Morgunblaðið - 12.05.2021, Blaðsíða 20
20 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. MAÍ 2021
70 ÁRA Maggnús Víkingur fædd-
ist 12. maí 1951 á Kambsvegi 19 í
Reykjavík. Hann flyst tveggja ára
með foreldrum að Brúsastöðum í
Þingvallasveit og slítur þar barns-
skónum til 12 ára aldurs að for-
eldrar hans flytjast til Þorláks-
hafnar þar sem nóg var af vinnu.
Maggnús lýkur þar grunnskóla
og síðan gagnfræðaskóla frá Reyk-
holti í Borgarfirði. Hann stundar
sjó til 23 ára og stofnar þá heimili
og eignast tvö börn, Gunnar og Ey-
rúnu Lind, með fyrri konu sinni,
Elínu Þórðardóttur. Þau kaupa
jörðina Jaðar í Hrunamannahreppi
og hefja þar búskap vorið 1979. Þau
hætta búskap 1986, flytjast á Flúð-
ir og setja þar upp byggingarvöruverslun þar sem viðskiptavinir afgreiddu
sig sjálfir því Maggnús var á sama tíma sjálfstæður verktaki. Þau skildu árið
1990.
Maggnús kynnist núverandi eiginkonu sinni, Ingibjörgu Dís Geirsdóttur,
og flyst til hennar í bæinn. Þau giftast á Bahamaeyjum árið 2002, þá búin að
eignast tvo drengi, Hjalta Robin Víking og Maggnús Hlina Víking. Þau
kaupa fyrirtækið Glugga og garðhús árið 1995. Þau seldu það 10 árum seinna
og höfðu þá tífaldað veltu þess og umfang.
Eitt af stærstu áhugamálum Maggnúsar er einkaflug sem hann hefur nú
stundað í 54 ár með skrautlegum árangri.
Maggnús fór upp úr tvítugu að skrifa nafn sitt með tveimur g-um því hon-
um finnst réttara að skrifa það samkvæmt framburði frekar en latneska orð-
inu magnus sem er þar lýsingarorð og þýðir mikið.
Maggnús hefur alla tíð þótt uppátektasamur og óhræddur við að ganga
ótroðnar slóðir. Honum hefur þrátt fyrir það farnast vel í lífsbaráttunni og
skrifað um það eigin ævisögu sem gefin var út í fyrra og heitir Talinn galinn
og þykir með afbrigðum skemmtileg.
Í tilefni af afmælinu taka Inga og Maggnús fagnandi á móti gestum í
Laufskálabyggð sinni á Flúðum, laugardaginn 15. maí, upp úr kl. 17.00.
Maggnús Víkingur Grímsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Rétta leiðin til að ráða fram úr
verkefnum er að ráðast á þau úr óvæntri
átt. Víkkaðu sjóndeildarhring þinn.
20. apríl - 20. maí +
Naut Þú ert í toppformi bæði andlega og
líkamlega og vekur almenna athygli. Ein-
beittu þér að málum heimilisins bæði innan
veggja sem utan.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Breytingar standa fyrir dyrum og
samræður við fjölskyldumeðlimi fá aukið
vægi. Láttu ekki hugfallast þótt allt virðist
á móti þér þessa dagana.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Sjáðu allt það besta í sjálfum þér
og öðrum. Gerðu ekki lítið úr málflutningi
þeirra sem nálgast viðfangsefnin úr annarri
átt en þú.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Kannaðu vel verð og gæði áður en þú
festir kaup á nýjum hlutum. Haltu áfram að
ganga í áttina að peninga-vininni sem er
fram undan.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Þú skalt ekki vera vonsvikinn þótt
eitthvað renni þér úr greipum. Ekki skuld-
binda þig ef þú mögulega kemst hjá því.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Taktu enga áhættu í dag og vertu þar
sem þú finnur öryggi og frið. Búðu þig und-
ir að þurfa að losa þig við óþarfa og halda
áfram þaðan sem frá var horfið.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Þeir sem halla sér upp að þér
einum of oft eru farnir að verða of þungir.
Taktu stjórnina í þínar hendur og þá munu
hjólin fara að snúast þér í hag.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Það reynir á þig í samstarfi við
vinnufélagana. Varaðu þig á vini sem hefur
bara áhuga á stöðu þinni og hverfur þegar
syrtir í álinn.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Hlustaðu á þá sem vilja leið-
beina þér og gefa þér góð ráð, því þeir tala
af reynslu. Vertu þolinmóður.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Þú hefur verið lúsiðin/n að und-
anförnu svo nú er komið að því að þú njótir
ávaxta erfiðis þíns og lyftir þér aðeins upp.
Gerðu endilega ferðaáætlanir.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Þú finnur til glaðværðar og bjart-
sýni sem nýtist vel til þess að ná árangri í
nánast hverju sem er. Njóttu þess að vera
með öðrum í starfi og leik því félags-
skapurinn mun endurnæra þig.
Nanna sá fyrsta bílinn aka moldar-
troðningana fyrir Kollafjörð 1931
sagði hún að það þyrfti að „steypa
vegina“ og „grafa göng“ í gegnum
fjöllin. Áhugi Nönnu á samgöngu-
bótum kom vel í ljós þegar byrjað var
að bora fyrir Héðinsfjarðargöngum.
Hún kom því svo fyrir að hún fékk að
áratugnum var enginn maður með
mönnum á Sigló nema hann ætti
skíðahúfu og eyrnaskjól frá Nönnu
Frank.
Áhugi Nönnu á bílum var mikill
alla tíð. Hún var með fyrstu konum
sem tóku meirapróf hér á landi og ók
um tíma rútu á Siglufirði. Þegar
É
g er stríðsframleiðsla,“
segir Nanna fullum
fetum enda fædd í
miðju fyrra stríði, hinn
12. maí árið 1916 í
Litla-Fjarðarhorni í Kollafirði í
Strandasýslu. Nanna var níunda í röð
þrettán systkina sem öll náðu háum
aldri en Nanna og Margrét systir
hennar, f. 1922, eru nú einar eftir.
Þær eru elstu núlifandi systkin á Ís-
landi og Nanna næstelst Íslendinga.
Hallfríður Nanna Franklínsdóttir
fæddist í torfbæ og ólst þar upp.
Skólagangan var stutt; einungis fá-
einir mánuðir í farskóla. Henni þótti
alla tíð leitt að hafa ekki átt kost á
lengri skólagöngu því hún hafði gam-
an af að læra og var og er enn stál-
minnug. „Ég reyndi að falla á prófi
því þá hefði ég fengið að vera tvo
mánuði til viðbótar í skólanum en
þeir sáu við mér,“ sagði hún. Fáum
árum eftir að Franklín faðir hennar
lést flutti Nanna til Siglufjarðar með
Andreu móður sinni sem lést þar
1979, 97 ára að aldri. Auk Nönnu
settust þrjár systur hennar að á
Siglufirði, þær Guðbjörg, Margrét og
Guðborg. Þetta var á þeim árum sem
sveitirnar gátu ekki framfleytt fólki
en bær eins og Siglufjörður tók við
fjölda manns enda næg atvinna sem
fylgdi síldinni.
Nanna var tæplega þrítug þegar
hún kom til Sigló og tók nýjum tím-
um fagnandi. Hún hefur alla tíð verið
vinmörg, vinsæl og frændrækin. Hún
er orðheppin og glettin og þekkt fyrir
að svara hraustlega fyrir sig og koma
með kraftmiklar athugasemdir við
háa sem lága.
Hún vann öll störf sem buðust á
Siglufirði, saltaði síld á sumrin og
vaskaði fisk á veturna. Hún afgreiddi
í mjólkurbúðinni og rak sjoppu í
kjallaranum heima hjá sér þar sem
hún grillaði pylsur í forláta grillofni
sem margir muna. Sjoppan hennar
Nönnu var vinsæl hjá skólakrökk-
unum og eitt sinn þegar hún heyrði
nokkra stráka ræða um að þeir
nenntu ekki í skólann lét hún þá
heyra það og sagði þeim að þeir ættu
ekki skilið að fá að fara í skóla!
Nanna var iðin prjónakona og útveg-
aði sér prjónavél. Á sjötta og sjöunda
gera sér ferð með starfsmanni verk-
taka inn í Héðinsfjörð skömmu eftir
að síðasta haftið var sprengt. Hún
hafði á orði þegar lagt var af stað inn
göngin að hún hefði ekki hlakkað eins
mikið til nokkurs hlutar á ævinni.
Nanna vildi vera þátttakandi í ævin-
týrinu og á árinu 2010 lagði hún fram
sinn skerf, eða meira en hálfan kíló-
metra, til prjónatrefilsins langa sem
tengja skyldi Siglufjörð og Ólafs-
fjörð. Nanna átti langan og áfalla-
lausan ökumannsferil og fór stundum
í löng ferðalög um landið.
Á árinu 1991 kom hún til Flateyjar
með þrjár systur sínar í ferð um
Vesturland og Vestfirði – þær gistu á
farfuglaheimilum en meðalaldur
þeirra var þá 75 ár. Nanna var bíl-
stjórinn og sú eina sem þáði púrtvíns-
staup áður en haldið var aftur til
lands. Hún var komin á níræðisaldur
þegar hún seldi síðasta bílinn og fékk
sér rafskutlu eða ,,ellinöðru“ og
keyrði á henni um götur Siglufjarðar
meðan þrek entist.
Þegar Nanna hélt upp á aldar-
afmæli sitt sagði hún að „þær yrðu
ekki fleiri veislurnar“. Hún var þá
Nanna Franklínsdóttir, fyrrverandi verkakona og prjónakona – 105 ára
Í Flatey Úr Vesturlandsrúnti þeirra systra árið 1991, en Nanna var bílstjórinn. Frá vinstri: Anna, Guðborg,
Aðalheiður og Nanna ásamt Sigurmari Albertssyni, syni Guðborgar.
Það verður afmælisveisla!
Á Samgönguminjasafni Skagafjarðar Nanna að skoða VW bjöllu fyrir 10 ár-
um. Hún átti eina slíka árum saman og muna margir eftir henni á bjöllunni.
Til hamingju með daginn