Morgunblaðið - 14.05.2021, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 14.05.2021, Blaðsíða 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. MAÍ 2021 augavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.isL Opi ð vi rka dag a fr á 9- 18 lau frá 10-1 6 HURÐAHÚNAR MIKIÐ ÚRVAL Erum með þúsundir vörunúmera inn á vefverslun okkar brynja.is Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „HVERNIG Á FÓLK AÐ GETA LESIÐ ÞETTA EF MIÐINN ER Á HVOLFI?“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að þekkja hvort annað blindandi. ÉG HELD ÞETTA EKKI LENGUR ÚT NÚ GET ÉG ÞAÐ ÉG EFA ÞAÐ AÐ HANN MUNI FINNA STÆRRA EGÓ! STÓRI, STERKI, HUGRAKKI, MYNDARLEGI EIGINMAÐUR ÞINN ER UM ÞAÐ BIL AÐ SIGLA TIL AMERÍKU! STÓRBROTIÐ LAND ÞAR SEM ALLT ER STÆRRA!! ÞESSI HLIÐ UPP TÓMAS ER LÉLEGUR GRAFFARI. GLÆR T LAKK landair, f. 27.1. 1962. Þau giftu sig 1984 og hafa alla tíð búið í Keflavík nema á námsárunum í Reykjavík. Foreldrar Jónínu eru Guðjón Stef- ánsson, fyrrverandi kaupfélags- stjóri og framkvæmdastjóri Sam- kaupa, f. 26.8. 1943, og Ásta Ragnheiður Margeirsdóttir, f. 31.7. 1945. Börn Kjartans og Jónínu eru 1) Guðjón Kjartansson, f. 6.3. 1983, viðskiptafræðingur með meistara- gráðu í fjármálum fyrirtækja, kvæntur Tinnu Andrésdóttur Lyngberg lögfræðingi og eiga þau tvo stráka; Andra Má 9 ára og Anton 3 ára; 2) Sonja Kjartans- dóttir, f. 28.10. 1985, flugmaður, gift Grétari Má Garðarssyni við- skiptafræðingi og eiga þau tvo stráka; Kristófer 11 ára og Kjartan Ara 2 ára; 3) Lovísa Kjartans- dóttir, f. 7.8. 1991, viðskiptafræð- ingur og aðstoðarmaður fasteigna- sala, í sambúð með Garðari Birgis- syni sjúkraflutningamanni og eiga þau einn strák; Magnús 2 ára. Fyr- ir á Garðar þá Gunnar og Steinar, 9 ára tvíbura. Barnabörnin eru því 5 strákar og 2 á ská; samtals 7 strákar. Systkini Kjartans eru Magnús Kjartansson, f. 6.7. 1951, tónlistar- maður á Snæfoksstöðum í Gríms- nesi; Finnbogi Kjartansson, f. 19.9. 1952, grafískur hönnuður og tón- listarmaður í Reykjavík; Sigrún Kjartansdóttir, f. 4.3. 1955, hótel- stjóri í Njarðvík; Ingvi Jón Kjart- ansson, f. 27.9. 1956, málari í Njarðvík; Viktor Borgar Kjartans- son, f. 17.4. 1967, tölvunarfræð- ingur í Noregi. Foreldrar Kjartans voru Kjartan Henry Finnbogason, varðstjóri í lögreglunni á Keflavíkurflugvelli, f. 28.5. 1928, d. 25.2. 2005, og Gauja Guðrún Magnúsdóttir, húsmóðir og saumakona, f. 12.7. 1931, d. 14.12. 2017. Þau voru búsett í Keflavík. Kjartan Már Kjartansson Guðrún Steinsdóttir húsmóðir í Grindavík Eiríkur Ingvarsson sjómaður í Grindavík Eyrún Eiríksdóttir húsmóðir í Keflavík Magnús Sigurðsson vélstjóri í Keflavík Gauja Guðrún Magnúsdóttir húsmóðir og saumakona, búsett í Keflavík Ágústa Guðjónsdóttir húsmóðir í Keflavík Sigurður Erlendsson sjómaður í Keflavík Karitas Guðnadóttir húsmóðir á Látrum í Aðalvík Jón Hjálmarsson bóndi á Látrum í Aðalvík Guðrún Jóna Jónsdóttir húsmóðir í Keflavík Finnbogi Friðriksson blikksmiður í Keflavík Þórunn María Þorbergsdóttir húsmóðir í Keflavík Friðrik Finnbogason sjómaður frá Látrum í Aðalvík, búsettur í Keflavík Úr frændgarði Kjartans Más Kjartanssonar Kjartan Henry Finnbogason lögregluvarðstjóri á Keflavíkurflugvelli, búsettur í Keflavík Ég var að fletta Páli Ólafssyniog fyrir mér varð ljóðið „Lífs- leiði“: Ég þarf nokkuð mikils með, merkin verkin sýna, mat og drykk og búinn beð börn og konu mína. En ég veit það varir skemmst, verð því líka feginn, út í myrkrið ef ég kemst eitthvað, hinum megin. Því að mér er þrotið megn, það er gat á skónum, svo er ég líka lagður gegn af lífsins títuprjónum. Anna Dóra Gunnarsdóttir orti á Boðnarmiði á miðvikudag: Í gær var hérna kalsi, kvöl og pína, kranka og dapra fann ég sálu mína. Inni í runnum þrestir allir þögðu þunnu hljóði og vængi að kroppum lögðu. Í morgun fór ég á fætur og þá kvað við annan tón: Sólin ákvað hátt í heið’ að skína, hlýja innan sálarkyrnu mína. Kætast núna litlir, ljúfir þrestir, láta hátt og þykjast vera bestir. Guðmundur Arnfinnsson yrkir „Smalavísu“: Óþæg rolla er hún Kolla, ergir hjúin dægrin löng, grasið holla hrauns í bolla hún er nú að kroppa svöng. Hjálmar Jónsson rifjaði upp, að Einar Guðlaugsson orti um jólaleyt- ið 1975 við tilhleypingar: Ekki veit ég vel hvort fékk veturgamla Kolla. En það er víst að þarna gekk þjóðhátíðarrolla. Davíð Hjálmari Haraldssyni þyk- ir „KALT VOR“ Í þræsingi og þurrafrosti þjóhnappana báða kól og vinstri löppin líkist osti á litinn vegna skorts á sól. Magnús Halldórsson yrkir við ljómandi fallega mynd af Heklu við sólaruppkomu: Lít við Heklu röðuls roða, við rismál allt er kyrrt og hljótt. Syngja lóur, sumar boða, sælar enda frostlaus nótt. Gamall húsgangur í lokin: Hún er suðrí hólunum, hefur gráa skýlu, meira veit ég ekkert um ættina hennar Grýlu. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Lífsleiði, smalavísur og kalt vor

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.