Morgunblaðið - 10.05.2021, Side 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. MAÍ 2021
SÉRBLAÐ
–– Meira fyrir lesendur
PÖNTUN AUGLÝSINGA: Til mánudagins 17. maí
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is
Í blaðinu verða kynntir margir möguleikar sem í boði eru fyrir
þá sem vilja hafa fallegt í kringum sig, breyta og bæta heimilið.
Skoðuð verða húsgögn og innréttingar, skrautmunir og
fylgihlutir fyrir heimilið, litir og lýsing ásamt mörgu öðru.
Heimili&
hönnun
fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 21. maí
90 ÁRA Guðlaugur Jón-
as Guðlaugsson fæddist 10.
maí 1931 á Dalvík og ólst
þar upp, en rúmlega tví-
tugur flutti hann til
Reykjavíkur þar sem hann
lærði bifreiðasmíði hjá
Kristni Jónssyni í Vagna-
smiðjunni við Grettisgötu.
Hann lauk námi í bif-
reiðasmíði árið 1959 og hóf
þá fljótlega eigin atvinnu-
rekstur. Guðlaugur rak
eigið bifreiðaverkstæði í
mörg ár, lengst af í Duggu-
vogi 17 í Reykjavík. Hann
vann hjá SÍS, Sambandi ís-
lenskra samvinnufélaga,
um átta ára skeið og síðar
meir hjá Myllunni í
Reykjavík í nokkur ár uns
hann lét af störfum vegna
aldurs.
FJÖLSKYLDA Foreldrar Guðlaugs voru Guðlaugur Jón Þorleifsson skip-
stjóri og kona hans Andrea Kristjana Bessadóttir, foreldrar Guðlaugs voru
Þorleifur Baldvinsson og Björg Jónsdóttir frá Upsum í Svarfaðardal. For-
eldrar Andreu voru Bessi Þorleifsson og Ingibjörg Stefánsdóttir frá Siglu-
firði.
Guðlaugur kvæntist 1954 Fjólu Sigurðardóttur, f. 17. ágúst 1928, d. 8. nóv-
ember 2013. Fjóla var fædd í Vestmannaeyjum en foreldrar hennar voru Sig-
urður Þorleifsson, sjómaður í Vestmannaeyjum, og kona hans, Margrét Vig-
dís Gunnlaugsdóttir húsmóðir.
Börn Guðlaugs og Fjólu eru Sigríður, f. 16.7. 1953, Guðlaugur, f. 21.6. 1956,
Gunnar, f. 17.7. 1959, d. 25.9. 2018 og Sveinbjörn, f. 15.10. 1962.
Systkini Guðlaugs voru Bergþóra, Sigríður, Ingibjörg, Bessi, Baldvina,
Andrés og Jóhanna.
Guðlaugur Jónas Guðlaugsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Þú hefur einstakt tækifæri til að
bæta samskipti þín við systkini þín á næstu
mánuðum. Þú bíður í ofvæni eftir fréttum
af vissri persónu.
20. apríl - 20. maí +
Naut Reyndu að sjá það góða í öðrum.
Nýttu tækifærið og reyndu að ganga frá
lausum endum í alls konar málum.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Umhverfi þitt skiptir þig mjög
miklu máli og fjölskyldan er kjölfestan í lífi
þínu. Reyndu að komast að samkomulagi
við þann sem þú átt í deilum við.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Sumir dagar eru bara þannig að
þeir eiga að fá að líða hjá sem fyrst. En á
morgun muntu fá frábærar fréttir sem
snerta fjölgun í stórfjölskyldunni.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Taktu ekki þátt í þrætum af neinu tagi
og láttu aðra um að finna lausn á sínum
málum. Þú ert frábær kennari og ættir
kannski að feta þá braut.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Þér tekst yfirleitt að laða að þér
hluti, í stað þess að eltast við þá. Hafðu
ekki áhyggjur því tíminn vinnur með þér.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Fátt er eins dýrmætt og að eiga sér
góðan sálufélaga sem hægt er að deila
með gleði sinni og sorgum. Hafðu það í
huga þegar þú velur þér vini.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Þú þarft að setja þér markmið
og reyna að ná þeim á einhverjum vissum
tíma. Gamall vinur hefur samband og til-
finningarnar blossa upp.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Þú sérð ekki fram úr augum
vegna anna og þarft að komast frá í smá-
tíma. Allt það jákvæða sem þú framkvæmir
gleður samferðafólk þitt.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Sýndu varfærni á öllum sviðum,
ekki síst í peningamálunum því það tekur
oft skamma stund að gera afdrifarík mis-
tök á því sviði. Láttu ekki undan þrýstingi.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Þú hefur mikla þörf fyrir að
gera breytingar heima hjá þér. Gerðu
kostnaðaráætlun. Einhver vinur gengur
óvænt í hnapphelduna.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Óvænt ferðalag er framundan og
þar muntu hitta áhugaverða manneskju.
Stundum þarf að telja upp að tíu áður en
maður segir eitthvað.
kemur upp eitthvað nýtt. Við erum
að reyna að semja núna, búnir að
vera samningslausir í 17 mánuði,
og deilan er núna hjá ríkissátta-
semjara. Stefnan er að ljúka samn-
ingum fyrir sumarið, ekki líklegt
að það gerist en hver veit.“ Árið
2015 fluttu þau hjónin til Reykja-
víkur. „Maður sinnir þessu starfi
ekki utan af landi, þetta eru svo
margir fundir sem þarf að sækja.“
mannadeildar Vöku á Siglufirði
1981-1986, settist í stjórn sjó-
mannafélagsins Jötuns 1995 og
varð formaður þess árið 2006.
Hann var formaður Sjómannadags-
ráðs Vestmannaeyja 1996-2002 og
aftur 2009-2014. Hann tók við for-
mennsku í Sjómannasambandi Ís-
lands 2014. „Þetta er alltaf barátta
og hættir aldrei, en mér líkar mjög
vel við starfið og á hverjum degi
V
almundur Valmundsson
fæddist 10. maí 1961 á
Siglufirði og ólst þar
upp. Afi hans og amma
gengu honum í for-
eldrastað, en faðir hans drukknaði
þremur dögum eftir að Valmundur
fæddist. Þau voru hjónin Friðrikka
Björnsdóttir, f. 14.9. 1900, d. 3.2.
1990, húsmóðir, verkakona og
saumakona, og Ólafur Eiríksson, f.
24.6. 1897, d. 16.12. 1985, stúari.
„Hjá þeim ólst ég upp þar til ég
hleypti heimdraganum á 19. ári.“
Valmundur var í sveit á Úlfs-
stöðum á Völlum í tíu sumur hjá
móðursystur sinni, Sigríði Magneu
Ólafsdóttur, og hennar manni,
Magnúsi Sigurðssyni.“
Valmundur gekk í barnaskóla
Siglufjarðar og gagnfræðaskólann.
Hann útskrifaðist með grunnskóla-
próf 1977.
Sextán ára fór Valmundur sinn
fyrsta túr á togara og eftir það
varð ekki aftur snúið. Hann var
mest á Sigluvík SI 2 með Sigurjóni
Jóhannssyni framan af og síðan
Helga Jóhannssyni og Jónasi Sum-
arliðasyni. Hann vann einnig með
hléum hjá Veiðarfæri ehf. við neta-
gerð og í Sigló Síld. „Árið 1989 tók-
um við fjölskyldan þá ákvörðun að
flytja búferlum til Vestmannaeyja.
Atvinnuástandið á Siglufirði var
nokkuð bágborið á þessum tíma.
Ég fékk pláss á Frigg VE 41 sem
Gísli á Tanganum gerði út. Magni
Jóhannsson var skipstjóri. Síðan lá
leiðin á Þórunni Sveinsdóttur VE
401 með Sigurjóni Óskarssyni. Í
millitíðinni var ég eitt sumar á
Katrínu VE á humri með Helga
Ágústssyni skipstjóra. Síðan árið
1992 fékk ég pláss á Frá VE 78
með Óskari á Háeyri og var þar í
góðu yfirlæti til ársins 2009 þegar
ég kom í land.“
Árið 1997 settist Valmundur á
skólabekk í Stýrimannaskólanum í
Vestmannaeyjum og lauk þaðan II.
stigi 1999. Hann var eftir það stýri-
maður og afleysingaskipstjóri á
Frá VE 78 með Sindra syni Óskars
á Háeyri. Hann var hafnsögumaður
í Eyjum frá 2011-2015.
Valmundur var formaður sjó-
Helstu áhugamál Valmundar eru
fjölskyldan, félagsmál, stangveiði
og göngur um fjöll og firnindi.
Hann er félagi í Oddfellow-
stúkunni Baldri nr. 20.
Fjölskylda
Eiginkona Valmundar er Björg
Sigrún Baldvinsdóttir, f. 25.7. 1962,
fv. ræstingastjóri Verslunarskóla
Íslands. Þau búa í Holtunum í
Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasambands Íslands – 60 ára
Á Siglufirði Valmundur heldur hátíðarræðu sjómannadagsins á Siglufirði 1984.
Mikil barátta og hættir aldrei
Hjónin Valmundur og Björg í Þórsmörk í fyrra.
Með barnabörnunum Á myndina vantar yngsta
barnabarnið, en það fæddist 20. mars síðastliðinn.
Til hamingju með daginn