Morgunblaðið - 10.05.2021, Side 2
BAKSVIÐ
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Sinubruna og skógarelda ætti að
skilgeina sem náttúrvá. Allt sam-
félagið þarf að vera vakandi gagn-
vart þessari hættu, eldarnir geta
staðið lengi og valdið miklum
skaða,“ segir Heiðar Örn Jónsson,
varaslökkviliðsstjóri í Borgarfirði.
Öflug varðstaða með 16 mönnum á
bakvakt var hjá Slökkviliði Borg-
arbyggðar um helgina vegna
hættu á sinueldum. Heiðar Örn fór
með sínum mönnum í eftirlitsferð
um Skorradal á laugardagskvöld
til að kanna aðstæður. Morgun-
blaðið slóst með í för.
Allt fari í bál og brand
Á sunnan- og vestanverðu land-
inu hefur ekki deigur dropi komið
úr lofti í langan tíma svo jörð er
skraufþurr; tré og stiklar lúpínu
síðasta árs. Aðeins þarf sígarettu-
glóð svo allt fari í bál og brand.
Hættan er áfram viðvarandi því
ekki er spáð rigningu næstu daga.
„Skorradalurinn er eins og púður-
tunna við aðstæður eins og nú,“
sagði Tryggvi Valur Sæmundsson
slökkvliðsmaður sem var á vakt í
dalnum um helgina.
Fyrir helgina lýstu lögregla og
aðrir sem málum ráða yfir óvissu-
stigi almannavarna vegna hættu á
gróðureldum; á svæðinu sem nær
frá Eyjafjöllum að sunnanverðu
Snæfellsnesi. Og allur er varinn
góður; þegar blaðmaður fór í
Borgarfjörð og var við Hafnarfjall
komu textaskilaboð í símann þar
sem beðið var um að fólk sýndi að-
gæslu vegna eldhættu. „Förum
varlega því lítill neisti getur gert
mikið bál,“ stóð þar.
Með tilliti til eldhættu hafa sjón-
ir sérstaklega beinst að Skorradal,
þar sem er víðfeðmt samliggjandi
skóglendi og þétt byggð sumar-
húsa. Þá er aðeins ein greiðfær
leið inn og út úr dalnum svo flótta-
leiðir eru litlar komi verstu að-
stæður upp. Aukinheldur er veg-
urinn mjór svo erfitt yrði fyrir
bílstjóra stærri ökutækja að mæt-
ast þar. Öll þessi atriði eru nú til
skoðunar og fólki ljóst að úrbóta í
forvarnaskyni er þörf.
Skipta skógi í eldvarnahólf
„Slökkviliðið þarf að vera á und-
an komi eldur upp. Allur viðbún-
aður þarf að vera hugsaður með
það fyrir augum. Slökkviliðið hér
er ágætlega búið tækjum þó vissu-
lega vanti alltaf eitthvað. Viðbún-
aðurinn lýtur að því að skipta þarf
til dæmis Skorradalnum upp í eld-
varnahólf; að milli skógarreita séu
auð belti þar sem eldur í út-
breiðslu myndi stöðvast. Einnig
þurfa að vera vatnsleiðslur og
brunahanar víða um svæðið. Slíkt
er að nokkru leyti komið en betur
má gera,“ segir Heiðar Örn og
bætir við:
„Sumarhúsaeigendur hér eru
meðvitaðir um hættuna og margir
eru komnir með klöppur, sem
duga vel til að slá á eldjaðar og
slökkva. Mikilvægast er samt að
fólk sýni aðgæslu. Sinueldur af
völdum flugelds að vorlagi var sér-
stakt mál.“
Mannslíf eru í húfi
Frá fremstu bæjum í Skorradal
að Fitjum, sem eru innst í dalnum,
eru um 20 kílómetrar. Sumarhúsin
í dalnum eru alls um 650 og eru í
brekkum og skóglendi bæði norð-
an og sunnanvert í dalnum, upp af
Skorradalsvatni. Erfitt er hins
vegar að komast niður að flæðar-
máli til þess að ná í vatn svo leiðir
þarf að bæta, segir Heiðar Örn.
Slökkviliðið í Borgarbyggð, sem
einnig sinnir Skorradalshreppi,
segir hann vera öflugt. Á fjórum
stöðvum þess, sem eru í Borgar-
nesi, á Hvanneyri, í Reykholti og á
Bifröst, séu alls 44 menn í hluta-
starfi.
„Stóra verkefnið núna er að fá
fólk hér í Skorradal – rétt eins og
annars staðar – til þess að setjast
niður og efla brunavarnir, flótta-
leiðir og annað sem þarf. Mannslíf
geta verið í húfi og hægt er að
koma í veg fyrir stórtjón. Fólk
verður að geta notið þessarar
paradísar sem Skorradalurinn svo
sannarlega er,“ segir Heiðar Örn
Jónsson.
Skorradalurinn er púðurtunna
- Mikil hætta á skógareldum og sinubruna í Skorradal - 650 sumarhús eru á svæðinu - Slökkvilið var
með vakt og varðstöðu - Forvarna er þörf og bæta þarf aðgengi að vatni - Huga verður að flóttaleiðum
Slökkviliðsmenn Frá vinstri talið Björn Björnsson, Heiðar Örn Jónsson
varaslökkviliðsstjóri og Tryggvi Valur Sæmundsson voru á vettvangi í
Skorradal á laugardagskvöldið og könnuðu aðstæður. Eldhættan er mikil.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Skorradalur Horft inn eftir dalnum. Hlíðar eru skógi vaxnar upp á brekku-
brún frá flæðarmáli, þangað sem víða er torvelt að komast til vatnsöflunar.
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. MAÍ 2021
Rafstilling ehf
Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is
Opið mán.-fim. kl. 8-17, fös. kl. 8-14
Hröð og góð þjónusta um allt land
Áratug
a
reynsl
a
Startar bíllinn ekki?
Við hjá Rafstillingu leysum málið
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
„Hættan er mikil og lítið má út af
bera. Hér er eldsmatur í háum
grenitrjám og náttúrulegum birki-
gróðri,“ segir Jón Hörður Haf-
steinsson sem er landeigandi við
norðanvert Skorradalsvatn.
„Vissulega hefur margt hér
þróast til betri vegar og í öryggis-
átt. Viðbragðsáætlun er til staðar
og við mörg sumarhús er kominn
aðgangur að rennandi vatni til
slökkvistarfs,“ bætir hann við.
Hvað sem öllum viðbúnaði líður er veruleikinn sá, eins og Jón Hörður
bendir á, að frá útkalli verður slökkvilið alltaf talsverðan tíma á leiðinni
frá bækistöðvum sínum á Hvanneyri og í Borgarnesi í Skorradalinn. Því
sé æskilegt að á svæðinu sé tiltækur lágmarksbúnaður til slökkvistarfs.
Fyrstu aðgerðir geti skipt sköpum.
„Fólk sem á aðsetur sitt hér er mjög meðvitað um eldhættuna. Málin
eru rædd, svo sem að flóttaleiðir séu út úr dalnum komi hér upp miklir
skógareldar. Vegurinn hér við norðanvert vatnið gæti hæglega lokast við
slíkar aðstæður. Þó hægt sé að fara um flæðarmálið dugar slíkt ekki,
hugsanlega þarf að búa til vegtengingu suður fyrir vatnið og bæta slóð-
ann sem er samsíða háspennulínunum ofan af Uxahryggjum. Flóttaleiðir í
hamförum eru alltaf mikilvægar,“ segir Jón Hörður Hafsteinsson.
Hætta og mikill eldsmatur
HÁ GRENITRÉ OG BIRKIGRÓÐUR ERU ÁBERANDI Í SKORRADAL
Landeigandi Fólk meðvitað um hætt-
una, segir Jón Hörður Hafsteinsson.
Forystufólk nokkurra aðildarfélaga BHM, þar á meðal Kjarafélag Viðskipta-
fræðinga og hagfræðinga (KVH), hefur lýst yfir stuðningi við Friðrik Jóns-
son, formann Félags háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins
(FHSS), til formanns samtakanna. Býður hann sig fram gegn Maríönnu H.
Helgadóttur, formanni Félags íslenskra náttúrufræðinga.
Stefán Björnsson, formaður KVH, hefur lýst yfir stuðningi við Friðrik
ásamt Braga Skúlasyni, formanni Fræðagarðs. Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins telst stuðningur formanns KVH við Friðrik verðmætur fyrir hann
þar sem félagið hefur áður stutt Maríönnu.
KVH styður Friðrik til formanns BHM
Sonja Sif Þórólfsdóttir
sonja@mbl.is
Á miðnætti tóku gildi nýjar sótt-
varnareglur sem kveða meðal annars
á um að afgreiðslutími veitingastaða
lengist um klukkustund, frá klukkan
21 til klukkan 22. Gestir þurfa að
hafa yfirgefið staðinn fyrir klukkan
23. Almennar fjöldatakmarkanir fara
úr 20 í 50 manns en börn fædd 2015
og síðar verða áfram undanþegin.
Tveggja metra reglan er enn í gildi.
Ólafur Örn Ólafsson, veit-
ingamaður á vínstúkunni 10 sopum,
segir að þær tilslakanir sem tóku
gildi á miðnætti komi sér vel fyrir
veitingafólk og skipti miklu máli í
rekstri.
„Ég get ekki ímyndað mér annað
en að allir veitingamenn gefi hver
öðrum fimmu út af þessu,“ segir
Ólafur.
.„Þetta er bara tímabært. Ekki
bara fyrir okkur heldur fyrir fólk al-
mennt. Maður finnur að fólk er orðið
þyrst í félagsskap annarra og langar
að fara á mannamót.“
Hann undirbýr sjálfur opnun
þriggja nýrra veitingastaða á næstu
misserum. Veitingastaðurinn Brugg-
stofan & Honkytonk verður opnaður
á Suðurlandsbraut 56 seinna í maí en
þar mun verða reiddur fram amer-
ískur grillmatur, að því er Ólafur tjá-
ir blaðamanni.
Bruggstofan er samstarf 10 sopa
og brugghúsins Reykjavík Brewing
og verður bjór frá þeim í boði á
staðnum en Ólafur og félagar sjá um
veitingarnar. Snemma í sumar verð-
ur staðurinn Ó-le opnaður þar sem
áherslan verður lögð á gott kaffi og
sælkerasamlokur. Ó-le verður til
húsa í Hafnargötu 11, þar sem áður
var hið fornfræga Café au lait. Nafn
staðarins vísar því bæði til kaffihúss-
ins og er um leið afbökun á nafni
Ólafs.
Við Pósthússtræti 2 verður svo
þriðji staðurinn opnaður. Staðurinn
hefur fengið nafnið BRÚT.
„Þar ætlum við að opna mjög
glæsilegan, bjartan og fallegan stað
sem verður með áherslu á sjávarfang
í hverri mynd sem hægt er að hugsa
sér,“ segir Ólafur.
Bjartsýn á sumrið
Hrefna Sætran, eigandi Fisk-
markaðarins, Grillmarkaðarins og
Skúla Craft Bar, segir að tveggja
metra reglan og afgreiðslutíminn
hafi verið þeim fjötur um fót síðustu
vikur. Lengri afgreiðslutími skipti
gríðarlega miklu máli og gefi mögu-
leikann á því að bóka hvert borð
tvisvar yfir kvöldið.
Hrefna bendir á að þótt fleiri megi
vera í hverju sóttvarnahólfi þá skipti
það ekki miklu máli fyrir smærri
veitingastaði þar sem tveggja metra
reglan sé enn í gildi. „Við erum bjart-
sýn á sumarið og spennt fyrir frekari
tilslökunum.“
Opnar þrjá nýja
veitingastaði í sumar
- Veitingafólk fagnar lengri afgreiðslutíma veitingastaða
Ólafur Örn
Ólafsson
Hrefna
Sætran