Morgunblaðið - 12.05.2021, Blaðsíða 22
22 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. MAÍ 2021
FÓTBOLTINN
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Selfoss tyllti sér á toppinn í úrvals-
deild kvenna í knattspyrnu, Pepsi
Max-deildinni, þegar liðið heimsótti
Þór/KA í Bogann á Akureyri í ann-
arri umferð deildarinnar í gær.
Brenna Lovera kom Selfyssingum
yfir strax á 19. mínútu með sínu
þriðja marki í tveimur leikjum og
Caity Heap tvöfaldaði forystu Selfoss
á 66. mínútu.
Selfyssingar voru sterkari aðilinn í
leiknum og virðast þær til alls líkleg-
ar í deildinni ár eftir ákveðið von-
brigðatímabil síðasta sumar þar sem
liðið ætlaði sér að berjast um Íslands-
meistaratitilinn.
Miranda Smith og Sandra Nabwe-
teme, erlendir leikmenn Þórs/KA,
byrjuðu báðar á bekknum en þær eru
ekki komnar í leikform.
Colleen Kennedy var hins vegar í
byrjunarliði Akureyringa og virkaði
alltaf hættuleg, í þau fáu skipti sem
hún fékk boltann.
Selfoss er eina lið deildarinnar sem
er með 6 stig og fullt hús stiga eftir
fyrstu tvær umferðir deildarinnar en
báðir leikirnir hafa verið á útivelli.
„Selfoss hefur nú spilað tvo útileiki
og klárað sín lengstu ferðalög. Upp-
skeran er sex stig og toppsætið í
deildinni. Varnarlína liðsins er traust
með snögga og sterka Emmu Chec-
ker eins og herforingja í hjarta henn-
ar. Fyrir aftan hana var Guðný
Geirsdóttir örugg á öllum boltum.
Þór/KA átti í brasi með að skapa
sér færi og álitlegar sóknir en barðist
vel um allan völl. Lítið sást til Colleen
Kennedy í liði Þórs/KA en hún sýndi
lipra takta í þau fáu skipti sem hún
komst í boltann. Miranda Smith kom
svo inn á í stöðunni 2:0 og sást lítið,“
skrifaði Einar Sigtryggsson m.a. í
umfjöllun sinni um leikinn á mbl.is.
Skiptu með sér stigunum
Þá eiga nýliðar Keflavíkur ennþá
eftir að skora mark í deildinni en liðið
heimsótti Stjörnuna á Samsung-
völlinn í Garðabæ.
Leiknum lauk með markalausu
jafntefli en Garðbæingar byrjuðu
leikinn af miklum krafti og ætluðu sér
greinilega að ná inn marki snemma
leiks.
Stjarnan fékk tíu hornspyrnur í
fyrri hálfleik en tókst ekki að nýta
þær sem skyldi. Á sama tíma vörðust
Keflvíkingar vel í leiknum en það
vantar einfaldlega meira bit í sóknar-
leikinn hjá þeim.
Garðbæingar áttu lipra spretti
gegn Valskonum í fyrstu umferðinni
þar sem þær gáfu Íslandsmeist-
araefnunum alvöru leik en líkt og
undanfarin ár þá virðist vanta ákveð-
inn stöðugleika í lið Stjörnunnar og
þær eiga erfitt með að tengja saman
góða frammistöðu.
Þá þurfa Keflvíkingar að breyta
jöfnum leikjum í sigurleiki ef þær
ætla sér að halda sæti sínu í deildinni.
„Jafnteflið þýðir að liðin halda sæt-
um sínum í deildinni komin með eitt
stig eftir tvo leiki – Stjarnan í því átt-
unda og Keflavík í níunda. Garðbæ-
ingar voru vissulega betri og sóttu
mun meira en tókst ekki að brjóta ís-
inn. Keflvíkingar áttu undir högg að
sækja en fá stig fyrir að berjast allan
leikinn, þrátt fyrir að mikið væri af
þeim dregið þegar leið á leikinn,“
skrifaði Stefán Stefánsson m.a í um-
fjöllun sinni um leikinn á mbl.is.
Abby Carchio í liði Keflavíkur fékk
gula spjaldið tvisvar undir lokin og
þar með það rauða, og verður því í
banni í næsta leik.
Með fullt hús
stiga á toppnum
- Keflavík á ennþá eftir að skora mark
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Markahæst Brenna Lovera, til vinstri, er markahæsti leikmaður Pepsi
Max-deildarinnar með þrjú mörk, líkt og Delaney Pridham framherji ÍBV.
Knattspyrnumaðurinn Kjartan
Henry Finnbogason flaug heim til
Íslands í gær frá Danmörku eftir að
hafa rift samningi sínum við danska
b-deildarliðið Esbjerg. Liðið hafði
ekki að neinu að keppa úr því sem
komið var en ljóst var orðið að liðið
myndi ekki vinna sér sæti í efstu
deild. Kjartan Henry er 34 ára
gamall og mun væntanlega hafa fé-
lagaskipti yfir í KR við heimkom-
una. Fyrr í vetur höfðu KR-ingar
rætt við Kjartan um að hann myndi
ganga í raðir félagsins á ný í sumar
en það er ekki frágengið.
Kjartan rifti
samningnum
Morgunblaðið/Eggert
KR Kjartan Henry Finnbogason í
leik með KR sumarið 2014.
Alexander Petersson, landsliðs-
maður í handknattleik, mun ganga
til liðs við þýska 1. deildar liðið Mel-
sungen, sem Guðmundur Þórður
Guðmundsson landsliðsþjálfari
stýrir, að loknu yfirstandandi leik-
tímabili. Alexander gekk til liðs við
Flensburg í janúar á þessu ári frá
Rhein-Neckar Löwen og stoppar
því stutt.
Fyrir utan Guðmund mun Alex-
ander hitta fyrir Arnar Frey Arn-
arsson og þá mun Elvar Örn Jóns-
son sömuleiðis ganga til liðs við
Melsungen frá Skjern í sumar.
Fjórir Íslendingar
hjá Melsungen
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Þýskaland Ferill Alexanders í at-
vinnumennsku verður enn lengri.
Pepsi Max-deild kvenna
Þór/KA – Selfoss ...................................... 0:2
Stjarnan – Keflavík .................................. 0:0
Staðan:
Selfoss 2 2 0 0 5:0 6
Valur 2 1 1 0 2:1 4
Breiðablik 2 1 0 1 11:4 3
ÍBV 2 1 0 1 5:4 3
Þór/KA 2 1 0 1 2:3 3
Þróttur R. 2 0 2 0 1:1 2
Tindastóll 1 0 1 0 1:1 1
Stjarnan 2 0 1 1 1:2 1
Keflavík 2 0 1 1 0:3 1
Fylkir 1 0 0 1 0:9 0
England
Manchester United – Leicester .............. 1:2
Southampton – Crystal Palace ............... 3:1
Staða efstu liða:
Manch. City 35 25 5 5 72:26 80
Manch. United 35 20 10 5 68:38 70
Leicester 36 20 6 10 65:44 66
Chelsea 35 18 10 7 55:32 64
West Ham 35 17 7 11 55:45 58
Liverpool 34 16 9 9 57:39 57
Tottenham 35 16 8 11 61:41 56
Everton 34 16 7 11 46:42 55
Arsenal 35 15 7 13 49:38 52
Leeds 35 15 5 15 53:53 50
Aston Villa 34 14 6 14 49:41 48
Wolves 35 12 9 14 35:47 45
_ Manchester City er meistari og Man-
chester United hefur tryggt sér meistara-
deildarsæti. Fulham, WBA og Sheffield
United eru fallin.
Svíþjóð
B-deild:
Öster – Sundsvall..................................... 0:2
- Alex Þór Hauksson var ekki með Öster
vegna meiðsla.
>;(//24)3;(
Grill 66 deild karla
Víkingur R. – Kría................................ 26:19
HK – Haukar U .................................... 27:20
Selfoss U – Valur U.............................. 25:25
Hörður – Fjölnir................................... 29:35
Vængir Júpíters – Fram U...................24:26
Staðan:
HK 17 15 0 2 511:363 30
Víkingur 17 15 0 2 452:393 30
Fjölnir 17 9 3 5 491:447 21
Valur U 17 9 2 6 501:491 20
Haukar U 17 9 1 7 456:451 19
Selfoss U 17 6 3 8 463:478 15
Kría 17 6 3 8 445:468 15
Hörður 17 5 1 11 482:545 11
Vængir J. 17 3 0 14 368:452 6
Fram U 17 1 1 15 410:491 3
Frakkland
Aix – Dunkerque ................................. 29:24
- Kristján Örn Kristjánsson skoraði ekki
fyrir Aix.
B-deild:
Dijon – Nancy....................................... 29:30
- Elvar Ásgeirsson skoraði 1 mark fyrir
Nancy en fékk rautt spjald snemma.
Svíþjóð
Sävehof – Skövde ................................ 38:37
- Bjarni Ófeigur Valdimarsson skoraði
ekki fyrir Skövde.
_ Sävehof er 1:0 yfir í úrslitarimmunni.
E(;R&:=/D
Umspil karla
8-liða úrslit, annar leikur:
Fjölnir – Vestri ..................................... 73:87
Hrunamenn – Hamar........................... 58:99
Selfoss – Sindri ..................................... 86:65
Skallagrímur – Álftanes ...................... 92:75
_ Vestri og Hamar eru komin áfram í
undanúrslit með 2:0 sigra en staðan er 1:1 í
hinum tveimur rimmunum.
NBA-deildin
Atlanta – Washington ...................... 125:124
Golden State – Utah......................... 119:116
Cleveland – Indiana ......................... 102:111
Memphis – New Orleans ................. 115:110
San Antonio – Milwaukee ................ 146:125
Portland – Houston .......................... 140:129
>73G,&:=/D
KNATTSPYRNA
Úrvalsdeild karla, Pepsí Max-deildin:
Dalvíkurvöllur: KA – Leiknir R...........17:30
Würth-völlur: Fylkir – KR ...................19:15
1. deild kvenna, Lengjudeildin:
Kaplakriki: FH – Grótta ......................19:15
Norðurálsvöllur: ÍA –Augnablik..........19:15
Víkin: Víkingur R. – Afturelding .........19:15
HANDKNATTLEIKUR
Umspil kvenna, undanúrslit, fyrsti leikur:
Kórinn: HK – Fjölnir/Fylkir ................19:30
Hertz-höllin: Grótta – ÍR......................19:30
BLAK
8-liða úrslit karla, annar leikur:
Fagrilundur: HK – Fylkir .........................19
Varmá: Afturelding – Vestri .....................19
Hveragerði: Hamar – Álftanes .................19
KA-heimilið: KA – Þróttur N...............19:30
Í KVÖLD!
ÞÓR/KA – SELFOSS 0:2
0:1 Brenna Lovera 19.
0:2 Caity Heap 66.
.
M
Karen María Sigurgeirsdóttir (Þór/KA)
Snædís Ósk Aðalsteinsdóttir (Þór/KA)
Hulda Ósk Jónsdóttir (Þór/KA)
Guðný Geirsdóttir (Selfoss)
Emma Checker (Selfoss)
Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir (Selfoss)
Hólmfríður Magnúsdóttir (Selfoss)
Brenna Lovera (Selfoss)
Dómari: Eiður Ottó Bjarnason – 7.
Áhorfendur: 200, uppselt.
STJARNAN – KEFLAVÍK 0:0
M
Anna María Baldursdóttir (Stjörnunni)
Betsy Hassett (Stjörnunni)
Gyða K. Gunnarsdóttir (Stjörnunni)
Ingibjörg L. Ragnarsd. (Stjörnunni)
Natasha Anasi (Keflavík)
Tiffany Sornpao (Keflavík)
Abby Carchio (Keflavík)
Rautt spjald: Abby Carchio (Keflavík)
85.
Dómari: Guðmundur Friðbertsson – 8.
Áhorfendur: 122.
_ Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl og
greinar um leikina – sjá mbl.is/sport/fot-
bolti.
Manchester City er Englandsmeist-
ari í knattspyrnu tímabilið 2020-21
en þetta varð ljóst eftir 2:1-sigur
Leicester gegn Manchester United í
ensku úrvalsdeildinni á Old Trafford
í Manchester í gær.
Leicester fór með sigrinum upp í
þriðja sæti deildarinnar og er með
66 stig, tveimur stigum meira en
Chelsea sem á leik til góða á Leicest-
er. Manchester United er sem fyrr í
öðru sæti deildarinnar með 70 stig
en liðið gæti misst bæði Leicester og
Chelsea fram úr sér í lokaumferð-
unum.
West Ham er með 58 stig í fimmta
sæti deildarinnar og Liverpool í
sjötta sætinu með 57 stig.
West Ham getur mest fengið 9
stig til viðbótar á meðan Liverpool
getur mest fengið 12 stig og því ljóst
að róðurinn fyrir bæði lið verður
þungur í baráttunni um sæti í Meist-
aradeildinni á næstu leiktíð.
Manchester City er með 80 stig í
efsta sæti deildarinnar þegar þrjár
umferðir eru eftir af tímabilinu en
United var eina liðið sem gat náð
þeim að stigum fyrir leik gærdags-
ins. Þetta er í þriðja sinn á síðustu
fjórum árum sem City verður Eng-
landsmeistari og í fimmta sinn á síð-
ustu níu árum. Pep Guardiola tók við
þjálfun liðsins sumarið 2016 og er
þetta í þriðja sinn sem hann gerir
liðið að Englandsmeisturum.
Meistarar eftir
hagstæð úrslit
AFP
Meistarar Það var vel fagnað á götum Manchester-borgar í gær.