Morgunblaðið - 14.05.2021, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. MAÍ 2021
Ljósmyndir Rutar og Silju
Skipholti 31 • 105 Reykjavík • Sími 568 0150
Opið virka daga 10-17 • www.rut.is • Ljósmyndir Rutar og Silju
Einstök
minning
Útskrifta-
myndatökur
Við leigjum út krókgáma
FRAMKVÆMDIR?
til lengri eða skemmri tíma
HAFÐU SAMBAND:
sími: 577 5757
www.gamafelagid.is Hugsum áður en við hendum!
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Framkvæmdir eru hafnar við grunn
verksmiðjuhúss plastkassaverk-
smiðju á Djúpavogi. Stefnt er að því
að verksmiðjan taki til starfa í lok
ársins eða byrjun þess næsta. Reikn-
að er með að þar verði framleiddar á
næsta ári 1,2 til 1,3 milljónir frauð-
plastkassa fyrir laxeldisfyrirtækin
sem standa að laxasláturhúsinu Bú-
landstindi. Búlandstindur hefur hug
á að hefja flökun á laxi fyrir útflutn-
ing til Bandaríkjanna.
Nýlega var byrjað að grafa fyrir
grunni verksmiðjuhússins sem
standa mun á lóð við Innri-Gleðivík.
„Húsið hefur stækkað svolítið frá því
sem áformað var í upphafi, við erum
stórtækari,“ segir Elís Hlynur Grét-
arsson, framkvæmdastjóri Búlands-
tinds á Djúpavogi. Hann er einn af
eigendum sjávarútvegsfyrirtækisins
Ósness sem stendur að rekstri Bú-
landstinds ásamt Fiskeldi Aust-
fjarða og Löxum fiskeldi og á 51% í
fyrirtækinu sem er að reisa kassa-
verksmiðjuna. Norska fyrirtækið
BEWI, sem er stórt í framleiðslu
fiskikassa í Noregi og víðar í Evr-
ópu, á 49% hlut.
Verksmiðjuhúsið verður 2.800 fer-
metrar að grunnflatarmáli. Það er
stálgrindarhús sem verið er að útbúa
úti í Póllandi.
Fimm starfsmenn verða í upphafi
við kassaverksmiðjuna. BEWI Ice-
land, eins og fyrirtækið heitir, hefur
þegar auglýst eftir verksmiðju-
stjóra.
Höfum tröllatrú á laxeldinu
Forsendan fyrir byggingu plast-
kassaverksmiðju á Djúpavogi er
laxaslátrunin þar. Elís segist eiga í
góðu viðskiptasambandi við fyrir-
tæki í Hafnarfirði sem framleiðir
kassana nú en þá þurfi að flytja aust-
ur með ærnum tilkostnaði. Kass-
arnir eru ákaflega léttir en fyrirferð-
armiklir. Segir Elís að með því að
flytja hráefnið inn beint til Aust-
fjarða og framleiða kassana í næsta
nágrenni við notkunarstaðinn
minnki kolefnisspor framleiðslunnar
umtalsvert.
Elís segir að áætlanir sýni að
rekstur kassaverksmiðjunnar verði
hagkvæmur. „Þessi starfsemi bygg-
ist mikið á magni. Við erum bjart-
sýnir og höfum tröllatrú á þessu
verkefni og laxeldi almennt. Þess
vegna erum við tilbúnir að leggja út í
þetta,“ segir Elís.
Áætlað er að stofnkostnaður húss
og tæknibúnaðar geti nálgast 1,5
milljarða króna. Laxeldið á Austur-
landi gæti þurft 1,2 til 1,3 milljónir
kassa á næsta ári og þörfin aukist
svo áfram með aukinni framleiðslu á
laxi. Hægt verður að framleiða tvær
til þrjár milljónir kassa í verksmiðj-
unni. Húsið er byggt með framtíðina
í huga, þannig að hægt verður að
bæta við vélasamstæðum ef þörf
verður á.
Þar verða í upphafi framleiddar
fáeinar tegundir kassa fyrir laxeldið
en Elís útilokar ekki að hægt verði
að selja kassa til annarra útflytjenda
á ferskum fiski frá Austurlandi.
Búlandstindur er að huga að flök-
un á laxi fyrir Fiskeldi Austfjarða
sem hefur góðan markað í Banda-
ríkjunum en hefur á tímum kórónu-
veirufaraldurs orðið að láta flaka
fyrir sig í Póllandi. Elís segir að sér-
staka kassa þurfi undir flökin.
„Okkur langar til að reyna okkur
við flökun og höfum gert tilraunir
með það. Það eykur virðisauka fram-
leiðslunnar í landinu. Við megum þó
ekki gleyma grunnatriðum starf-
seminnar, sem er að slátra laxi og
ganga frá honum til útflutnings,“
segir Elís.
Framleiða milljónir laxakassa
- Koma upp frauðplastkassaverksmiðju fyrir lax á Djúpavogi í samvinnu við norsk fyrirtæki
- Minnkar kolefnissporið - Búlandstindur stefnir að flökun á laxi fyrir Bandaríkjamarkað
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Djúpivogur Mikil athafnasemi er ávallt við höfnina á Djúpavogi. Allt að 100 tonnum af laxi er slátrað hjá Búlandstindi á dag. Auk þess er bolfiski landað.
Slátrun og pökkun Milljónir frauðplastkassa eru notaðar við að koma ís-
lenskum eldisafurðum á markað. Hjá Búlandstindi rennur milljón í gegn.
Gunnar Schram, yfirlögregluþjónn
hjá lögreglunni á Suðurnesjum,
vonast til þess að slysagildra á
gönguleið að eldgosinu í Geld-
ingadölum sé úr sögunni vegna
framkvæmda sem ráðist var í fyrr í
vikunni. Slysagildran svokallaða er
brött brekka sem göngufólk þarf að
feta til þess að komast að gosinu.
„Fólk var að misstíga sig, togna
og jafnvel fótbrotna. Síðastliðinn
laugardag ökklabrotnuðu tveir í
henni,“ segir Gunnar.
Brekkan er nú orðin greiðfærari.
„Þetta gekk betur en við von-
uðumst til. Nú ætti slíkum óhöppum
hjá göngufólki að fækka töluvert,“
segir Gunnar.
Slysagildran vonandi úr sögunni