Morgunblaðið - 12.05.2021, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 12.05.2021, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. MAÍ 2021 Vangaveltur hafa undanfarið verið á facebókarsíðunni Lúsmý á Íslandi um að lúsmý sé farið að láta á sér kræla með tilheyrandi óþægindum fyrir fólk. Erling Ólafsson skordýra- fræðingur segir ólíklegt að svo sé og skordýrabit á þessum tíma árs séu því af völdum annarra skordýra. Fyrir viku var m.a. sagt á fyrr- nefndri facebókarsíðu að lúsmýið væri mætt í Grímsnesið. Því var hafnað af öðrum sem tók til máls á síðunni og taldi sá að um flóabit væri að ræða. Nokkrar umræður hafa verið um lúsmý á síðunni síðustu vikur og einnig varnir gegn þessum óboðna gesti, sem síðustu ár hefur víða gert vart við sig. Spurður um lúsmý segir Erling Ólafsson að hann hafi engar for- sendur til að breyta skoðunum á flugtíma þess frá júní og fram eftir ágúst. „Auk þess tel ég litlar líkur til þess að það komist á kreik um þess- ar mundir eins og háttar til á sunn- anverðu landinu, allt skrjáfaþurrt og viðvarandi kuldi,“ segir Erling. aij@mbl.is Ljósmynd/Vísindavefur HÍ Lúsmý Hefur síðustu ár hrellt marga og bitið, ekki síst í sumarbústöðum. Hæpið að lúsmý sé komið á kreik - Flugtími frá júní og fram eftir ágúst Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Við finnum alveg fyrir því að þar sem ekki hefur verið margt hægt að gera vill fólk gera vel við sig í mat og drykk. Fólk vill hafa það gott á þess- um tímum,“ segir Jón Örn Stef- ánsson, eigandi Kjötkompanís. Landsmenn hafa nú gengið í gegn- um rúmlega eitt ár af samkomu- takmörkunum af völdum kórónu- veirunnar. Þessar takmarkanir hafa komið misjafnlega við kaupmenn og veitingamenn. Veitingastaðir hafa mikið verið lokaðir og þurft að sæta fjöldatak- mörkunum og veisluþjónustur hafa ekki beint vaðið í verkefnum. Á sama tíma hafa utanlandsferðir nær lagst af svo þörf fólks til að lífga upp á hversdaginn hefur verið mikil. Marg- ir hafa af þeim sökum tekið upp á því að gera vel við sig heima fyrir, annað hvort með aðkeyptum mat frá veit- ingastöðum eða með því að leita til sælkerabúða. Jón Örn segir í samtali við Morg- unblaðið að starfsemi Kjötkompanís skiptist í þrennt; verslanir þess í Hafnarfirði og úti á Granda, kjöt- vinnslu sem sjái vel völdum veitinga- húsum fyrir hráefni og veisluþjón- ustu. „Veitingahús hafa mikið verið lokuð og það hefur ekki verið mikið um veislur. Því hafa búðirnar okkar borið þetta uppi. Ég myndi telja að velta hafi aukist um 10% á þessum tíma, þrátt fyrir allt,“ segir hann. Kaupendahópurinn stækkar Guðbjörg Glóð Logadóttir, einn eigenda Fylgifiska, segir að fyrir- tækið komi vel út úr faraldrinum. Tekist hafi að halda veitingastöðum Fylgifiska opnum og sala í versl- unum hafi aukist. „Það er búið að vera brjálað að gera hjá okkur. Fólk hefur ekki komist til útlanda og er í staðinn farið að elda meira heima hjá sér. Við fengum að vísu smá högg í fyrstu bylgjunni þegar enginn vissi hvað var að gerast. En síðan þá hefur verið eitt besta ár sem við höfum átt.“ Guðbjörg Glóð segir að kórónu- veiran hafi ýtt fólki út í það að leita nýrra leiða við matargerð og -kaup. „Við merkjum mikla aukningu í sölu á tilbúnum fiskréttum og meðlæti sem fólk hefur kannski með öðrum mat. Svo er fólk líka að listakokkast heima hjá sér og við höfum selt vel af tún- fiski, humar, laxasteikum og lúðu- steikum.“ Hún segir að kaupendahópurinn hafi stækkað „gríðarlega“ á þessum tíma. „Salan hefur aukist um 20-30% milli ára. Við viljum meina að þetta nýja fólk sé komið til að vera. Það er komið á bragðið, Fylgifiskabragðið.“ Jón Örn segir að það hafi hjálpað Kjötkompaníi mikið að koma fljótt upp góðri vefverslun. „Hún kom rosa- lega sterk inn, sérstaklega í byrjun en svo hefur hún haldið ágætlega velli í framhald- inu.“ Hann segir að viðskiptavinirnir sæki enn í sígildar vörur. „Við seljum gríðarlegt magn af nautalundum og lambakonfekti auk hamborgara. Ein vinsælasta steikin hjá okkur er þó nauta ribeye-cap sem við byrj- uðum með í kóvidinu. Það er hörk- umál að eiga þetta alltaf til.“ Fólk vill lyfta sér upp Sælkerabúðin á Bitruhálsi fagnar ársafmæli í þessari viku. Viktor Örn Andrésson, annar eigenda, segir að rennt hafi verið blint í sjóinn þegar búðin var opnuð. „Það hefur allt verið yfir væntingum. Við erum mjög sáttir við fyrsta árið.“ Hann kveðst finna að fólk sé þreytt á því ástandi sem verið hefur í sam- félaginu síðasta árið og vilji lyfta sér upp með fjölskyldunni. „Þannig eru mjög margir sem kaupa sérstaka pakka sem við útbúum fyrir veiði- og sumarbústaðaferðir. Fólk kaupir þá gjarnan fyrir einn, tvo eða þrjá daga og þá fylgir allt með.“ „Listakokkar“ í hverju húsi á tímum veirunnar - „Brjálað að gera“ í sælkeraverslunum og aukin velta Morgunblaðið/Golli Veisla Margir kaupa inn fyrir veislur í heimahúsum í sælkeraverslunum. Jón Örn Stefánsson Viktor Örn Andrésson Guðbjörg Glóð Logadóttir „Hraunrennslið hefur farið vax- andi síðustu vikur,“ sagði Þorvald- ur Þórðarson, prófessor í eldfjalla- fræði við HÍ um eldgosið í Geldingadölum. Hann segir að lík- lega hafi gosrásin víkkað sem valdi auknu hraunflæði. Takturinn í kvikustrókavirkn- inni hefur breyst. Þorvaldur telur að kúturinn efst í gosrásinni undir gígopinu sé sennilega að stækka og það hafi áhrif á takt strókanna. Yfirfallið úr gígnum er vel sýni- legt og boðaföll af hrauni flæða þar yfir þegar strókarnir koma. Auk þess er lokuð rás undir yf- irborðinu þar sem hraun streymir frá gígnum jafnt og þétt og fæðir hraunána. Hún nær í gegnum ónefnda dalinn og niður í Mera- dali. Eins er að bætast í hraunið í Geldingadölum og er það að teygja sig í átt að næstu dæld fyrir sunn- an þá sem er að fyllast. Hraun- framleiðslan deilist því á þrjá staði. Í fyrrinótt kom undanhlaup úr suðurjaðri hraunsins í nafnlausa dalnum. Hraunið er nálægt því að renna í Nátthaga. Það gæti mögu- lega gerst í næstu viku. Á sunnu- dag urðu yfirhlaup úr hraunánni í nafnlausa dal og heit og þunnfljót- andi kvikan myndaði helluhraun. Um leið skreið hraunjaðarinn í Meradölum fram um fjóra metra á klukkustund og myndaði apal- hraun. gudni@mbl.is Eldgosið í Geldingadölum 19. mars - 10. maí Flatarmál hrauns, km2 Rúmmál hrauns, milljónir m3 Hraunflæði, km3/s 19.3. 23.3 27.3. 31.3. 4.4. 8.4. 12.4. 16.4. 20.4. 24.4. 28.4. 2.5. 6.5. 10.5. 19.3. 23.3 27.3. 31.3. 4.4. 8.4. 12.4. 16.4. 20.4. 24.4. 28.4. 2.5. 6.5. 10.5. 19.3. 23.3 27.3. 31.3. 4.4. 8.4. 12.4. 16.4. 20.4. 24.4. 28.4. 2.5. 6.5. 10.5. 1,78 30,7 12,9 Myndataka úr lofti Pleiades gervitungl TF-FMS sniðmælingar Riegel Lidar 10.maí var flatarmál hraunsins um 1,78 ferkílómetrarsem er á við meira en 250 Laugardalsvelli Hraunið er orðið um 30,7 milljón rúmmetrarog myndi því fylla 30.700 Laugardalslaugar Hraunrennslið er um 12,9 rúmmetrar á sekúndu sem eruyfir 50 vörubílshlöss á mínútu Heimild: Jarðvísindastofnun Ný gosop Hraunið breiðir úr sér í allar áttir - Gosrásin hefur líklega víkkað út Fimmtudaginn 20. maí 2021 kl. 16.30 1. Fundur settur 2. Skýrsla stjórnar 3. Gerð grein fyrir ársreikningi 4. Tryggingafræðileg úttekt 5. Fjárfestingarstefna sjóðsins kynnt 6. Önnur mál Ársfundur SL lífeyrissjóðs 2021 Allir sjóðfélagar, jafnt greiðendur sem lífeyrisþegar, eiga rétt til fundarsetu á ársfundinum. Hægt verður að senda spurningar á meðan á fundinum stendur á tölvupóstfangið sl@sl.is DAGSKRÁ Reykjavík 20.05.2021 Stjórn SL lífeyrissjóðs Fundurinn er rafrænn og verður streymt, sjá slóðina www.sl.is Ef sóttvarnarreglur leyfa, eru fundargestir velkomnir á fundarstað á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.