Morgunblaðið - 12.05.2021, Síða 25
MENNING 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. MAÍ 2021
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Tónlistarkonan Blankiflúr, réttu nafni Inga
Birna Friðjónsdóttir, gaf fyrir skömmu út
fyrstu breiðskífu sína, Hypnopompic, og segir
hún titil plötunnar enskt orð yfir ástand mann-
eskjunnar rétt áður en hún vaknar sem hún
tengir við ástand sitt í sköpunarferlinu, að þá
hafi hún verið að vakna til
lífsins eftir ýmsa erfiðleika.
„Það má segja að þetta hafi
verið mín leið til að vakna
og fá svör við spurningum,
að vakna til sjálfrar mín.
Þetta var úrvinnsla, að sjá
reynslu síðasta áratugar
koma til mín í lögunum. Ég settist ekkert niður
til að semja lög, þau komu bara til mín,“ segir
Inga. Hún hafi velt því fyrir sér hvað hún væri
að segja með lögum og textum og nú þegar hún
horfi til baka sjái hún t.d. ástarsorg sem hún
hafi ekki verið búin að jafna sig á eða „ADHD
hausinn sinn“. Platan er því ekki konseptplata,
ekki lagt upp með ákveðið þema á henni.
Leið til að skilja
Inga segist hafa greinst í fyrra með ADHD,
ofvirkni og athyglisbrest. „Það sem felst í því er
svo ofsalega mismunandi fyrir hvern og einn og
það hefur verið tabú að tala um þessa hluti en
það hefur hjálpað mér gríðarlega mikið að taka
ábyrgð á sjálfri mér og vita þetta. Þannig að ég
hika ekkert við að nota þetta orð og tala um
það,“ segir Inga. Greiningin var gerð í fyrra-
sumar og segist Inga hafa lært mikið um þetta
ástand allt frá því hún lá fyrir.
En er platan þá einhvers konar uppgjör? „Já,
ég myndi segja það, algjörlega, og til þess að
skilja hlutina líka af því þú byrjar hugsunina en
kemst svo ekki allan hringinn heim aftur, byrj-
ar á annarri hugsun áður en þú nærð að botna í
hinni,“ svarar Inga.
Hvítt blóm
Listamannsnafnið Blankiflúr er, líkt og
plötutitillinn, forvitnilegt og segir Inga það
koma úr gömlum riddarasögum. „Þetta þýðir í
rauninni hvítt blóm og ég rakst á það í sögunni
um Flóres og Blankiflúr, það er riddarasaga
sem ég las í menntaskóla. Ég féll fyrir þessu
nafni, mér fannst það svo skrítið og fallegt,“
segir Inga. Blankiflúr er íslenskun á erlendu
nafni riddarans í sögunni sem hefur verið þýdd
á fjölda tungumála. Inga hóf að senda frá sér
lög undir þessu nafni í fyrra og Blankiflúr teng-
ir hún við drama og rómantík sem mun vera eitt
af einkennum tónlistar hennar sem lýst er í til-
kynningu sem „art-pop“, þ.e. listrænu poppi.
Fótbolti, fatahönnun og tónlist
Inga ólst upp á Sauðárkróki, er lærður fata-
hönnuður og var á árum áður öflug fótbolta-
kona. Hún hóf söngnám við Complete Vocal
Studio árið 2016 og fór að semja tónlist að námi
loknu. „Ég held þetta hafi alltaf haft eitthvað
með performans að gera. Þú ert að performera í
fótboltanum og líka tónlistinni og ég var í dansi
líka, eins miklum og ég gat verið í. Þetta snýst
miklu meira um hver ég er heldur en hvað ég er
að gera. Í stað þess að fara á bókasafnið að lesa
verð ég að vera uppi á sviði og reka mig á þar,“
segir Inga.
„Þetta hljómar kannski skringilega en svona
er bara þessi haus,“ segir hún kímin. Hún hafi
mikla sköpunarþörf, þörf fyrir að búa eitthvað
til af einlægni. Inga kemur til dyranna eins og
hún er klædd og segist taka sjálfa sig algjörlega
í gegn í textum við lögin á plötunni en hana má
m.a. finna á Spotify.
Platan var unnin í stúdíó Bambus og sá Stef-
án Örn Gunnlaugsson tónlistarmaður og upp-
tökustjóri um nánast allan undirleik, upptökur
og útsetningar og Inga á líka sinn þátt í útsetn-
ingum. Að lagasmíðum á plötunni koma, auk
Ingu, þeir Stefán Örn og Reynir Snær Magn-
ússon og Zoe Ruth Erwin kom líka að textasmíð
og raddútsetningum í fjórum af níu lögum plöt-
unnar og Þorvaldur Þorvaldsson trommari lék
einnig í fjórum lögum. Arnþór Örlygsson Lind
sá um hljóðblöndun og masteringu og kom að
upptöku á trommum. Á plötunni má svo heyra
raddir Hrafnhildar Ýrar Víglundsdóttur og
Rósu Bjargar Ómarsdóttur og Berglind Rögn-
valdsdóttir tók ljósmyndina sem prýðir plötu-
umslagið.
Í startholunum
Inga er spurð að því hvort hún hafi verið að
koma fram á tónleikum og segist hún hafa verið
með lítið gigg á Airwaves 2019. „Ég er að fara
að syngja fyrir norðan á Sæluviku,“ nefnir hún
líka og bætir við að kófið hafi komið niður á tón-
leikahaldi. Hún stefnir þó ótrauð á frekara tón-
leikahald. „Þetta er tónleika-material sem ég er
að gefa út og það verður aðaldæmið, að fá að
koma fram á góðu giggi og spila þetta almenni-
lega með almennilegu sándi,“ segir Inga og
bætir við að næst á dagskrá sé að klára tvö
myndbönd sem tengjast plötunni.
Ljósmynd/Birta Rán Björgvinsdóttir
Blankiflúr „Þetta þýðir í rauninni hvítt blóm og ég rakst á það í sögunni um Flóres og Blanki-
flúr, það er riddarasaga sem ég las í menntaskóla,“ segir Inga um listamannsnafnið.
„Svona er bara þessi haus“
- Inga Birna Friðjónsdóttir kallar sig Blankiflúr og hefur nú gefið út fyrstu breiðskífuna - „Þetta
var úrvinnsla, að sjá reynslu síðasta áratugar koma til mín í lögunum,“ segir Inga um plötuna