 nætur munum við ná saman innsta kjarn- anum sem vann að þessu og fara yfir þær tengingar sem við höfum náð að mynda. Svo leggjum við á ráðin um næstu skref. Það er alla vega ljóst að fyrst í stað munum við vinna með þetta í ferðaþjónustunni í sumar og við munum eflaust nýta þetta í markaðslegu tilliti næstu árin.“ Sveitarstjórinn vill hamra Óskars-járnið - Möguleikar fyrir ferðaþjónustu - Kostnaður óverulegur Gleðistund Sveitarstjórinn Kristján Þór Magnússon og Örlygur Hnefill Ör- lygsson ferðamálafrömuður brugðu á leik með eftirlíkingar af Óskarnum. Flateyingar létu margar hendur standa fram úr ermum um helgina. Kirkjan var þrifin hátt og lágt og kirkjustígurinn stunginn upp og möl borin í hann. Á fimmtudag var hafist handa við að taka grunn slökkvistöðvar í Flatey og síðan tók við mótauppsláttur og steypuvinna. Að loknu góðu dagsverki á laug- ardag var safnast saman í Bryggjubúðinni í Frystihúsinu þar sem samheldni og sumri var fagn- að. aij@mbl.is Ljósmynd/GÞP Kirkjustígur Þörf var orðin á að bera í stíginn og var gengið í það af krafti. Margar hendur að störfum í Flatey Ljósmynd/MG Bygging Ákveðið var í vetur að byggja slökkvistöð til að hýsa tæki og tól. Sökklar voru steyptir á laugardag og voru þrjár hrærivélar notaðar. Guðmundur Hall- grímsson, fv. rafverk- taki á Fáskrúðsfirði, lést 24. apríl sl., 84 ára að aldri. Guðmundur fæddist 19. maí 1936 í Hafn- arnesi við Fáskrúðs- fjörð. Foreldrar hans voru Hallgrímur Scheving Bergsson út- gerðarmaður, d. 1975, og Valgerður Sigurðar- dóttir húsfrú, d. 2000. Systkini Guðmundar eru Bergur, Svava, Jó- hanna, Már og Jóna Hallgrímsbörn. Eftirlifandi eru þær Svava og Jóna. Guðmundur vann sem rafverktaki vel fram yfir sjötugt, auk þess sem hann var starfandi í slökkviliði Fá- skrúðsfjarðar, síðar Fjarðabyggðar, fram að sjötugu. Útivist, íþróttir og hvers kyns veiðiskapur var Guðmundi hugleik- inn alla tíð. Hann vakti athygli fyrir að keppa á samtals 18 landsmótum UMFÍ fyrir héraðssamband sitt, UÍA. Fyrsta landsmótið hans var ár- ið 1955 á Akureyri og það síðasta sömuleiðis í höfuðstað Norðurlands, sumarið 2009, þegar Guðmundur var 73 ára. Eftir það tók hann þátt í nokkrum landsmótum UMFÍ fyrir 50 ára og eldri. Keppti Guðmundur jafnan í hlaupum og stökkum, vann til fjölda verð- launa og setti mörg met á keppnisferlinum. Íslandsmet hans í 200 m hlaupi í 50 ára flokki stendur enn, 25,06 sek. sett 1988. Í viðtali við Morgun- blaðið 13. júlí 2009 lét Guðmundur hafa eftir sér að hann hefði að- eins misst af einu landsmóti, þ.e. á Laug- arvatni 1965, en þá hafði hann nýlega eignast tvíbura. „Ég hef alltaf jafn gaman af þessu. Þetta er eitt allra skemmtilegasta mótið, keppnin skemmtileg, um- gjörðin góð og veðráttan einstök,“ sagði Guðmundur um landsmót UMFÍ 2009. Eftirlifandi eiginkona Guðmundar er Dóra M. Gunnarsdóttir húsmóðir, f. 1943. Börn þeirra eru Gunnar Vignir, f. 1963, maki Hugrún Ingi- marsdóttir, tvíburasysturnar Birna, f. 1965, maki Kristján Jónsson, og Kristín, maki Guðlaugur Björn Birg- isson. Yngst er Jóhanna Vigdís, f. 1969, maki Marteinn Már Guð- geirsson. Barnabörnin eru 11 og barnabarnabörnin fimm. Andlát Guðmundur Hallgrímsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.