Morgunblaðið - 14.05.2021, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 14.05.2021, Blaðsíða 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. MAÍ 2021 Víða um Evrópu er verið að opna söfn og sýningarsali að nýju eftir að salirnir hafa verið lokaðir vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar. Í vikunni var blaðamönnum í Bord- eaux í Frakklandi boðið að skoða viðamikla sýningu sem verður formlega opnuð í næstu viku í skýli sem Þjóðverjar komu upp í senni heimsstyrjöldinni fyrir kafbáta sína nærri höfninni þar í borg og er kallað Bassin des Lumieres. Um er að ræða sýningu þar sem mynd- um af þekktum listaverkum er varpað með hugvitssamlegum hætti upp í sölunum. „Monet, Reno- ir og Chagall: Ferðir við Miðjarð- arhaf“ er heiti sýningarinnar og eru verk eftir þá þrjá heimskunnu listamenn fyrir miðju en einnig er brugðið upp myndum af verkum fjölmargra annarra listamanna sem eiga það sameiginlegt að hafa tengst eða skapað verk við Mið- jarðarhafið. AFP Renoir-verk Blaðamenn fylgjast með vörpun fjölmargra sögulegra málverka upp á veggi fyrrverandi kafbátaskýlis í Bordeaux í Frakklandi en þar var verið að kynna sýninguna Monet, Renoir og Chagall: Ferðir við Miðjarðarhaf. Listaverk sýnd í kafbátaskýli AFP Fjölbreytileg Á sýningunni er brugðið upp myndum af verkum fjölda lista- manna sem tengjast Miðjarðarhafinu. Hér stekkur Yves Klein af húsi. Tónlist úr leikritum Thorbjörns Egner, Kardemommubænum og Dýrunum í Hálsaskógi, verður flutt á fjölskyldutónleikum Sinfóníuhljómsveitar Ís- lands á laugardag og sunnudag, 15. og 16. maí, í Eldborg í Hörpu. Leikararnir og söngvararnir Jóhanna Vigdís Arnardóttir, Pálmi Gests- son, Valur Freyr Einarsson og Sigurður Örn Óskarsson munu þar bregða sér í ólík hlutverk á sviði með Sinfóníuhljómsveitinni. Fernir tónleikar verða haldnir eins og sjá má á vef Hörpu þar sem miðasala fer einnig fram. Hefjast tónleikarnir kl. 14 og 16 báða daga. „Um helgina hljóma fjölmörg kunnugleg lög úr heimahögum Kaspers, Jespers og Jónatans, Soffíu frænku, Lilla klifurmúsar og Mikka refs á fjöl- skyldutónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Sögurnar og söngvarnir eftir Thorbjörn Egner hafa glatt unga jafnt sem aldna um langt árabil og eru sögupersónurnar meðal okkar skemmtilegustu og tryggustu heim- ilisvina,“ segir í tilkynningu um tónleikana. Útsetningarnar gerði Jóhann G. Jóhannsson og hljómsveitarstjóri er Daníel Bjarnason. Sígilt Úr uppfærslu Þjóðleikhússins á Kardemommubænum sem frumsýnd var í fyrra. Sinfó og leikarar á fjölskyldutónleikum Ljósmynd/Hörður Sveinsson Ítölsk talsetning á kvikmyndinni Promising Young Woman hefur hlotið allnokkra gagnrýni sökum þess að karl er látinn tala fyrir leikkonuna La- verne Cox í stað konu. Sýningar á myndinni á Ítalíu áttu að hefjast 13. maí en hefur nú verið frestað sökum þessa. Leikarinn Roberto Pedicini var fenginn til að ljá Cox rödd sína og olli það hneykslan þegar stikla myndarinnar fór í spilun, að því er fram kemur í frétt dagblaðsins The Guardian. Hefur Universal Pictures International, sem dreifir myndinni, nú beðist afsökunar. Lavrence Cox Karl látinn tala fyrir Cox á ítölsku Tilkynnt hefur verið um nýjustu innanbúðarmenn hinnar banda- rísku Frægðar- hallar rokksins, Rock & Roll Hall of Fame, og eru konur þar áber- andi og fjöl- breytnin meiri en nokkru sinni, að því er fram kemur í menningarfrétt á vef Yahoo! Hinir nýju félagar eru hljóm- sveitin The Go-Go’s, Jay-Z, Foo Fig- hters, Tina Turner, Carole King, Todd Rundgren, Clarence Avant, LL Cool J, Billy Preston, Randy Rhoads, Kraftwerk, Gil Scott- Heron og Charley Patton. Tina Turner Tina Turner í frægðarhöllina

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.