Morgunblaðið - 10.05.2021, Side 32
Sönghópurinn
Fósturvísarnir
efnir til
tvennra tón-
leika í Fríkirkj-
unni við Tjörn-
ina til heiðurs
vori og hækk-
andi sól. Tón-
leikarnir verða
í kvöld og ann-
að kvöld, mánudag og þriðjudag, og hefjast kl. 20. Á
efnisskrá verða lög úr ýmsum áttum, jafnt nýlegir sem
eldri slagarar, bæði íslenskir og erlendir. Sönghópurinn
Fósturvísarnir var stofnaður vorið 2017 af félögum úr
Karlakórnum Fóstbræðrum. Um er að ræða styrktar-
tónleika og rennur allur ágóði óskiptur til Barnahjálpar
Sameinuðu þjóðanna, UNICEF. Vegna takmarkana á
fjölda gesta á samkomum eru aðeins 100 miðar til sölu
á hvora tónleika en hægt er að panta miðana í gegnum
Facebook-síðu Fósturvísanna.
Fósturvísarnir með tvenna tónleika
í Fríkirkjunni til styrktar UNICEF
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Söngkonan Mjöll Hólm hefur verið á
sviðinu meira eða minna í yfir 60 ár
og er að búa sig undir tvenna tón-
leika um miðjan maí. „Ég er spennt,
með hnút í maganum, en auðvitað
verður þetta gaman,“ segir hún.
Þegar Mjöll var 14 ára kom hún
fram ásamt fjölda ungmenna sem
spreyttu sig á dægurlagasöng á tón-
leikum sem Svavar Gests stóð að í
Austurbæjarbíói. „Ári síðar auglýsti
Kristján Kristjánsson, KK, eftir
ungu fólki sem hefði áhuga á söng og
vinkona mín fékk mig til þess að
mæta með sér í Þórscafé,“ rifjar
Mjöll upp. „Þarna reyndu sig margir
og létu ljós sitt skína. Ég söng eitt
lag, en daginn eftir hringdi Kristján í
mig og sagði að 10 krakkar, þar á
meðal ég, hefðu verið valdir úr hópn-
um til syngja með KK sextettinum á
tónleikum í Austurbæjarbíói. Elly
Vilhjálms og Óðinn Valdimarsson
sungu þá með KK, ég var með
stjörnur í augunum og sagði bara já.
Í kjölfarið héldum við fjögur áfram í
nokkur skipti, komum meðal annars
fram með sextettinum á sveitaböll-
um. Þetta vatt hægt og sígandi upp á
sig og til að gera langa sögu stutta
hélt ég áfram að syngja og er enn
að.“
Skemmtilegur tími
Söngurinn hefur ýmist verið aðal-
eða aukastarf hjá Mjöll. Hún vann til
dæmis í aldarfjórðung hjá Ísaga.
„Þegar við vorum komin með börn
og ég var heima með þeim var ég í
fullri vinnu við að syngja á kvöldin og
um helgar.“ Hún nefnir sérstaklega
tímabilið þegar hún söng með Tríói
Magnúsar Péturssonar í Klúbbnum
á sjöunda áratugnum. „Þeir voru
talsvert eldri en ég og kenndu mér,
litlu stelpunni, gömlu, sígildu lögin.
Ég minnist þeirra með mikilli hlýju,
það var gott að vinna með þeim.“
Fyrir um 50 árum, sumarið 1971,
kom út fyrsta platan með söng henn-
ar, þegar Svavar Gests, SG-hljóm-
plötur, gaf út lögin „Jón er kominn
heim“, erlent lag við texta Iðunnar
Steinsdóttur, og „Ástarþrá“. Fyrr-
nefnda lagið náði miklum vinsældum
og lifir enn góðu lífi.
„Hann er ansi langlífur,“ segir
Mjöll um sumarsmellinn. Hún segist
hafa fengið skilaboð um að hringja í
Svavar, hafi gert það og hann borið
upp erindið, að fá hana til að syngja
inn á plötu. „Ég hafði engu að tapa,
sló til, en hef enga skýringu á vin-
sældum Jóns.“
Fljótlega vakti Mjöll athygli sem
rokksöngkona. Hún söng með mörg-
um hljómsveitum á böllum, lengst af
í Klúbbnum, en líka á Hótel Borg,
Hótel Sögu, Leikhúskjallaranum,
Þórscafé og víðar. Auk þess kom hún
fram á mörgum sönghátíðum og sýn-
ingum, en undanfarin ár hefur hún
einkum tekið að sér tilfallandi verk í
lausamennsku. „Í gamla daga var
tónlistarfólk fastráðið á tiltekna staði
en það er liðin tíð,“ segir hún. „Svo er
líka stöðug endurnýjun og því fækk-
ar verkefnum eðlilega með aldr-
inum.“
Vegna samkomutakmarkana í
kórónuveirufaraldrinum hefur tón-
leikunum „Út við himinbláu sundin“,
þar sem Mjöll er á meðal söngvara,
verið frestað þrisvar en stefnt er að
því að þeir verði í Salnum í Kópavogi
laugardaginn 15. maí. Daginn eftir
verður streymt frá söngstundinni
„Syngjum saman í Hannesarholti
með Mjöll Hólm“. Hún segir ferilinn
hafa verið farsælan og einna
skemmtilegast hafi verið að syngja
með hljómsveitinni Opus á áttunda
áratugnum. „Vináttan var svo mikil
og við höfðum mikið samband utan
vinnu, þó mikið hafi verið að gera.
Eins var gaman að syngja með
Goðgá en í raun hefur þetta verið
samfelld skemmtun.“
Jón er kominn heim
hljómar vel og lengi
- Mjöll Hólm syngur á tvennum tónleikum um helgina
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Rokksöngkona í áratugi Mjöll Hólm hefur lengi skemmt landsmönnum.
Frá 1971 Myndin af Mjöll Hólm á
plötuumslaginu fyrir hálfri öld.
FERSKT OG GOTT
PASTA TILBÚIÐ
Á ÖRFÁUM
MÍNÚTUM!
MÁNUDAGUR 10. MAÍ 130. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
ÍBV, Valur og Selfoss unnu öll mikilvæga sigra í slagnum
um þriðja og fjórða sætið í Olísdeild karla í handknattleik
í gær þar sem gríðarlega hörð keppni er um heimaleikja-
réttinn í úrslitakeppninni. KA komst uppfyrir Fram í bar-
áttunni um að komast í átta liða úrslitin. »27
Gríðarlega jafnt í handboltanum
ÍÞRÓTTIR MENNING