Morgunblaðið - 27.04.2021, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 27.04.2021, Blaðsíða 12
í sumarið,“ segir Þorsteinn. Hann segir að nú bóki fólk bíla með skemmri fyrirvara en í venjulegu ár- ferði. Ferðamenn taki varfærin skref. Algengt sé að fólk bóki fyrst flug, svo gistingu og þá bílaleigubíl. „Við erum oft aftarlega í þessari röð. Þetta hefur reyndar verið að þróast svona yfir lengri tíma.“ Spurður um stöðuna á bílaflotanum og hvernig gangi að liðka bílana fyrir komandi átök segir Þorsteinn að fyrirtækið sé byrjað að hreyfa bílana en það gangi hægar en venja er. Blue Car Rental haldi úti hundruðum bíla en fyrirtækið hafi eins og önnur félög í sömu stöðu verið í lamasessi vegna veirunnar. Talsverð vinna fari í að gera allt klárt enda flotinn búinn að standa óhreyfður lengi með tilheyr- andi vandamálum. Reynt að verja störfin Hann segir að Blue Car Rental hafi reynt að verja eins mörg störf og hægt var. Það hafi forðast viðamiklar uppsagnir í gegnum allan faraldurinn en nýtt sér hlutabótaleið yfirvalda. Hún hafi nýst vel. „Við tókum eins lítil skref í þessum efnum og við mögu- lega gátum og reyndum að halda öll- um sem við höfðum einhver verkefni fyrir.“ Hann segir hugmyndina hafa verið að fjárfesta í framtíðinni og halda áfram að stuðla að þróun og heilbrigði fyrirtækisins. Eins og bílaleigur gera jafnan þá seldi Blue Car Rental talsvert af bíl- um í faraldrinum. Bæði þá sem þeir þurftu ekki á að halda og einnig var hugsað lengra fram í tímann þar sem spár höfðu gert ráð fyrir færri ferða- mönnum allt fram á árið 2023. „Við stillum þetta af miðað við eftirspurn. Við höfum selt líklega þriðjungi meira en venjulega í faraldrinum. Á sama tíma höfum við ekki verið að bæta við okkur nýjum bílum.“ Hann segir að fyrirtækið sé nú að meta hvort það ætli að kaupa nýja bíla fyrir sumarið. Bjartsýni ríkir hjá Blue Car Rent- al. Þorsteinn segir að óhætt sé að vera vongóður nú þegar hillir undir lok far- aldursins. Honum finnst leiðinlegt að heyra þegar ferðaþjónustan er teiknuð upp sem „vondi gaurinn“ og að geirinn spili ekki með aðgerðum stjórnvalda. „Maður er alveg jafn mikill Íslend- ingur og hver annar og vill ekki fá sýkta aðila inn í landið.“ Í eðlilegu árferði samanstendur floti Blue Car af um tvö þúsund bílum. „Við höfum siglt vel í gegnum þetta því við höfum fjárfest mikið í okkar eigin rekstri síðstu tíu ár.“ Gerir ráð fyrri 5-600 þúsund Steingrímur Birgisson, fram- kvæmdastjóri Bílaleigu Akureyrar, vonast til að staðan verði þokkaleg síðsumars hvað ferðaþjónustuna varðar. „Það fóru að detta inn bókanir um og eftir páska. Þetta fer hægt og rólega af stað og er í takt við áætlanir okkar. Ég geri ráð fyrir að erlendir ferðamenn verði á bilinu 500-600 þús- und í ár. Þetta ferðamannaár verður álíka og í fyrra. 2020 byrjaði vel og svo var sumarið ágætt. Ég á samt ekki von á að ferðaiðnaðurinn komist á neinn skrið fyrr en á næsta ári.“ Bílaleiga Akureyrar gíraði sig nið- ur á síðasta ári og seldi eldri bíla. „Við keyptum líka 800 bíla á síðasta ári og munum kaupa annað eins í ár. Við ætluðum að kaupa 1.200-1.300 bíla í fyrra en færðum hluta þeirra yfir á þetta ár. Við kaupum samtals 1.600- 1.700 bíla, sem er ágætis endurnýjun. Við erum klárlega með nýjasta flot- ann. Við viljum halda flotanum eins nýjum og mögulegt er,“ segir Stein- grímur, en fyrirtækið er atkvæðamik- ið einnig á innlendum langtímaleigu- markaði. Bílaleigur í varnarstöðu Morgunblaðið/RAX Ferðalag Bílaleigurnar bíða komu ferðamanna. Forsvarsmenn eiga von á sígandi lukku inn í sumarið. Bókanir » Bílar bókaðir með skemmri fyrirvara en í venjulegu árferði. » Bílaleiga Akureyrar hefur keypt samtals 1.600 nýja bíla. » Blue Car hefur selt þriðjungi meira af bílum en venjulega. » Spáir svipuðum fjölda ferða- manna og kom 2020. - Líklega fáar bílaleigur með jákvætt eigið fé eftir síðasta ár - Bjartsýni farið að gæta - Bókanir komnar af stað - Mest bólusettir Bandaríkjamenn og Bretar - Flug United og Delta vekur vonir BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Bílaleigur eru enn í varnarstöðu vegna mikils samdráttar í komu er- lendra ferðamanna vegna veirunnar sem haft hefur áhrif á eiginfjárstöð- una. Mikið eigið fé liggur í bílaflot- anum. Virði bílanna lækkar milli ára og vextir bætast á lán. „Ég held að það verði ekki margar leigur með já- kvætt eigið fé eftir rekstur síðasta árs,“ sagði einn viðmælandi blaðsins sem starfar í geiranum. Hann bætti við að rekstrarlega verði bílaleigur margar kannski í kringum núllið en mikill afskriftar- og fjármagnskostn- aður muni fara langt með að þurrka út eigið fé margra. Fulltrúar þeirra bílaleigna sem blaðið ræddi við sögðu margir að lík- lega færi ferðaiðnaðurinn ekkert af stað fyrir alvöru fyrr en sumarið 2022 þótt bjartsýni væri farið að gæta og bókanir komnar af stað. Menn yrðu a.m.k. ár að vinna sig út úr ástandinu. „Það verður nóg að borga þegar túr- istinn kemur,“ sagði fulltrúi einnar bílaleigunnar. Almennt binda menn vonir við bólusetta Breta og Bandaríkjamenn í sumar. Boðað upphaf daglegs flugs bandarísku flugfélaganna Delta og United hingað til lands í maí og júní gefi góðar vonir. Minna er um bók- anir frá Evrópu. Almennt eru menn ánægðir með aðgerðir stjórnvalda. Bókanir ljúga engu Þorsteinn Þorsteinsson, fram- kvæmdastjóri bílaleigunnar Blue Car Rental, segir í samtali við Morgun- blaðið að farið sé að lifna yfir bók- unum fyrir sumarið. „Bókanirnar ljúga engu. Við sjáum aðeins komið af bókunum í maí og svo stigvaxandi inn 12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 2021 Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is samlegt ka nýmalað, engin h lki. á y – Laun á almenna vinnumarkaðnum hækkuðu um 8,5% frá janúar 2020 til janúarmánaðar síðastliðins. Á sama tíma hækkuðu laun hjá hinu opinbera um 16,1%, 13,7% hjá rík- inu og 18,7% hjá sveitarfélögunum. Þetta kemur fram í nýbirtri hagsjá Landsbankans sem aftur byggist á nýjum tölum frá Hagstofu Íslands. Segir í hagsjánni að á síðustu misserum hafi myndast bil milli launaþróunar á almenna og opin- bera markaðnum. Það skýrist af því að samningar voru gerðir mun seinna á opinbera markaðnum en þeim almenna. Munurinn jafnast ekki út „Þróun launa á opinbera og al- menna markaðnum hefur yfirleitt verið með álíka hætti yfir lengra tímabil, en þar sem um eitt og hálft ár er eftir af núgildandi kjarasamningi, þar sem flestir hópar eru í sama umhverfi, er ekki líklegt að sá munur sem kominn er upp núna jafnist í bráð,“ segir bankinn. Bankinn bendir á að vísitala neysluverðs hafi hækkað um 4,3% frá mars 2020 og fram í mars 2021. Hins vegar hafi launavísitalan hækkað um 10,6% yfir sama tíma- bil og því nemi kaupmáttaraukning yfir tímabilið 6%. „Kaupmáttur launa er því áfram mikill í sögulegu samhengi, þrátt fyrir aukna verðbólgu á síðustu mánuðum.“ Á almenna markaðnum hafa laun hækkað mest hjá verkafólki eða um 13,3%. Laun stjórnenda hafa hækkað minnst eða um 4%. Morgunblaðið/Árni Sæberg Launaþróun Opinberir starfsmenn hafa hækkað mest síðasta árið. Tvöföld hækkun hjá hinu opinbera - Launahækkanir á almenna mark- aðnum 8,5%

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.