Morgunblaðið - 14.05.2021, Síða 18

Morgunblaðið - 14.05.2021, Síða 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. MAÍ 2021 ✝ Guðlaugur Björgvinsson fæddist í Reykja- vík 16. júní 1946. Hann lést á Land- spítalanum 4. maí 2021. Foreldrar Guðlaugs voru Ásta Margrét Guð- laugsdóttir kjóla- meistari, f. 12. júlí 1916, d. 20. ágúst 1983, og Björgvin Kristinn Grímsson stór- kaupmaður, f. 14. september 1914, d. 5. janúar 1992. Bróðir Guðlaugs var Jóhann Sigurður verslunarmaður, f. 20. janúar 1936, d. 22. apríl 2007. Eftirlif- andi eiginkona hans er Klara Sjöfn Kristjánsdóttir. Systir Guðlaugs er Guðrún Erla Björgvinsdóttir kennari, f. 1. nóvember 1943. Maður hennar var Jón Böðvarsson skóla- meistari og ritstjóri. Hinn 16. júní 1967 kvæntist Guðlaugur Þórunni Hafstein kennara, f. 13. desember 1946, hennar er Guðmundur Gunn- arsson slysa- og bráðalæknir. Synir þeirra eru Daníel og Gunnar Emil. Guðlaugur gekk í Gagn- fræðaskóla Austurbæjar og Verslunarskólann. Hann nam viðskiptafræði við Háskóla Ís- lands og lauk því námi 1971. Með námi starfaði hann hjá Fé- lagi íslenskra bifreiðaeigenda, fyrst sem skrifstofustjóri og síðan framkvæmdastjóri. Eftir að hann lauk námi í við- skiptafræði vann hann hjá Út- flutningsmiðstöð iðnaðarins, en fór til Mjólkursamsölunnar 1974. Þar starfaði hann fyrst við hlið Stefáns Björnssonar forstjóra og tók síðan við for- stjórastöðu af honum 1976 og gegndi henni til starfsloka. Guðlaugur sat í stjórn Knatt- spyrnufélagsins Vals. Hann var í Rótarýklúbbnum Reykjavík/ Breiðholt og gegndi þar ýms- um trúnaðarstörfum, var m.a. forseti klúbbsins. Útför hans verður gerð frá Hallgrímskirkju í dag, 14. maí 2021, klukkan 13.00. Streymt verður frá útförinni á: http://www.beint.is/streymi/ gudlaugurbjorgvinsson Streymishlekk má nálgast á: https://www.mbl.is/andlat d. 12. apríl 2012. Foreldrar hennar voru Sigrún E. Hafstein, f. 18. júlí 1920, d. 18. mars 1982, og Eyjólfur Jónsson Hafstein, f. 25. september 1911, d. 18. febr- úar 1959. Dætur Guðlaugs og Þór- unnar eru: 1) Ásta Margrét flug- freyja, f. 8. september 1965. Maður hennar er Einar Ingi Ágústsson tölvunarfræðingur og eiga þau þrjú börn, Guðlaug Þór, Ingibjörgu Evu og Einar Ágúst. 2) Hildigunnur Sigrún hjúkrunarfræðingur, f. 22. júlí 1972, og á hún tvo syni, Rafn Atla Hermannsson og Erni Atla Hermannsson. 3) Þórunn Björk flugfreyja og kennari, f. 3. ágúst 1974. Dætur hennar eru: Rebekka Rún Jóhann- esdóttir og Thelma Rún Hjart- ardóttir. 4) Erna bráða- og lyf- læknir, f. 19. maí 1980. Maður Elsku pabbi minn. Svo erfitt að trúa því að þú sért ekki lengur hérna hjá okkur. Hvað þú reyndist mér vel. Allt- af svo tilbúinn að hjálpa mér í hverju sem var. Hvort sem það var að kenna mér bókfærslu hérna áður fyrr, hjálpa mér að skrifa ritgerð eða ráðleggja mér í peningamálum. Þú varst jafnvíg- ur á öllum sviðum, einfaldlega klárasti maður sem ég hef kynnst. Þú hjálpaðir mér einnig að inn- rétta húsið mitt. Varst smekk- maður og mikið fyrir að hafa fal- legt í kringum þig. Ég leitaði meira að segja til þín við að skreyta útiblómapottana mína á vorin. Eftir að mamma dó vorum við oft saman og aðstoðuðum hvort annað við ýmis verkefni. Það var svo dýrmætt að eiga þig að. Greiðviknin var engu lík. Oft þegar ég nefndi að ég þyrfti að gera hitt eða þetta var ég varla búin að sleppa orðinu þegar þú varst mættur. Tilbúinn að reka verkefnið áfram og klára það. En ég kannski ekki alveg tilbúin að hoppa út á stundinni. Þú reyndist dætrum mínum óendanlega vel og Thelma Rún, sem sá ekki sólina fyrir þér, á eft- ir að sakna þess að knúsa afa sinn – en hún var sú eina sem fékk að knúsa þig eftir að covid skall á. Ég var alltaf svo stolt af þér og mömmu, þið voruð svo flott par. Það er huggun að núna er ég viss um að þið eruð sameinuð á ný. Þín dóttir, Þórunn Björk. Elsku pabbi minn, ég trúi ekki að þú sért farinn. Mig langar bara að fá að hringja í þig og ræða um daginn og veginn. Þú varst alltaf boðinn og búinn að hjálpa mér, sama hvort það var heimalærdómur, ritgerðasmíð, skutlast um bæinn eða bara fylla viskubrunn forvitinnar og fróð- leiksþyrstrar ungrar stúlku. Mik- ið vissirðu margt, það var sama hvað ég spurði þig, alltaf varstu með svör á reiðum höndum. Viskubrunnur þinn virtist ótæm- andi. Ég minnist þess að frá unga aldri þá fórstu með mér út að spila handbolta eða fótbolta og ég reyndi að komast með á alla íþróttaleiki og sníkja hjá þér fí- lakaramellur. Við vorum bæði miklir sælgætisgrísir og laumuð- umst oft í nammiskápinn þegar enginn var heima og borðuðum saman heilu m&m-pokana. Á grunnskólatímabilinu þótti mér vænt um að hitta þig heima í há- deginu og þá hrærðir þú fyrir mig skyr með rjóma og við borð- uðum heilhveitihorn með. Eftir matinn fékk ég oft að fylgja með í bíltúr þegar þú sinntir ýmsum er- indagjörðum. Þá spjölluðum við mikið og ég spurði ótal spurninga sem þú svaraðir af þolinmæði. Eftir að við Gummi fluttum til Lundar héldum við áfram góðu sambandi, töluðum oft í síma og þú varst duglegur að koma í heimsókn, fyrstu árin með mömmu en svo einn. Við áttum það sameiginlegt að elska ferða- lög og sérstaklega sólarstaði. Minnisstæðust er ferð okkar fjöl- skyldunnar með þér til Maldív- eyjanna þar sem við nutum sam- verustundanna með þér í tæru hafinu og á hvítri ströndinni. Strákarnir mínir, Daníel og Gunnar Emil, buðu þér með prakkarasvip að halda á litlum kröbbum sem þú afþakkaðir brosandi. Því miður hittumst við lítið síð- ustu 18 mánuði vegna faraldurs- ins en ég og þú fundum eitthvað á okkur við síðustu spítalainnlögn og ég kom heim til Íslands og eyddi þremur dögum með þér í mars. Ég er svo þakklát fyrir að hafa náð að hitta þig í síðasta sinn fyrir andlát þitt og áttum við ynd- islegar stundir saman þar sem við gleymdum tímanum og töluð- um saman út í eitt. Elsku pabbi minn, ég var alltaf pabbastelpa og verð það alltaf. Þar er svo mikið tómarúm í hjarta mínu en það huggar mig að þú munt ekki þjást lengur og að nú ertu með elsku mömmu sem þú saknaðir svo sárt. Þín dóttir, Erna. Elsku besti afi minn. Ó, hvað ég er stolt að hafa átt þig sem afa. Þú varst mér alltaf svo mikil fyr- irmynd, bæði sem afi og sem leið- togi. Þú varst staðfastur og sýnd- ir fordæmi sem forstjóri, mættir á undan öllum á skrifstofuna en ýttir afahlutverkinu samt ekki til hliðar, heldur komst svo bara aft- ur heim til þess að útbúa morg- unmat fyrir mig og skutla mér í skólann þegar ég var í nætur- pössun. Ég horfði á öll viðtölin við þig í sjónvarpinu og var einn þinn helsti aðdáandi. Mér er svo minn- isstætt þegar við fórum í skóla- heimsókn í MS og þú gafst þér tíma til að koma til mín og heilsa mér. Ég hefði ekki verið með meiri stjörnur í augunum hefði ég séð Superman, því ég var svo ótrúlega montin að þessi flotti maður væri afi minn. Það var alltaf svo sjálfsagt fyr- ir þér að hjálpa til, allt frá því að sækja og skutla yfir í það að leyfa mér að halda stúdentsveisluna mína heima hjá þér - það þurfti ekki að spyrja tvisvar. Það var líka svo sjálfsagt fyrir þig að taka tíma í að senda falleg skilaboð á fólk, þakka fyrir eða hvetja áfram. Ég er svo þakklát fyrir að hafa fengið að vera með þér á þínum síðustu jólum og þínum síðustu áramótum. Ég er svo þakklát fyr- ir að í síðasta skiptið sem við hitt- umst sátum við tvö og spjölluðum saman í rúma klukkustund um allt og ekkert. Það verður ein mín dýrmætasta minning. Ég er svo þakklát fyrir þig og allt sem þú hefur gert fyrir mig. Mér finnst eitthvað svo ósann- gjarnt að ég hafi fengið þau for- réttindi að alast upp með þig mér við hlið í öll þessi ár, en að Thelma litla gullið okkar náði bara tæpum sex árum með þér. En hún elskaði þig svo mikið og ég lofa því að spjalla reglulega um þig við hana og heiðra þína minningu, eins og við höfum gert með elsku ömmu. Þegar við mamma sögðum Thelmu frá því að afi væri farinn frá okkur þá sagði hún orð sem að lýsa nákvæmlega hvernig mér líður núna: „Ég er svo leið, ég sakna afa og ég vildi að enginn sem ég elskaði gæti dáið.“ Elsku besti afi, knúsaðu ömmu frá mér – ég sakna ykkar svo mikið en ég sé ykkur aftur einn daginn. Þín Rebekka. Bróðir minn, Guðlaugur Björgvinsson, lést eftir erfið veikindi 4. maí sl. Það er sárt að kveðja þann sem manni þykir vænt um og hefur verið í nánum samskiptum við alla ævi. Við vor- um afar samrýnd systkin og stutt milli okkar í aldri. Við fæddumst á Frakkastíg 26 í húsi móðurafa og -ömmu. Afi byggði húsið, þar sem nú er veit- ingastaðurinn Rok. Mamma og pabbi byrjuðu búskap í risinu. Ómetanlegt var að eiga fyrstu ár- in í návist ömmu og afa. Við lærð- um að segja aldrei nei þegar við vorum beðin að fara í sendiferð eða vinna smá verk. Við fórum í barnaguðsþjónustu til séra Jak- obs í Hallgrímskirkju alla sunnu- daga. Stórfjölskyldan kom saman á aðfangadagskvöld, borðað var karbonaði og núggatís og súkku- laði drukkið úr sparibollum. Eftir kvöldmat las afi jólaguðspjallið og allir sátu hljóðir. Amma settist við orgelið og við sungum jóla- sálma. Foreldrar okkar voru með kjólabúð á Bergþórugötu, föður- fjölskyldan bjó á Þórsgötu, og þangað lá leið flesta sunnudaga. Lífið var þægilegt og notalegt í gömlu Reykjavík þegar við vor- um að alast upp. Seinna fluttum við í Hlíðarnar. Gulli gekk í Val, var mikill Vals- ari og sat m.a. í aðalstjórn. Pabbi hafði ungur leikið fótbolta með Val svo við ólumst upp við mikinn fótboltaáhuga. Klambratúnið með öllum skurðum og órækt var ævintýri út af fyrir sig. Skauta- svell á Reykjavíkurtjörn laðaði ungt fólk á þessum árum og þar eyddum við löngum stundum. Mamma var heima og pabbi kom heim í mat klukkan 12 og við eftir skóla. Pabbi rak heildverslun og eldri bróðir okkar með honum. Gulli fór oft út á land með vörur eftir að hann fékk bílpróf. For- eldrar okkar fóru oft utan vegna innkaupa fyrir heildverslunina og var Gulli 10 ára þegar við fórum fyrst með þeim, sem var óalgengt á þeim árum. Foreldrum okkar fannst mikilvægt að við systkinin kynntumst menningu annarra landa. Þau ráku verslun með tískuvörur og lögðu mikla áherslu á að vera ávallt fallega klædd og í viðeigandi fatnaði hverju sinni. Ekki var síður lögð áhersla á að við kæmum ætíð fram af kurteisi og virðingu við aðra. Gulli var glæsimenni, hár og grannur, alltaf óaðfinnanlega klæddur og hafði mjög virðulega framkomu. Það var sama hvort hann var heima, á skíðum eða í veiðiferð, elegans fylgdi honum alltaf. Gulli réð sig ungur sem sum- armann í sveit hjá yndislegu fólki í Reykholtsdal í Borgarfirði. Þau ár voru honum mjög lærdómsrík og dýrmæt. Hann var duglegur og samviskusamur við allt sem hann tók að sér. Á fyrsta ári í Verslunarskólanum kynntist hann Þórunni sinni, sem fetaði með honum veginn frá 16 ára aldri þar til hún lést 2012. Þau voru glæsilegt par, giftu sig árið sem þau luku stúdentsprófi og eignuðust fjórar yndislegar dæt- ur. Eftir lát Þórunnar fórum við systkinin og Sjöfn mágkona okk- ar, ekkja Jóhanns Sigurðar, að ferðast saman. Fórum við marg- ar verulega ánægjulegar utan- landsferðir. Síðasta utanlands- ferð mín með Gulla var vikuferð við Gardavatn ásamt dætrum hans og fjölskyldum þegar hann varð sjötugur. Mjög góð og eft- irminnileg ferð. Guð blessi minningu elskulegs bróður. Guðrún Erla Björgvinsdóttir. Kær æskufélagi er allur. Hann ólst upp við hina miklu umferðargötu Miklubraut. Leik- vellir hans voru Klambratún, Öskjuhlíð og Hlíðarendi. Gulli var allgóður knattspyrnumaður og spilaði með Val og dyggur stuðningsmaður fram á það síð- asta. Samskipti okkar skólabræðra voru mikil, bæði við nám og eftir það. Við stofnuðum skákhóp og höfum teflt reglulega alla vetur, nú í hálfa öld. Gulli er sá þriðji úr þeim skákhóp sem við höfum þurft að kveðja og er allra þeirra sárt saknað. Gulli var langbestur okkar í skák, en sýndi okkur hinum aldr- ei yfirlæti og lét okkur hinum finnast við betri en við raunveru- lega erum. Hógværð hans og lúmsk kímni sá til þess að við lið- um ekki fyrir afleiki okkar. Nær- vera hans var alltaf góð og nota- leg og hann var fámáll, íhugull og mikill vinur vina sinna. Guðlaugur Björgvinsson HINSTA KVEÐJA Elsku afi, ég man þegar við fórum í fjölskyldu- og húsdýragarðinn. Hann var svo góður – besti afi í heimi. Hann var alltaf svo stoltur af mér. Ég mun sakna þess að hitta hann og knúsa. Ég er svo glöð að hann er hjá ömmu minni núna. Elska þig afi. Thelma Rún afastelpa. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÞURÍÐUR GÍSLADÓTTIR, Hallakri 3, lést á Landakoti 5. maí. Útförin fer fram frá Lindakirkju fimmtudaginn 20. maí klukkan 13. Arnar Jónsson Helga Þórdís Gunnarsdóttir Rögnvaldur Örn Jónsson Kristín Björg Árnadóttir María Björk Jónsdóttir Sveinn J. Kjarval Brynjar Ísak, Selma, Arndís Björk, Róbert, Hilmar Jökull, Amalía Rún, Arnór Ingi og Aldís María Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, SIGRÍÐUR RUT GUNNARSDÓTTIR, lést miðvikudaginn 5. maí á Landspítalanum. Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 20. maí klukkan 13. Athöfninni verður einnig streymt og hlekk má finna á www.mbl.is/andlat. Friðrik Már Steinþórsson Halla Sjöfn Ágústsdóttir Birkir Már Friðriksson Breki Már Friðriksson Íris Dögg Ásmundsdóttir Rudolf Kristinsson Ólafur Geir Rudolfsson Alexander Goði Rudolfsson Ásdís Rut Rudolfsdóttir Snædís Helga Rudolfsdóttir Elskulegur eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, GILS STEFÁNSSON, varð bráðkvaddur á heimili sínu að morgni 12. maí. Útför hans fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði þriðjudaginn 18. maí kl. 15. Streymt verður frá athöfninni. R. Rósa Héðinsdóttir Björg Gilsdóttir Guðmundur Karlsson Héðinn Gilsson María Þorvarðardóttir Helga Kristín Gilsdóttir Guðlaugur Baldursson Sigrún Gilsdóttir Gísli Freyr Gíslason barnabörn og barnabarnbörn Ástkær eiginkona mín, móðir, dóttir, systir, tengdadóttir, mágkona og svilkona, BERGDÍS BJÖRT GUÐNADÓTTIR, Norðurbakka 9a, Hafnarfirði, Lést á líknardeild Landspítalans sunnudaginn 9. maí. Útförin verður 21. maí kl. 15 í Víðistaðakirkju. Upplýsingar um streymi frá athöfninni verða birtar síðar. Kristján Reinholdsson Guðni Kolbeinn Pálsson Elín Lilja Kristjánsdóttir Júlía Kristjánsdóttir Diljá Kristjánsdóttir Guðni Kolbeinsson Lilja Bergsteinsdóttir Hilmir Snær Guðnason Bryndís Jónsdóttir Kristín Berta Guðnadóttir Hörður Sveinsson Reinhold Kristjánsson Elín Þórðardóttir Kolbrún Reinholdsdóttir Sigurjón Pálmason Kjartan Reinholdsson Sigrún Magnúsdóttir Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa, BIRGIS HAFSTEINS ODDSTEINSSONAR, Breiðumörk 16, Hveragerði. Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki á lyflækningadeild Heilbrigðisstofnunar Suðurlands. Útförin fór fram þann 10. maí í fallegu vorveðri frá Hjallakirkju í Ölfusi. Guðrún Erna Jónsdóttir Jónas Páll Birgisson Hugrún Ólafsdóttir Sigurður Almar Birgisson Sólveig Rafnsdóttir barnabörn og barnabarnabarn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.