Morgunblaðið - 12.05.2021, Síða 11
FRÉTTIR 11Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. MAÍ 2021
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Að minnsta kosti níu manns létust
og tuttugu særðust í gær, þegar
árásarmaður á táningsaldri hóf
skothríð í grunnskóla í borginni
Kazan, sem er höfuðborg sjálf-
stjórnarlýðveldisins Tatarstans. Sjö
af fórnarlömbunum níu voru nem-
endur í 8. bekk, eða á bilinu 13-14
ára gamlir. Tveir fullorðnir létust,
þar af var annar þeirra kennari við
skólann.
Tuttugu voru fluttir á sjúkrahús
eftir árásina, þar af voru 18 nem-
endur. Sex af þeim tuttugu voru í
gjörgæslu í gær og er fólkið á aldr-
inum sjö til 62 ára.
Árásin hófst kl. 9:30 að staðartíma
í Skóla nr. 175, og áttu nemendur og
kennarar fótum fjör að launa.
Stukku sumir þeirra út um glugga
af annarri og þriðju hæð til þess að
komast undan árásarmanninum.
Lögreglan í Kazan handtók hann
um klukkustund eftir að tilkynnt var
um árásina. Ekki var vitað um
ástæður mannsins í gær.
Vilja breyta byssulögum
Vladimír Pútín Rússlandsforseti
sendi samúðarkveðjur sínar til að-
standenda og fórnarlamba árásar-
innar. Fyrirskipaði hann jafnframt í
gær að byssulöggjöf landsins yrði
endurskoðuð, en árásin í gær er ein
sú versta í sögu Rússlands. Verður
þar sérstaklega skoðað hvers konar
skotvopn megi vera í höndum al-
mennings, en árásarmaðurinn var
vopnaður hálfsjálfvirkri haglabyssu
framleiddri í Tyrklandi. Var vopnið
sömu tegundar og það sem var not-
að í skotárás við háskóla á Krím-
skaga árið 2018.
Lögreglan gaf engar upplýsingar
um árásarmanninn í gær, en Int-
erfax-fréttastofan hafði eftir heim-
ildarmönnum sínum að árásarmað-
urinn væri hinn 19 ára gamli Ilnaz
Galjavíev, en hann mun hafa verið
nemandi við viðskiptaháskóla í borg-
inni, en nýlega rekinn þaðan fyrir
slælegan námsárangur. Sagði
fulltrúi háskólans við fréttastofuna
að Galjavíev hefði ávallt verið róleg-
ur og vel til fara, og að hann hefði
virt samnemendur sína og kennara.
Harmleikur fyrir Tatarstan
Rustam Minnikhanov, forseti Tat-
arstans, sagði skotárásina vera stór-
felldan harmleik fyrir þjóð sína.
Sagði hann árásarmanninn vera
hryðjuverkamann, en tók fram að
hann hefði haft gilt byssuleyfi.
Þjóðarsorg mun ríkja í Rússlandi
öllu í dag til að minnast fórnarlamb-
anna, en þá var einnig viðhöfð mín-
útuþögn á öllum íþróttakappleikjum
sem háðir voru í landinu í gær. Þá
minntust bæði ríkisstjórnin og þing-
ið fórnarlambanna.
Skotárásir í skólum eru fátíðar í
Rússlandi, en sú síðasta var fyrir
tveimur árum í bænum Blagoves-
hchensk í austasta hluta Rússlands.
Féll þar einn og þrír særðust áður
en árásarmaðurinn svipti sig lífi.
„Stórfelldur harmleikur“
- Sjö unglingar og tveir kennarar féllu í einni verstu skotárás í sögu Rúss-
lands- Tuttugu fluttir á sjúkrahús - Pútín vill endurskoða byssulöggjöfina
AFP
Sorgarstund Íbúar Kazan-borgar syrgðu og lögðu blóm við ráðhús borgarinnar til að minnast fórnarlambanna.
Benjamín Netan-
yahu, forsætis-
ráðherra Ísraels,
hét því í gær að
herða enn á árás-
um Ísraelshers
gegn Hamas-
samtökunum á
Gaza-svæðinu.
Minnst 30 manns
hafa nú fallið í
átökum Ísraels-
manna og Palestínumanna sem
blossuðu upp vegna óeirða í Jerúsal-
em-borg. Bæði Frakkar og Banda-
ríkjamenn hafa hvatt til stillingar í
átökunum, og Egyptar sögðust í gær
hafa reynt að ræða við Ísraelsmenn
um leiðir til þess að koma í veg fyrir
frekari árásir, en án árangurs.
Hyggst
herða á
árásum
Benjamín
Netanyahu
Framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins tilkynnti í gær að hún
hefði kært lyfjaframleiðandann
AstraZeneca, en tilgangur máls-
höfðunarinnar er að knýja fyrir-
tækið til þess að afhenda samband-
inu 90 milljónir skammta af
bóluefni sínu gegn kórónuveirunni
fyrir lok júlí. Framkvæmdastjórnin
segir að fyrirtækið hafi skuldbund-
ið sig til þess að afhenda 300 millj-
ónir skammta á fyrri hluta þessa
árs, en fyrirtækið segir sig hafa
uppfyllt ákvæði um að afhenda
skammta „eftir bestu getu“.
Evrópusambandið vill
90 milljónir skammta
ASTRAZENECA
Glæný HOFF sending
var að lenda hjá okkur
mjúkir og þægilegir spænskir strigaskór
Garðatorg 6 | sími 551 5021 | www.aprilskor.is
Seattle
18.990 kr.
Back Bay
22.990 kr.
Capri
18.990 kr.
San Marco
22.990 kr.
Við minnum á vefverslunina okkar
www.aprilskor.is
Montreal
18.990 kr.
East Village
22.990 kr.
Toulousse
18.990 kr.
Soho
22.990 kr.