Morgunblaðið - 14.05.2021, Side 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. MAÍ 2021
Hið kunna alþjóðlega bókaforlag
Penguin Books hefur gefið út nýja
bók Egils Bjarnasonar, blaða-
manns og kennara, How Iceland
Changed the World: The Big Hi-
story of a Small Island.
Í kynningu frá forlaginu segir
að í mörg ár hafi Egill fengist við
að útskýra íslenska tungu, menn-
ingu og sögu fyrir heiminum, bæði
sem blaðamaður og kennari við
Háskóla Íslands. Greinar eftir
hann hafa meðal annars birst í
The New York Times, National
Geographic, hjá The Associated
Press, í Lonely Planet og víðar og
hefur hann fjallað um efni á borð
við ferðamannaiðnaðinn, kynja-
jafnrétti og velgengni Íslendinga í
baráttunni við kórónuveiru-
faraldurinn.
Með How Iceland Changed the
World er sagt að Egill hafi skrifað
fyrir almenna lesendur á ensku
bók þar sem hann staðsetur þetta
fámenna samfélag á eyju í Atlants-
hafi á heimssviðinu miðju. Hann
tekst meðal annars á við spurn-
ingar eins og þær hvort Ísland hafi
valdið frönsku byltingunni, hvers
vegna níu af fyrstu tólf tunglför-
unum hafi fyrst gengið um á Ís-
landi og hvort sendiherrar Íslands
við Sameinuðu þjóðirnar hafi borið
ábyrgð á stofnun Ísraelríkis. Er
bókin sögð koma á óvart, vera
upplýsandi og afar skemmtileg.
Og að sögn gagnrýnanda The
New York Times í vikunni er það
ekki orðum aukið, því bókinni og
frásögn Egils er hrósað í hástert.
Gagnrýnandinn segir bókina vera
„skemmtilega sérstaka“, farsa-
kennda og áhugaverða lesningu.
Penguin gefur út bók
Egils Bjarnasonar
- Íslandssögu Egils hrósað í NY Times
Höfundurinn Farsakenndri frásögn
Egils um Íslendinga er hrósað.
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Nýsirkussýningin Allra veðra von
verður frumsýnd í Tjarnarbíói í
kvöld kl. 20 og eftir nokkrar sýn-
ingar þar mun hópurinn sem að
sýningunni stendur, Hringleikur,
leggja land undir fót og sýna um
landið allt í sumar. Hringleikur
setur upp sýninguna í samstarfi
við leikhópinn Miðnætti sem sér
um leikstjórn, tónlist, hönnun bún-
inga og leikmynd.
Leikhópur og höfundar Allra
veðra von eru þau Bryndís Torfa-
dóttir, Eyrún Ævarsdóttir, Jóakim
Meyvant Kvaran, Nick Candy og
Thomas Burke en leikstjóri sýn-
ingarinnar er Agnes Wild. Bún-
inga- og sviðsmyndahöfundur er
Eva Björg Harðardóttir, um tón-
listarstjórn sér Sigrún Harðar-
dóttir, ljósahönnun Friðþjófur
Þorsteinsson og framkvæmda-
stjórn Karna Sigurðardóttir.
Mikil dýnamík og orka
„Þetta er fyrsta sýningin okkar
af þessari stærðargráðu,“ segir
Eyrún Ævarsdóttir, ein sirkus-
listamannanna í Hringleik.
Sýningin fjallar um tengsl
mannsins við veðrið og Eyrún er
spurð að því hvernig þau tengsl
séu könnuð í sirkusformi. „Það er
svolítið skemmtilegt því í sirkus-
num erum við alltaf að fást við
mikla dýnamík og orku, við erum
að henda okkur upp í loftið, hrapa
niður og fjúka um þannig að við
tökum fyrir þær hreyfingar og
færum yfir á sviðið,“ segir Eyrún
og að hópurinn skoði um leið
hvernig veðrið tengist okkur
mönnunum og við því í gegnum
þetta tungumál sirkuslistarinnar.
Eyrún er spurð að því hvort
sýningin sé nær danslist en leik-
list og segir hún hana einhvers
staðar á mörkum þeirra listgreina.
„Við notum sirkusgreinarnar til að
mála myndirnar sem við erum að
fást við. Tungumál þessarar sýn-
ingar er að mjög miklu leyti í
sirkusgreinunum sjálfum þar sem
þær fá að tala sínu máli.“
– En er eitthvað talað í sýning-
unni?
„Já, það er aðeins talað en ekki
að mjög miklu leyti. Það styður
við en alveg hægt að njóta
sýningarinnar án þess að skilja ís-
lensku,“ svarar Eyrún.
Titillinn Allra veðra von virkar
tvíræður; vísar bæði til veðurs og
að búast megi við hverju sem er.
Eyrún staðfestir þær vangaveltur
blaðamanns. „Ég myndi segja að
það væri kjarninn í sýningunni,
við vitum aldrei hvað kemur og
það er dálítið þannig í heiminum
og lífinu. Við þurfum að fylgja
flæðinu og reyna að vera opin og
bregðast við því sem kemur,“ seg-
ir hún.
Sýningin er tæp klukkustund að
lengd og Eyrún er spurð hvort
hún reyni ekki mikið á líkamlega.
„Jú, ég myndi alveg segja það,
þetta tekur alveg á en sem betur
fer höfum við verið að þjálfa okk-
ur í mörg ár þótt núna hafi komið
ágætis Covid-pása. Við erum
ánægð að ná að lenda þessu.“
Veðrið hluti af upplifuninni
Frumsýningin fer fram innan-
dyra, í Tjarnarbíói, en önnur út-
gáfa af verkinu gerir ráð fyrir
sýningum í sumar undir berum
himni, að sögn Eyrúnar. „Þar ætl-
um við að velja fallega sýningar-
staði þar sem náttúran nýtur sín
dálítið vel, umhverfið og veðrið
sem verður á hverjum sýningar-
degi mun hafa bein áhrif á fram-
gang sýningarinnar og upplifun
áhorfenda. Það verður aktífur
hluti af upplifuninni,“ segir Ey-
rún. Það verður því allra veðra
von í Allra veðra von.
Hringleik má kynna sér á vef-
síðu hópsins, hringleikur.is, og
sýninguna á vef Tjarnarbíós,
tjarnarbio.is.
„Þurfum að fylgja flæðinu“
- Hringleikur frumsýnir nýsirkussýninguna Allra veðra von - „Fyrsta sýn-
ingin okkar af þessari stærðargráðu,“ segir sirkuslistakonan Eyrún Ævarsdóttir
Á fleygiferð Það gengur mikið á þegar Hringleikur æfir sig. Hér leikur hópurinn listir sínar undir berum himni.
Nemendur á al-
þjóðlegri sam-
tímadansbraut
við Listaháskóla
Íslands sýna nú
útskriftarverk
sín, tvö verk
sem voru sér-
staklega samin
fyrir hópinn.
Eru það verkin
Teem eða Iða
eftir Önnu Kolfinnu Kuran í sam-
vinnu við dansarana og Við Tjörn-
ina, Pondering, eftir Cameron
Corbett og Ásgeir Helga Magn-
ússon.
Sýningar fara fram í húsakynn-
um sviðslistadeildar á Laugar-
nesvegi 91 og eru þær hluti af út-
skriftarhátíð LHÍ. Tvær sýningar
eru eftir, í kvöld kl. 20 og á
sunnudaginn, 16. maí, kl. 14 og 18.
Sætafjöldi er takmarkaður og þarf
að bóka sæti á tix.is.
Útskriftarnemar
sýna tvö dansverk
Cameron
Corbett
Hinn ærslafulli
myndlistarmaður
Keith Haring var
ein af skærustu
stjörnum mynd-
listarinnar í New
York-borg á ní-
unda áratug síð-
ustu aldar, áður
en hann lést úr
eyðni árið 1990,
einungis 31 árs
gamall. Haring
bjó um skeið í
íbúð í SoHo, við
Broome-stræti, en þegar hann var
fluttur út vakti hurðin á ísskápnum
sem hann hafði skilið eftir, og hús-
eigandinn hafði borið út á götu til að
fleygja, athygli konunnar sem leigði
þar á eftir honum. Hurðin hafði sýni-
lega verið notuð sem gestabók á fjöl-
sóttu heimili Harings. Leigjandinn
sem tók við hirti hurðina og hefur
geymt hana, þar til hún verður nú
seld á uppboði hjá Guernsey’s og
kunna að fást fyrir hana tugir millj-
óna króna. Enda eru á hurðinni árit-
anir stjarna á borð við Madonnu,
Andy Warhol og grafitílistamennina
LA II og Fab Five Freddy.
Ísskápshurðin
útkrotaða.
Ísskápshurð
Harings á uppboð
–– Meira fyrir lesendur
NÁNARI UPPLÝSINGAR
um auglýsingapláss:
Berglind Bergmann
Sími: 569 1246
berglindb@mbl.is
BÍLA-SÉRBLAÐ
BÍLA
fylgir Morgunblaðinu
þriðjudaginn 18. maí 2021BLAÐ