Morgunblaðið - 10.05.2021, Side 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. MAÍ 2021
Reykjavík. Foreldrar Bjargar:
Baldvin Erlendsson, f. 27.11. 1938,
fyrrverandi bílstjóri, búsettur í
Reykjavík, og Guðrún Halldóra
Magnúsdóttir, f. 25.7. 1940, d. 15.1.
2012, húsmóðir. Þau skildu.
Börn Valmundar og Bjargar
eru 1) Anna Brynja, f. 3.10. 1983,
sérfræðingur hjá velferðarsviði
Reykjavíkurborgar. Maki: Davíð
Örn Guðmundsson, f. 14.4. 1983,
bifreiðasmiður. Börn þeirra eru
Una Björg, f. 2008 og Kjartan
Leó, f. 2016; 2) Valur Már, f. 2.10.
1987, matsveinn á Kap VE. Maki:
Linda Óskarsdóttir, f. 1.10. 1988,
leikskólakennari. Börn þeirra
eru Sigrún Anna, f. 2012. Val-
mundur Þór, f. 2017 og drengur
Valsson, f. 2021.
Valmundur á fimm hálfbræður
sammæðra, faðir þeirra og stjúp-
faðir Valmundar er Benóný Sig-
urður Þorkelsson, f. 14.8. 1944
smiður á Siglufirði, fv. eiginmaður
móður Valmundar. Þau bjuggu í
næsta húsi við Valmund á Siglu-
firði. Bræður hans eru Þorkell, f.
31.10. 1962, vélvirki í Bergen;
Baldur, f. 12.1. 1964, smiður á
Akureyri, Sverrir Ólafur, f. 5.1.
1965, vélstjóri í Reykjavík; Magn-
ús, f. 18.2. 1970, skósmiður á Hellu,
og Sigurður Smári, f. 14.11. 1972,
bæjartæknifræðingur í
Vestmannaeyjum.
Foreldrar Valmundar: Anna
Marsibil Ólafsdóttir, f. 15.4. 1943,
fyrrverandi verkakona og ræsti-
tæknir, búsett á Hellu; og Val-
mundur Sverrisson f. 29.11. 1941 d.
13.5. 1961, sjómaður á Akureyri.
Anna er gift Guðjóni Sævari Jóns-
syni sjómanni, f. 1941, frá Ólafs-
firði. Guðjón á fimm börn af fyrra
hjónabandi.
Valmundur
Valmundsson
Helga Kristjánsdóttir
húsfreyja í Neðra-Skálateigi
Ingimundur Þorleifsson
bóndi í Neðra-Skálateigi í
Norðfirði
Guðbjörg Jóhanna Ingimundardóttir
húsmóðir á Akureyri
Sverrir Magnússon
blikksmiður á Akureyri
Valmundur Sverrisson
sjómaður á Akureyri
Sigurbjörg Björnsdóttir
húsfreyja á Akureyri
Magnús Jón Sigurðsson
verkstjóri á Akureyri
Engilráð Einarsdóttir
húsfreyja á Sigríðarstöðum
Björn Hafliðason
bóndi á Sigríðarstöðum
í Flókadal, Skag.
Friðrikka J.M. Björnsdóttir
verka- og saumakona á Siglufirði
Ólafur Steingrímur Eiríksson
stútari á Siglufirði
Kristín Halldóra Jónasdóttir
húsfreyja á Grund
Eiríkur Ólafsson
bóndi á Grund í Ólafsfirði
Úr frændgarði Valmundar Valmundssonar
Anna Marsibil Ólafsdóttir
fv. verkakona og
ræstitæknir, búsett á Hellu
„HANN VAR ALGER GOÐSÖGN. HANN FÓR
ALDREI HEIM ÚR VINNUNNI.“ „SLEPPTU, DAVÍÐ! ÉG SÁ HANN FYRST.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar öll lyndistáknin
eru hjörtu og kossar.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
VIÐ HUNDAR ELSKUM
AÐ NAGA HLUTI
MÉR LÍKAÐI EKKI HVERNIG
ÞETTA SAMTAL VAR AÐ ÞRÓAST
HVENÆR FÓR HERTOGINN AÐ
RÁÐA RIDDARA TIL AÐ GÆTA
KASTALANS?
ALDREI!
HANN SÁ
STRENGINA!!
SN
EIÐ
!
NOTAÐIR
BÍLAR
Á Boðnarmiði vísar Magnús Hall-dórsson í „fornar hetjusögur
með nútímaskýringu“:
Ein hetja í bardaga hörfar að klöpp,
hölt raunar orðin og þó nokkuð slöpp.
Hjó einn með bragði
„hey baby“ sagði
og „ég hygg að það vanti’ á mig löpp.“
Helgi Ingólfsson fer hér með
„bókmenntagagnrýni“:
Yrkja ég verkin hans vil um
vísu – og segja hér til um:
Þar inni á milli
er mikilsverð snilli,
en mest þó í punktum og bilum.
Enn yrkir Helgi:
Við hugljúfa hljómfegurð styrkjum
og hæfustu listamenn virkjum.
Samt örmjór er stígur:
Hinn eilífi rígur
við organistana í kirkjum.
„Matarsóun í Heiðmörk“ verður
Magnúsi Halldórssyni að yrkisefni:
Logana var ljótt að sjá,
leggja’ um runn og kvista
og rosalegan reykinn frá,
réttum veganista.
„Ekki einleikið“ segir Guð-
mundur Arnfinnsson:
Landsbankastjórinn Lundi,
sem löngum á bankaráðfundi
upptekinn sat
á einhvern hátt gat
þó samtímis verið í sundi.
Gylfi Þorkelsson leikur sér að
braghendunni:
Góðar vonir, glæstir draumar, geta
brostið.
Norðanáttin, næturfrostið
núna fóðra sálarlostið.
Magnús Halldórsson um veðrið:
Ylur sumars ekki fjarri,
enda verður bráðum hlýtt.
Nokkuð svalur norðangarri,
næturfrostið gleður lítt.
Hér er Eggert J. Levy á róm-
antískum nótum:
Upp á fjallið fara má
fegurð kvöldsins skoða.
Snotur lækur liðast hjá
litlum næturroða.
Ingólfur Ómar yrkir:
Eðlisreist og ærslakvik
ört er þeyst um sviðið.
Þjóta neistar, þyrlast ryk
þegar geyst er riðið.
Gömul vísa í lokin:
Sláðu íslensk stuðlastál
í sterka, hreina bögu.
Yngdu þína öldnu sál
við eld úr þjóðarsögu.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Fornar hetjusögur
og rígur í kirkjum