Morgunblaðið - 27.04.2021, Page 19

Morgunblaðið - 27.04.2021, Page 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 2021 ✝ Guðbjörg Guð- mundsdóttir fæddist í Grafar- nesi við Grundar- fjörð 17. desember 1941. Hún lést á Landspítalanum 16. apríl 2021. Foreldrar henn- ar voru Guð- mundur Bjarnason, f. 19. október 1902, d. 4. janúar 1951, og Guðrún Kristín Björnsdóttir, f. 24. maí 1914, d. 17. apríl 1981. Alsystkin Guðbjargar heita Herdís Bjarney, f. 12. júlí 1935, d. 28. maí 2018, Björn Jóhann- es, f. 13. september 1936, d. 7. janúar 1991, Lárus Lárberg, f. 7. október 1938, Jósefína Þór- 1934, d. 27. október 2010. Börn þeirra eru Herdís, f. 1. júlí 1968, og Bjarni, f. 11. febrúar 1972. Börn Jóns af fyrra hjóna- bandi eru Sigríður Björg, f. 16. júlí 1953, Hjördís, f. 30. júlí 1954, Gyða, f. 27. febrúar 1955, d. 25. október 1957, Bryndís Gyða, f. 14. maí 1957, d. 29. júlí 2006, Victor Ívar, f. 13. febrúar 1959, og Kristján Páll, f. 3. maí 1964. Stjúpdóttir Jóns heitir Kolbrún Jónsdóttir, f. 8. júlí 1951. Guðbjörg ólst upp í Grund- arfirði og í Reykjavík. Hún lauk námi frá Fóstruskóla Sumar- gjafar og starfaði sem leik- skólakennari og leikskólastjóri lengst af í Reykjavík. Útför Guðbjargar fer fram frá Langholtskirkju í dag, 27. apríl 2021, og hefst athöfnin klukkan 13. Streymt verður frá athöfninni: https://www.skjaskot.is/gudbjorg Streymishlekk má finna á: https://www.mbl.is/andlat dís, f. 26. ágúst 1943, Ólafur Krist- jón, f. 12. júlí 1946, Kristján Elberg, f. 31. október 1944, Jóna Guðrún, f. 31. desember 1947, og Guðmundur Gunn- ar, f. 26. apríl 1950. Hálfsystkin sam- mæðra eru Ólafur Hans Ólafsson, f. 19. september 1954, og Ingibjörg Áslaug Ólafsdóttir, f. 30. júní 1956. Guðbjörg giftist 1965 Sigurði Lárusi Einarssyni. Þau skildu. Barn þeirra er Einar Vignir, f. 2. nóvember 1964. Sambýlis- maður Guðbjargar var Jón Ant- on Björgvin Ström, f. 19. júní Nú er mikið skarð fyrir skildi því þann 16. þ.m. andaðist elsku- leg systir mín Guðbjörg Guð- mundsdóttir. Hún var fædd í Grundarfirði (sem þá hét Graf- arnes) 17. desember 1941, fjórða barn þeirra hjóna Guðrúnar Björnsdóttur og Guðmundar Bjarnasonar. Gugga (eins og hún var ávallt kölluð) ólst upp í Grundarfirði og að sumarlagi í Neðri-Lá, jörð í eigu foreldra okkar. Hún fór snemma að heiman til Reykja- víkur, aðeins 15 eða 16 ára göm- ul. Hún var einstaklega lagin með börn og fór fljótlega að vinna með börnum. Það lá því beinast við að hún gerði það að sínu ævistarfi sem og hún gerði. Hún stundaði nám við Fóstur- skóla Sumargjafar (sem breytt var í Fósturskóla Íslands 1973). Hún vann síðan alla tíð sem fóstra (sem nú heitir leikskóla- kennari) og stýrði leikskóla um margra ára skeið. Gugga var skarpgreind. Hún var orðin allæs 5 ára gömul og var alla tíð mikill bókaormur og víðlesin. Það var unun að eiga við hana samræður um bókmenntir og alla mögulega hluti. Hún var hæglát og mikið ljúfmenni. Hún hafði ákveðnar skoðanir en var alltaf mjög sanngjörn í ummæl- um sínum um annað fólk. Gugga var mikill dugnaðar- forkur og féll aldrei verk úr hendi. Hún var einstaklega handlagin og lagði nánast aldrei frá sér prjónana. Annáluð eru sauma- og prjónaverk hennar sem voru og eru hreinustu lista- verk. Við Gugga systir mín vorum alla tíð miklir mátar. Hún var einstaklega góð við börnin mín og fastur gestur í afmælum þeirra, þá gjarnan færandi þeim listilega gerðar prjónaflíkur. Hjá mér og mínum verður hennar sárt saknað. Ég færi börnum hennar, barnabörnum, barnabarnabörn- um og fósturbörnum mínar inni- legustu samúðarkveðjur. Kristján E. Guðmundsson Guðbjörg Guðmundsdóttir, Gugga Frænka. Gugga Frænka var frænka með stóru F-i. Hún var mátt- arstólpi eða einhvers konar hornsteinn í stórum systkinahópi föður míns. Pabbi minn á mörg systkini, svo mörg að ég man aldrei hvort þau eru 11 eða 13. Ég þarf alltaf að fara í gegnum rununa til að fullvissa mig um fjöldann. Gugga er þar á sérstökum stalli. Þegar „fyrsti stúdentinn í Eyrarsveit“, hann pabbi, kynnti okkur mömmu til leiks voru ekki allir neitt sérstaklega hrifnir. Konu með lausaleikskróga eins og það var stundum orðað þá. Kannski var það bara föðuramma mín, Gunna Björns, hún var ekki spennt en hún var líka þekkt fyr- ir sérvisku og dyntótt geðslag. Árið 1979 fóru mamma og pabbi til Noregs og á meðan vor- um við systurnar sendar í pössun í Grundarfjörð. Ilmur til ömmu Gunnu en ég til Guggu. Ég rölti fimm ára að heimsækja krakk- arassinn í Sæbólið. Það fór ekki betur en svo að mér var hent þaðan út með skít og skömm. Ekki vissi ég hvað ég hafði af mér gert og gekk niðurlút aftur í Fossahlíðina. Þar tók Gugga á móti mér og sá um leið að eitt- hvað mikið var að. Hún hellti mjólk í glas og setti mig við eld- húsborðið og hóf að rekja úr mér garnirnar. Ég man að fæturnir dingluðu fram af stólnum og mjólkurkexið var himneskt á bragðið. Henni tókst fljótt að draga upp úr mér hvað hafði gerst. Þá bað hún mig að sitja áfram og maula kex, hún þyrfti aðeins að skreppa. Gugga lét þá gömlu heyra það og sneri til baka með Ilmi sem var það sem eftir var vistar í Fossahlíðinni. Þarna varð mér ljóst að Gugga yrði minn klettur í föðurfjöl- skyldunni. Hún stóð með mér öllum stundum og fyrir það mun ég aldrei geta þakkað henni nóg- samlega. Með allri sinni hlýju, húmor og ást bjó hún mér skjól sem ég hef sótt í æ síðan. Mín fyrsta minning um Guggu er ég hjúfrandi mig upp að henni inni í stofu í Fossahlíðinni í Grundarfirði í brúnu pluss-sófa- setti og hún að sjálfsögðu með prjóna í hendi. Fossahlíðin í Grundó og Lág með Guggu eru dýrmætar æskuminningar; sniglast í kringum Jón við smíð- ar, sparka í bolta með Bjarna, elta Herdísi, fara í Lág, gera að silungi, sækja vatn, tína ber, veiða flugur úr gluggunum og hlusta á útvarpið. Stundum allt að því ljóðrænar stundir þar sem tíminn stóð næstum kyrr. Gugga gerði líka nokkrar tilraunir til að kenna mér sæmilega handavinnu og það sem ég þó kann er henni að þakka. Á hverju hausti hringdi Gugga og boðaði komu sína í kaffi. Hún kom klyfjuð af gersemum. Fal- legum peysum, vettlingum, sokkum, húfum og alls kyns nýj- ungum úr handavinnuheiminum til að gefa mér og börnunum mínum. Það var hennar háttur að undirstrika kærleika og ást gagnvart okkur og það verður heldur ekki þakkað nóg. Gugga var Frænka sem mér finnst að ætti að vera eilíf en það á víst ekki við um neitt okkar. Far vel elsku Frænka mín og takk fyrir mig og mína. Mikið sem við elskuðum þig. Kæru Einar, Herdís, Bjarni, Kiddi og fjölskyldur. Mínar dýpstu samúðarkveðjur. Lísa Kristjánsdóttir, Úlfur, Freyja og Hallgerður. Í dag kveðjum við Guggu frænku, frænkuna góðu sem ætíð var einhvers staðar nálæg eða ínáanleg. Hún var ekki frænka mín vegna skyldleika, en Bjarni maðurinn minn og hún voru systkinabörn og tengda- móðir mín hún Sigga Bjarna var föðursystir hennar, þar með var hún „Gugga frænka“ okkar allra á Langó - auðvitað. Hún bjó á Langó um tíma þegar hún var í Fósturskólanum og ég minnist stundanna þegar við tvær lágum á gólfinu og bösl- uðum við að þýða barnasálfræði úr dönsku, öll óskiljanlegu löngu orðin, en þetta dugði; fóstrunám- inu lauk hún með glæsibrag og starfaði við það æ síðan. Þær frænkurnar, hún og Sigga saumakona, undu sér löngum við handavinnu af öllum sortum. Allt lék í þeirra höndum, hvort sem um var að ræða kjóla- saum, útsaum, prjónles eða hvaðeina. Og hvílíkir snillingar voru þær. Þegar börnin mín Ragnar og Sigga Rósa komu til skjalanna stóð ekki á Guggu, hún umvafði þau og hvergi undu þau sér bet- ur en með henni, sérstaklega á það við um Ragnar, sem bók- staflega mátti ekki af henni sjá fyrstu æviárin. Þegar svo Einar var kominn til skjalanna gat ég endurgoldið henni barnfóstrið að einhverju leyti. Þegar þau Jón fluttu í Grund- arfjörð hélt sambandið áfram og var tengdamóðir mín hjá þeim oft bæði lengri og skemmri tíma og Sigga Rósa var þar heilt sum- ar. Þaðan streymdi nú prjónlesið og fínu stykkin öll. Þar bættust líka við þrjú börn, þau Kiddi, Herdís og Bjarni. Þegar svo fjöl- skyldan flutti suður fór Gugga á barnavaktina í Holtaborg … og lífið hélt áfram. En nú er lífinu lokið, hún Gugga okkar er farin yfir í sum- arlandið. Ég trúi að hún sé búin að fitja upp á enn einni flíkinni. Ég og mín fjölskylda þökkum af alhug vináttuna, alla gæskuna og dillandi hláturinn. Við kveðj- um frænkuna góðu. Vertu sæl elsku Gugga, hafðu þökk fyrir allt og allt. Sjöfn Ingólfsdóttir, Ragnar og Sigríður Rósa. Guðbjörg Guðmundsdóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞÓRUNN K. JÓNSDÓTTIR, Svarthömrum 68, Reykjavík, sem lést sunnudaginn 18. apríl, verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju fimmtudaginn 29. apríl klukkan 15. Vegna fjöldatakmarkana verða einungis nánustu aðstandendur viðstaddir. Útförinni verður streymt á: https://youtu.be/2SSHBv-bSKI. Jóna G. Ragnarsdóttir Ísak J. Ólafsson Álfhildur S. Jóhannsdóttir Þórarinn Gunnarsson Gunnar Þ. Jóhannsson Þóra Egilsdóttir Guðmundur I. Jóhannsson Kristjana Ó. Birgisdóttir barnabörn og barnabarnabörn Yndisleg mamma okkar, tengdamamma, amma, langamma og langalangamma, RAGNHEIÐUR AÐALGUNNUR KRISTINSDÓTTIR, Dvalarheimilinu Hlíð Akureyri, sem lést fimmtudaginn 15. apríl, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju miðvikudaginn 28. apríl klukkan 13. Í ljósi aðstæðna verða einungis nánustu fjölskyldumeðlimir viðstaddir athöfnina, en útförinni verður streymt á Facebook, Jarðarfarir í Akureyrarkirkju – beinar útsendingar. Reynir Heiðar Antonsson Jóna Kristín Antonsdóttir Þorsteinn Rútsson Ragnheiður Antonsdóttir Arndís Antonsdóttir Ólafur Ragnar Hilmarsson Börkur Antonsson Janne Antonsson barnabörn og allir aðrir afkomendur Yndislega sambýliskona mín, systir, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, ELSA JÓHANNA GÍSLADÓTTIR sjúkraliði, lést sunnudaginn 11. apríl. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði fimmtudaginn 29. apríl klukkan 15. Einungis verða nánustu aðstandendur og vinir viðstaddir. Hlekk á streymi verður hægt að nálgast með að senda póst á netfangið hanna1962@gmail.com degi fyrir útför. Þórður Marteinn Adólfsson Sigurður Hilmar Gíslason Gísli Már Jónsson Hjörtur Gísli Jónsson Leslie Costello Jóhanna Sigrún Jónsdóttir Emil Hörður Emilsson Haraldur Thorlacius Elín Rut Einarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær sonur minn og bróðir okkar, GUNNAR ÁSÞÓRSSON, lést fimmtudaginn 22. apríl. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 30. apríl klukkan 10. Ólafía S. Brynjólfsdóttir Brynjólfur Ásþórsson Ólafur Sigurðsson Bryndís H. Sigurðardóttir Margrét G. Sigurðardóttir Sigurður G. Sigurðsson Magdalena M. Sigurðardóttir Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BRYNJAR KARL STEFÁNSSON, lést á Hraunbúðum í Vestmannaeyjum þriðjudaginn 20. apríl. Útförin fer fram í Landakirkju í Vestmannaeyjum föstudaginn 30. apríl klukkan 13. Streymt verður frá athöfninni á vefnum landakirkja.is. Óskar Freyr Brynjarsson Ólafía Birgisdóttir Dóra Kristrún Brynjarsdóttir Magnús Matthíasson Davíð Þór Óskarsson Birna Vídó Þórsdóttir Ester Óskarsdóttir Magnús Stefánsson Brynjar Karl Óskarsson Sandra Gísladóttir Katrín Ósk Magnúsdóttir Katla María Magnúsdóttir og barnabarnabörn Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, HELGA HALBLAUB, Vesturbergi 75, lést á hjúkrunarheimilinu Grund laugardaginn 24. apríl. Jarðarförin verður auglýst síðar. Bjarni Hannesson Elfar Bjarnason Anna Laxdal Þórólfsdóttir Vignir Bjarnason Lyanne Ridderhof Skúli Bjarnason Sigrún Ingadóttir Aron Bjarnason Elísabet Þórisdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, ELÍSABETH ÓSK ELLERUP, Sólvangsvegi 1, Hafnarfirði, lést þriðjudaginn 20. apríl. Útför hennar fer fram frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði fimmtudaginn 29. apríl klukkan 13. Streymt verður frá útförinni á slóðinni: https://youtu.be/tp6yPbNV49U. Jóhann Óskar Borgþórsson Arnfríður Arnardóttir Stefán Þór Borgþórsson Gunnhildur I. Georgsdóttir og barnabörn Á kveðjustund langar mig í fáum orðum að þakka gamalli vinkonu, Kristínu, fyrir góð- ar samverustundir hér á árum áður, bæði í gegnum félagsstörf geislafræðinga og ýmislegt ann- að, eins og eftirminnilega af- mælisferð til Hollands. Var gaman að þræða saman lista- söfnin í Amsterdam. Kristín var Kristín Vilborg Haraldsdóttir ✝ Kristín fæddist 11.4. 1945. Hún lést 1.3. 2021. Útför hennar var gerð í kyrrþey. mjög vel að sér í hverskonar listum – mikill listunnandi. Kristín var af- bragðskokkur. Naut ég góðs af því þegar Anna, dóttir mín, fermdist og Kristín tók að sér að sjá um veisluna. Kristín var tryggur vinur, sem hún sýndi m.a. með því að hringja alltaf reglulega í mig, rétt til að minna á að vin- áttan væri alltaf til staðar. Fyrir það ber að þakka. Hvíl í friði vinkona kær. Helga Magnúsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.