Morgunblaðið - 14.05.2021, Síða 32

Morgunblaðið - 14.05.2021, Síða 32
Þjóðleikhúsið sýnir í fyrsta sinn verk eftir Caryl Churchill, sem er eitt virtasta leikskáld Bretlands. Um er að ræða verkið Ást og upp- lýsingar sem Auður Ava Ólafsdóttir þýðir og Una Þorleifsdóttir leik- stýrir, en Þjóðverjinn Daniel Anger- meyer hannar leikmyndina. Verkið verður frumsýnt í Kassanum í febr- úar 2022. Churchill, sem er í hópi framsæknustu leikskálda samtímans, er ekki síst þekkt fyrir afar áhugaverðar tilraunir með form og innihald. Í verkinu Ást og upplýsingar, sem hlaut mikið lof þegar það var frumflutt í Royal Court-leikhúsinu í London árið 2012, kryfur Churchill samtímann af óvægni. „Hún skoðar með skemmtilegum og frumlegum hætti hina djúpstæðu löngun okkar til að upplifa nánd og vera elskuð, í heimi sem oft og tíðum virðist einmitt koma í veg fyrir einingu. Brugðið er upp skörpum skyndimynd- um af mannlífinu, í hjartnæmu, tragísku og fyndnu verki,“ segir í tilkynningu frá leikhúsinu. Leikrit eftir Caryl Churchill sýnt í Þjóðleikhúsinu í fyrsta sinn FÖSTUDAGUR 14. MAÍ 134. DAGUR ÁRSINS 2021 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 739 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. Liverpool er komið aftur af alvöru í slaginn um sæti í Meistaradeild Evrópu eftir sætan sigur á erkifjend- unum í Manchester United á Old Trafford, 4:2, í gær- kvöld. Sigurinn fleytti Jürgen Klopp og hans mönnum upp fyrir West Ham og í fimmta sætið, og nú er Liver- pool fjórum stigum á eftir Chelsea og sex stigum á eftir Leicester. Liverpool á hins vegar eftir þrjá leiki en keppinautarnir aðeins tvo leiki hvor. »27 Liverpool styrkti stöðuna verulega með sigri á Old Trafford ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Bókin Stafavísur. Lestrarnám í ljóði og söng, sem er ætluð leikskóla- börnum og yngstu nemendum grunnskóla, er komin út hjá Bóka- félaginu. Með því að fara inn á you- tube.com á netinu og slá inn stafavís- ur er hægt að hlusta á lögin sungin og leikin. „Svona útgáfa hefur senni- lega aldrei verið gerð áður,“ segir Ragnar Ingi Aðalsteinsson, fyrrver- andi kennari, sem átti hugmyndina og hafði umsjón með verkinu ásamt Steinunni Torfadóttur, lektor í lestr- arfræðum. „Gríðarlega mikil vinna liggur á bak við bókina, milli 40 og 50 manns komu að henni,“ upplýsir Ragnar Ingi. Hann segir að lengi hafi blund- að í sér að gera eitthvað fyrir börnin og vanda vel til verka. Ekki sé öllum gefið að gera góðar vísur á réttan hátt og á fallegu máli. Hann hafi fengið hagyrðinga til að yrkja um bókstafina samkvæmt íslenskum bragreglum. Vísurnar hafi ýmist verið ortar við ákveðin sönglög eða lögin valin eftir á og þess gætt að engir tveir stafir fengju sama söng- lagið. Gylfi Garðarsson, Bjarni Haf- þór Helgason, Björgvin Þ. Valdimarsson og Sigurður Sigurð- arson hafi samið ný lög við sumar vísurnar. Þá hafi Steinunn Torfadóttir unnið bókina faglega út frá kennslufræðilegu hlið- inni. Lestrarfræðin ræður röð Stafirnir eru ekki í stafrófsröð í bókinni heldur raðað samkvæmt því sem best þykir út frá lestrarfræð- inni. Í aðfaraorðum Steinunnar kem- ur fram að stafavísurnar þjálfi næmi barna fyrir hljóðum tungumálsins og tónlistin hjálpi þeim að læra vís- urnar og festa í minni hljóð þeirra og heiti. Auk þess séu „vísurnar gull- náma orðaforða og málskilnings sem síast inn í vitund barna gegnum sönginn“. Ragnar Ingi segir að mikið mál hafi verið að finna lögin sem ekki hafi verið frumsamin. „Við völdum til dæmis nokkrar óskaplega fal- legar rímnastemmur sem gott er að kynna fyrir börnunum.“ Bókin hafi þegar vakið mikla athygli og for- eldrar og sérstaklega ömmur og afar hafi keypt hana fyrir börn og barna- börn, en hún eigi vissulega fullt erindi í skólana. Textarnir eru grípandi og gera stafina ljóslifandi. Í er I með kommu./Þeir sem vilja fá sér frí/fara þá til Kanarí, yrkir Kristján Run- ólfsson. Lítil, stór og út um allt/u-in bognu dvelja, segir í vísu Emblu Rúnar Hakadóttur. Að o sé hringur er ekki plat, er byrjunin á vísu Bjarna Hafþórs Helgasonar. Mitt elskulega é é é kemur fyrir í vísu Höskuldar Búa Jónssonar. Mjög er M-ið meyrt og sigið/mitt um langa arminn, segir Sigrún Haraldsdóttir. Stendur ennþá stafrófið/frá A til Ö eru lokaorð Ragnars Inga. Dagmar Agnarsdóttir mynd- skreytti bókina. Margrét Eir syngur lögin. Pétur Valgarð Pétursson leik- ur undir á gítar og Þórir Úlfarsson á píanó. Í bókarlok eru höfundar texta taldir upp sem og höfundar laga eða uppruna laganna getið. Þar birtast stafirnir í stafrófsröð. Auk þess eru gítargrip fyrir stafavísur birt. Ing- unn Wernersdóttir og Kvæða- mannafélagið Iðunn styrktu útgáf- una. „Tónlistin á netinu er rúsínan í pylsuendanum,“ segir Ragnar Ingi. „Ég held að bókin sé einsdæmi.“ Morgunblaðið/Eggert Frjór Hugmynd Ragnars Inga Aðalsteinssonar er orðin að veruleika og hann telur bókina einsdæmi. Mitt elskulega é é é - Kennslubók og söngur til að örva lestraráhuga barna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.