Morgunblaðið - 27.04.2021, Blaðsíða 15
15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 2021
Spekingslegur Svartir kettir eru sagðir slæmur fyrirboði. Þessi er allavega sætur.
Eggert
Þessa dagana hefur
vart farið framhjá
neinum að minnst hef-
ur verið þess að fimm-
tíu ár eru liðin frá end-
urkomu íslensku
handritanna til lands-
ins og af því tilefni
lagður hornsteinn að
hinu glæsilega nýja
húsi íslenskra fræða.
Allt er það vel.
En jafnframt hefur verið ýtt undir
kröfur um að fleiri handrit úr hópi
þeirra sem eftir urðu í Kaupmanna-
höfn komi til Íslands. Nú er það einu
sinni svo að samkomulag er sam-
komulag og liggur nokkur dreng-
skapur við, ekki síst þegar um er að
ræða jafn einstakan atburð í sam-
skiptum þjóða eins og endurkoma
handritanna var.
Það er ekki sæmilegt að upphefja
nýjar kröfur, og slíkum málum
hreyft aðeins ef annar aðilinn telur
sig ekki lengur færan um að sinna
sínum hlut og gefur þá sjálfdæmi
þeim sem við var samið. Enn ósæmi-
legra mun teljast að viðhafa sem rök
fyrir frekari kröfum að mótaðilinn
hafi ekki burði til að sinna sínu hlut-
verki samkomulagsins. Ekki mun
óskynsamlegt að eiga í Höfn auka-
glugga að umheiminum. Það er auk
þess hagur okkar Íslendinga að
fræðastörfum sem tengjast okkar
menningararfi sé sinnt sem víðast
um heim.
Mér er þetta mál ekki með öllu
óskylt þar sem faðir minn, Einar
Ólafur Sveinsson, var í forystu ráð-
gjafarnefndar íslensku ríkisstjórn-
arinnar í því ferli sem
leiddi til afhendingar
handritanna. Af þeim
sökum lét hann af pró-
fessorsembætti í Há-
skólanum og lauk aldr-
ei við íslenska
bókmenntasögu sem
hann var með í smíðum
til þess að geta einbeitt
sér að því verkefni sem
honum var falið sem
fyrsti forstöðumaður
þeirrar stofnunar sem
síðar tók handritin í
varðveislu sína. Í sjónvarpsþætti
sem settur var saman af ofan-
greindu afmæli og sýndur fyrsta
sumardag sl. var leitast við að rekja
þessa sögu svo sem verðugt er. Sú
lýsing fjallaði þó nær eingöngu um
það sem í Kaupmannahöfn gerðist
og var það fróðlegt. Mun mörgum,
ekki síst yngstu kynslóðinni, hafa
komið á óvart hversu sterk sú and-
staða var.
En ýmsir danskir fræðimenn
höfðu haft á orði, að ekki væru að-
stæður til að sinna handritunum í
Reykjavík á sjötta áratug aldarinnar
þegar þetta mál var mest á oddi. Það
reyndist ekki rétt. Hefði því vel mátt
í þættinum einnig lýsa því sem hér
var gert heima: sett upp umrædd
handritastofnun undir forystu Ein-
ars Ólafs, sem þá var einn fremsti al-
þjóðlegi vísindamaður á sviði ís-
lenskra bókmennta; nafninu var
síðar breytt í Stofnun Árna Magn-
ússonar á Íslandi, eftir að handritin
komu heim. Reist var sérstakt hús
(Árnagarður) yfir handritin og starf-
semina, ráðinn fjöldi færustu sér-
fræðinga til starfa, meðal annars
þeir Íslendingar sem unnið höfðu að
handritarannsóknum í Kaupmanna-
höfn undir handleiðslu dr. Jóns
Helgasonar og hafin þegar umtals-
verð útgáfustarfsemi. Einar Ólafur
ritaði auk þess heila bók um hand-
ritamálið. Ofangreindar gagnrýnis-
raddir hljóðnuðu því skjótt enda hef-
ur stofnunin með árunum orðið
óumdeild miðstöð rannsókna í heim-
inum á þessum dýrmætu miðalda-
handritum.
Hins vegar bregður manni í brún,
þegar í ljós kemur í hátíðahöldunum
frásögn í vefriti utanríkisráðuneyt-
isis sem ætluð er til að lýsa úrslita-
deginum í handritamálinu sem svo
hefur verið kallaður á vordögum
1961, þar sem stjórnskipuðu nefnd-
irnar komu saman í Kaupmannahöfn
til að útkljá endanlega þetta við-
kvæma deilumál; skiptingu hinna
dýrmætu handrita í samræmi við
dómsúrskurð. Er í umfjöllun ráðu-
neytisins vísað til viðtals við gamlan
stuðningsmann Íslands í málinu,
danska ritstjórann Bent A. Koch. Er
skemmst frá því að segja, að máls-
atvik munu hafa verið allt annars
konar en Koch virðist ímynda sér.
Dr. Gylfi Þ. Gíslason, þá mennta-
málaráðherra, rekur þetta mál all-
ítarlega víða, m.a. í Morgunblaðinu
21. apríl 1971, sem og í sama blaði
25. október 1993. Sá fótur er fyrir
frásögn Bents Koch sem alls ekki
var á þeim fræga örlagafundi þar
sem mál réðust, að Gylfi hafði fyrr á
laun beðið dr. Sigurð Nordal að
skrifa lista verka sem hann helst
gæti hugsað sér að fórna fyrir Kon-
ungsbók Eddukvæða. Sá listi var
reyndar kynntur ráðgjafarnefndinni
í Reykjavík og hjá ríkisstjórn.
En hér er blandað málum. Það
sem á sjálfum úrslitafundi stjórn-
málamannanna 21. apríl 1961 reið
baggamuninn var „leynivopnið“ sem
svo hefir verið kallað og gekk út á að
fórna einu Njáluhandriti og einu
edduhandriti í stað þess sem meira
máli skipti eins og Konungsbók
eddu. Gylfa fylgdi umboð ríkis-
stjórnarinnar til að bjóða þetta, sem
og blessun ráðgjafarnefndarinnar.
Þetta var ekki hugdetta sem fram
kom á fundinum, heldur var lausnin í
farangri Gylfa. Þ. Gíslasonar og
brugguð á leynd með Einari Ólafi í
Reykjavík fyrir fundinn. Þau tvö
handrit sem síðar urðu fyrir valinu
munu einnig hafa verið á lista dr.
Sigurðar. Benda má af því tilefni á
grein eftir undirritaðan í Morgun-
blaðinu 31. ágúst 1999. Dr. Gylfi
staðfesti að þar var farið með rétt
mál. En ritari nefndarinnar dr. Jón-
as Kristjánsson, sem var viðstaddur
fundinn, vottaði einnig að rétt sé frá
sagt. Er það mat dr. Gylfa að þegar
Viggo Kampmann, þáverandi for-
sætisráðherra Dana, snerist hugur í
málinu og sætti sig við Njáluhand-
ritið og Eddukvæðahandritið hafi
björninn verið unninn. Í ítarlegu við-
tali í Morgunblaðinu 21. apríl 1971
segir Gylfi frá gangi mála þessa
örlagaríku daga og hvernig hann
kallaði á Einar Ólaf og Sigurð Nor-
dal til Kaupmannhafnar til halds og
trausts. Í nefndinni voru með Gylfa
dr. Gunnar Thoroddsen og Stefán
Jóh. Stefánsson.
Mín grein var eins konar svar við
grein Bents S. Koch í Morgun-
blaðinu 28. ágúst 1999, sem er hálf-
gert yfirklór og ber höfundur við
minnisleysi. En svo einkennilega vill
til, að faðir minn færði í tal við mig
þetta mál í París sumarið 1961 og
segi ég frá því í ofannefndri grein.
Hann hafði eitthvert hugboð um að
reynt yrði að segja frá atburðum
Kaupmannahafnarfundarins á ann-
an hátt en rétt var og hét á mig að
leiðrétta það. Ég geri það hér með í
annað sinn. Reyndar ofbauð Gylfa Þ.
Gíslasyni svo málatilbúnaður Kochs
um fund þeirra Sigurðar Nordals og
Jörgens Jörgensens, að hann skrif-
aði sérstaka grein í Morgunblaðið
19. ágúst 1999 og hrakti þar lið fyrir
lið umrædda frásögn. Við það er
engu að bæta og vonandi ætti spuni
Kochs þar með að vera úr sögunni.
Hitt er svo satt, að margir góðir
Íslendingar, karlar og konur, komu
að þessu máli og ber hverjum sín
þökk og að haft sé það sem sannara
reynist. Mörgum af þeim Dönum
sem veittu okkur lið kynntist ég ein-
mitt á heimili mínu, en líka þeim sem
voru okkur öndverðir.
Hér með er því skorað á utanrík-
isráðuneytið að sjá sóma sinn í að
fjarlægja umrædda færslu sem er
dagsett 25. ágúst 2020 í aðdraganda
fimmtíu ára afmælisins, eða flytja til
réttari vegar.
Eftir Svein
Einarsson » Faðir minn hafði
eitthvert hugboð um
að reynt yrði að segja
frá atburðum Kaup-
mannahafnarfundarins
á annan hátt en rétt var
og hét á mig að leiðrétta
það. Ég geri það hér
með í annað sinn.
Sveinn Einarsson
Höfundur er dr. phil. frá Háskóla
Íslands, leikstjóri og rithöfundur.
Tilmæli vegna handritamálsins
Í gær greindi
Umhverfisstofnun
frá nýjum los-
unartölum sem
sýna að á milli ár-
anna 2018 og 2019
dró úr losun gróð-
urhúsalofttegunda
á beinni ábyrgð
Íslands um 2%.
Þetta eru frábær-
ar fréttir. Sam-
dráttur frá árinu 2005 er 8%.
Samdráttinn milli 2018 og
2019 má m.a. rekja til minni
losunar frá vegasamgöngum,
urðun úrgangs og útblæstri
frá fiskiskipum. Hafa ber í
huga að þetta eru tölur frá því
fyrir kórónuveirufaraldurinn,
svo hann á ekki þátt í sam-
drættinum. Þetta sýnir okkur
að kyrrstaðan er liðin og sam-
dráttur í losun gróðurhúsa-
lofttegunda á Íslandi er haf-
inn, en þetta er mesti
samdráttur sem sést hefur í
losun síðan 2012. Fyrir mér
ber þetta þess skýrt vitni að
aðgerðir okkar og hugarfars-
breyting síðustu ára eru farin
að skila árangri.
Umhverfisþing
fer fram í dag
Loftslagsmálin eru á meðal
þess sem rætt verður á 12.
umhverfisþingi umhverfis- og
auðlindaráðuneytisins, sem ég
boðaði til og fram fer á
www.umhverfisthing.is í dag.
Öllum er velkomið að vera
með. Á þinginu verður einnig
rætt um náttúruvernd og
hringrásarhagkerfi en allt
þrennt hefur verið meðal þess
sem ég hef lagt hvað mesta
áherslu á í ráðherratíð minni.
- Aðgerðir í
loftslagsmálum
eru stærsta vel-
ferðar- og efna-
hagsmálið á
þessari öld. Þær
eru grundvöllur
fyrir því að geta
rétt af misskipt-
ingu og fé-
lagslegt óréttlæti
í heiminum og
stöðvað ósjálf-
bæra nýtingu
auðlinda okkar.
- Villt náttúra er á hröðu
undanhaldi í heiminum og
margar tegundir lífvera í út-
rýmingarhættu – þess vegna
hefur náttúruvernd og endur-
heimt vistkerfa aldrei verið
mikilvægari.
- Umskipti frá línulegu
hagkerfi yfir í hringrás-
arhagkerfi er svo það sem
samfélög um allan heim þurfa
að ráðast í af auknum krafti.
Við þurfum að búa þannig um
hnútana að vörur, hlutir og
efni haldi verðmæti sínu og
notagildi eins lengi og mögu-
legt er; við þurfum að end-
urnota, endurvinna, endur-
framleiða, gera við og deila.
Þannig stöndum við vörð um
auðlindir jarðar.
Á öllum þessum þremur
sviðum hafa verið stigin stór
skref fram á við á undan-
förnum árum en áskoranirnar
fram undan eru að sama skapi
mjög stórar.
Náttúru og umhverfi
í fyrsta sæti
Á umhverfisþingi í dag
býðst vettvangur til þess að
rökræða um það sem hefur
verið gert, en ekki síður að
nesta okkur fyrir ferðalagið
fram undan og ræða hvaða
skref við tökum næst í um-
hverfis- og náttúruverndar-
málum. Ég nefni nokkur
dæmi:
Markmið Íslands um sam-
drátt í losun gróðurhúsa-
lofttegunda voru um áramót
uppfærð úr 40% samdrætti til
ársins 2030 í 55% samdrátt.
En við þurfum að stefna enn
hærra.
Við þurfum að beita skatt-
kerfinu í þágu loftslagsins og
hringrásarhagkerfisins og sjá
til þess að það verði auðveld-
ara og ódýrara að gera við og
nýta það sem til er heldur en
að kaupa nýtt.
Við þurfum sérstaka áætlun
um vernd víðerna, sem óvíða
eru meiri en einmitt hér á Ís-
landi. Við eigum að vera
fremst í því að vernda náttúr-
una – verða Þjóðgarðalandið
Ísland. Og, við þurfum stefnu
um verndarsvæði í hafi.
Í rauninni mætti draga
þetta saman í þessa setningu:
Við þurfum að setja náttúruna
og loftslagið í fyrsta sæti. Á
því byggist velferð samfélags
okkar til framtíðar. Svo einfalt
er það.
Áhugasamir geta skráð sig á
www.umhverfisthing.is eða fundið
viðburðinn á Facebook; XII.
Umhverfisþing.
Eftir Guðmund
Inga Guð-
brandsson
» Á Umhverfisþingi
í dag býðst vett-
vangur til þess að
rökræða um það sem
hefur verið gert, en
ekki síður að nesta
okkur fyrir ferðalag-
ið fram undan
Guðmundur Ingi
Guðbrandsson
Höfundur er umhverfis- og
auðlindaráðherra.
Kyrrstaðan hefur verið
rofin á kjörtímabilinu