Morgunblaðið - 12.05.2021, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. MAÍ 2021
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Meðal OECD-ríkjanna er það að-
eins á Íslandi sem sjávarútvegur
skilar meira til hins opinbera en
hann fær greitt úr opinberum sjóð-
um. Í hinum 28 OECD-ríkjunum
hefur hlutfall af heildarútgjöldum
þeirra sem rennur til sjávarútvegs-
ins aukist úr 5,6% á árunum 2012
til 2014 í 6,8% á árunum 2016 til
2018.
Þetta er meðal þess sem fram
kemur í skýrslu um stöðu og horfur
í íslenskum sjávarútvegi og fiskeldi
og Morgunblaðið hefur undir hönd-
um. Skýrslan er eftir Svein Agn-
arsson, prófessor við viðskipta-
fræðideild HÍ, Sigurjón Arason,
prófessor við matvæla- og næring-
arfræðideild Háskóla Íslands, dr.
Hörð G. Kristinsson og dr. Gunnar
Haraldsson.
„Íslenskur sjávarútvegur sker sig
úr í hópi nágrannaþjóða þegar
kemur að umfangi og eðli styrkja.
Víðast hvar eru beinir styrkir til
sjávarútvegs verulegir en hér á
landi greiða útgerðarfyrirtæki
veiðigjald,“ segir í skýrslunni sem
unnin var að beiðni Kristjáns Þórs
Júlíussonar, sjávarútvegs- og land-
búnaðaráðherra. Til stendur að
kynna skýrsluna eftir hádegi í dag.
Þá hafi íslenskur sjávarútvegur
staðið sig vel í samkeppni á erlend-
um mörkuðum. „Sú staðreynd að ís-
lensk sjávarútvegsfyrirtæki geta
staðist samkeppnina jafn vel og
raun ber vitni er annars vegar
merki um góða stjórn fiskveiða og
fjárhagslegan styrk sjávarútvegs á
Íslandi en einnig um bágt ástand í
fiskveiðum annars staðar,“ álykta
skýrsluhöfundar.
Þjóðinni til hagsbóta
Fram kemur að ótímabundnar
aflaheimildir íslenskra sjávarút-
vegsfyrirtækja séu til þess fallnar
að tryggja aukinn fyrirsjáanleika
sem um sinn skapar grundvöll fyrir
langtímafjárfestingar og skipulagn-
ingu starfsemi sinnar til lengri tíma
litið. Þá hvetur kvótakerfið útgerð-
irnar til að lágmarka kostnað og
hámarka verðmæti aflans.
„Sú staðreynd að hefðbundnir
nytjastofnar eru fullnýttir setur
sjávarútvegi ákveðnar skorður.
Aukin verðmætasköpun í sjávarút-
vegi getur því ekki komið úr meiri
afla, heldur betri nýtingu hráefna,
aukinni framleiðni og aukinni verð-
mæta- og nýsköpun almennt,“ segir
í skýrslunni.
Þá telja skýrsluhöfundar íslensk-
an sjávarútveg búa við samkeppn-
isforskot sem felst í stjórnkerfi
fiskveiðanna. „Samanburður við
Noreg leiðir skýrt í ljós að íslensk-
ar útgerðir geta, vegna stjórnkerf-
isins, hagað veiðimynstrinu þannig
að þær geta selt fisk inn á mark-
aðina þegar framboð er lítið og
verðið hærra en ella. Einnig geta
íslensk fyrirtæki hagað veiðunum
þannig að minna sé um orma í
þorski og þau neyðist ekki til þess
að koma að landi með lélegra hrá-
efni. Þannig býr stjórnkerfið sjálft
til umgjörð um veiðar og vinnslu
sem skapar aukin verðmæti, þjóð-
inni til hagsbóta.“
Íslenskt sjávarútvegs-
kerfi öðrum framar
- Það eina innan OECD-ríkjanna sem er ekki niðurgreitt
Morgunblaðið/Hari
Ágóði Arðsemi íslensks sjávarútvegs er mun meiri en annars staðar.
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Fækkun starfa í sjávarútvegi vegna
aukinnar tæknivæðingar virðist
frekar koma niður á konum en körl-
um. Það sama á við um aukningu í
útflutningi á óunnum fiski. Þetta má
lesa úr niðurstöðum skýrslu um
stöðu og horfur í íslenskum sjávar-
útvegi og fiskeldi.
Störfum í fiskvinnslu hefur fækk-
að töluvert og voru þau um sex þús-
und árið 2014 en aðeins fimm þús-
und fimm árum síðar og hafði því
fækkað um 16,6% á tímabilinu.
„Segja má að sú þróun eigi sér tvær
meginskýringar. Annars vegar hef-
ur sjálfvirkni og aukin véla- og
tæknivæðing í stærstu fiskvinnslu-
húsum hugsanlega fækkað atvinnu-
tækifærum og hins vegar hefur út-
flutningur á óunnum fiski minnkað
eftirspurn eftir vinnuafli,“ segir í
skýrslunni. Hins vegar telja höf-
undar ekki ástæðu til að óttast að
fiskvinnsla fari til útlanda í stórum
stíl þar sem samkeppnisstaða stóru
íslensku sjávarútvegsfyrirtækjanna
sé „einfaldlega of sterk“. Þá sé lítil
ástæða til að óttast að þróunin hér á
landi verði svipuð og í Noregi þar
sem 51% af útfluttum þorskafurðum
í fyrra var óunninn fiskur.
Fækkun í fiskiðnaði
Árið 2019 störfuðu 4.700 við fisk-
veiðar og 3.700 í fiskiðnaði hér á
landi. Í skýrslunni er vakin athygli á
að um langt skeið hafi verið ójöfn
kynjaskipting og að 95% sem komu
að veiðum voru karlmenn og ríflega
70% í vinnslu voru kvenmenn.
Óbreytt ástand ríkir í veiðum en
hlutfall karla í fiskiðnaði hefur farið
vaxandi á síðustu árum og eru kven-
menn nú innan við 40% þessara
starfsmanna. Skýrsluhöfundar segja
ástæður breytinganna rannsóknar-
efni.
Ekki verður þó annað séð en að
fækkun starfa í vinnslum landsins
hafi komið niður á konum. Þá kann
að vera að með aukinni vinnslu af-
urða á sjó hafi störfin færst úr hefð-
bundinni kvennastétt til hefðbund-
innar karlastéttar.
Hægfara breytingar
Í skýrslunni er bent á að konum
hafi fjölgað í hliðargreinum sem og
ýmsum sprotafyrirtækjum sem
tengjast sjávarútvegi.
„Karlar hafa verið í miklum meiri-
hluta þess fólks sem verið hefur
sýnilegt innan sjávarútvegsins og
utan, með örfáum undantekningum
þó. Konur hafa átt á brattann að
sækja og mörgum hefur reynst erf-
itt að skapa sér sess í jafn karllægri
atvinnugrein. Á síðari árum hafa þó
átt sér stað hægfara breytingar, þar
sem konur hafa orðið meira áber-
andi, bæði hvað varðar starfsemi
fyrirtækja í greininni og hagsmuna-
gæslu.“
Hlutfall kvenna í sjávar-
útvegi lækkaði til muna
- Störfum í fisk-
iðnaði fækkaði um
16% á fimm árum
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Fækkun Hlutfall kvenna meðal starfsmanna í fiskiðnaði var lengi um 70%.
Störfum fækkaði um þúsund og hefur hlutfall kvenna lækkað á sama tíma.
VINNINGASKRÁ
459 12161 19890 30837 41862 49980 61900 69465
477 12166 19969 30931 42810 50166 62261 70247
873 12394 20016 31079 43108 50305 63138 70674
1471 12731 20054 31136 43185 50405 63274 71634
1761 12772 20913 31729 43302 51522 63362 71904
2190 12891 21126 31886 43334 51745 63372 72577
2729 13003 21762 32900 43761 51806 63703 72764
3174 13154 22109 33265 43984 52002 64035 73471
3546 13604 22241 33964 44056 52536 64242 73722
3814 13666 22260 34200 44176 52804 64281 73942
3834 14131 22362 34286 44604 53413 64377 74400
3986 14166 22478 34398 44706 53639 64400 74474
4019 14425 22939 34418 44744 53939 65110 74734
4241 14516 23240 34605 45923 54267 65222 75084
4430 14849 23734 34880 46337 55214 65235 75087
4809 15001 24138 35171 46487 55495 65323 75318
4869 15095 24449 35340 47056 55787 65343 75500
5643 15381 24685 35528 47349 56122 65828 75781
6176 15960 24772 35530 47599 56127 65831 76020
6495 16185 24911 36072 47823 56628 65899 76196
6900 16524 25633 36097 47864 57022 66172 76518
7706 16598 26207 36274 48097 57098 66212 76612
7729 16710 27301 37175 48306 57215 66319 76716
7981 16972 27444 37271 48328 57542 66362 76764
8113 17159 27572 37468 48464 57561 66371 76971
8390 17696 27646 37475 48510 57740 66390 77121
8486 17862 27691 37528 48588 58681 66781 77758
9380 18017 28624 37632 48902 58873 67059 77909
9509 18570 28990 38320 49079 58917 67129 78366
9891 18638 29069 38806 49220 58967 67267 79464
10253 18979 29200 39170 49290 59243 67581 79985
10355 19020 29391 39259 49388 59362 67971
10598 19086 29955 39940 49521 59831 68011
10728 19163 30019 40092 49682 60313 68048
10735 19217 30511 40341 49763 61055 68701
11336 19473 30689 40654 49792 61261 68811
11790 19839 30826 41373 49889 61449 69081
279 8617 17228 27452 43928 52807 64462 74998
874 9364 17644 27963 44484 54974 65099 75807
1197 10780 19872 29299 45081 55598 65864 76076
2050 11059 21310 30712 46233 55710 66581 76432
2687 11999 21838 31160 46353 55714 67027 77454
3092 13183 23927 31888 46973 56548 67493 77975
3858 13352 24088 34843 48052 57446 68406 79010
6496 13801 24265 37301 48542 59214 69182 79395
6582 14104 24282 39688 48567 59470 71010 79727
6865 14243 25413 40893 48619 61072 71755
8008 14547 25854 42363 50397 61364 73651
8071 15097 26781 43333 51464 62062 74292
8484 15483 27028 43464 52754 62801 74360
Næstu útdrættir fara fram 14., 20. & 27. maí 2021
Heimasíða: www.das.is
Vinningur
Kr. 12.000 Kr. 24.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 25.000 Kr. 50.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 150.000 Kr. 300.000 (tvöfaldur)
4695 7424 21161 45431 70288
Vinningur
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
1906 10215 28051 39281 51739 65710
4709 19206 29912 42260 58560 68446
5355 19321 37705 47811 59311 70980
9060 21759 37816 48710 65079 75292
Aðalv inningur
Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
7 1 2 8 5
1. útdráttur 11. maí 2021
Veistu um góðan
rafvirkja?
FINNA.is