Morgunblaðið - 10.05.2021, Síða 4
Sonja Sif Þórólfsdóttir
Oddur Þórðarson
Starfsmaður á sjúkrahúsinu á Sauð-
árkróki greindist smitaður af kór-
ónuveirunni um helgina. Starfsmað-
urinn vinnur á sjúkraþjálfunardeild
sjúkrahússins og var í návígi við
sjúklinga. Flestir sjúklinganna voru
bólusettir en
smitrakning stóð
yfir í gærkvöldi.
Þá voru um 20
starfsmenn
grunnskólans Ár-
skóla komnir í
sóttkví í gær og
skólinn verður
lokaður til 14.
maí. Alls greind-
ust sex jákvæð
sýni í Skagafirði
um helgina og á þriðja hundrað
manns eru í sóttkví. Tilslakanir sem
tóku gildi á miðnætti gilda ekki fyr-
ir Skagafjörð og Akrahrepp. Í stað-
inn munu samkomutakmarkanir
miðast við 20 manns en ekki 50 og
gilda þær reglur til 17. maí. Að-
gerðastjórn almannavarna á Norð-
urlandi vestra réðst í aðgerðir í gær
til að sporna við frekari útbreiðslu
veirunnar í umdæminu.
„Við vildum stíga fast til jarðar
og reyna að ná utan um þetta sem
fyrst. Þannig náum við árangri.
Varðandi þetta smit á sjúkrahúsinu
þá er það bara í vinnslu, menn eru
bara að reyna að ná utan um það
eins og hægt er,“ sagði Stefán Vagn
Stefánsson, yfirlögregluþjónn hjá
lögreglunni á Norðurlandi vestra,
við mbl.is í gær. Hann segir að
smitið muni ekki koma til með að
hafa mikil áhrif á starfsemi sjúkra-
hússins en að það muni hafa áhrif á
endurhæfinguna tímabundið.
Stefán segir að það sé gríðarleg-
ur samtakamáttur í fólkinu í Skaga-
firði og að allir leggist á eitt í bar-
átunni við veiruna. „Það var svona
að skilja á þeim aðilum sem við
ræddum við að menn vildu bara að
það yrði gripið hratt í og fast. Við
fengum strax mikinn meðbyr frá
samfélaginu og ég hef ekki heyrt
annað en að menn séu bara sáttir,
þótt þetta sé auðvitað alveg graut-
fúlt. Menn vilja bara grípa til þess-
ara aðgerða í styttri tíma en að
þurfa glíma við þetta í einhverjar
vikur kannski, eða þeim mun lengur
jafnvel.“
Leikskólinn Ársalir verður lok-
aður til 14. maí nema fyrir skil-
greinda forgangshópa, s.s. heil-
brigðisstarfsmenn, lögreglumenn
og sjúkraflutningsmenn. Öll próf í
Fjölbrautaskóla Norðurlands
vestra á Sauðárkróki verða heima-
próf og skólinn lokaður. Sundlaug-
um, líkamsræktarstöðvum og
íþróttamannvirkjum verður lokað
til og með 16. maí. Öllum menning-
arviðburðum hefur verið aflýst, þar
á meðal bíósýningum, leiksýningum
og öðrum viðburðum. Fyrirtæki í
Skagafirði hafa brugðist við og hef-
ur Skagfirðingabúð lengt af-
greiðslutíma sinn til að draga úr
þeim fjölda sem er inni í versluninni
á hverjum tíma.
Ljósmynd/Árni Gunnarsson
Sýnataka Á fjórða hundrað íbúa Skagafjarðar fór í sýnatöku um helgina.
Um 20 starfs-
menn grunn-
skólans í sóttkví
- Starfsmaður á sjúkrahúsinu smitaður
Stefán Vagn
Stefánsson
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Frá og með 3. júlí næstkomandi
munu viðskiptavinir verslana ekki
geta teygt sig eftir niðurbrjótanleg-
um burðarpokum í verslunum, séu
þeir komnir á kassasvæði þeirra.
Þessu veldur viðbót við eldri löggjöf
um hollustuhætti og mengunarvarn-
ir.
Kann löggjöfin að koma einhverj-
um spánskt fyrir sjónir þar sem pok-
ar þessir, sem búnir eru til úr maís-
sterkju og
gjarnan kenndir
við baunirnar
sem hún er unnin
úr, komu í stað
hinna alræmdu
plastpoka sem
um áratugaskeið
hafa reynst
þarfaþing fólks,
ekki síst við vöru-
flutning úr versl-
un til heimilis en
einnig í tengslum við sorphirðu frá
eldhúsi í tunnu.
Gró Einarsdóttir, sérfræðingur á
sviði loftslagsmála og græns sam-
félags hjá Umhverfisstofnun, segir
að enn ráði ákveðinn misskilningur
um bannið við afhendingu á burðar-
pokum úr plasti sem tók gildi í upp-
hafi árs, en skilgreiningin á plasti
sem innleidd verður í íslensk lög í
sumar ætti að taka af allan vafa um
hvaða pokar falla undir bannið við af-
hendingu á sölustað vara.
„Skilgreiningin á plasti er mjög
víðtæk. Ef annaðhvort íblöndunar-
efnum hefur verið bætt við náttúru-
legt efni eða það hefur verið með-
höndlað með efnafræðilegum hætti
þá er það plast, þ.m.t. lífplast og
maíspokar,“ útskýrir hún.
„Þetta hljómar mjög tæknilega,
enda um eðlisfræðiskilgreiningu að
ræða, en sama skilgreining er einnig
notuð af ESB.“ Hún bendir á að þótt
maíspokar séu skárri en hinir hefð-
bundnu plastpokar þá brotni þeir
ekki niður við hvaða aðstæður sem
er. Þar komi hitastig m.a. við sögu og
því geti þeir reynst hættulegir um-
hverfinu ef þeir sleppa út í náttúr-
una.
Með lögunum er verslunum gert
erfiðara um vik að koma maíspok-
unum í notkun hjá viðskiptavinum og
er það gert með því að banna afhend-
ingu þeirra á svokölluðum „sölustöð-
um vara“.
Spurð út í hvernig sá staður er
skilgreindur, segir Gró mikilvægt
fyrir verslunareigendur að beita
hyggjuviti sínu.
„Það má hugsa þetta út frá vöru
eins og tómat í dós. Ef maður hugsar
sér stað í verslun þar sem slíkri vöru
yrði mögulega stillt upp þá gilti það
sama um pokana. Tómatar í dós eru
ekki staðsettir á sölustað og hið
sama á að gilda um pokana.“
Eftir sem áður munu verslanir
geta boðið þessa poka til sölu annars
staðar en á kassasvæðum sínum og
það sama á við um hefðbundna plast-
poka. Gró staðfestir hins vegar að
netverslanir megi ekki afhenda
vörur sínar í niðurbrjótanlegum pok-
um.
„Samkvæmt lögunum er sölustað-
ur vörunnar þar sem greitt er fyrir
hana og í flestum tilvikum er það
heimili fólks þegar verslað er á net-
inu. Þess vegna má ekki afhenda
vörunar í pokum af þessu tagi.“
Gró segir að Umhverfisstofnun
vilji hvetja fólk til þess að beina
neysluháttum sínum í átt að hring-
rásarhagkerfinu. Fólk geti t.d. notað
fjölnota burðarpoka.
„Það er gott að huga að þessu á
kvöldin. Stinga poka í vasa og helst
eigum við að vera með slíka poka al-
staðar við höndina, í öllum vösum svo
að við þurfum ekki að kaupa einnota
poka. Svo væri gaman ef verslanir
sæju sér hag í því að lána fólki fjöl-
nota poka sem fólk gæti svo skilað.
Fólk hefur lítinn áhuga á að kaupa
pokana sem slíka.“
Eftir sem áður geta verslanir boð-
ið viðskiptavinum sínum að kaupa
pappírspoka undir vörur sínar.
Morgunblaðið leitaði álits sérfræð-
ings á umhverfisáhrifum slíkra poka.
Sagði hann að framleiðsla slíkra
poka hefði ekki síður áhrif á um-
hverfið en maíspokanna. Mikla orku,
vatn og skóglendi þyrfti til fram-
leiðslunnar. Hins vegar væri flutn-
ingskostnaður á pappírspokunum
margfaldur á við það sem gerðist
með niðurbrjótanlegu pokana.
Flytja mætti um 880 þúsund poka af
síðarnefndu gerðinni í hverjum 40
feta gámi en 120 þúsund pappírspok-
ar kæmust í slíkan gám.
Það þýðir að miðað við að hingað
séu fluttar allt að 40 milljónir einnota
poka til landsins þyrfti að flytja
fimmtíu 40 feta gáma af niðurbrjót-
anlegum pokum en gámarnir yrðu
366 ef aðeins yrðu fluttir inn papp-
írspokar.
Lögin ýti undir
hringrásarhagkerfi
- Mengun vegna innflutnings á pappírspokum margfalt meiri
Morgunblaðið/Golli
Poki Sem fyrr munu verslanir geta boðið þessa poka til sölu annars staðar.
Gró
Einarsdóttir
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. MAÍ 2021
PON er umboðsaðili
PON Pétur O. Nikulásson ehf.
Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður
Sími 580 0110 | pon.is
Við bjóðum alla Jungheinrich eigendur velkomna!
GÆÐI OG ÞJÓNUSTA
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Forseti og varaforseti alþjóðasam-
taka SOS barnaþorpa hafa sent frá
sér sameiginlega yfirlýsingu, þar
sem þau segjast hætt við að gefa
kost á sér til endurkjörs í forystu
samtakanna á allsherjarþingi al-
þjóðasamtakanna, sem fram fer í
júní. Eftir því sem næst verður kom-
ist hyggst forystan aðeins sinna lág-
marksstarfsskyldu fram að því til að
auðvelda nýrri forystu að taka við.
Þetta eru viðbrögð við rannsókn
nokkurra aðildarsamtaka, þar á
meðal hinna íslensku, sem leiddi í
ljós að forysta alþjóðasamtakanna
hafði leitt hjá sér ýmis barnavernd-
arbrot og jafnvel hylmt yfir þau.
Frá þeim var greint í forsíðufrétt
Morgunblaðsins sl. fimmtudag, en í
blaðinu var einnig að finna ítarlegt
viðtal við framkvæmdastjóra sam-
takanna hér á landi. Hann greindi
frá því hvernig upp um málið hefði
komist og hvernig í ljós kom að for-
ysta alþjóðasamtakanna hefði bæði
leitt ýmis barnaverndarbrot innan
vébanda þeirra hjá sér, en einnig
stöðvað rannsókn á barnaverndar-
brotum, sem væri ekkert annað en
yfirhylming. Íslensku samtökin
gætu ekki liðið slíkt.
Mikið traust til SOS
Barnaþorpa á Íslandi
Að sögn Ragnars Schram, fram-
kvæmdastjóra SOS Barnaþorpa á
Íslandi, hafa viðbrögð íslenskra
styrktaraðila samtakanna verið
mjög stillileg. Frá því greint var frá
málinu hafa 14 mánaðarlegir styrkt-
araðilar sagt upp stuðningi en þrír
nýir bæst við. Um 31 þúsund manns
styrktu starf samtakanna í fyrra,
auk nokkurs fjölda lögaðila.
Tveir þeirra, sem hættu stuðningi,
gáfu til kynna að það væri vegna
fyrrgreindra frétta, en aðrir gáfu
aðrar eða engar ástæður. Ragnar
segir að starfsfólk SOS Barnaþorpa
hafi svarað ýmsum spurningum um
þessi mál í síma. Það hafi allt gengið
vel fyrir sig og enginn verið að
skammast í því.
„Ég leyfi mér að túlka þessi við-
brögð sem yfirgnæfandi traust okk-
ar styrktaraðila til SOS Barnaþorp-
anna á Íslandi og stuðning við
viðleitni okkar til að upplýsa um og
uppræta hvers konar leynimakk og
spillingu innan alþjóðasamtaka þess-
ara mjög svo þörfu barnahjálpar-
samtaka,“ segir Ragnar við Morgun-
blaðið.
Alþjóðaforysta SOS víkur
- SOS Barnaþorpum á Íslandi sýnt traust eftir hneyksli ytra