Morgunblaðið - 12.05.2021, Page 28
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Íþróttakonan Harpa María Frið-
geirsdóttir, verkfræðinemi í HR, á
möguleika á því að verða tvöfaldur Ís-
landsmeistari í ár. Hún sigraði í stór-
svigi kvenna á Skíðamóti Íslands á
Akureyri á dögunum og leikur með
Fram, einu sigursælasta kvennaliði
landsins í handbolta undanfarin ár,
en liðið fer beint í undanúrslit úrslita-
keppni Íslandsmótsins, sem hefst á
morgun. „Markmiðið er að verða Ís-
landsmeistari í tveimur íþróttagrein-
um og það yrði ótrúlega skemmtilegt
að ná því,“ segir hún ákveðin.
Stórsvigsgen í fjölskyldunni
Stórsvigsgenið er sterkt í fjöl-
skyldu Hörpu. Landsliðskonan
Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir,
systir hennar, hefur gert það gott í
keppni heima og erlendis og var með-
al annars Íslandsmeistari í greininni
2018 og 2019. Keppnin féll niður í
fyrra. Hólmfríður Dóra var mætt á
Akureyri í mars sl., þegar keppnin
átti að fara fram en var þá frestað á
síðustu stundu. Keppnistíminn í lok
apríl og byrjun maí hentaði henni síð-
an ekki, því á sama tíma var hún í
lokaprófum í skólanum og í keppni í
Finnlandi, en hún býr og æfir einkum
í Svíþjóð. Ásta Halldórsdóttir, föður-
systir þeirra, á bestan árangur ís-
lenskra kvenna í alpagreinum á Vetr-
arólympíuleikum og varð meðal
annars Íslandsmeistari í stórsvigi
1991, 1992, 1994 og 1995 auk annarra
titla.
Þrátt fyrir að hafa æft á skíðum hjá
skíðadeild Ármanns frá þriggja ára
aldri og náð þar góðum árangri, með-
al annars orðið Íslandsmeistari í stór-
svigi í flokki 18 ára og yngri 2017 og
2018, og bikarmeistari í kvennaflokki
2017, á fyrsta keppnisárinu í fullorð-
insflokki, ákvað Harpa að leggja
áherslu á handboltann fyrir um
þremur árum.
„Það bara þróaðist þannig,“ við-
urkennir hún, en Harpa spilaði líka
fótbolta með Fram í fyrrasumar og
heldur því opnu í sumar. „Fótboltinn
er fyrst og fremst til gamans á meðan
handboltinn liggur niðri,“ segir hún.
Hún leggur áherslu á að margt í
skíðaþjálfuninni nýtist líka í hand-
boltanum eins og til dæmis úthalds-,
kraft- og sprengikraftþjálfun. „Ég
var mjög heppin með þjálfara í
barna- og unglingastarfi hjá Ármanni
svo grunntæknin var til staðar, þegar
ég fór að draga úr skíðaæfingum í
fullorðinsflokki. Titillinn í stórsviginu
nú var því engin heppni heldur vinna
sem hefur skilað sér nokkrum árum
seinna.“
Foreldrar systranna voru á fullu í
íþróttum og ekki síst á skíðum. Bol-
víkingurinn Friðgeir Halldórsson var
auk þess í frjálsum og Reykvíking-
urinn María Ingimundardóttir í
handbolta. Harpa segir skemmti-
legra að vera í hópíþrótt en ein-
staklingsíþrótt og það hafi ráðið
miklu um valið. „Það er mjög gaman
á skíðum en það er líka skemmtilegt
að vera í liði með vinum sínum, að
spila með þessum stelpum, sem
margar eru ótrúlega góðar.“
Slitið liðband á fingri varð til þess
að Harpa keppti á Skíðamótinu á Ak-
ureyri, en þá hafði hún ekki keppt á
Íslandsmeistaramótum eða alþjóð-
legum mótum í þrjú ár. „Ég gat ekki
spilað handbolta, mátti hvorki kasta
bolta né grípa, og þar sem ég var í
góðri æfingu lét ég slag standa og
ákvað að fara norður.“ Þótt Harpa
hafi ákveðið að einbeita sér að hand-
boltanum, þar sem hún spilar í
vinstra horni, áréttar hún að senni-
lega verði hún líka áfram á skíðum
hér eftir sem hingað til. „Ég hef á til-
finningunni að ég verði alltaf á skíð-
um, en ég ætla mér að vera góð í
handbolta. Klárlega.“
Afrekskona á skíðum
stefnir hátt í handbolta
- Harpa María Friðgeirsdóttir Íslandsmeistari og í úrslitakeppni
Á fleygiferð Harpa María Friðgeirsdóttir er Íslandmeistari í stórsvigi. Hún
segir að skíðaþjálfunin hjá Ármanni nýtist vel í handboltanum.
Morgunblaðið/Hanna
Fyrsti leikurinn Harpa María Frið-
geirsdóttir skorar eitt af þremur
mörkum sínum í fyrsta meistara-
flokksleiknum með Fram, á móti
Stjörnunni í september 2017. Sólveig
Lára Kjærnested kemur engum
vörnum við í Garðabænum.
Ljósmynd/Guðmundur Jakobsson
577 5757 | www.igf.is | igf@igf.is
ER PLANIÐ
SKÍTUGT?
Fáðu tilboð
í s. 577 5757
gamafelagid.is
GÖTUSÓPUN
ÞVOTTUR
MÁLUN
MIÐVIKUDAGUR 12. MAÍ 132. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
„Það er mót í Zagreb á laugardaginn og síðan var plan-
ið að fara til Svíþjóðar helgina eftir það. Svo er ég ekki
alveg viss. Ég ætla bara að keppa á þeim mótum sem
mér er boðið að keppa á og reyna að forðast að fá vír-
usinn,“ segir kringlukastarinn Guðni Valur Guðnason
meðal annars í viðtali við Morgunblaðið. Guðni keppti á
móti í Split í Króatíu um síðustu helgi og gekk vel þótt
hann hafi ekki keppt á móti erlendis frá því 2019. Guðni
Valur reynir á næstunni að ná lágmarki fyrir Ólympíu-
leikana í Tókýó sem fram fara í sumar. »23
Mun keppa á þeim mótum sem
bjóðast og forðast að fá veiruna
ÍÞRÓTTIR MENNING
Hildur Hákonardóttir, listakona
og rithöfundur, segir frá rann-
sóknum sínum á sögu löngu
horfinna biskupsfrúa og fyr-
irkvenna á fræðakaffi í Borg-
arbókasafninu í Spönginni í
dag kl. 17.15. Hvað er svona
merkilegt við það að vera bisk-
upsfrú?, tveggja binda ritverk,
kom út á dögunum og byggist á
rannsóknum Hildar á níu bisk-
upsfrúm í Skálholti á árunum 1510-1623. Fáar heimildir
eru til um þær og hefur Hildur „kafað ofan í texta sem
varðveist hafa m.a. um eiginmenn þeirra, feður og syni
og fundið þar ýmsan fróðleik“, eins og segir í tilkynn-
ingu og að eftir því sem rannsóknum Hildar hafi undið
fram hafi konurnar sótt á hana af miklum krafti og
neitað að láta hana í friði fyrr en hún hefði komið sögu
þeirra á blað. Fræðakaffið verður tekið upp og notað í
hlaðvarpsseríu Borgarbókasafnsins, Lesgleraugunum.
Hildur segir frá rannsóknum sínum
á sögu löngu horfinna biskupsfrúa