Morgunblaðið - 18.05.2021, Blaðsíða 21
keyra á. Foreldrar okkar voru
staddir í sumarbústað svo afi Gils
var sá sem hún hringdi í. Hann
var kominn á staðinn fyrr en var-
ir þar sem hún var niðurbrotin og
miður sín að hafa skemmt bíl for-
eldra okkar. Afi hughreysti Ást-
rósu og minnti á að það sem
raunverulega skipti máli var að
allir væru heilir á húfi en ekki
dauði hluturinn, bíllinn.
Við verðum sorgmædd við til-
hugsunina að börnin okkar fái
ekki að kynnast langafa sínum,
þessum stóra persónuleika með
góðu nærveruna. Hann var óg-
urlega stríðinn og sum okkar erfa
það frá honum. Það var aldrei
lognmolla þar sem afi var og hans
verður sárt saknað. Við munum
sjá til þess að þau fái að heyra all-
ar skemmtilegu sögurnar um
yndislega langafa sinn og varð-
veita minningu hans.
Minning þín mun lifa um
ókomna tíð.
Ástrós Lea Guðlaugsdóttir,
Dagbjört Sól Guðlaugs-
dóttir, Baldur Logi Guð-
laugsson og Karítas Katla
Guðlaugsdóttir (afabörn).
Ekki hefði mig órað fyrir að
Gils bróðir kveddi svo fljótt og
skyndilega. Virtist stálsleginn,
fór alltaf til vinnu og engan bil-
bug á honum að finna. Úr því sem
komið er verður maður að reyna
að venjast því að fá ekki lengur
upphringingu: „Sæll, ætlarðu á
leikinn í kvöld? - OK, kem og næ í
þig. Þú verður klár.“ Hans stíll að
hafa ekki mörg orð um hlutina,
en knöpp og meitluð tilsvör hans
höfðu þeim mun meiri vigt. Orð-
heppinn og oft meinfyndinn í til-
svörum. Um það væri hægt að
segja allnokkrar sögur. Ein verð-
ur þó látin duga: Gils hélt kött
um tíma meðan þau Rósa bjuggu
á Lækjargötunni. Eitt sinn bank-
ar nágranni þeirra upp á og
kvartar undan því við Gils að
kötturinn þeirra sé sífellt að míga
utan í bílinn hans. Gils hugsaði
sig um andartak og sagði síðan:
„Ég skal ræða þetta við hann!“
Handtakið var þétt, svo ýms-
um þótti nóg um. Þéttur í lund og
ekki síður þéttur á velli. Því
fengu ýmsir andstæðingar hans í
handboltanum á árum áður að
finna fyrir. Kölluðu hann grófan,
en það er ekki rétt; hann var bara
fastur fyrir og gaf ekki tommu
eftir. Hann gat ekki að því gert
þó að hann væri hraustur að upp-
lagi. Hrjúfur hið ytra en silki-
mjúkt ljúfmenni hið innra. Það
vissum við vel sem næst honum
stóðu.
Gils var líka um margt prin-
sippmaður. Skilin á milli þess að
vera prinsippmaður og þrjóskur
eða þvermóðskufullur geta verið
óskýr. Sumir afkomenda Gils
vilja meina að hann hafi fundið
upp þrjóskuna. Eitt af prinsipp-
unum var að borða helst ekki fisk
– honum fannst fiskur einfald-
lega vondur. Í æsku þýddi þetta
að tvisvar þrisvar í viku borðaði
Gils ekki máltíð með okkur hin-
um í fjölskyldunni. Hann bætti
þetta svo um munaði upp á
sunnudögum þegar mamma eld-
aði hrygg eða læri. Við bræður
hans grínuðumst stundum með
það að þá hefði mamma þurft að
elda tvö læri – annað fyrir Gils og
hitt fyrir okkur hin!
Fyrstu minningar tengdar
Gils eru úr Grænukinninni um
1960. Rokkið á blómaskeiði og
briljantín flæddi um landið. Ég
man eftir Gilla með Adrett-hár-
kremið að maka því í hárið til að
fá réttu sveipina áður en farið var
á djamm. Svo hafði ég þann heið-
ur að fá að bursta skóna þeirra
Kristjáns bróður og fá túkall fyr-
ir. Þeir sögðu að ég hefði verið
einstaklega góður skóburstari!
Síðar urðum við Dóra og dæt-
ur okkar fastagestir á Arnar-
hrauninu og síðar Lækjargötu.
Nutum við þá ríkulegrar gest-
risni Gils og Rósu. Þar var ekki í
kot vísað. Slegið upp veislu af
minnsta tilefni og setið í gleðskap
fram eftir. Segja má að heimili
þeirra á þeim tíma hafi verið eins
konar félagsheimili FH í hand-
boltanum, börnin í boltanum og
þau hjón bæði FH-ingar að
innstu hjartarótum. Þetta er eft-
irminnilegur tími, sem gott er að
eiga í minningabankanum.
Margt höfum við brallað í tím-
ans rás, sem hægt væri að segja
margar sögur af. Sumt misjafnt,
en við vorum alltaf í góðu og nánu
sambandi; sjaldnast ósáttir, en
báðir nokkuð þrasgjarnir ef svo
bar undir. Hjálpsamur var Gils
og sannur vinur vina sinna og
mátti varla neitt aumt sjá, þótt
hann bæri það ekki utan á sér.
Guð blessi minningu hans.
Sæmundur Stefánsson.
Gils, bróðir minn og vinur,
varð bráðkvaddur á heimili sínu
hinn 12. maí. Skyndilegt fráfall
hans kom okkur sem næst hon-
um stóðu algerlega í opna
skjöldu, maðurinn í fullri vinnu
og vel á sig kominn þótt kominn
væri vel fram yfir löggild elli-
mannaviðmið og hafði engin
áform um að hætta að vinna
strax. Sagðist ekki vita hvað
hann ætti að gera af sér ef hann
hætti að vinna, hugnaðist ekki að
leggjast í kör, en kannski má
segja að óvænt og brátt andlát
hafi verið í hans anda; hratt og
öruggt, án tafa eða málalenginga.
Gils var nefnilega ekki mikið gef-
inn fyrir að fresta hlutunum; ef
eitthvað þurfti að framkvæma þá
var best að gera það strax. Ég
var honum stundum innan hand-
ar með eitt og annað smálegt og
þá var það oftast á þessa leið:
Hann hringdi og spurði: „Ertu
heima, ég þarf að fá þig til að
hjálpa mér, ég verð kominn eftir
fimm mínútur.“ Þetta þurfti ekki
að ræða frekar og hann var kom-
inn eftir fimm. Annað sem hafði
verið innréttað í hans skaphöfn
var þrjóska og skapfesta, og það
þurfti góð rök til að fá hann til að
beygja af leið eða skipta um
skoðun. Hann hafði ríka réttlæt-
iskennd og óbeit á hvers kyns
spillingu og óréttlæti. Hann var
með eindæmum barngóður, hafði
gaman af börnum en leiddist ekk-
ert að stríða þeim á góðlátlegan
hátt. Rauður ópal sem hann átti
alltaf í vasanum lagaði allt ef
stríðnin náði aðeins of langt. Þótt
nokkur aldursmunur væri með
okkur bræðrum höfum við verið í
nálægð hvor annars alla tíð. Það
sem tengdi okkur kannski mest
saman var sameiginlegur áhugi á
jeppum og ýmsu brasi sem þeim
tengdist. Gils átti alla tíð ein-
hverja jeppa og í seinni tíð tals-
vert breytta og held ég að þetta
áhugamál hafi bara haldið honum
ungum í anda, það eru allavega
ekki margir menn sem komnir
eru á hans aldur sem keyra um á
ofurbreyttum bílum eins og Gils
gerði. Árlegar ferðir okkar
bræðra og frænda inn á Arnar-
vatnsheiði sem spanna nokkra
áratugi aftur í tímann voru á ár-
um áður oft æði skrautlegar og
var Gils þar oftar en ekki fram-
arlega í flokki þar sem menn
höfðu endaskipti á hugtakinu
„betri er krókur en kelda“; sneru
því við og tóku frekar „kelduna“
til að reyna bæði á bíla og menn.
Oft enduðu þessi kelduævintýri
með brotnum drifsköftum og öxl-
um og stundum endaði heimferð-
in í spotta í bæinn ef ákefðin við
að reyna á ökutækin gekk úr hófi
fram. Þrátt fyrir ýmis slík áföll
með bilaða eða brotna bíla gafst
Gils aldrei upp, bara einfaldlega
lagað snart og skjótt það sem
brotið var og beyglað og beðið
næstu ferðar. Gils hefur nú stigið
upp í sinn Gullvagn og lagt í sína
hinstu ferð. Ég, Alda og börnin
okkar sendum okkar innilegustu
samúðarkveðjur til fjölskyldu
hans allrar. Hvíl í friði bróðir
sæll.
Árni Stefánsson.
- Fleiri minningargreinar
um Gils Stefánsson bíða birt-
ingar og munu birtast í blað-
inu næstu daga.
MINNINGAR 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 2021
✝
Sveinn Ármann
Sigurðsson
fæddist í Skógsnesi
Gaulverjabæj-
arhreppi 6. október
1944. Hann lést á
gjörgæsludeild
Landspítalans í
Fossvogi 6. maí
2021.
Foreldrar hans
voru Margrét
Magnúsdóttir
Öfjörð, f. 5.6. 1923, d. 29.5. 2004,
og Sigurður Guðjónsson, f. 3.11.
1911, d. 5.5. 1955. Þau slitu sam-
vistir.
Systkini Sveins samfeðra voru
Þórarinn Öfjörð, f. 25.6. 1942, d.
9.4. 2018, og Kjartan, f. 23.8.
1943, d. 16.10. 1972. Systkini
sammæðra eru Þorkell, f. 15.11.
1950, Ragnheiður, f. 17.9. 1954, d.
16.7. 2001, Magnús Öfjörð, f. 3.10.
1958, og Kolbrún, f. 13.9. 1966.
Hinn 15. júní 1968 kvæntist
Sveinn Sigurbjörgu Gísladóttur,
f. 26.1. 1949, þau slitu samvistir.
Börn þeirra eru: 1) Bryndís, f.
17.3 1968. Eiginmaður Hreinn
Jónsson, f. 4.7 1967. Börn Bryn-
dísar: Ármann Örn Bjarnarson, f.
13.6. 1990, sambýliskona Katrín
Sveinsdóttir. Steinar Bjarnarson,
f. 9.2. 1995. Bjarki Elvar Öfjörð,
f. 9.10. 2000, sambýliskona Jóna
L. Ármannsdóttir. 2) Magnús
Sveinn Ármann fæddist í
Skógsnesi í Gaulverjabæj-
arhreppi og bjó þar fyrstu ár sín.
Árið 1948 flutti hann með afa sín-
um ömmu, móður og Þórarni í
Gaulverjabæ. Þaðan flytja þau
árið 1951 í Vallahjáleigu. Mar-
grét giftist síðar Markúsi Þor-
kelssyni, f. 6.6. 1918, d. 29.1.
2015, sem gekk Sveini í föð-
urstað. Fjölskyldan flytur 1958
að Gerðum í Gaulverjabæjar-
hreppi. Árið 1967 flytur Sveinn á
Selfoss og hefur búið þar síðan.
Sveinn gekk í barnaskólann í
sveitinni, síðar fór hann einn vet-
ur í íþróttaskólann í Haukadal. Á
sínum yngri árum keppti Sveinn
fyrir Samhygð á héraðs- og
landsmótum í glímu og spjót-
kasti. Sveinn sótti margar vertíð-
ir til Vestmannaeyja og frá
Stokkseyri og var töluvert til sjós
bæði á fiski og millilandaskipum.
Hann vann á vinnuvélum bæði í
Búrfelli og í gosinu í Vest-
mannaeyjum, hann stundaði
byggingarvinnu, vann mörg ár í
Sundhöll Selfoss og endaði starfs-
feril sinn hjá Byko á Selfossi.
Sveinn var virkur í fé-
lagsstörfum, söng í Samkór Sel-
foss og síðar í Karlakór Selfoss,
hann var félagi í Umf. Selfoss og
sat í stjórn knattspyrnu- og hand-
knattleiksdeildar.
Útför Sveins Ármanns fer
fram frá Selfosskirkju í dag, 18.
maí 2021, klukkan 14.
Vegna fjöldatakmarkana verð-
ur útförinni streymt á:
https://selfosskirkja
Streymishlekk má finna á:
https://www.mbl.is/andlat
Gísli, f. 15.4. 1971.
Eiginkona Linda B.
Perludóttir, f. 12.11.
1971. Börn þeirra:
Dagur Fannar, f.
10.7. 1992. Eig-
inkona Þóra G.
Pálmarsdóttir, f.
16.12. 1992. Börn:
Kristbjörg Lilja,
Skarphéðinn
Krummi og Matt-
hildur Sófía. Daldís
Perla, f. 31.7. 1995. Sveinn Atli, f.
8.6. 2004. 3) Kristín, f. 2.1. 1973.
Eiginmaður Andrés G. Ólafsson,
f. 30.4. 1972, börn þeirra: Sverrir,
f. 29.7. 1991, sambýliskona Am-
anda Vilhjálmsdóttir, f. 17.1.
1993, dóttir þeirra er Aþena
Saga. Ólafur Áki, f. 16.6. 2003.
Áslaug, f. 26.3. 2006. Eftirlifandi
eiginkona Sveins er Guðrún Jóna
Guðbjartsdóttir, f. 20.9. 1950, þau
giftu sig hinn 15. nóvember 2014.
Börn Guðrúnar eru: 1) Guð-
bjartur Örn Einarsson, f. 30.10.
1969, eiginkona Sóley Ein-
arsdóttir, f. 6.2. 1972, eiga þau
tvö börn; Einar Örn, f. 1.2. 1995,
og Atla Rafn, f. 26.9. 1998. 2)
Bergljót Einarsdóttir, f.
31.10.,1972, eiginmaður Guðjón
Birkisson, f. 18.8. 1972, eiga þau
tvö börn; Emilíu, f. 16.4. 1997,
sambýlismaður Halldór R.
Ágústsson, og Val, f. 2.6. 2001.
Elsku pabbi, það er skrítin
hugsun að vita til þess að þú komir
ekki lengur í heimsókn til okkar
Lindu í Stekkholtið, þú varst mjög
duglegur að kíkja á okkur eftir að
vinnudeginum lauk hjá okkur og
einnig um helgar, við tókum
spjallið um allt milli himins og
jarðar en mestmegnis um liðið
okkar Tottenham Hotspur í enska
boltanum og gengi okkar fólks í
fótboltanum og handboltanum á
Selfossi. Við vorum sannkallaðir
sófasérfræðingar eða brekku-
spekingar þegar við vorum stadd-
ir í stofunni heima eða á Selfoss-
velli á leikjum. Einnig ræddum
við stundum pólitík en vorum að
lokum sammála um að vera ósam-
mála. Margar eru minningarnar
og stundirnar á fótboltavellinum
sem ég man, þú fylgdir mér eftir í
keppnisferðum okkar strákanna í
fótboltanum bæði hér heima og
erlendis. Eftirminnileg er heim-
koma okkar frá Norway cup ’87,
þú varst eini fararstjórinn á heim-
leiðinni og barst ábyrgð á okkur,
við 15 og 16 ára gamlir. Allmargir
af okkur höfðu náð að kaupa bjór,
sem ekki var leyfður á Íslandi, til
að taka með heim frá Noregi, bún-
ingataskan var fyllt. Því miður var
töskunni rennt í gegnum gegnum-
lýsingatækið og bjórflöskur fylltu
út í skjáinn hjá tollurunum, þú
varst tekinn og þurftir að svara
fyrir þetta hjá okkur. Ekki varstu
reiður við okkur fyrir þetta,
þekktir þína stráka og borgaðir
sektina fyrir okkur með bros á
vör, en þú sagðir mér aldrei hvað
sektin var há. Þú hvattir mig til að
sækja mér menntun og varst fyr-
irmynd mín í vinnu, varst dugleg-
ur og þjónustugóður. Gott þótti
mér þegar við fórum að starfa
saman í Byko, og ekki er ég frá því
að þú hafir verið töluvert stoltur
af stráknum að verða yfirmaður
þinn. Hver þekkti ekki „Denna í
Byko“ og hans einstöku þjónustu-
lund og nákvæmni, allt stóðst sem
þú sagðir og viðskiptavinir spurðu
sérstaklega um þig ef þú varst
ekki sjáanlegur á gólfinu. Ég hef
tekið framtakssemi þína til fyrir-
myndar í mínu lífi. Þakklát erum
við fjölskyldan fyrir hjálpina við
að byggja í Furugrundinni, hún
var ómetanleg. Þú varst góður afi
og börnin mín eru þakklát fyrir
þann tíma sem þú gafst þeim, þú
varst stoltur af þeim öllum og
hvattir þau áfram, spurðir okkur
Lindu reglulega um hvernig þeim
gengi eftir að þau fóru út í lífið.
Ein minning um þig er ofarlega í
huga Dags Fannars og Daldísar
Perlu, það var þegar afi og Gunna
buðu þeim í hjólhýsið í bjór og
rauðvín. Þar spjölluðuð þið um
allt milli himins og jarðar og
spurðuð þau um framtíð þeirra,
þessi minning er þeim mjög kær.
Eitt var það sem við náðum
ekki að gera og við erum leið yfir
að geta ekki gert með þér og þá
sérstaklega nafni þinn Sveinn
Atli, það er að fara með þér á leik
með Tottenham. Báðir náðum við
að fara á White Hart Lane en ekki
saman, þú verður með okkur í
anda þegar við förum á næsta
tímabili. Við erum svo þakklát
fyrir þær stundir sem við áttum
með þér og sérstaklega erum við
þakklát fyrir að þú komst í 50 ára
afmælið mitt og náðir að hitta
barnabarnabörnin þín þrjú,
Kristbjörgu Lilju, Skarphéðin
Krumma og Matthildi Sófíu.
Takk fyrir lífið pabbi.
Magnús.
Elsku tengdapabbi. Þegar ég
kynntist þér vorið 1988 kom mér
mest á óvart að þú værir svona
virkur í eldhúsinu, því var ég ald-
eilis ekki vön heiman frá mér. Ég
var mjög matvönd á þessum árum
en þó frekar kurteis ung dama og
þorði ekki að segja nei ef mér var
boðið í mat og leist ekki á það sem
var í matinn, ég þorði ekki að
segja nei takk. Eitt skiptið var
fiskur í bleikri sósu með makka-
rónum og raspi ofan á, þetta leist
mér ekki mikið á en ákvað þó að
smakka án þess að segja orð. Ég
fékk mér aftur á diskinn og hef
nokkrum sinnum eldað þennan
fína fiskrétt.
Þú varst alltaf hjálpsamur og
snöggur til að koma til að aðstoða
okkur við byggingu hússins okkar
og þegar við tókum upp á því að
flytja á ýmsa staði á Selfossi. Mér
er mjög minnisstætt þegar þú
bruggaðir hvítvín í fyrsta skipti.
Ég, þú og Maggi sátum eitt kvöld-
ið við eldhúsborðið og ræddum líf-
ið og tilveruna, allt í einu vorum
við búin að drekka fimm flöskur,
ekki veit ég þó hvað vínið var
sterkt í %.
Eitt sinn fór ég með þér og
mömmu þinni á miðilsfund, þú
ætlaðir að sannfæra mig um að
það væri hægt að ná sambandi við
framliðið fólk en ég var alveg á því
að það væri bara bull og vitleysa.
Ég gat ekki annað en sannfærst
og ég vona að ég eigi eftir að ná
sambandi við þig einhvern tíma
elsku Denni. Það er erfitt að
hugsa til þess að þú komir ekki
lengur í kaffisopa og spjall á
laugardags- og sunnudagsmorgn-
um, en þú verður með okkur í
anda. Elsku Denni takk fyrir allt.
Linda Björg Perludóttir.
Látinn er góður drengur og
kórfélagi, Sveinn Ármann, eða
Denni eins og hann var kallaður í
daglegu tali. Leiðir okkar lágu
saman fyrir um þrátíu og fimm
til fjörutíu árum á vettvangi
knattspyrnudeildarinnar á Sel-
fossi. Denni var áhugamaður um
íþróttir, fór í íþróttaskólann í
Haukadal á sínum tíma, var
glímumaður góður og keppti í
frjálsum íþróttum á sínum yngri
árum. Þegar sonurinn fór að
vaxa úr grasi fór Denni að sinna
félagsmálum og tók þátt í störf-
um á vegum knattspyrnudeildar
UMF Selfoss. Það varð strax
augljóst að Denni var maður sem
gott var að leita til, hann varð við
öllum óskum. Denni gekk í öll
hlutverk; gerðist knattspyrnu-
dómari 1978, átti sæti í ungling-
aráði, var oft í fararstjórn með
yngri flokkum í keppnisferðum,
átti sæti í stjórn knattspyrnu-
deildar í áratug. Hann lagði
ómetanlega vinnu og metnað í
allt sem hann gerði í þágu knatt-
spyrnunnar á þessum árum.
Denni var fenginn til að taka
sæti í stjórn handknattleiks-
deildar í þrjú ár, segir það svolít-
ið um Denna hvað hann var fé-
lagslyndur og fórnfús maður. Á
aðalfundi ungmennafélagsins
1987 var Denna afhentur virð-
ingarvottur fyrir alla þá vinnu og
velvilja sýndan félaginu með við-
töku á Björns Blöndal-bikarnum
sem sá einstaklingur hlýtur sem
skarar fram úr í félagslegu
starfi. Mér var það mikill heiður
að afhenda Denna þessa viður-
kenningu, þá sem formaður ung-
mennafélagsins. Síðan gerist það
á efri árum okkar Denna að við
förum að syngja saman í Karla-
kór Selfoss og í sömu rödd. Eftir
ekki langan tíma sá Denni að ég
þyrfti aðstoðar við og leiðbein-
ingar, enda búinn að vera lengur
í kórnum og reyndari. Ég er hon-
um ævarandi þakklátur fyrir
hugulsemi hans og nærgætni í
minn garð, sem er ekki sjálfgef-
ið, þetta var Denni í hnotskurn
eins og ég þekkti hann. Nú hin
síðari ár höfum við hist nokkrum
sinnum í útilegu, en Denni og
Gunna voru komin í nýtt og fal-
legt hjólhýsi sem þau áttu góðar
stundir í. En svona er lífið stund-
um, ekki á vísan að róa. Elsku
Gunna mín, þú áttir góðan mann
sem er sárt saknað af mörgum.
Ég og Fríða vottum þér og þinni
fjölskyldu innilega samúð og vit-
um að minningin um Denna mun
lifa um ókomin ár.
Björn Ingi Gíslason.
Sveinn Ármann
Sigurðsson
Ástkær móðir mín, dóttir, systir, mágkona
og uppeldissystir,
SIF MELSTEÐ,
Engihjalla 25,
lést á líknardeild Landspítalans mánu-
daginn 10. maí.
Útför hennar verður frá Dómkirkjunni í Reykjavík
fimmtudaginn 20. maí kl. 13.00.
Daníel Melsteð
Þórunn Melsteð
Sigurður Stefánsson
Árni Árnason
Soffía Melsteð Jóngeir Hjörvar Hlinason
Soffía Melsteð Eyjólfsdóttir Jón Henrik Bartels
Guðbjörg Sigurðardóttir Ottó Guðjónsson
Berglind Sigurðardóttir
Konráð Karl Sigurðsson Guðrún Kjerúlf Árnadóttir
Stefán Þór Sigurðsson Þórhalla Guðrún Gísladóttir
Sonja Vigdís Sigurðardóttir James Fuller Williams