Morgunblaðið - 14.05.2021, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. MAÍ 2021
Aðalfundur
Aðalfundur Hampiðjunnar hf., sem áður var frestað
vegna aðstæðna í þjóðfélaginu,
verður haldinn að Skarfagörðum 4, Reykjavík
föstudaginn 28. maí 2021
og hefst hann kl. 16:00.
Á dagskrá fundarins verða:
Stjórn Hampiðjunnar hf.
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum félagsins.
2. Önnur mál, löglega upp borin.
Dagskrá, endanlegar tillögur, framboð til stjórnar ásamt
ársreikningi félagsins liggja frammi á skrifstofu félagsins og í
fréttakerfi Nasdaq Iceland.
Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á fundarstað.
Hluthafar sem ekki geta sótt fundinn, en hyggjast gefa umboð,
þurfa að gera það skriflega eða með rafrænum hætti og þannig
að dagsetning komi fram.
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Skrímslið, stærsti hoppukastali í
heimi, opnaði við Perluna í gær, á
uppstigningardegi sjálfum.
Mikið líf og fjör var á staðnum
en það viðraði ágætlega þrátt fyr-
ir að blíðan væri ekki jafn mikil
og fyrr í vikunni.
Eins og Morgunblaðið greindi
frá í gær er Skrímslið heilir 2.000
fermetrar að stærð en þar er að
finna risavaxna eldfjallarenni-
braut, þrautabraut og barnaland.
Á meðfylgjandi mynd sjást
krakkar einmitt skemmta sér kon-
unglega í eldfjallarennibrautinni
stóru. Mögulegt er að komast
töluvert nær þessu manngerða
eldfjalli en því sem nú gýs á
Reykjanesskaga enda renndu
krakkarnir sér niður gular og
rauðar hrauntungur eldfjalla-
rennibrautarinnar eins og ekkert
væri.
Vegna sóttvarnaráðstafana var
ekki hægt að selja nema 50 miða á
hverja klukkustund inn í Skrímsl-
ið en því verður breytt þegar sótt-
varnareglur verða rýmkaðar.
Renndu sér
niður hraun-
tungurnar
Morgunblaðið/Sigurður Ragnarsson
Gunnhildur Sif Oddsdóttir
gunhildursif@mbl.is
Þráinn Vigfússon, framkvæmda-
stjóri ferðaskrifstofunnar Vita, seg-
ist finna fyrir auknum áhuga hjá Ís-
lendingum sem vilja ferðast til
útlanda á næstu misserum og segir
hann áhugann hafa aukist síðustu
daga og vikur með aukinni bólu-
setningu gegn Covid-19.
Þráinn bendir á að í gærmorgun
hafi breiðþota á vegum Vita flogið
með 260 farþega til Alicante og þá
hafi þurft að stækka vélina með
aukinni eftirspurn.
„Ég held að þegar fólk sér fram á
að það verði bólusett eða er búið að
fá bólusetningu þá er það tilbúið til
þess að plana sumarið,“ segir Þrá-
inn og bendir á að fólk geti einnig
breytt ferðunum sínum hjá Vita
með stuttum fyrirvara án þess að
þurfa að borga fyrir það og þá þurfi
fólk ekki að taka neina áhættu.
Um helmingur þeirra 280.000
sem á að bólusetja gegn kórónu-
veirunni hér á landi hafa fengið einn
eða tvo skammta af bóluefni. Þá eru
62.276 manns fullbólusettir.
Uppselt til Tenerife
Þráinn segir mikið um bókanir
hjá Vita seinni hluta sumars, í júlí
og ágúst. „Fólk sér svona fyrir end-
ann á þessu og ástandið verður allt
annað þegar líður á sumarið heldur
en það er núna,“ segir Þráinn.
Þá er einnig mikið um bókanir í
haust og vetur og bendir Þráinn á
að ferðir til Tenerife um jólin séu til
að mynda uppseldar. Að sögn Þrá-
ins gengur einnig mjög vel að selja
í skíðaferðir í febrúar og er uppselt
í eina ferð á þeim tíma. Þráinn seg-
ir þessar ferðir hafa selst upp
óvenjusnemma í ár en að sama
skapi voru ferðirnar settar í sölu
með lengri fyrirvara til að anna eft-
irspurn.
Þráinn bendir þar að auki á að
einnig sé mikið um það þessa dag-
ana að fólk bóki ferðir til sólarlanda
á síðustu stundu.
Í sumar flýgur Vita til Alicante,
Tenerife, Krítar og Costa del Sol,
og eru þetta hefðbundnir áfanga-
staðir sem Vita býður upp á.
Þráinn segist finna fyrir miklum
áhuga fólks á að fljúga til Krítar í
sumar og bendir á að Krít hafi
vegnað vel í baráttunni við Covid-19
enda eyja, líkt og Ísland, og því auð-
veldara að hafa stjórn á hlutunum.
Í haust verður svo, að sögn Þrá-
ins, boðið upp á borgarferðir, til að
mynda til Napolí og Aþenu og í nóv-
ember mun Vita bjóða upp á ferðir
til Dubai og Abu Dhabi í beinu flugi
með Icelandair.
Íslendingar leggja land undir fót
- 260 Íslendingar flugu með Vita til Alicante í gær - Áhuginn eykst með auknum bólusetningum
Oddur Þórðarson
oddurth@mbl.is
Þrír af þeim fimm sem greindust
með kórónuveirusmit í fyrradag eru
búsettir á Sauðárkróki. Þetta kemur
fram í tilkynningu frá aðgerðastjórn
almannavarna í landshlutanum.
Allir fimm sem greindust á land-
inu í fyrradag voru í sóttkví, eins og
mbl.is greindi frá í gær, en þá fékkst
ekki upp gefið hjá almannavörnum
hvar smitin hefðu greinst.
Alls hafa fjórtán greinst með kór-
ónuveirusmit á Norðurlandi vestra
undanfarna viku.
Hundruð verið skimaðir
Fjöldi þeirra sem skimaðir hafa
verið við kórónuveirunni á Norður-
landi vestra hleypur á hundruðum,
að sögn Stefáns Vagns Stefánssonar,
yfirlögregluþjóns lögreglunnar á
Norðurlandi vestra.
Hann segir að enn sé haldið í þá
von að verði hægt að slaka á stað-
bundnum sóttvarnaraðgerðum á
svæðinu á mánudag. Fundað verður
um áframhald aðgerða á Norður-
landi vestra á laugardag og þá vænt-
anlega tekin
ákvörðun um fyr-
irhugaðar aflétt-
ingar. Á Norður-
landi vestra
miðast fjöldatak-
markanir nú við
20 manns en við
50 manns annars
staðar á landinu.
Þá hefur sund-
laugum á svæð-
inu, líkamsræktarstöðvum og skól-
um verið lokað.
Planið að slaka á á mánudag
„Planið gengur út á það að slaka á
aðgerðum á mánudaginn. Það fer
náttúrulega bara eftir niðurstöðu
sýnataka næstu daga. Það var tölu-
verður fjöldi sem fór í dag, það verð-
ur svo líka mikið á morgun og eitt-
hvað á laugardaginn væntanlega.
Töluvert er um að fólk sé að fara í
seinni skimun. Þannig að við erum að
losa svolítið fólk úr sóttkví núna
þessa dagana og ef það heldur áfram
að ganga vel þá ættum við að geta
haldið planinu og opnað á mánudag-
inn,“ segir Stefán við Morgunblaðið.
Hann segir ekki enn ákveðið hvort
fyrirhugaðar tilslakanir verði þá í
takt við það sem er í gildi annars
staðar á landinu, eða hvort farinn
verði einhver millivegur.
Bæjarbúar samstilltir
Auk þess að vera yfirlögreglu-
þjónn er Stefán Vagn forseti bæj-
arstjórnar í Skagafirði, þar sem nú
eru í gildi staðbundnar sóttvarnaað-
gerðir.
Spurður um viðhorf bæjarbúa til
þessara hertu og staðbundnu að-
gerða í Skagafirði undanfarna daga,
segir Stefán að samtakamáttur bæj-
arbúa sé mikill og samstaða sé um
aðgerðirnar.
„Samtakamátturinn í bæjarbúum
er gríðarlegur. Það hefur verið mikil
samstaða um þessar aðgerðir eftir
því sem ég best veit. Við höfum rætt
við einstaklinga, fyrirtæki og stofn-
anir hérna á svæðinu og það hafa
langflestir verið mjög ánægðir með
hvernig farið var að, við gripum fast
inn í og hratt, til þess einmitt að ná
utan um þetta strax þannig að líf
hérna gæti komist aftur í eðlilegra
horf sem fyrst.“
Framhald í Skagafirði
ákvarðað á laugardag
- Skoðað hvort slaka megi á sóttvarnaraðgerðum á mánudag
Stefán Vagn
Stefánsson