Morgunblaðið - 14.05.2021, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. MAÍ 2021
Gatnagerð og lagnavinna er hafin
við Litluhlíð í Hlíðahverfinu. Ný
undirgöng og stígar verða gerðir
undir Litluhlíð og gatan endurgerð.
Litlahlíð, sem er mikilvæg tengigata
milli Bústaðavegar og Eskitorgs,
verður lokuð meginhluta fram-
kvæmdatímans eða fram í nóv-
ember.
Framkvæmdin felur í sér gerð
göngu- og hjólastígs um undirgöng
undir Litluhlíð þar sem akreinum
fækkar um eina og endurnýjun
stofnlagna vatns-, hita-, raf- og frá-
veitu. Einnig er gert ráð fyrir gróð-
ursvæðum, landmótun, lýsingu við
götu, stíga og í undirgöngum, um-
ferðarljósum, skiltum og merk-
ingum.
Framkvæmdasvæðið nær frá
gatnamótum Litluhlíðar og Bústaða-
vegar, norður að Eskitorgi og frá
göngu- og hjólastígum sem lagðir
voru á síðasta ári, að Skógarhlíð.
Þetta er samstarfsverkefni
Reykjavíkurborgar, Veitna og Vega-
gerðar. Verktaki er Háfell ehf. og
hönnun er unnin af VSÓ Ráðgjöf.
Háfell átti lægsta tilboðið í verkið,
rúmar 192 milljónir. sisi@mbl.is
Tölvumynd/Reykjavíkurborg
Litlahlíð Ný göng munu auðvelda umferð gangandi og hjólandi vegfarenda.
Ný göng verða gerð
undir Litluhlíðina
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Uppsteypa meðferðakjarna Nýs Landspítala
er í fullum gangi og hefur hún gengið vel, að því
er fram kemur í Framkvæmdafréttum Hring-
brautarverkefnisins. Enda hefur veður verið
einstaklega hagstætt. Uppsteypan hófst í nóv-
ember síðastliðnum og er reiknað með að hún
standi yfir í 33 mánuði.
Eykt er aðalverktaki uppsteypunnar og er í
samstarfi við Steypustöina ehf. „Við erum enn
þá að steypa undirstöðurnar, það er gríðarlega
stórt verkefni og gengur vel. Samtals hafa farið
um 4.300 rúmmetrar af steypu í grunninn og af
því eru 2.500 rúmmetrar bara í undirstöð-
urnar,“ segir Kai Westphal framkvæmdastjóri
Steypu, framleiðslu og dreifingar hjá Steypu-
stöðinni. Það hafa því verið tíðar ferðir steypu-
bíla í grunninn að undanförnu.
Við framkvæmdina eru notaðir snjallnemar
frá Giatec, sem mæla hita og styrk steypunnar í
rauntíma í mannvirkjum. Um 50 þráðlausir
nemar eru í miðri steypunni sem fylgjast náið
með hitaþróun í undirstöðum til að stýra kæl-
ingu og koma í veg fyrir sprungumyndun og
meta hvenær rétti tíminn er til að slá mótin frá.
Nýr meðferðarkjarni verður um 70.000 fer-
metrar að stærð og er þetta stærsta fram-
kvæmd uppbyggingar Nýs Landspítala. Þetta
verður jafnframt ein stærsta bygging Íslands.
Stefnt er að því að taka sjúkrahúsið í notkun
2025-2026. Rými verður fyrir alls 480 sjúklinga.
Byggingakostnaður er áætlaður 55 milljarðar.
Nýr Landspítali mun innan skamms auglýsa
útboð jarðvinnu fyrir nýtt rannsóknarhús á
suðurhluta lóðarinnar við Hringbraut. Verkið
verður boðið út á EES-svæðinu og er þess
vænst að því verði að fullu lokið í desember á
þessu ári.
Ljósmynd/Nýr Landspítali
Meðferðarkjarninn Allt að 100 manns hafa unnið við verkið undanfarna mánuði. Þetta verður eitt stærsta hús Íslands, 70 þúsund fermetrar. Á spítalanum verður rými fyrir allt að 480 sjúklinga.
Tíðar ferðir steypubíla í grunninn
- Uppsteypa Nýs Landspítala hefur gengið vel í einmuna blíðu - 4.300 rúmmetrar af steypu
SKVÍSAÐU ÞIG UPP
FYRIR SUMARIÐ
STÆRÐIR 1428
Sundkjóll
15.990 kr
Stærðir 42-56
Bikiní haldari
8.990 kr
C-H skálar
Bikiní haldari
8.990 kr
Stærðir 42-54
Verslunin CURVY | Fellsmúla 26 við Grensásveg, 108 RVK | Sími 581-1552 | www.curvy.is
Verð