Morgunblaðið - 27.04.2021, Qupperneq 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 2021
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Nærvera öfundsjúkrar manneskju
þreytir þig, enda getur þú ekki verið þú
sjálf/ur í kringum hana. Langi þig í ein-
hvern hlut skaltu hinkra við og sjá svo til,
hvort hann er enn þá ómissandi eftir tvo
daga.
20. apríl - 20. maí +
Naut Sjaldan er ríkari ástæða til að gæta
heilsu sinnar en þegar streitan er í al-
gleymingi. Vertu opin/n fyrir nýjungum.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Þú ættir að byggja meira á
innsæi þínu þegar þú ræðst til atlögu við
flókin verkefni. Byrjaðu á að taka til í gömlu
dóti.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Himintunglin beina sjónum þínum
að samvisku sinni. Sinntu því sem þér ber
og þá muntu fá þín tækifæri þegar þar að
kemur.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Samskipti þín við maka þinn verða líf-
leg og skemmtileg í dag. Fólk og tækifæri
sogast að þér. Ýttu áhyggjum burt.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Gættu þess að teygja þig ekki of
langt eða lofa upp í ermina á þér í dag,
einkum og sér í lagi í sambandi við börn.
Njóttu litlu hlutanna.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Fólk virðist þrasgjarnt í dag en sýnir í
raun bara ýtni. Hvatning frá nokkrum vin-
um virkar eins og plástur á sárið á sál-
artetrinu.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Stattu af þér storminn og þá
munt þú standa uppi sem sigurvegari. Allt
hefur sinn tíma. Ekki leggjast í leti.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Þú álítur þig hafa þrjá eða fjóra
valkosti en í raun eru þeir margfalt fleiri ef
að er gáð.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Frelsi þitt skiptir þig gríðarlega
miklu máli. Lífið batnar ekki óvart, maður
þarf að halda fast í taumana á leið sinni að
takmarkinu.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Þótt þig langi að hafa hönd í
bagga með öðrum, þá eru þeirra mál
stundum utan og ofan við þitt færi. Vinir
þínir bíða eftir heimboði.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Þú hefur margt að gefa þeim mál-
stað, sem þú vilt berjast fyrir. Passaðu þig
á því að safna ekki of miklu dóti sem þú
hefur ekkert við að gera.
bara tíu ára var ég farinn að vinna á
lítilli dráttarvél heima, en í dag myndi
maður aldrei setja krakka upp á þess-
ar vélar, sem eru miklu stærri og öfl-
ugri. Annað sem hefur breyst er að
núna er ég bara einn í heyskapnum
og allt hey sett í plastaðar rúllur og í
góðri tíð er ég kannski 2-3 vikur í
heyskapnum. Í gamla daga var öll
stórfjölskyldan saman í heyskapnum
og oft unnið dögum saman við að ná
heyinu í hús. Það var verið að slá,
arhringinn. En þar sem við Rósa er-
um með ung börn, þá getum við ekki
staðið í þessu allan sólarhringinn ein,
en við erum svo heppin að sonur
minn, Björn, kemur til okkar sem
næturvörður á þessu tímabili sem er
ómetanleg aðstoð.“
Guðmundur segir búskaparhætt-
ina hafa breyst svo mikið á sinni ævi
að það sé í raun ótrúlegt. „Það er ekki
hægt að líkja þessu saman, því í dag
er allt gert með vélum. Þegar ég var
G
uðmundur Bergur Þórð-
arson fæddist 27. apríl
1961. Hann hefur búið
alla tíð á bænum
Hnappavöllum 4 í Öræf-
um og segir að það hafi alltaf legið
fyrir að hann yrði bóndi og tæki við
búi foreldra sinna. „Hér var gott að
alast upp. Hnappavellir eru fjórar
jarðir og á öllum bæjunum voru börn
á svipuðu reki svo það var oft mikið
fjör. Á veturna renndum við okkur á
heimasmíðum snjósleðum og svo vor-
um við mikið á skautum á veturna,“
segir Guðmundur. Á sumrin voru
krakkarnir að hjálpa til við störfin yf-
ir daginn, en þau hittust oft við leik á
björtum sumarkvöldunum.
Guðmundur gekk í skóla á Hofi,
sem í dag heitir Hofgarður. „Við vor-
um nokkur í skólanum héðan úr sveit-
inni fram að tólf ára aldri, en þá fór-
um við á heimavistina í Nesjaskóla,
sem er rétt fyrir utan Höfn í Horna-
firði. Það var svolítið erfitt að fara að
heiman svona ungur, og fyrra árið
fórum við bara heim tvisvar í mánuði,
en eftir að skólabíllinn kom fengum
við að fara heim um helgar seinna ár-
ið.“ Þetta voru mikil viðbrigði að fara
að heiman, en hann á samt góðar
minningar úr skólanum.
„Ég vann í nokkur ár á Höfn, bæði
í fiski og í Loðnubræðslunni áður en
ég tók við búinu. Þegar ég var í fiski
voru engar vaktir, bara unnið meðan
menn gátu staðið í lappirnar og oft
mikil uppgrip, en í Loðnubræðslunni
voru vaktir og skipulögð frí, svo það
var talsvert öðruvísi.“ Hann segir að
það hafi verið ansi algengt að bændur
í sveitinni færu á vertíðir. „Pabbi fór
á nokkrar vertíðir í Vestmannaeyjum
þegar hann var ungur maður, og ef
það var nægur mannskapur á bæj-
unum var tækifærið gripið. Þetta
voru jú undirstöðuatvinnuvegir þjóð-
arinnar og lífið snerist um kjöt og
fisk.“
Um tíma var Guðmundur með
bleikjueldi samfara sauðfjárræktinni,
en einbeitir sér núna alfarið að
fjárbúskapnum. Núna er helsta ver-
tíðin, sauðburðurinn, að byrja á bæn-
um og þegar komin þrjú lömb. „Um
mánaðamótin hefst sauðburðurinn af
fullum þunga og þá er vakað allan sól-
snúa heyi, setja í bagga og raka og
allir sem vettlingi gátu valdið voru úti
á túni.“
Ungmennafélagið lék stórt hlut-
verk í félagslífi sveitarinnar fyrr á ár-
um og voru haldin spilakvöld og aðrar
skemmtanir en dregið hefur úr því á
síðustu árum. „Það er ein stór árshá-
tíð haldin sem allir mæta á, en annars
er ekki mikið um skipulagðar sam-
komur.“ Guðmundur segir að oft hafi
verið talað um flótta úr sveitunum á
mölina, og víst er að færri nemendur
eru í skólanum á Hofgarði en áður
var, því aðeins tvö börn eru í skól-
anum. „Leikskólinn er samt stærri og
ég er ekki frá því að unga fólkið sé að
leita aftur í sveitirnar, en þá eingöngu
í ferðaþjónustuna en ekki í hefðbund-
inn búskap. Það er náttúrlega ekki að
marka alveg síðasta ár því þetta
ástand hefur hægt á öllu. Ég held
samt að þau fyrirtæki sem ná að
halda sér á floti í gegnum ástandið
eigi eftir að blómstra aftur.“
Á sömu nótum telur hann að sum-
arið verði gott. „Maður hefur eigin-
lega ekki fengið almennilegt vor í
mörg ár, en ég held að sumarið verði
fínt. Maður verður allavega að vona
það.“ Hann segist ekki búast við öðru
en að vera í fjárhúsunum að sinna
Guðmundur Bergur Þórðarson bóndi – 60 ára
Fjölskyldan Hér er fjölskyldan samankomin, en Júlía Mist, yngsta barnið, var á leiðinni í heiminn og fæddist stuttu
eftir að myndin var tekin. Frá vinstri: Birgitta, Írena, Þórður, Björn, Embla, Rósa, Guðmundur og Salín Katrín.
„Ég held að sumarið verði fínt“
Barnamyndin Hér er Guðmundur
ungur að árum að leika sér.
Í fjárhúsinu Yngstu börnin Þórður
Breki og Júlía Mist Guðmundarbörn.
Til hamingju með daginn
50 ÁRA Anna María fæddist í Keflavík 27. apríl 1971 og ólst upp í Njarðvík
og gekk í Njarðvíkurskóla. Hún var í Tónlistarskóla Njarðvíkur og spilaði á
klarínett í Lúðrasveit skólans. Um tvítugt flutti hún í Garðabæinn og ári síð-
ar til Kaupmannahafnar þar sem hún var í tvö ár. Þegar heim kom flutti hún
aftur í Garðabæinn, fór í Iðnskólann og útskrifaðist með meistararéttindi í
hárgreiðslu árið 1995. „Ég söðlaði um og hóf nám í Fósturskóla Íslands árið
1997 og útskrifaðist með B.Ed.-gráðu í leikskólakennarafræðum frá KÍ árið
2001. Ég starfaði í 15 ár í Kjarrinu í Garðabæ sem var einkarekinn leikskóli
en árið 2012 hóf ég störf á leikskólanum Hæðarbóli í Garðabæ, þar sem ég er
m.a. verkefnastjóri tónlistar, kenni tónlist og stýri barnakór skólans. Mér
finnst ofboðslega gaman að vinna í gegnum tónlist með börnum.“ Anna
María hefur sungið í Kvennakór Garðabæjar í 20 ár eða frá því að hún út-
skrifaðist. „Síðan stunda ég almenna útivist af kappi, geng á fjöll, stunda golf
og stangveiði með fjölskyldunni og hundunum okkar tveimur.“
FJÖLSKYLDAN Eiginmaður Önnu Maríu er Gunnar Jóhannesson, f. 15.2.
1968, sérfræðingur og meðeigandi Arctica Finance. Börn þeirra eru Ásdís
Björk stjórnmálafræðingur, f. 22.2. 1993; Jóhannes Birkir jarðfræðinemi, f.
8.8. 1996 og Guðrún Ágústa, söng- og menntaskólanemi, f. 7.8. 2003. For-
eldrar Önnu Maríu eru hjónin Sigurjón Torfason frá Miðhúsum í Garði, f.
1944 og Ágústa Guðmundsdóttir úr Njarðvík, f. 1950.
Anna María Sigurjónsdóttir
Við gosið Fjölskyldan fór
að skoða eldgosið í Geld-
ingadölum. Fv.: Gunnar,
Ásdís Björk, Jóhannes
Birkir, Anna María og
Guðrún Ágústa.