Morgunblaðið - 27.04.2021, Side 16
16 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 2021
Vetrarsól er umboðsaðili Sláttuvélar& sláttuorf
Snjóblásarar
Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is
Gulltryggð gæði
Sláttutraktorar
40 ár
á Íslandi
Í daglegu skóla-
starfi undirritaðra
kom oft upp í hugann
hinn ævagamli máls-
háttur: „Lengi býr að
fyrstu gerð“. Það var
augljóst að staða
nemenda var misjöfn
eins og við var að bú-
ast. Áberandi var að
nemendum leið mis-
vel í því kerfi og starfi sem skólinn
bauð þeim upp á. Ekki þarf að
velta lengi vöngum yfir því hvort
og hvernig líðan manna hefur áhrif
á árangur í margvíslegu starfi.
Börn og unglingar eru þar engin
undantekning. Það gefur því auga-
leið að nemendur verða ánægðari í
skólunum eigi þeir kost á ríkulegu
vali í námi sínu. Val nemenda þarf
að vera mjög vel undirbúið og fara
fram með þátttöku foreldra og um-
sjónarkennara.
Námsáætlanir
Eðlilegt er að allir nemendur
geri á hverju hausti skriflega áætl-
un um framvindu námsins fyrir
hvert skólaár og einnig lang-
tímaáætlun fyrir næstu þrjú til
fjögur ár. Þessar áætlanir væru
unnar í samstarfi við foreldra og
umjónarkennara. Með auknu vali
og vönduðum námsáætlunum
munu nemendur taka aukna
ábyrgð á námi sínu og verða
ánægðari með nám sitt og önnur
störf í skólanum.
Félagslíf nemenda
Fjölbreytilegt félagslíf í hverjum
skóla er lykilatriði fyrir nemendur.
Börn og unglingar eru miklar fé-
lagsverur og þurfa því að eiga að-
gang að fjölbreyttu félagsstarfi í
sínum skóla. Félagslífið þarf að
vera sem mest í höndum nemenda
sjálfra en alltaf innan þeirra
reglna sem unglingar og skólar
verða að lúta á hverjum tíma.
Stefnumörkun
Við höfum áður bent á hversu
mikilvægt það er að láta skólana í
fullu sjálfstæði sínu ákveða breyt-
ingar þær sem gera þarf til að
bæta líðan nemenda og árangur.
Mikilvægt er að láta ekki einhvern
„stóra bróður“ ákveða hvað gera
skal. Stjórnendur og annað starfs-
fólk skólanna eru sérfræðingar á
sviði kennslu- og uppeldismála og
því fær um að móta áherslur í
skólastarfinu þannig að ýmissa
leiða sé leitað til að nemendum líði
sem best.
Skóli í samfélagi
Margar þjóðir hafa skapað og
fest í sessi ákveðna og góða sam-
vinnu foreldra og skóla á öllum
skólastigum. Þetta er afar mikil-
vægur þáttur í skólastarfinu.
Skólastjórnendur og forystufólk
foreldrafélaga eða samtaka þeirra
þurfa að eiga samstarf um stöðu
og hlutverk hvers skóla í samfélag-
inu. Þar er skólastjóri í forystu til
að leiða skólann með stuðningi for-
eldra fram til þess að þjóna sam-
félaginu á sem bestan veg. Víða
um heim eru til „community
schools“ á ýmsum skólastigum. Í
Bandaríkjunum, svo dæmi sé tekið,
eru þessir skólar víða og þá mætti
kalla: skóla í samfélagi. Skólarnir
leggja áherslu á einstaklingsmið-
aða námskrá þar sem fjallað er um
verkefni, lausnir og áskoranir sam-
tímans. Þátttaka foreldra er mikil,
markviss og vel skipulögð. Dæmi
eru um að sérfræðingar í hópi for-
eldra komi og haldi erindi um til-
tekin mál, s.s. læknirinn sem kem-
ur og ræðir ýmis heilsuverndarmál
o.s.frv. Þá er og algengt að for-
eldrar fylgist vel með rekstri skól-
anna og hjálpi til við tekjuöflun.
Góður skóli þrífst betur með virkri
þátttöku foreldra í skólastarfinu og
stuðningi þeirra á mörgum sviðum.
Víðtæka samvinnu þarf til að ná
helstu heimsmarkmiðum Samein-
uðu þjóðanna um sjálfbæra þróun
sem Ísland hefur tileinkað sér, s.s.
menntun fyrir alla, jafnrétti
kynjanna, heilsu og vellíðan. Með
menntun fyrir alla er átt við að
tryggja beri jafnan aðgang allra að
góðri menntun og stuðla að tæki-
færum allra til náms alla ævi. Eitt
af undirmarkmiðunum er að eigi
síðar en 2030 verði tryggt að öll
ungmenni og stór hluti fullorðinna
hafi náð tökum á lestri og skrift og
öðlast talnaskilning.
Hlutverk foreldra
Þetta verkefni þarf að hefja
snemma og þá komum við að hlut-
verki foreldra og/eða náinna ætt-
ingja hvers barns. Framsæknir
uppeldisfræðingar telja hæfilegt að
byrjað sé að lesa fyrir börn fljót-
lega eftir fæðingu. Þeir allra hörð-
ustu telja tímann rétt fyrir fæð-
ingu heppilegan. Eftir reglulegan
lestur hefst kynning á ævintýra-
heimi bókanna, t.d. með skoðun
mynda, útskýringum o.fl. Það
gleymist oft að lítil börn hafa ótrú-
lega næma skynjun. Eftir þetta
byrja börn oft að spyrja um bók-
stafina og velta þeim fyrir sér og í
mörgum tilvikum vaknar áhugi á
að byrja að lesa létta texta. Það
skerpir mjög hugsunina. Þá er
eðlilegt að tala reglulega við börn-
in af fullri virðingu um nánast allt
milli himins og jarðar. Í raun og
veru lýkur þessu hlutverki aldrei,
það tekur aðeins á sig breytta
mynd. Þegar kemur að skólagöngu
barns er mikilvægt að foreldrar
kynni sér vel áherslur í skólastarf-
inu, umhverfi og aðbúnað í skól-
anum. Gott er þegar foreldrar
stíga fljótt og fast fram í þessum
efnum, kynna sér málin og styðja
vel við skólann með ýmsum hætti.
Góð og mikil samvinna skóla og
foreldra styður við barnið, skólann
og samfélagið.
Sóknarfæri í skólamálum: Hlutverk skóla og foreldra
Eftir Þorstein
Þorsteinsson og
Gunnlaug
Sigurðsson
»Einstaklingsmiðuð
námskrá, fjallað er
um áskoranir og lausnir
samtímans þar sem
samvinna skóla og for-
eldra styður við barnið,
skólann og samfélagið.
Gunnlaugur
Sigurðsson
Höfundar eru fyrrverandi
skólameistarar.
thorsteinn2212@gmail.com
Þorsteinn
Þorsteinsson
Þarftu að láta
gera við?
FINNA.is