Morgunblaðið - 27.04.2021, Síða 32
Efni í þætti kvöldsins:
Dr. Erla Björnsdóttir sálfræðingur fjallar um
svefnrannsóknir og mikilvægi góðs svefns fyrir
heilsuna, ekki síðst á efri árum.
Jón Gunnarsson alþingismaður ræðir um
stöðu eldri borgara og það sem áunnist hefur
s.l. 4 ár að hans mati.
Dr. Janus Guðlaugsson fjallar um mikilvægi
hreyfingar og einkum gönguferða sem hafa
mikil áhrif á blóðþrýsting og sporna við ýmsum
sjúkdómum sem herja á fólk á efri árum.
Ísólfur Gylfi Pálmason fyrrv. sveitarstjóri og
alþingismaður er gamall íþróttakennari og
leiðbeinir fólki sem sækir sér heilsubót og
aukna hollustu í Kríunesi um þessar mundir.
Umsjónarmaður er Sigurður K.Kolbeinsson
Dagskráin
á Hringbraut
Fréttir, fólk og menning
á Hringbraut og hringbraut.is
Lífið er lag
kl. 21.00 á Hringbraut
í kvöld
Ísólfur Gylfi Pálmason
Dr. Erla Björnsdóttir
Á tónleikum Jazzklúbbsins Múlans í Flóa í Hörpu annað
kvöld, miðvikudagskvöld, kl. 20 kemur fram hljóm-
sveitin Jónsson, Jónsson, Hemstock & Gröndal. Þessi
kvartett er ný hljómsveit leidd af bræðrunum Ólafi og
Þorgrími Jónssonum sem leika á bassa og saxófón. Auk
þeirra koma fram Matthías Hemstock á trommur og
Haukur Gröndal á saxófón. Á efnisskránni verður að
mestu ný djasstónlist úr smiðju bræðranna sem er sér-
samin fyrir þetta tilefni auk þess sem eldra efni verður
lagað að hljóðfæraskipan kvöldsins.
Jónsson, Jónsson, Hemstock &
Gröndal – ný hljómsveit í Múlanum
ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 117. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
HK, ÍA, Keflavík og Leiknir úr Reykjavík hafna í fjórum
neðstu sætunum í Pepsi Max-deild karla í fótbolta á
komandi sumri samkvæmt spá íþróttadeildar Morgun-
blaðsins, mbl.is og K100, en keppni í deildinni hefst á
föstudagskvöldið.
Farið er yfir þessi fjögur lið, breytingarnar á þeim og
möguleika þeirra í blaðinu í dag. » 26
Verða þetta fjögur neðstu liðin í ár?
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Málfræðingarnir Höskuldur Þráins-
son, fyrrverandi prófessor við Há-
skóla Íslands, og Helgi Bernódus-
son, fyrrverandi skrifstofustjóri
Alþingis, hafa hlaupið saman viku-
lega frá því sumarið 1982 eða í nær
39 ár. Þeir segja að festan og hefð-
in skipti miklu máli og félags-
skapurinn hafi mikið að segja.
„Ég vann við lokafrágang á
kandídatsritgerð við Háskóla Ís-
lands þetta sumar, Höskuldur var
leiðbeinandi minn. Hann og fleiri
úr deildinni voru þá að skokka og
ég slóst í för. Og svo leiddi eitt af
öðru,“ rifjar Helgi upp um ástæðu
þess að þeir fóru að hlaupa saman.
„Sem gutti í Vestmannaeyjum
tók ég þátt í hlaupum og mótum en
þegar ég fór síðar að hlaupa um
göturnar stoppaði fólk mig gjarnan
og spurði hvað væri komið yfir
mig, hvert ég væri að hlaupa. En
ég lét slíkt ekki stöðva mig og hélt
áfram að gutla í þessu, fann að það
gerði mér gott. Höskuldur var
landsfrægur spretthlaupari og
smám saman varð það að fastri
hefð að við hlupum saman einu
sinni eða tvisvar í viku. Hún hefur
haldist síðan með fáeinum undan-
tekningum.“
Höskuldur keppti fyrir HSÞ á
7. áratugnum, m.a. á landsmótum
og Norðurlandsmótum. „Því
styttra, því betra,“ segir hann um
bestu greinarnar, en hann fór með-
al annars 100 metrana á 11,1 sek-
úndu og var með bestu mönnum
þegar keppt var í 3 x 40 m hlaupi í
Laugardalshöllinni. „Það var
árangur á heimsmælikvarða, enda
hefur hvergi annars staðar verið
keppt í þessari grein, hvorki fyrr
né síðar.“
Félagarnir byrjuðu að hlaupa í
nágrenni við Háskólann og hafa
alla tíð miðað við að hlaupa um sjö
til átta kílómetra hverju sinni.
Lengst af hlupu þeir í kringum
flugvöllinn, út í Nauthólsvík og upp
í Öskjuhlíð, en eftir að kórónu-
veirufaraldurinn fór að gera mönn-
um lífið leitt fyrir rúmu ári hafa
þeir hlaupið hringi frá heimili
Höskuldar í Mosfellsbæ.
Forgangur
Til að byrja með létu þeir
kylfu ráða kasti hvenær hlaupið var
en fljótlega vildu þeir hafa festu á
því eins og öðru og miðuðu þá við
að hefja skokkið við íþróttahús Há-
skólans klukkan 16.30 á þriðjudög-
um. Auk þess hlupu þeir hvor í
sínu lagi með öðrum ef því var að
skipta.
„Skokkið hefur haft forgang og
meðal annars skaust ég út úr Al-
þingi, þegar allt var á suðupunkti í
janúar 2009, til þess að hlaupa með
Höskuldi, en fór svo aftur í vinnuna
að því loknu og var þar langt fram
á nótt,“ segir Helgi. „Ekkert gat
stöðvað mig á hlaupatíma enda
skokkið mikil vítamínsprauta. Það
var mikill styrkur í erfiðu starfi að
komast aðeins út, hreyfa sig og
hlaupa, og ég gat ekki neitað mér
um það. Hlaupið jók mér þrótt,
kraft og starfsgleði, var ótrúlega
uppbyggjandi. Eða eins og góður
félagi sagði við mig: „Ég veit hver
galdurinn er hjá þér, Helgi. Þú
hleypur frá vandamálunum.““
Höskuldur tekur undir orð
Helga um mikilvægi hlaupsins. Það
hafi verið heilög stund og átt sinn
ákveðna tíma enda hafi hann þver-
tekið fyrir að þurfa að kenna eða
sækja fundi eftir klukkan fjögur á
þriðjudögum. „Ef ég hreyfi mig
ekki get ég ekki vaknað á morgn-
ana, er slappur, linur og latur. Þeg-
ar ég var enn að kenna var skokkið
auk þess gott til þess að hreinsa
hugann eftir krefjandi kennslu eða
erfiða fundi í Háskólanum.“ Hann
segir að ýmsir hafi hlaupið með
þeim á stundum en ekki enst. „Þeir
hafa gefist upp og við höfum hlaup-
ið alla af okkur.“
Hlaupa alla af sér
- Höskuldur og Helgi hafa hlaupið saman í áratugi
Ljósmynd/Þjóðviljinn - eik
Í Vatnsmýrinni Félagarnir skammt frá Alaska 1984.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Í Mosfellsbæ Höskuldur og Helgi leggja af stað.