Morgunblaðið - 12.05.2021, Síða 7
FRÉTTIR 7Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. MAÍ 2021
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Átta skipasmíðastöðvar skiluðu inn
þátttökutilkynningum um að taka
þátt í útboði á nýju hafrannsókna-
skipi fyrir Íslendinga. Gert er ráð
fyrir svokölluðu samkeppnisútboði
sem gefur möguleika á viðræðum
við boðendur og aðlögun vegna til-
boða, samhliða er unnið að hæfnis-
mati á skipasmíðastöðvunum, segir
í frétt sjávarútvegsráðuneytisins.
Kristján Þór Júlíusson, sjávar-
útvegsráðherra, gerði grein fyrir
málinu á fundi ríkisstjórnar í gær.
Að loknu útboði og samningagerð
er vonast til að smíði skipsins hefj-
ist fyrir árslok og það verði afhent í
lok árs 2023. Við hönnun á nýju
skipi fyrir Hafrannsóknastofnun
hefur verið horft til ýmissa leiða til
að draga úr notkun jarðefnaelds-
neytis.
Hægt verður að brenna lífdísil,
t.d. repjuolíu, og er þeim möguleika
haldið opnum í hönnun að gera ráð
fyrir plássi fyrir búnað sem þarf til
ef hentugar vélar til brennslu met-
anóls verði komnar í framleiðslu á
smíðatímanum.
Innan skips verður leitað allra
leiða til að spara orku, segir í frétt
ráðuneytisins.
Færeyingar meðal áhugasamra
Fyrirtækin sem tóku þátt í for-
valinu og hafa hug á að smíða rann-
sóknaskipið eru þrjú á Spáni, tvö í
Hollandi, eitt í Póllandi, eitt í Síle
og færeyska skipasmíðastöðin Mest,
samkvæmt því sem fram kemur á
heimasíðu Ríkiskaupa.
Mest lauk í fyrra smíði á rann-
sóknaskipi fyrir Færeyinga og ber
það nafn Jákups Sverra Joensen,
fyrsta fiskifræðings í Færeyjum og
fyrrum forstjóra Havstovunnar.
Skipið er 54 metrar, vel tækjum bú-
ið og á að vera einstaklega hljóðlátt.
Átta vilja smíða
fyrir Hafró
Ljósmynd/MEST
Jákup Sverri Rannsóknaskip Færeyinga var afhent Havstovunni í fyrra.
LANDSBANKINN. IS
Komum
hlutunum
á hreyfingu
Við bjóðum hagstæðar leiðir
til að fjármagna ný og notuð
atvinnutæki og bíla sem henta
rekstrinum þínum.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Bæjarráð Sveitarfélagsins Árborgar
hefur falið stjórnsýslusviði bæjar-
skrifstofanna að kalla eftir nánari
rökstuðningi sýslumannsins á Suður-
landi til heimilda fyrir bæjarstjóra að
undirrita skjöl sem leiða af ákvörð-
unum bæjarstjórnar. Embætti sýslu-
manns hefur ekki tekið við skjölum
um sölu eigna eða veðsetningar til
þinglýsingar nema bæjarstjórn veiti
bæjarstjóra sérstaka heimild til
hverrar og einnar undirritunar.
Í bókun á síðasta fundi bæjarráðs
kom fram að sýslumaður hefði hafnað
því að bæjarstjóri hafi heimild til að
ganga frá sölu tiltekinna eigna, þrátt
fyrir ákvörðun bæjarráðs um að sam-
þykkja kauptilboð og fela bæjarstjóra
að ganga frá sölunni. Einnig að sú
ákvörðun að selja feli sjálfkrafa í sér
heimild til þess að veita kaupanda
skilyrt veðleyfi vegna skuldabréfa-
lána sem hann þarf að taka til að
greiða bænum fyrir eignina.
Bæjarráðið brást við þessu með því
að bóka sérstaklega um heimild bæj-
arstjóra til að undirrita öll skjöl við-
víkjandi sölu þeirra eigna sem þá
voru til umfjöllunar.
Ágreiningur um túlkun laga
Gísli Halldór Halldórsson, bæjar-
stjóri í Árborg, telur að sýslumaður
sé að rangtúlka lög. Vísar hann til
sveitarstjórnarlaga þar sem fram
kemur að bæjarstjóri hafi prókúru-
umboð fyrir sveitarfélagið og undir-
riti „skjöl varðandi kaup og sölu fast-
eigna sveitarfélagsins, lántökur og
ábyrgðir, svo og önnur skjöl sem fela í
sér skuldbindingar eða ráðstafanir
sem samþykki sveitarstjórnar þarf
til“.
Sýslumaður vísar til þess að pró-
kúruumboð framkvæmdastjóra sveit-
arfélags dugi ekki til sölu og veðsetn-
ingar og vísar til laga um
verslanaskrár, firmu og prókúruum-
boð frá árinu 1903. Þar er tekið fram
að prókúruhafi megi ekki selja né
veðsetja fasteignir umbjóðanda síns
nema hann hafi til þess beint umboð.
Heimildir sem veittar séu fram-
kvæmdastjóra í 55. gr. sveitarstjórn-
arlaga áskilji undanfarandi samþykki
sveitarstjórnar.
Eins og fram kemur hér að framan
hefur bæjarráð falið stjórnsýslusviði
að kalla eftir skýrari rökstuðningi
sýslumanns fyrir afstöðu hans.
Tilefni til frekara samtals
Kristín Þórðardóttir sýslumaður
segir umrætt þinglýsingarmál hafa
verið leitt til lykta í samræmi við leið-
beiningar embættisins. Því hafi lokið
með þinglýsingu. Hún hafi því talið að
málið væri afgreitt. „Hér virðist hins
vegar vera tilefni til frekara samtals
og leiðbeiningar sem við tökum auð-
vitað,“ segir Kristín, enda standi
hennar vilji eindregið til þess að eiga
gott samstarf við stjórnendur sveitar-
félagsins, líkt og aðra íbúa í umdæm-
inu.
Prókúruumboð dugar
ekki til sölu eigna
- Árborg ósátt við afstöðu sýslumannsins á Suðurlandi
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Eyrarbakki Ágreiningur er um frá-
gang skjala fyrir þinglýsingu.
Vísbending féll niður í krossgátu Sunnudagsblaðsins 9. maí. Vísbendingin er
16 lárétt og hljóðar svo: 16. Varkár kind við ofn er samt tillitslaus. (9)
Tillit verður tekið til þess að vísbendinguna vantaði þegar farið verður yfir
lausnir verðlaunagátunnar.
LEIÐRÉTT
Vísbendingu vantaði