Morgunblaðið - 12.05.2021, Síða 1
Áhugi á vetnisverksmiðju
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Erlendir aðilar hafa lýst yfir áhuga á
að reisa vetnis- og vetnisafleiðuverk-
smiðju til útflutnings frá Grundar-
tanga. Orkuþörfin gæti orðið meira
en 200 megavött. Hafa Faxaflóa-
hafnir, eins og fram kemur í fund-
argerð stjórnar fyrirtækisins, hafið
vinnu við mat á umhverfisáhrifum til
að hraða ferli mögulegs verkefnis.
„Þróunarfélagið á Grundartanga
hefur um nokkurt skeið verið með
verkefni í gangi um rafeldsneytis-
framleiðslu og okkur hefur nú borist
fyrirspurn um slíka framleiðslu,“
segir Magnús Ásmundsson, forstjóri
Faxaflóahafna, í samtali við Við-
skiptaMoggann.
Magnús telur áhugann það mikinn
að ekki sé ólíklegt að af verkefninu
verði á næstu árum. Magnús segir
vetnisframleiðslu umhverfisvænan
kost og mögulega verði hægt að nota
koltvísýring í frekari framleiðslu á
vetnisafleiðum sem henta betur til
flutnings og sem beislaður yrði úr
þeim orkufreka iðnaði sem til staðar
er á svæðinu.
- Mögulega hægt að nota koltvísýring úr orkufrekum iðnaði
Morgunblaðið/Eggert
Orka Vetnisframleiðsla er talin um-
hverfisvænn valkostur.
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Santewines SAS, frönsk vínbúð á
netinu ætluð Íslendingum, hefur
kvartað til Neytendastofu undan
því að Áfengis-/tóbaksverslun rík-
isins (ÁTVR) noti heitið Vínbúðin
um starfsemi sína. Hún eigi sér
enga stoð í lögum og brjóti lög um
viðskiptahætti og markaðs-
setningu.
Þetta kemur m.a. fram í viðtali
við Arnar Sigurðsson, vínkaup-
mann og eiganda vínbúðarinnar, í
Dagmálum í dag, streymisveitu
sem opin er áskrifendum Morg-
unblaðsins á mbl.is og nálgast má
með því að skima kóðann hér fyrir
neðan.
Bent er á að ÁTVR hafi t.d.
auglýst að vínbúðirnar séu lokaðar
nú á uppstigningardag, sem sé
ekki rétt. Vínbúð sante.is verði op-
in.
Vínkaup-
maður kær-
ir ríkið fyrir
Vínbúðina
Sólin hefur svo sannarlega leikið við höfuðborgarbúa síðustu
daga. Margir hafa nýtt sér veðurblíðuna til útivistar eins og
þessi unga kona sem fetaði sig áfram á grjótgarði við Sæbraut
ásamt hundinum sínum í gær. Útlit er fyrir áframhaldandi
blíðviðri á höfuðborgarsvæðinu í dag og á morgun en Veður-
stofa Íslands spáir vætu bæði á föstudag og laugardag.
Gengið á grjótgarði í sól við Sæbraut
Morgunblaðið/Eggert
M I Ð V I K U D A G U R 1 2. M A Í 2 0 2 1
.Stofnað 1913 . 111. tölublað . 109. árgangur .
VERÐIÐ Í
SÖGULEGUM
HÆÐUM
SETTI SAMAN
SÍNA FYRSTU
VÍSU 10 ÁRA
NÝTTU SÉR
VÆNTANLEGA
MEÐBYRINN
VÍSUR OG KVÆÐI ÞÓRARINS MÁS 24 FIÐRILDAFANS 6VIÐSKIPTAMOGGINN
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
„Aflamarkskerfið, sem íslensk sjáv-
arútvegsfyrirtæki búa við, hvetur út-
gerðir til að lágmarka kostnað og há-
marka aflaverðmæti og frjáls verð-
myndun á markaði er útgerðum
hvatning til að reyna að fá sem hæst
verð fyrir aflann.“ Þetta segja fjórir
vísindamenn í nýrri skýrslu sem
Morgunblaðið hefur undir höndum.
Sveinn Agnarsson, prófessor við við-
skiptafræðideild HÍ, mun í dag
kynna helstu niðurstöður skýrslunn-
ar um stöðu og horfur í íslenskum
sjávarútvegi og fiskeldi.
Fram kemur að íslenskur sjávar-
útvegur hafi mætt sífellt harðnandi
samkeppni á alþjóðlegum mörkuð-
um og er vakin athygli á að sjávar-
útvegurinn hér á landi sé í algjörri
sérstöðu með tilliti til þess að hann
greiðir meira í opinbera sjóði en
hann fær úr þeim, sem er ekki til-
fellið í hinum 28 aðildarríkjum
OECD. Jafnframt hefur opinber
stuðningur við sjávarútveg aukist í
ríkjum OECD, að Íslandi undan-
skildu.
Greininni hefur tekist að mæta
þessari áskorun með því að „nýta
ekki bara, heldur taka þátt í að þróa
nýjustu tækni á flestum stigum virð-
iskeðjunnar, þ.e. veiðum, vinnslu,
flutningum og síðast en ekki síst í
markaðssetningu,“ segir í skýrsl-
unni. Þá sé þetta fjárhagslegum
styrkleika íslenskra sjávarútvegs-
fyrirtækja að þakka þar sem þau
hafi bolmagn til að fjárfesta í
tækniþróun.
Kvótakerfið veitir forskot
- Í 28 af 29 ríkjum OECD er sjávarútvegi úthlutað meira úr opinberum sjóðum en
greinin greiðir í sjóðina - Ísland undantekningin - Samkeppni farið harðnandi
M Íslenskt sjávarútvegskerfi... »10
_ Ákveðið var á fjarfundi kjördæm-
isráðs Sjálfstæðisflokksins í Suð-
vesturkjördæmi í gær að haldið
skyldi prófkjör fyrir alþingiskosn-
ingar í haust. Þetta staðfesti Lovísa
Árnadóttir, formaður kjördæmis-
ráðsins, við Morgunblaðið að lokn-
um fundi í gærkvöldi.
Horft er til þess, að hennar sögn,
að halda prófkjörið í júní og líklega
þá um miðjan mánuðinn. Ekkert
hefur þó endanlega verið ákveðið
um það, enda er það á forræði yfir-
kjörstjórnar flokksins að ákveða
slíkt.
Lovísa segir að mikil samstaða
hafi verið um að halda prófkjör
frekar en að stilla upp á lista. »6
Sjálfstæðismenn í
prófkjör í Kraganum