Morgunblaðið - 14.05.2021, Side 24

Morgunblaðið - 14.05.2021, Side 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. MAÍ 2021 Útsölustaðir: Apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna. Allt að 3 mánaða skammtur í glasi. Dagsskammtur inniheldur 1000 mg af glúkósamíni og 200 mg af kondrótíni ásamt engifer, túrmerik, C-vítamíni og rósaldin. C -vítamín stuðlar að eðlilegri myndun kollagens fyrir eðlilega starfsemi brjósks. Í þínu liði fyrir þína liðheilsu! Glucosamine & Chondroitin Complex „Ég lenti í bílslysi og fann til í öllum líkamanum, það komu dagar sem voru rosalega erfiðir þangað til ég kynntist Glucosamine og Chondroitin frá Natures aid, ég er töluvert betri og ég gæti ekki mælt meira með þessu liðbætiefni.“ Petra Breiðfjörð 50 ÁRA Hildur Dungal fæddist 14. maí 1971 í Reykjavík og ólst upp í Vesturbænum og víðar. „Pabbi er læknir og við vorum því á þessum þvælingi. Ég átti t.d. líka heima á Blönduósi og í bæn- um London í Ontario-fylki í Kanada.“ Hildur gekk í Hagaskóla, er stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík og útskrifaðist með embættispróf í lögfræði frá Há- skóla Íslands. Hún gegndi starfi forstjóra Útlendingastofnunar, starfaði um árabil hjá dóms- málaráðuneytinu en er nú lög- fræðingur í samgöngu- og sveitar- stjórnarráðuneytinu. „Ég starfa þvert á ráðuneytið, er ekki með einstaka málaflokka heldur kem að alls konar málum. Ég úrskurða í kærumálum, sem lagafrumvörp og fleira.“ Hún hefur setið í stjórnum nokkurra fyrirtækja og hefur verið varaformaður stjórnar Origo frá 2011. „Ég hef gaman af því að hlaupa ásamt manninum og hef hlaupið hálfmaraþon. Það er ágætt að vera í formi til að hlaupa mara- þon, en ég er ekki viss um að það sé endilega skynsamlegt að gera það. Svo hef ég verið að veiða, afi átti jörð og laxveiðiréttindi í Stað- ará í Streingrímsfirði, sem við fjölskyldan eigum enn. En ég er ekkert að túra um landið í veiði, mér dugar alveg að fara einu sinni til tvisvar á ári að veiða. Þá er ég byrjuð í golfkennslu, enda viðeig- andi þegar komið er að fimmtugs- afmælinu.“ Eiginmaður Hildar er Halldór Þorkelsson 1971, lögfræðingur og ráðgjafi. Þau eru búsett í Garða- bæ. Börn þeirra eru Andri Páll, f. 1998, Lana Kristín, f. 2001, og Þorkell Gauti, f. 2008. Foreldrar Hildar eru Áslaug Pálsdóttir, f. 1950, fyrrverandi flugfreyja, bú- sett í Reykjavík, og Haraldur Dungal, f. 1950, læknir, búsettur í Reykjavík. Hildur Dungal Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Það getur létt álagið að bera málin undir náinn vin. Gömul ágreiningsmál munu sennilega koma upp á yfirborðið í dag. 20. apríl - 20. maí + Naut Ef þú leggur þig allan fram er ekki vafi á því að störf þín verða metin á réttum stöð- um. Nýjar hugmyndir vekja áhuga þinn. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Þú þarft að kafa til botns í hverju máli í stað þess að skoða bara yfirborðið og reyna að leysa málin með þeim hætti. Víð- sýni þín á heiminn er aðlaðandi í augum margra. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Það stoðar lítið að vera með ein- trjáningshátt fyrst þú hefur á annað borð gefið þig í samstarf við aðra. Flýttu þér samt hægt og gefðu öðrum möguleikum gaum. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Hugdirfska þín leiðir þig í mikil ævin- týr. Minntu þig á það daglega því þú verður umkringdur frábæru fólki sem gerir þig dá- lítið óöruggan. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Þú gætir þurft að ganga þvert á vilja hóps sem þú átt dagleg samskipti við. Tal- aðu við fólk sem er á sömu bylgjulengd og þú. 23. sept. - 22. okt. k Vog Verkið sem bíður þín er auðveldara en það virðist vera. Farðu þó varlega í að taka mikilvægar ákvarðanir. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Þótt þér leiðist að fara ofan í saumana á málum er það nauðsynlegt. Reyndu að sýna umburðarlyndi og forðast of mikla dómhörku. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Þér finnst aðrir vilja ráðskast um of með þín málefni. Einhver spennandi skýtur upp kollinum, endurskipuleggur allt og hverfur svo á braut. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Haltu vöku þinni því ýmislegt er að gerast í kringum þig sem þú mátt ekki láta fram hjá þér fara. Ekki leyfa neinum að draga þig niður. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Hlustaðu á góðra vina ráð og mundu að frelsið er ekki alltaf dýru verði keypt. Sýndu öðrum skilning. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Þú þarft á öllum þínum kröftum að halda nú þegar þér hefur verið falið óvenju erfitt verkefni. Vertu viðbúinn því að góðum hugmyndum verði hafnað. Það hafa einmitt verið krefjandi tímar í kjölfar Covid. „Við vorum komin vel á veg með að ná vopnum okkar þegar það skall á en ég hef líka sagt að ég hefði ekki viljað vera með bæj- arfélagið í sömu stöðu þá og þegar við tökum við því árið 2014. Það var því mikilvægt að bæjarstjórnin hafði öll verið samtaka í að treysta grundvöll bæjarfélagsins betur. Íbúum í bænum heldur líka áfram að fjölga þrátt fyrir mikið tíma- bundið atvinnuleysi svo við erum að gera eitthvað rétt.“ Kjartan starfaði sem fararstjóri á Spáni, Mallorca, í sumarhúsum á Englandi og í Hollandi, á vegum kaupum. Hann stofnaði Securitas Reykjanesi og starfaði sem fram- kvæmdastjóri útibúsins 2008-2014. Kjartan var ráðinn bæjarstjóri Reykjanesbæjar 2014 og starfar enn. „Ég sótti um starfið af því ég taldi mig þekkja sveitarfélagið ágætlega frá ýmsum hliðum, verið kennari og skólastjóri auk þess að hafa setið í bæjarstjórn. Mér finnst margt ánægjulegt við starfið. Með- al annars það að allt það sem ég hef gert áður finnst mér nýtast í bæjarstjórastarfinu. Þetta er það fjölbreytt að maður veit sjaldan hvað dagurinn ber í skauti sér, það er skemmtilegt en líka krefjandi.“ K jartan Már Kjartans- son er fæddur 14. maí 1961 í Keflavík og ólst þar upp. „Ég bjó öll æskuárin á Kirkjuteig 13, beint fyrir aftan Keflavíkurkirkju. Kirkjutúnið var leikvöllurinn fyrst til að byrja með en svo liðu árin og svæðið sem far- ið var yfir stækkaði. Ég fór á hverjum morgni með móður minni að heimsækja Framnessystur sem kenndu mér að lesa. Þegar skóla- ganga hófst í barnaskólanum í Keflavík, sem nú heitir Myllu- bakkaskóli, var ég því fluglæs. Á unglingsárunum var það svo Gagn- fræðaskólinn í Keflavík, sem nú heitir Holtaskóli. Þar eignaðist ég góða vini sem halda hópinn enn þann dag í dag. Á heimilinu var mikil tónlist og fengum við öll 6 systkinin tækifæri til að læra á hljóðfæri.“ Kjartan stundaði fiðlunám í Tónlistarskól- anum í Keflavík frá 7 ára aldri, lengst af hjá Árna Arinbjarnarsyni. Eftir gagnfræðaskólann lá leiðin í Fjölbrautaskóla Suðurnesja, þar sem hann útskrifaðist sem stúdent 1981 af uppeldisbraut. „Ég var með ljósmyndadellu sem unglingur og eyddi mörgum stundum í myrkraherberginu. Mig langaði að læra ljósmyndun en komst ekki á samning hjá meistara. Þá ákvað ég að nýta mér fiðlukunnáttuna og hóf kennaranám í Tónlistarskólanum í Reykjavík og lauk þar fiðlukenn- araprófi 1983. Aðalkennarar mínir þar voru Gígja Jóhannsdóttir og Mark Reedman.“ Frekari menntun var svo sótt hjá Endurmennt- unarstofnun Háskóla Íslands, í dip- lómanámi í rekstrar- og viðskipta- fræði 1998 og Háskóla Íslands í meistaraprófi í rekstrarhagfræði (MBA), frá 2000 til 2002. Kjartan starfaði sem fiðlukenn- ari við tónlistarskólann í Keflavík 1979-1998, þar af sem skólastjóri 1985-1998. Hann var fyrsti for- stöðumaður Miðstöðvar símennt- unar á Suðurnesjum 1998. Hann starfaði síðar hjá Icelandair á Keflavíkurflugvelli, svo með Magn- úsi Scheving í Latabæ og hjá Sam- Samvinnuferða-Landsýnar í 13 sumur samhliða skólastjórastarf- inu. Hann var varabæjarfulltrúi í bæjarstjórn Reykjanesbæjar 1994- 1998 og aðalmaður 1998-2006 og hefur verið í ýmsum nefndum og ráðum á vegum Reykjanesbæjar og í stjórnum margra félagasam- taka. Hann hefur verið í Odd- fellow-reglunni frá 1988. Kjartan hlaut Súluna; menningarverðlaun Reykjanesbæjar, árið 2000. Áhugamál Kjartans í gegnum tíðina eru ljósmyndun, hjólreiðar, skíði, morgunsund, golf og nú síð- ast laxveiðar. „Ég æfði keppn- ishjólreiðar í kringum tvítugt og við hjóluðum til og frá Hellu, Keflavík-Reykjavík og til Þingvalla. Þá endaði malbikið við Gljúfrastein og tók við malarvegur þannig að keppnirnar til Þingvalla voru frek- ar erfiðar. Núna er helsta hreyf- ingin sund og líkamsrækt, golfið og skíði. Í sundinu fæ ég upplýsingar í heita pottinum um úrslit leikj- anna daginn áður og hverjir skor- uðu svo maður er viðræðuhæfur yf- ir daginn.“ Kjartan grípur einnig reglulega í fiðluna. „Ég hef síðustu 30 árin spilað af og til í kirkjunni okkar við brúðkaup og jarðarfarir og reyni alltaf að verða við þeim óskum þegar þær koma.“ Fjölskylda Eiginkona Kjartans er Jónína Guðjónsdóttir, flugfreyja hjá Ice- Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar – 60 ára Fjölskyldan Kjartan og Jónína ásamt börnum, tengdabörnum og barnabörnum. Fiðlarinn í Ráðhúsinu Bæjarstjórinn Kjartan hefur verið bæjarstjóri í Reykjanesbæ frá 2014. Hjónin Kjartan og Jónína á þorra- blóti Keflavíkur árið 2020. Til hamingju með daginn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.