Morgunblaðið - 18.05.2021, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 18.05.2021, Blaðsíða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 1 8. M A Í 2 0 2 1 .Stofnað 1913 . 116. tölublað . 109. árgangur . BRÚÐULEIKHÚS GRETU HLAUT EYRARRÓSINA VARÐI FYRIR VAL Á SÍÐUSTU SEKÚNDUNNI KORTATRYGG- INGAR DUGA SKAMMT HANNES ÞÓR 26 BÍLAR 16 SÍÐURHANDBENDI 28 Antony Blinken utanríkisráðherra Bandaríkjanna kom til landsins í gærkvöldi með beinu flugi frá Danmörku. Hann mun funda með Norðurskautsráðinu í Hörpu á fimmtudag. Á dagskrá ráðherrans eru málefni norðurslóða sem og tví- hliða málefni vestnorrænu landanna þriggja, Íslands, Fær- eyja og Grænlands. Blinken mun í dag eiga fund með Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra. Hún hyggst nota tækifærið og hvetja hann og utanríkisráðherra Rússlands, Sergei Lavr- ov, til þess að beita sér á alþjóðlegum vettvangi til að ná frið- samlegri lausn í átökum Ísraelsmanna og Palestínumanna. Félagið Ísland-Palestína hefur boðað til mótmæla fyrir utan Hörpu meðan á fundahöldunum stendur. »4 & 10 Morgunblaðið/Eggert Málefni norðurslóða í brennidepli í heimsókn Blinkens Baldur Arnarson baldura@mbl.is Þórður Birgir Bogason, fram- kvæmdastjóri RR Hótela, áætlar að nýtingin hjá Reykjavík Residence verði yfir 90% í júlí og ágúst. Mikil umskipti séu í rekstrinum sem sé ekki síst að þakka mikilli eftirspurn frá bólusettum Bandaríkjamönnum. Þá hafi eldgosið í Fagradalsfjalli aukið áhugann á Íslandsferðum. Mikil ásókn í nýja lónið „Efnaðir Bandaríkjamenn eru áberandi í sumar, gjarnan 30-65 ára, sem ætla sér í ævintýraferðir á Ís- landi. Nýir innviðir styrkja ferða- þjónustuna. Við erum til dæmis stöð- ugt að bóka miða í nýja Sky Lagoon-lónið í Kópavogi og í nýja náttúrusafnið í Perlunni. Slíkir stað- ir styrkja Reykjavíkursvæðið í sessi,“ segir Þórður Birgir. RR Hótel selji gistinguna á svip- uðu verði og 2019. Því sé ekki um út- söluáhrif að ræða. Fleiri bókanir hafi borist í maí en í maí 2019 og útlit fyr- ir 90% herbergjanýtingu í vetur. Spurður hvort skýringin á góðri nýtingu hjá RR Hótelum sé minna framboð af gistingu en vorið 2019 segir Þórður Birgir að stóru hótelin séu opin fyrir pöntunum. Því sé skýringin ekki minna framboð. Á hinn bóginn hafi framboð íbúða á vef Airbnb minnkað verulega frá 2019. Keyptu reksturinn af Margréti RR Hótel eru með gistirými fyrir 350 manns í 150 einingum undir þremur vörumerkjum. Nú síðast tóku RR Hótel yfir Oddsson-hótelið á Grensásvegi en þar eru 77 her- bergi. Margrét Ásgeirsdóttir opnaði hótelið árið 2019 en hún rak jafn- framt Circle hostel í JL-húsinu ásamt syni sínum Ásgeiri Mogensen. RR Hótel skoða fleiri hótelkaup. Fá jafnmargar bókanir og um ferðavorið 2019 - RR Hótel spá 90% nýtingu í júlí - Taka yfir önnur hótel Morgunblaðið/Árni Sæberg Kaup RR Hótel yfirtóku Oddsson. MReikna með 90% nýtingu … »12 _ Umsóknum íslenskra aðila um skráningu vörumerkja og einkaleyfi fjölgaði á seinasta ári þrátt fyrir samdrátt í efnahagslífinu. Íslenskur sjávarútvegur og afleiddur iðnaður hans skipar stóran sess í skráningu einkaleyfa. Skv. greiningu sem unnin var og greint er frá í ársskýrslu Hugverka- stofu tengist rúmlega fimmtungur íslenskra einkaleyfisumsókna á ár- unum 2010-2020 sjávarútvegi. Að- eins þýsk fyrirtæki eiga fleiri sjávar- útvegstengd einkaleyfi hér á landi en íslenskir aðilar. Alþjóðlegum umsóknum um vöru- merki fækkaði á seinasta ári. Á sama tíma fjölgaði vörumerkja- umsóknum íslenskra aðila. Aftur á móti hefur umsóknum um skráningu hönnunar fækkað á seinustu árum. Jón Gunnarsson samskiptastjóri Hugverkastofu segir að af ein- hverjum ástæðum hafi skráning á hönnun ekki náð sömu vinsældum meðal íslenskra hönnuða og annarra hönnuða í Evrópu. Virðast íslensk fyrirtæki, þ.á m. hönnuðir, frekar nota vörumerkjaskráningar í aukn- um mæli. »14 Mörg einkaleyfi í sjávarútveginum _ „Ég hef trú á að ferðamögu- leikar Íslendinga verði talsverðir þegar líða fer á sumarið,“ segir Bogi Nils Boga- son, forstjóri Ice- landair. Vonir Íslend- inga um að geta ferðast til út- landa virðast smám saman vera að glæðast. Sífellt fleiri lönd búa sig nú undir eða hafa opnað landamær- in á ný og bólusetningum gegn kór- ónuveirunni miðar víða vel. „Þessi stóru ferðamannalönd, Spánn, Ítalía, Grikkland, Frakk- land, Malta, Krít, Kýpur og fleiri, munu horfa til þess að vera tilbúin í slaginn í júlí og ágúst,“ segir Jó- hannes Þór Skúlason, fram- kvæmdastjóri Samtaka ferðaþjón- ustunnar. „Það er allt að opnast og ég held að það verði brátt Ólympíu- leikarnir í markaðssetningu á milli þessara landa.“ »4 Gleði Ferðamenn koma til Portúgals. Ólympíuleikar í markaðssetningu á sumarleyfisferðum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.