Morgunblaðið - 12.05.2021, Blaðsíða 8
Ársfundur Frjálsa
lífeyrissjóðsins
Allir sjóðfélagar eru velkomnir á fundinn en einnig verður hægt að fylgjast
með fundinum í gegnum vefstreymi. Tillögur um breytingar á samþykktum
sjóðsins verða birtar á vef sjóðsins, frjalsi.is, tveimur vikum fyrir ársfund.
Boðið verður upp á rafræna og skriflega kosningu aðalmanna í stjórn.
Fyrirkomulag kosningannamá finna á vef sjóðsins.
Á fundinum verða kjörnir tveir aðalmenn til þriggja ára, einn varamaður til
þriggja ára og einn varamaður til eins árs.
Framboð til stjórnar þarf að liggja fyrir eigi síðar en 14 dögum fyrir
ársfund, þ.e. 27. maí 2021. Senda skal tilkynningu um framboð auk
nauðsynlegra gagna á netfangið arsfundur@frjalsi.is.
Nánari upplýsingar um fundinn, reglur um framkvæmd ársfundar og
rafræna atkvæðagreiðslu til stjórnar og þau gögn sem frambjóðendur
þurfa að skila inn til að staðfesta framboð sitt má finna á vef sjóðsins.
Ársreikning 2020 ogmeginniðurstöður hans er einnig að finna á vef
sjóðsins.
Vegna núgildandi sóttvarnareglna er grímuskylda á fundinum og farið er
fram á að sjóðfélagar skrái sig á fundinn á vef sjóðsins fyrir kl. 12:00 þann
9. júní 2021.
* Fundarstaður er birturmeð fyrirvara um breytingar vegna samkomutakmarkana. Ef fundarstað verður
breytt verður það auglýst á vefsíðu sjóðsins og í dagblöðum.
Ársfundur Frjálsa verður haldinn fimmtudaginn 10. júní 2021
kl. 17:15 í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19.*
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. MAÍ 2021
Jón Magnússon, lögmaður og fv.alþingismaður, minnir á að
arfakóngar fyrri tíðar vildu teljast
óskeikulir enda var ekki deilt við
heimildina.
- - -
Hinir merkuWindsor-arfar
veifa ekki slíkum
heimildum en orð
þeirra hafa þó um-
framvigt vegna
stöðu þeirra og
forns ættarmergs.
- - -
Jón segir aðBretaprins telji
sig hafa spásagnar-
anda í loftslagsmálum og hafi í júlí
2009 sagt að hlýnun jarðar af
mannavöldum væri svo mikil og
hröð að við ættum aðeins 96 mánuði
eftir þangað til allt yrði komið í
óefni.
- - -
Júlí 2018 hafi komið og 96 mánuð-irnir liðnir, en ekkert hafi gerst.
Ári síðar hafi Karl endurnýjað spá
sína og sagt að við ættum 18 mánuði
eftir þar til úti yrði um mannkynið.
Janúar 2021 hafi komið og 18 mán-
uðir liðnir, án þess að neitt gerðist.
- - -
Harry, sonur prinsins, hafi bættum betur og sagt í júnímánuði
2019 „að við værum eins og froskar
sem væru í sjóðandi vatni vegna
hlýnunar af mannavöldum“.
- - -
Í tilefni þess fór hann í fjórar utan-landsferðir á einkaþotum, en er
enn ekki steiktur í eiginlegri merk-
ingu.
- - -
Fésbók, twitter og google detturekki í hug að loka á svona fals-
fréttir og spádóma. Það er bara
gert gagnvart þeim sem mótmæla
pólitísku veðurfræðinni og ham-
faraspámönnunum …“
Jón Magnússon
Reyna að slá
Al Gore út
STAKSTEINAR
Karl prins
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Fjórir sakborningar verða ákærðir
vegna morðsins á Armando Beqiri
sem framið var í Rauðagerði um
miðjan febrúar. Þetta staðfestir
Kolbrún Benediktsdóttir varahér-
aðssaksóknari. Kolbrún getur ekki
tjáð sig, að svo stöddu, um kyn,
þjóðerni eða aldur sakborninganna
þar sem sakborningum hefur ekki
enn verið formlega birt ákæra.
Ekki liggur heldur fyrir hver er
ákærður fyrir hvað.
Albanskur karlmaður sem játað
hefur að hafa myrt Armando situr í
varðhaldi.
Fjórir verða ákærðir
vegna morðsins
Katrín Jakobsdóttir forsætisráð-
herra mætti í bólusetningu gegn Co-
vid-19 í Laugardalshöll í gær.
Katrín fékk bóluefni frá lyfja-
framleiðandanum Pfizer en í þessari
viku fá um 12 þúsund einstaklingar
sprautu með bóluefninu, um 5 þús-
und fá fyrri bólusetningu og um 7
þúsund fá seinni bólusetningu.
Sagði Katrín blaðamönnum að
henni hefði verið hálfilla við spraut-
ur frá unga aldri og þakkaði hún
hjúkrunarfræðingnum sem bólusetti
hana með snertilausri kveðju eins og
sjá má á meðfylgjandi mynd.
Þrjú kórónuveirusmit greindust
innanlands á mánudag. Aðeins einn
þeirra sem greindust var í sóttkví
við greiningu. Nú eru 84 í einangrun
og 543 eru í sóttkví. Þrír eru á
sjúkrahúsi með Covid-19. Ekkert
smit greindist á landamærunum en
einn var með mótefni sem fór í skim-
un þar á mánudag. Innanlands voru
1.339 skimaðir á mánudag og 476 á
landamærunum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bólusett Katrín þakkaði hjúkrunarfræðingnum sem bólusetti hana.
Katrín bólusett
með efni Pfizer
- Hefur aldrei verið vel við sprautur