Morgunblaðið - 27.04.2021, Side 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 2021
Nomadland, kvikmynd kínverska
leikstjórans Chloé Zhao, stóð uppi
sem sigurvegari Óskarsverðlaun-
anna sem veitt voru aðfaranótt
mánudags í Los Angeles. Verðlaun-
in eru veitt út frá kosningu nefndar-
manna Bandarísku kvikmyndaaka-
demíunnar, Academy of Motion
Picture Arts, sem eru yfir níu þús-
und talsins. Nomadland hlaut þrenn
verðlaun: fyrir bestu kvikmynd,
leikstjórn og aðalleikkonu og varð
Zhao önnur konan í sögu verð-
launanna til að hljóta leikstjórn-
arverðlaunin og einnig sú fyrsta as-
íska. Verðlaunin hafa nú verið veitt
93 sinnum og hefur því heldur betur
hallað á kvenleikstjóra í sögu þeirra.
Tveir Íslendingar voru meðal til-
nefndra, Eggert Ketilsson sem var
listrænn stjórnandi við gerð leik-
myndar Tenet og Gísli Darri Ólafs-
son sem skrifaði handrit að og leik-
stýrði stuttu teiknimyndinni
Já-fólkið. Tenet var tilnefnd fyrir
bestu leikmynd en verðlaunin hlaut
Mank og ein til viðbótar, fyrir bestu
kvikmyndatöku. Verðlaun sem besta
stutta teiknimyndin hlaut If Any-
thing Happens.
Íslandstengingar voru fleiri því
lagið „Húsavík“ úr Eurovision-grín-
mynd Wills Ferrells var tilnefnt sem
besta frumsamda lagið en laut í
lægra haldi fyrir lagi tónlistarkon-
unnar H.E.R., „Fight for You“, úr
Judas and the Black Messiah. Húsa-
vík fékk engu að síður frábæra
kynningu með fallegu myndbandi
við lagið sem tekið var í bænum með
söngkonunni Molly Sandén og kór
íslenskra stúlkna í lopapeysum.
Stóðu þær sig eins og hetjur og hef-
ur eflaust mörgum Óskars-áhorf-
endum vöknað um augu yfir nátt-
úru- og æskufegurð Húsavíkur. Og
ekki var söngurinn síðri.
Drykkja sú besta
Af leikurum hlutu verðlaun fyrir
aðalhlutverk hin bandaríska
Frances McDormand fyrir Nomad-
land og hinn velski Anthony Hopk-
ins fyrir The Father. Hopkins er
orðinn 83 ára og sló aldursmet í
þessum verðlaunaflokki. Í þakkar-
ræðu hvatti McDormand alla til að
fara í bíó og sjá hinar tilnefndu kvik-
myndir en Hopkins var fjarri góðu
gamni og tókst ekki heldur að hafa
uppi á honum til að tilkynna honum
um verðlaunin.
Fyrir aukahlutverk hlutu verð-
laun suðurkóreska leikkonan Yuh-
Jung Youn fyrir Minari og Daniel
Kaluuya fyrir Judas and the Black
Messiah en Youn er fyrsta kóreska
konan sem hlýtur þessi verðlaun.
Þótti mörgum kvikmyndarýnum og
-blaðamönnum skrítið að hlutverk
Kaluuya væri skilgreint sem auka-
hlutverk þar sem hann leikur eina af
aðalpersónum myndarinnar en
skýringin er væntanlega sú að fram-
leiðendum hefur þótt hann eiga
meiri möguleika á verðlaunum ef
svo væri. Virðist það hafa verið rétt
ágiskun.
Frændur okkar Danir hömpuðu
verðlaunum fyrir bestu alþjóðlegu
myndina en þau verðlaun hétu áður
besta erlenda kvikmyndin. Druk,
eða Drykkja, kvikmynd Thomasar
Vinterbergs, varð fyrir valinu og í
þakkarræðu tileinkaði hann verð-
launin dóttur sinni sem lést fjórum
dögum eftir að tökur hófust, aðeins
19 ára.
My Octopus Teacher hlaut verð-
laun sem besta heimildarmyndin og
Soul fyrir bestu teiknimynd í fullri
lengd.
Meiri fjölbreytni
Óskarsverðlaunin hafa hin síðustu
ár verið harðlega gagnrýnd fyrir
einsleitni þegar kemur að tilnefn-
ingum og þá bæði hvað varðar kyn
og kynþætti tilnefndra. Hefur þótt
halla mjög á þeldökka leikara og
konur en verðlaunin í ár voru skref í
rétta átt, eins og bent er á í umfjöll-
un The New York Times. Sjötíu
konur voru tilnefndar í 23 verð-
launaflokkum og níu þeldökkar
manneskjur eða af öðrum litarhætti
en hvítum. Í annað sinn í sögu verð-
launanna voru tvær þeldökkar kon-
ur tilnefndar sem besta leikkonan,
þ.e. Viola Davis og Andra Day. Og
Hopkins var ekki einn um að slá
aldursmet því Ann Roth hlaut verð-
laun fyrir bestu búningahönnun.
Hún er 89 ára og elsta konan sem
hlotið hefur Óskarsverðlaun í 93 ára
sögu þeirra.
Trent Reznor og Atticus Ross
hlautu verðlaunin fyrir bestu frum-
sömdu tónlistina, við teiknimyndina
Soul og í handritaflokki hlutu verð-
laun Emereld Fennell fyrir það
besta frumsamda, fyrir kvikmynd-
ina Promising Young Woman og
Christopher Hamton og Florian
Zeller fyrir handrit skrifað upp úr
áður útgefnu efni, fyrir Sound of
Metal.
Heildarlista verðlaunahafa má
finna víða á netinu og þá m.a. á vef-
síðu verðlaunanna, oscars.com.
helgisnaer@mbl.is
Akademían kaus Nomadland
- Kvikmynd Chloé Zhao hlaut Óskarinn sem besta myndin, fyrir bestu leikstjórn og bestu leikkonu í
aðalhlutverki - Eggert og Gísli hlutu ekki verðlaun - Tvö aldursmet verðlaunahafa slegin
Þau fyrstu Emerald Fennell hlaut sín fyrstu Óskarsverðlaun fyrir besta
frumsamda handrit, að kvikmyndinni Promising Young Woman.
Verðlaunaður Leikarinn Daniel Kaluuya hlaut verðlaun sem besti leikarinn
í aukahlutverki fyrir leik sinn í Judas and the Black Messiah.
Sú besta Danski leikstjórinn Thomas Vinterberg með verðlaunin fyrir
bestu alþjóðlegu kvikmyndina, Druk, sem hlotið hefur fjölda verðlauna.
AFP
Gleði Leikkonan Frances McDormand og Chloe Zhao, leikstjóri Nomadland, hæstánægðar með Óskarana sína.
Hún Tónlistarkonan H.E.R. hlaut verðlaun fyr-
ir besta frumsamda lagið, Fight for You.
Best Hin suðurkóreska Yuh-Jung Youn hlaut verðlaun sem
besta leikkona í aukahlutverki fyrir leik sinn í Minari.
Smiðjuvegi 34 • gul gata Kópavogi • biljofur@biljofur.is
Viðgerðir // Bilanagreining // Varahlutir // Smurþjónusta
544 5151tímapantanir
Rótgróið fyrirtæki, starfrækt frá 1992
Sérhæfð þjónusta fyrir
Allar almennar BÍLAVIÐGERÐIR
Bíljöfur ehf er stoltur aðili að kynna
aðgerðir ríkisstjórnarinnar
ALLIR VINNA sem felur í sér
endurgreiðslu á VSK
af vinnulið einkabifreiða
Förum yfir bifreiðar fyrir aðalskoðun/endurskoðun
og förum með bifreiðina í skoðun
Þjónustuaðilar IB Selfossi