Morgunblaðið - 10.05.2021, Side 11

Morgunblaðið - 10.05.2021, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. MAÍ 2021 Missið ekki af áhugaverðum þætti um starfsemi Landbúnaðarháskóla Íslands þar sem rætt er við Ragnheiði I. Þórarinsdóttur rektor auk fjölda annarra, þ.m.t. deildar- forseta, kennara og nemendur sem segja frá reynslu sinni við nám í skólanum. Hringbraut næst á rásum 7 (Síminn) og 25 (Vodafone) ATVINNULÍFIÐ Á dagskráHringbrautar í kvöld kl. 21.00 Landbúnaðarháskóli Íslands – skóli lífs og lands - fyrri hluti í þættinum Atvinnulífið sem er á dagskrá Hringbrautar kl. 21.00 í kvöld • Fjölbreytt nám sem kennt er á Hvanneyri, á Keldnaholti og á Reykjum í Ölfusi • Þrjár fagdeildir: Ræktun og fæða – Náttúra og skógur – Skipulag og hönnun • Rannsóknir og alþjóðasamstarf til mikillar fyrirmyndar og aukin ásókn í Ísland • Nemendum fer ört fjölgandi og aðstaða til verklegrar kennslu mjög góð Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Því miður virðast æ færri skilja þarfir landsbyggðarinnar og sá veruleiki ýtti á mig að stíga skrefið og fara í landsmálin. Til þess að bú- setuskilyrði séu tryggð er mikilvægt að tækifæri til góðrar menntunar séu hvarvetna í boði. Menntun er mikilvægt byggðamál og meðal þeirra atriða sem ég vil berjast fyrir á hinu pólitíska sviði,“ segir Ingi- björg Ólöf Isaksen, sem skv. niður- stöðum póstkosningar skipar efsta sætið á lista Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi í alþingiskosn- ingum í haust. Tilbúin að taka umræðuna Ingibjörg hefur reynslu í stjórn- málum. Hún sat í sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar og hefur frá 2015 verið bæjarfulltrúi á Akureyri. Sjálf segist hún vera alin upp við pólitíska umræðu og vera komin úr fjölskyldu þar sem fólk studdi Sjálfstæðis- flokkinn. Sjálf hafi hún hins vegar fundið sína fjöl í Framsóknar- flokknum. „Samvinna og samstarf, gildi Framsóknarflokksins, eru alltaf lík- legustu leiðirnar til árangurs,“ segir Ingibjörg. „Öll erum sammála um að sækja fram á miðjunni. Sjálf hef ég alltaf haft sterkar skoðanir og alltaf verið tilbúin til að taka umræðuna og komið mér í ábyrgðarstöður oft án þess að gera mér grein fyrir því.“ Ingibjörg er fædd og uppalin í Reykjavík, flutti norður fyrir tæpum 20 árum og festi þar rætur. Gjarnan hefur verið sagt að erfitt sé fyrir utanbæjarfólk að komast inn í sam- félagið og til áhrifa á Akureyri, sem Ingibjörg hefur heldur betur af- sannað. Sjálf segist hún raunar ekki hafa fundið fyrir neinum félags- legum hindrunum og kenningin um lokaðan bæjarbrag standist ekki. Lykillinn að því að komast inn í öll samfélög sé í gegnum íþróttir eða fé- lagsstörf, það sé sín reynsla. Þá sé gott að ala upp börn á Akureyri. Togstreita milli ríkis og sveitarfélaga Velferð, menntun, innviðir og at- vinna eru málefni sem Ingibjörg kveðst vilja setja á oddinn í sinni pólitík. Reynslan úr kórónuveiru- faraldrinum, þar sem fjarvinnsla bjargaði miklu, hafi skapað skilning á því að staðsetning skipti ekki öllu máli; hvar störf séu unnin. Rétt skil- yrði þurfi hins vegar að vera til stað- ar; svo sem öryggi í afhendingu raf- orku, fjarskipti, vegir og svo framvegis. Þá þurfi að fara í endur- bætur á Akureyrar- og Egilsstaða- flugvelli, styrkja flutningskerfi raf- orku og halda áfram með jarðgangagerð. „Það sem kom mér á óvart þegar ég byrjaði í pólitík er þessi tog- streita milli ríkis og sveitarfélaga – hvernig fjármagninu er skipt. Sveit- arfélög eru að taka að sér hin ýmsu verkefni frá ríkinu og enda allt of oft í því að verkefnin eru vanfjár- mögnuð. Fyrir vikið skortir traust milli aðila, sem verður að byggja upp,“ segir Ingibjörg og áfram: „Svo þurfa velferðarmál að vera í sífelldri þróun og endurskoðun. Mál- efni eldra fólks er stórt verkefni sem við stöndum frammi fyrir en gangi mannfjöldaspár Hagstofu Íslands eftir verða 20% landsmanna 65 ára og eldri árið 2035. Þess vegna þarf að hugsa þjónustu við eldra fólk al- veg upp á nýtt og finna nýjar leiðir. Menntun má svo að nokkru leyti líta á sem velferðarmál. Eitt besta tæki sem þjóðin á, til þess að jafna að- stöðu fólks og heimila, er skólakerf- ið. Þar þarf margt að gera, svo sem að efla fjarnám sem býður upp á svo marga möguleika.“ Hinn eini sanni miðjuflokkur Eftir baráttu í meira en eitt ár virðist nú vera landsýn í baráttunni við kórónuveiruna. Í endurreisn sem framundan er segir Ingibjörg mikil- vægt að í viðspyrnunni verði þjóð- inni allri tryggð lífgæði og jöfn tæki- færi. Aðgerðir ríkisstjórnarinnar í dag lofa góðu, að sögn Ingibjargar, en fylgjast þarf vel með hvort ein- hverjir hópar verði útundan og þá þurfi að mæta þeim með sérstökum úrræðum. „Þótt takast hafi þurft á við krefj- andi aðstæður í þjóðfélaginu er stöð- ugleiki í stjórnmálum og samstarf flokkanna þriggja í ríkisstjórn virð- ist vera traust og eindregið. Á end- anum ræður þjóðin því alltaf hverjir verða við völd, en auðvitað verður stjórnarmyndun flóknari eftir því sem fleiri flokkar koma inn á sviðið. Því tel ég mjög mikilvægt að hinn eini sanni miðjuflokkur, Framsókn, komi sterkur út úr kosningunum í haust, svo viðhalda megi stöðugleika og byggja upp til framtíðar.“ Menntun er mik- ilvægt byggðamál - Ingibjörg er efst hjá Framsókn Morgunblaðið/Sigurður Bogi Frambjóðandi Hinn sanni miðjuflokkur komi sterkur út úr kosningunum í haust, svo viðhalda megi stöðugleika, segir Ingibjörg Ólöf Isaksen Egilsstaðir Norðausturkjördæmi er víðfeðmt og hagsmunir ýmsir. Húsavík Því miður virðast æ færri skilja þarfir landsbyggðarinnar og það ýtti á mig að stíga skrefið og fara í landsmálin, segir Ingibjörg í viðtalinu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.