Morgunblaðið - 27.04.2021, Síða 16

Morgunblaðið - 27.04.2021, Síða 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 2021 Vetrarsól er umboðsaðili Sláttuvélar& sláttuorf Snjóblásarar Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is Gulltryggð gæði Sláttutraktorar 40 ár á Íslandi Í daglegu skóla- starfi undirritaðra kom oft upp í hugann hinn ævagamli máls- háttur: „Lengi býr að fyrstu gerð“. Það var augljóst að staða nemenda var misjöfn eins og við var að bú- ast. Áberandi var að nemendum leið mis- vel í því kerfi og starfi sem skólinn bauð þeim upp á. Ekki þarf að velta lengi vöngum yfir því hvort og hvernig líðan manna hefur áhrif á árangur í margvíslegu starfi. Börn og unglingar eru þar engin undantekning. Það gefur því auga- leið að nemendur verða ánægðari í skólunum eigi þeir kost á ríkulegu vali í námi sínu. Val nemenda þarf að vera mjög vel undirbúið og fara fram með þátttöku foreldra og um- sjónarkennara. Námsáætlanir Eðlilegt er að allir nemendur geri á hverju hausti skriflega áætl- un um framvindu námsins fyrir hvert skólaár og einnig lang- tímaáætlun fyrir næstu þrjú til fjögur ár. Þessar áætlanir væru unnar í samstarfi við foreldra og umjónarkennara. Með auknu vali og vönduðum námsáætlunum munu nemendur taka aukna ábyrgð á námi sínu og verða ánægðari með nám sitt og önnur störf í skólanum. Félagslíf nemenda Fjölbreytilegt félagslíf í hverjum skóla er lykilatriði fyrir nemendur. Börn og unglingar eru miklar fé- lagsverur og þurfa því að eiga að- gang að fjölbreyttu félagsstarfi í sínum skóla. Félagslífið þarf að vera sem mest í höndum nemenda sjálfra en alltaf innan þeirra reglna sem unglingar og skólar verða að lúta á hverjum tíma. Stefnumörkun Við höfum áður bent á hversu mikilvægt það er að láta skólana í fullu sjálfstæði sínu ákveða breyt- ingar þær sem gera þarf til að bæta líðan nemenda og árangur. Mikilvægt er að láta ekki einhvern „stóra bróður“ ákveða hvað gera skal. Stjórnendur og annað starfs- fólk skólanna eru sérfræðingar á sviði kennslu- og uppeldismála og því fær um að móta áherslur í skólastarfinu þannig að ýmissa leiða sé leitað til að nemendum líði sem best. Skóli í samfélagi Margar þjóðir hafa skapað og fest í sessi ákveðna og góða sam- vinnu foreldra og skóla á öllum skólastigum. Þetta er afar mikil- vægur þáttur í skólastarfinu. Skólastjórnendur og forystufólk foreldrafélaga eða samtaka þeirra þurfa að eiga samstarf um stöðu og hlutverk hvers skóla í samfélag- inu. Þar er skólastjóri í forystu til að leiða skólann með stuðningi for- eldra fram til þess að þjóna sam- félaginu á sem bestan veg. Víða um heim eru til „community schools“ á ýmsum skólastigum. Í Bandaríkjunum, svo dæmi sé tekið, eru þessir skólar víða og þá mætti kalla: skóla í samfélagi. Skólarnir leggja áherslu á einstaklingsmið- aða námskrá þar sem fjallað er um verkefni, lausnir og áskoranir sam- tímans. Þátttaka foreldra er mikil, markviss og vel skipulögð. Dæmi eru um að sérfræðingar í hópi for- eldra komi og haldi erindi um til- tekin mál, s.s. læknirinn sem kem- ur og ræðir ýmis heilsuverndarmál o.s.frv. Þá er og algengt að for- eldrar fylgist vel með rekstri skól- anna og hjálpi til við tekjuöflun. Góður skóli þrífst betur með virkri þátttöku foreldra í skólastarfinu og stuðningi þeirra á mörgum sviðum. Víðtæka samvinnu þarf til að ná helstu heimsmarkmiðum Samein- uðu þjóðanna um sjálfbæra þróun sem Ísland hefur tileinkað sér, s.s. menntun fyrir alla, jafnrétti kynjanna, heilsu og vellíðan. Með menntun fyrir alla er átt við að tryggja beri jafnan aðgang allra að góðri menntun og stuðla að tæki- færum allra til náms alla ævi. Eitt af undirmarkmiðunum er að eigi síðar en 2030 verði tryggt að öll ungmenni og stór hluti fullorðinna hafi náð tökum á lestri og skrift og öðlast talnaskilning. Hlutverk foreldra Þetta verkefni þarf að hefja snemma og þá komum við að hlut- verki foreldra og/eða náinna ætt- ingja hvers barns. Framsæknir uppeldisfræðingar telja hæfilegt að byrjað sé að lesa fyrir börn fljót- lega eftir fæðingu. Þeir allra hörð- ustu telja tímann rétt fyrir fæð- ingu heppilegan. Eftir reglulegan lestur hefst kynning á ævintýra- heimi bókanna, t.d. með skoðun mynda, útskýringum o.fl. Það gleymist oft að lítil börn hafa ótrú- lega næma skynjun. Eftir þetta byrja börn oft að spyrja um bók- stafina og velta þeim fyrir sér og í mörgum tilvikum vaknar áhugi á að byrja að lesa létta texta. Það skerpir mjög hugsunina. Þá er eðlilegt að tala reglulega við börn- in af fullri virðingu um nánast allt milli himins og jarðar. Í raun og veru lýkur þessu hlutverki aldrei, það tekur aðeins á sig breytta mynd. Þegar kemur að skólagöngu barns er mikilvægt að foreldrar kynni sér vel áherslur í skólastarf- inu, umhverfi og aðbúnað í skól- anum. Gott er þegar foreldrar stíga fljótt og fast fram í þessum efnum, kynna sér málin og styðja vel við skólann með ýmsum hætti. Góð og mikil samvinna skóla og foreldra styður við barnið, skólann og samfélagið. Sóknarfæri í skólamálum: Hlutverk skóla og foreldra Eftir Þorstein Þorsteinsson og Gunnlaug Sigurðsson »Einstaklingsmiðuð námskrá, fjallað er um áskoranir og lausnir samtímans þar sem samvinna skóla og for- eldra styður við barnið, skólann og samfélagið. Gunnlaugur Sigurðsson Höfundar eru fyrrverandi skólameistarar. thorsteinn2212@gmail.com Þorsteinn Þorsteinsson Þarftu að láta gera við? FINNA.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.