Morgunblaðið - 14.05.2021, Side 1
F Ö S T U D A G U R 1 4. M A Í 2 0 2 1
.Stofnað 1913 . 113. tölublað . 109. árgangur .
KJARTAN MÁR
KJARTANSSON
SEXTUGUR
ALLRA
VEÐRA
VON
MIKKELSEN
SKORAÐI
ÞRENNU
NÝSIRKUSSÝNING 28 MARKAVEISLA 26BÆJARSTJÓRINN 24
Nú standa yfir framkvæmdir við Litluhlíð í Hlíðahverfinu í
Reykjavík en gatan verður lokuð fram í nóvember. Um er að
ræða framhald á lagningu göngu- og hjólastígs sem kominn er
meðfram Bústaðavegi. Gera á undirgöng fyrir gangandi og
hjólandi undir Litluhlíð ásamt tengingu stíga við Eskitorg og
Bústaðaveg. Þá verður önnur akbraut Litluhlíðar þrengd svo
undirgöngin verði sem styst. Þar að auki á að bæta umferðarör-
yggi gönguleiðar yfir Bústaðaveg með því að stýra umferð sem
tekur hægribeygju inn í Litluhlíð með umferðarljósum. »11
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gera undirgöng fyrir gangandi og hjólandi undir Litluhlíð
Gunnhildur Sif Oddsdóttir
gunnhildursif@mbl.is
„Frá því Samtök orkusveitarfélaga
voru stofnuð 2011 hefur starf sam-
takanna mikið til snúist um þetta, að
sveitarfélög fái ekki fasteignagjöld
af virkjanamannvirkjum,“ segir
Stefán Bogi Sveinsson, fyrrverandi
formaður Samtaka orkusveitar-
félaga, í samtali við Morgunblaðið.
Að mati samtakanna er innbyggt í
þetta kerfi óréttlæti og þykir þeim
að það þurfi breytingar.
Samtök orkusveitarfélaga hafa
sent kvörtun til Eftirlitsstofnunar
EFTA (ESA) fyrir meint brot ís-
lenska ríkisins á ákvæðum EES-
samningsins um ríkisstyrki.
Ákvæði í lögum um skráningu og
mat fasteigna gerir það að verkum
að verulegur hluti fasteignafjárfest-
ingar fyrirtækja í raforkufram-
leiðslu er undanþeginn fasteigna-
mati og þar með álagningu
fasteignaskatts.
Stefán segir samtökin hafa leitað
eftir því mjög víða að lögunum verði
einfaldlega breytt en að almennileg-
ur hljómgrunnur hafi ekki fengist.
Þess vegna hefur verið ákveðið að
leita til ESA til að kanna hvort kerfið
feli í sér ólögmæta ríkisaðstoð við
orkufyrirtæki á Íslandi.
Vonast eftir lagabreytingum
Kvörtunin hefur verið send ESA
sem mun síðan ákveða hvort hún taki
málið til frekari meðferðar og í fram-
haldinu mun íslenska ríkið, að sögn
Stefáns, væntanlega þurfa að gera
greinargerð um afstöðu sína í mál-
inu. Aðspurður segir Stefán samtök-
in vonast eftir því að kvörtunin leiði
til breytinga á lögum.
Kanna hvort kerfið feli
í sér ólögmæta aðstoð
- Samtök orkusveitarfélaga hafa sent kvörtun til ESA
Morgunblaðið/Hari
Virkjun Framkvæmdir við virkjun
Tungufljóts í Biskupstungum.
MSamtök orkusveitarfélaga … »6
_ 2.800 fermetra verksmiðjuhús
plastkassaverksmiðju mun vænt-
anlega rísa á Djúpavogi í lok árs eða
í byrjun þess næsta. Framkvæmdir
við grunn hússins eru hafnar. Í hús-
inu á að framleiða 1,2 til 1,3 milljónir
frauðplastkassa fyrir laxeldisfyr-
irtækin sem standa að laxaslát-
urhúsinu Búlandstindi. Laxaslátr-
unin er forsendan fyrir byggingu
plastkassaverksmiðjunnar.
Húsið hefur stækkað frá því sem
áætlað var í upphafi, að sögn Elís
Hlyns Grétarssonar, fram-
kvæmdastjóra Búlandstinds á
Djúpavogi.
Áætlað er að stofnkostnaður húss
og tækjabúnaðar geti nálgast 1,5
milljarða króna. Laxeldið á Aust-
fjörðum gæti þurft 1,2 til 1,3 millj-
ónir kassa á næsta ári og mun þörfin
mögulega aukast með aukinni fram-
leiðslu á laxi. Til að byrja með verða
framleiddar fáeinar tegundir kassa
fyrir laxeldið en er ekki útilokað að
kassar verði seldir til annarra út-
flytjenda á ferskum fiski frá Austur-
landi. »10
2.800 fermetra
kassaverksmiðja
rís á Djúpavogi
_ Hjallastefnan sendi foreldrum
barna á leikskólanum Öskju og í
Barnaskóla Hjallastefnunnar í
Reykjavík bréf þess efnis í vikunni
að skólarnir gætu ekki lengur verið
til húsa í Öskjuhlíðinni en Hjalla-
stefnan missir húsnæði sitt við
Nauthólsveg árið 2022. Í öðru bréf-
anna segir að eins og er hafi Hjalla-
stefnan ekkert fast í hendi varðandi
framtíð skólanna í Öskjuhlíðinni.
Kannað var hvort barnaskólinn
gæti flutt inn í húsnæði Korpuskóla
en þær viðræður báru ekki árang-
ur. Stjórnin segist þó langt frá því
að gefast upp. »4
Hjallastefnan flytur
úr Öskjuhlíðinni
eftir næsta skólaár
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Framtíð skólanna í Öskjuhlíð er enn óljós.