Morgunblaðið - 14.05.2021, Síða 26

Morgunblaðið - 14.05.2021, Síða 26
FÓTBOLTINN Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Óhætt er að segja að Breiðablik hafi hrokkið í gang á fjögurra mínútna kafla upp úr miðjum síðari hálfleik gegn Keflavík á Kópavogsvellinum í gærkvöld. Blikar voru með nauma 1:0 forystu gegn nýliðunum en gerðu gjörsamlega út um leikinn með þremur mörkum á fjórum mínútum og lokatölur urðu 4:0. Fyrsti sigur Blikanna í höfn og danski framherjinn Thomas Mikk- elsen lét heldur betur að sér kveða. _ Mikkelsen skoraði sína fyrstu þrennu fyrir Breiðablik í deildinni en þegar hann skoraði þriðja mark sitt á 69. mínútu jafnaði hann markamet Kristins Steindórssonar fyrir félagið í efstu deild, skoraði sitt 40. mark í sínum 50. leik í deildinni. Það stóð ekki lengi, tveimur mín- útum síðar skoraði Kristinn fjórða mark Blika, eftir sendingu frá Mikk- elsen, og var þar með orðinn hand- hafi metsins á ný með 41 mark! _ Þrennan hjá Mikkelsen er sú fyrsta hjá leikmanni Breiðabliks síð- an Jonathan Glenn skoraði þrennu í 3:1 sigri á ÍA árið 2015. „Sigur Blika fleytir þeim langt upp í stigatöfluna, þökk sé mörk- unum fjórum og ættu nú að vera komnir á bragðið með sóknir sínar en þriggja manna vörnina þarf að slípa talsvert,“ skrifaði Stefán Stef- ánsson m.a. í grein um leikinn á mbl.is. Tímamótasigurmark Almars Almarr Ormarsson skoraði sitt 40. mark í efstu deild þegar hann tryggði Val sigur á HK, 3:2, í bráð- fjörugum leik á Hlíðarenda með marki á nítugustu mínútu leiksins. Með þessu marki hefur Almarr jafn- framt skorað fyrir fimm félög í deildinni en áður fyrir Fram, KR, Fjölni og KA. Almarr skoraði svipað mark gegn HK í fyrra, þá jöfnunarmark fyrir KA í leik liðanna á Akureyri. „Íslandsmeistararnir voru í vand- ræðum sóknarlega í kvöld, þrátt fyr- ir að skora þrjú mörk. Þeim gekk illa að skapa sér afgerandi marktæki- færi allan leikinn og þeir áttu í raun bara tvö skot á markið í síðari hálf- leik, sem bæði enduðu í netinu. HK- ingar hljóta að vera gríðarlega von- sviknir með að fá ekkert út úr leikn- um því þegar allt kemur til alls þá áttu þeir mun hættulegri marktæki- færi,“ skrifaði Bjarni Helgason m.a. í grein um leikinn á mbl.is. Hressandi og skemmtilegir Víkingar knúðu fram góðan sigur á Stjörnunni í Garðabæ, 3:2, og eru komnir með sjö stig. Þá vantar að- eins einn sigurleik enn til að jafna við síðasta tímabil þegar Víkingar unnu aðeins þrjá leiki og enduðu í tí- unda sæti. Nikolaj Hansen skoraði tvö markanna. Stjarnan situr hins vegar eftir við botn deildarinnar með aðeins eitt stig og langt er síðan Garðabæj- arliðið hefur byrjað svona illa. „Það er lítið vesen á Víkingsliðinu sem er orðið betri útgáfa af eigin liði frá því á síðustu leiktíð. Enn og aftur er Arnar Gunnlaugsson að sýna hversu hæfur þjálfari hann er og fót- boltinn sem liðið spilaði í kvöld var hressandi og skemmtilegur í bland við mikla baráttu og góðan varn- arleik,“ skrifaði Jóhann Ingi Haf- þórsson m.a. í grein um leikinn á mbl.is. _ Tristan Freyr Ingólfsson vinstri bakvörður Stjörnunnar skor- aði sitt fyrsta mark í efstu deild þeg- ar hann jafnaði gegn Víkingi, 2:2, á lokamínútu fyrri hálfleiks. Glæsilegt mark – hörkuskot af 30 metra færi í þverslána og inn. Seinheppnir Skagamenn FH-ingar fóru illa með ÍA í Kapla- krika, 5:1, en óhætt er að segja að allt hafi gengið á afturfótunum hjá Skagamönnum eftir að Gísli Laxdal Unnarsson kom þeim yfir snemma leiks í Hafnarfirði. _ Hákon Ingi Jónsson sókn- armaður ÍA fékk sitt annað gula spjald í leiknum eftir tæplega hálf- tíma leik og var því rekinn af velli. Hann verður því í banni þegar ÍA fær Stjörnuna í heimsókn á mánu- dagskvöldið. _ Sindri Snær Magnússon kom inn á sem varamaður hjá ÍA í byrjun síðari hálfleiks. Eftir aðeins tvær mínútur meiddist hann í baki og var borinn af velli en þá hafði þurft að stöðva leikinn vegna þess í tólf mín- útur. Þá voru FH-ingar tveimur færri undir lokin. Árni Snær Ólafs- son markvörður meiddist og Þórður Þ. Þórðarson bakvörður þurfti að fara í markið. _ FH-ingar skoruðu fjögur mörk á lokakafla leiksins, sem reyndar var í lengra lagi vegna tafanna. Þar gerði Steven Lennon sitt 90. mark í efstu deild með glæsilegu skoti beint úr aukaspyrnu. Vuk Oskar Dimitrij- evic skoraði sitt fyrsta mark í efstu deild og innsiglaði 5:1 sigurinn. „Í öllum þremur leikjum FH í Pepsi Max-deildinni á tímabilinu hefur andstæðingurinn misst mann af velli í fyrri hálfleik með rautt spjald. FH hefur því leikið fleiri mín- útur í deildinni manni fleiri heldur en með jafnt í liðum,“ skrifaði Gunn- ar Egill Daníelsson í grein um leik- inn á mbl.is. _ Samtals voru skoruð 20 mörk í fjórum leikjum gærkvöldsins, eða fimm að meðaltali í leik. Blikar hrukku í gang á fjór- um mínútum Ljósmynd/Haukur Gunnarsson Þrenna Thomas Mikkelsen skoraði þrjú mörk fyrir Breiðablik og lagði eitt upp og jafnaði markamet Blika sem stóð þó aðeins í tvær mínútur. - Tuttugu mörk í fjórum fjörugum leikjum á Íslandsmótinu í gærkvöld 26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. MAÍ 2021 Pepsi Max-deild karla FH – ÍA ..................................................... 5:1 Stjarnan – Víkingur R ............................. 2:3 Valur – HK................................................ 3:2 Breiðablik – Keflavík ............................... 4:0 Staðan: FH 3 2 1 0 8:2 7 KA 3 2 1 0 6:1 7 Valur 3 2 1 0 6:3 7 Víkingur R. 3 2 1 0 5:3 7 Breiðablik 3 1 1 1 7:5 4 KR 3 1 1 1 4:4 4 Keflavík 3 1 0 2 2:5 3 HK 3 0 2 1 4:5 2 Fylkir 3 0 2 1 3:5 2 Leiknir R. 3 0 2 1 3:6 2 Stjarnan 3 0 1 2 2:5 1 ÍA 3 0 1 2 2:8 1 Lengjudeild karla Þór – Grindavík ........................................ 4:1 Staðan: Vestri 1 1 0 0 3:0 3 Þór 2 1 0 1 7:5 3 Fram 1 1 0 0 4:2 3 Fjölnir 1 1 0 0 3:1 3 Grótta 1 1 0 0 4:3 3 Grindavík 2 1 0 1 4:5 3 Afturelding 1 0 1 0 1:1 1 Kórdrengir 1 0 1 0 1:1 1 Víkingur Ó. 1 0 0 1 2:4 0 ÍBV 1 0 0 1 1:3 0 Þróttur R. 1 0 0 1 1:3 0 Selfoss 1 0 0 1 0:3 0 3. deild karla Tindastóll – Höttur/Huginn .................... 2:3 4. deild karla B Hamar – Uppsveitir ................................. 2:0 Lengjudeild kvenna HK – KR.................................................... 1:4 Grindavík – Haukar ................................. 1:1 Staðan: Afturelding 2 1 1 0 5:3 4 Haukar 2 1 1 0 3:2 4 KR 2 1 0 1 5:3 3 FH 2 1 0 1 4:3 3 Augnablik 2 1 0 1 3:3 3 ÍA 2 1 0 1 3:3 3 Grótta 2 1 0 1 3:4 3 Grindavík 2 0 2 0 3:3 2 Víkingur R. 2 0 1 1 4:6 1 HK 2 0 1 1 4:7 1 2. deild kvenna Einherji – Álftanes................................... 0:4 Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir – ÍR ......... 5:3 SR – Völsungur......................................... 1:2 England Aston Villa – Everton.............................. 0:0 - Gylfi Þór Sigurðsson lék fyrstu 67 mín- úturnar með Everton. Manchester United – Liverpool.............. 2:4 Staða efstu liða: Manch. City 35 25 5 5 72:26 80 Manch. United 36 20 10 6 70:42 70 Leicester 36 20 6 10 65:44 66 Chelsea 36 18 10 8 55:33 64 Liverpool 35 17 9 9 61:41 60 West Ham 35 17 7 11 55:45 58 Tottenham 35 16 8 11 61:41 56 Everton 35 16 8 11 46:42 56 Arsenal 36 16 7 13 50:38 55 Leeds 35 15 5 15 53:53 50 Spánn Granada – Real Madrid ........................... 1:4 Staða efstu liða: Atlético Madrid 36 24 8 4 63:23 80 Real Madrid 36 23 9 4 64:27 78 Barcelona 36 23 7 6 83:36 76 Sevilla 36 23 5 8 52:29 74 Real Sociedad 36 15 11 10 54:37 56 Villarreal 36 14 13 9 55:42 55 Þýskaland Úrslitaleikur bikarkeppninnar: RB Leipzig – Dortmund .......................... 1:4 Holland Groningen – AZ Alkmaar....................... 0:0 - Albert Guðmundsson lék í 89 mínútur með AZ sem er í þriðja sæti. Bandaríkin Philadelphia – New England ................ 1:1 - Arnór Ingvi Traustason lék fyrstu 79 mínúturnar með New England. Svíþjóð Norrköping – Degerfors ........................ 1:1 - Ísak B. Jóhannesson lék allan leikinn með Norrköping en Ari Freyr Skúlason fór meiddur af velli á 74. mínútu. Vittsjö – AIK ............................................ 4:0 - Hallbera Guðný Gísladóttir lék allan leikinn með AIK. Linköping – Piteå .................................... 4:3 - Hlín Eiríksdóttir lék ekki með Piteå vegna meiðsla. Bikarúrslitaleikur kvenna: Häcken – Eskilstuna United .................. 3:0 - Diljá Ýr Zomers var varamaður hjá Häc- ken og kom ekki við sögu. Noregur Rosenborg – Viking ................................ 5:0 - Hólmar Örn Eyjólfsson skoraði þriðja mark Rosenborg á 58. mínútu og lék allan leikinn. - Samúel Kári Friðjónsson hjá Viking fór meiddur af velli á 27. mínútu. 4.$--3795.$ Þór náði í sín fyrstu stig í 1. deild karla í fótbolta í gær er liðið vann 4:1-sigur á Grindavík í Boganum á Akureyri. Öll mörkin komu í fyrri hálfleik. Jakob Snær Árnason og Fannar Daði Malmquist Gíslason komu Þór í 2:0 á 12. og 15. mínútu. Josip Zeba minnkaði muninn á 18. mínútu en Bjarki Þór Viðarsson kom Þór í 3:1 á 22. mínútu. Guðni Sigþórsson skoraði fjórða mark Þórs á 45. mínútu. Josip Zeba, markaskorari Grindavíkur, fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt á 62. mínútu. Skoruðu fjögur í fyrri hálfleik Ljósmynd/Þórir Tryggvason Boginn Aron Jóhannsson og Ólafur Aron Pétursson eigast við. KR-ingar fengu í gær fyrstu stig sín í 1. deild kvenna í fótboltanum með því að vinna öruggan sigur á HK í Kórnum, 4:1. Vesturbæjarliðið sem féll úr úrvalsdeildinni í fyrra tapaði óvænt fyrir Augnabliki í fyrstu um- ferðinni. Kathleen Pingel skoraði tvö mörk fyrir KR og Margrét Edda Lian Bjarnadóttir eitt en það fyrsta var sjálfsmark. Lára Einarsdóttir skoraði fyrir HK undir lokin. Grindavík og Haukar skildu jöfn, 1:1, þar sem Christabel Oduro skor- aði fyrir Grindavík en Þórey Björk Eyþórsdóttir jafnaði fyrir Hauka. Morgunblaðið/Eggert Unnu Laufey Björnsdóttir og sam- herjar í KR skoruðu fjögur mörk. Fyrstu stigin til KR-kvenna VALUR – HK 3:2 0:1 Stefan Ljubicic 35. 1:1 Patrick Pedersen 40. 2:1 Christian Köhler 79. 2:2 Jón Arnar Barðdal 81. 3:2 Almarr Ormarsson 90. M Christian Köhler (Val) Sebastian Hedlund (Val) Patrick Pedersen (Val) Kristinn Freyr Sigurðsson (Val) Sigurður Egill Lárusson (Val) Almarr Ormarsson (Val) Ásgeir Börkur Ásgeirsson (HK) Guðmundur Þór Júlíusson (HK) Jón Arnar Barðdal (HK) Atli Arnarson (HK) Valgeir Valgeirsson (HK) Dómari: Erlendur Eiríksson – 7. Áhorfendur: 450, uppselt. BREIÐABLIK – KEFLAVÍK 4:0 1:0 Thomas Mikkelsen 12.(v) 2:0 Thomas Mikkelsen 68. 3:0 Thomas Mikkelsen 69. 4:0 Kristinn Steindórsson 71. MM Thomas Mikkelsen (Breiðabliki) M Anton Ari Einarsson (Breiðabliki) Viktor Karl Einarsson (Breiðabliki) Kristinn Steindórsson (Breiðabliki) Árni Vilhjálmsson (Breiðabliki) Ísak Óli Ólafsson (Keflavík) Nacho Heras (Keflavík) Kian Williams (Keflavík) Dómari: Elías Ingi Árnason – 8. Áhorfendur: 450, uppselt. FH – ÍA 5:1 0:1 Gísli Laxdal Unnarsson 6. 1:1 Sjálfsmark 30. 2:1 Matthías Vilhjálmsson 82. 3:1 Ágúst Eðvald Hlynsson 88. 4:1 Steven Lennon 90. 5:1 Vuk Oskar Dimitrijevic 90. M Matthías Vilhjálmsson (FH) Ágúst Eðvald Hlynsson (FH) Jónatan Ingi Jónsson (FH) Hörður Ingi Gunnarsson (FH) Þórir Jóhann Helgason (FH) Hjörtur Logi Valgarðsson (FH) Árni Snær Ólafsson (ÍA) Rautt spjald: Hákon Ingi Jónsson (ÍA) 29. Dómari: Sigurður H. Þrastarson – 7. Áhorfendur: 430. STJARNAN – VÍKINGUR R. 2:3 0:1 Nikolaj Hansen 5. 1:1 Hilmar Árni Halldórsson 30. 1:2 Nikolaj Hansen 37.(v) 2:2 Tristan Freyr Ingólfsson 45. 2:3 Júlíus Magnússon 52. M Hilmar Árni Halldórsson (Stjörnunni) Þorsteinn Már Ragnarsson (Stjörnunni) Tristan Freyr Ingólfsson (Stjörunni) Óli Valur Ómarsson (Stjörnunni) Pablo Punyed (Víkingi) Júlíus Magnússon (Víkingi) Kári Árnason (Víkingi) Nikolaj Hansen (Víkingi) Atli Barkarson (Víkingi) Dómari: Ívar Orri Kristjánsson – 7. Áhorfendur: 450, uppselt. _ Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl og greinar um leikina – sjá mbl.is/sport/fotbolti.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.