Morgunblaðið - 18.05.2021, Blaðsíða 25
í heiðinni og fluttum hingað 2009 frá
Akureyri. Hér er mikið útsýni inn
og út fjörðinn og yfir Akureyri.“
Foreldrar Sigurjóns voru Jón Gunn-
laugur Sigurjónsson, f. 14.10. 1909,
d. 22.3. 1986, trésmíðameistari á Ak-
ureyri, og Birna Finnsdóttir, f. 18.8.
1917, d. 11.8. 1990, húsmóðir. Þóra
og Sigurjón gengu í hjónaband 18.5.
1986. Fyrri eiginmaður Þóru er
Gunnar Austfjörð, f. 8.11. 1949, fyrr-
verandi deildarstjóri á Akureyri.
Þau skildu.
Dóttir Þóru og Gunnars er Pálína
Austfjörð, f. 8.5. 1970, ritari lækna
hjá Sjúkrahúsinu á Akureyri, gift
Sigurði Sigþórssyni málarameistara
og eiga þau tvo syni og þrjú barna-
börn. Sonur Þóru og Sigurjóns
Hilmars er Hilmar Þór, f. 13.3. 1986,
starfsmaður Sjóvár í Reykjavík, í
sambúð með Líneik Þóru Bryndís-
ardóttur og eiga þau einn son. Börn
Sigurjóns Hilmars frá fyrra hjóna-
bandi eru Jón Gunnlaugur, f. 4.12.
1965, býr á Svalbarðsströnd, í sam-
búð með Önnu Sævarsdóttur og
eiga þau þrjú börn; Íris Björk, f.
16.4. 1969, býr á Akureyri, gift Sæv-
ari Má Magnússyni og eiga þau þrjú
börn og tvö barnabörn; Birna
Hrönn, f. 15.12. 1972, býr á Selfossi
og á hún þrjár dætur.
Systkini Þóru eru Bergur, f. 20.2.
1948, býr í Reykjavík; Ingibjörg, f.
21.5. 1953, býr á Egilsstöðum; Bene-
dikt, f. 11.8. 1962, býr í Eyjafjarð-
arsveit, og Ragnhildur, f. 28.10.
1967, býr í Grímsey.
Foreldrar Þóru voru hjónin Hjalti
Jósefsson, f. 28.5. 1916, d. 10.5. 2007,
bóndi á Hrafnagili, og Pálína R.
Benediktsdóttir, f. 21.7. 1925, d.
20.11. 2008, húsfreyja.
Þóra Guðrún
Hjaltadóttir
Katrín Lárusdóttir
húsfreyja á Hofi í Hjaltadal
Jóhann Jóhannsson
bóndi á Hofi í Hjaltadal
Þóra Guðrún Jóhannsdóttir
húsfreyja á Bergstöðum
Jósef Jóhannesson
bóndi á Bergstöðum í Miðfirði
Jóhann Hjalti Jósefsson
bóndi á Hrafnagili
Ingibjörg Eysteinsdóttir
húsfreyja á
Auðunarstöðum
Jóhannes
Guðmundsson
bóndi á Auðunarstöðum í
Víðidal, V-Hún.
Magdalena Guðrún
Einarsdóttir
húsfreyja á Svertings-
stöðum í Miðfirði
Guðmundur Sigurðsson
bóndi á Svertingsstöðum
Ingibjörg Guðmundsdóttir
húsfreyja á Efra-Núpi
Benedikt Líndal Hjartarson
bóndi og hreppstjóri á Efra-Núpi
í Miðfirði, V-Hún.
Pálína Ragnhildur
Björnsdóttir
húsfreyja á Efra-Núpi
Hjörtur Líndal
bóndi og hreppstjóri á Efra-Núpi
Úr frændgarði Þóru Guðrúnar Hjaltadóttur
Pálína Ragnhildur
Benediktsdóttir
húsfreyja á Hrafnagili í Eyjafirði
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 2021
ÚRVAL AF GÓÐUM
S ÆRUM
Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.is
skæri í úrvali
Brýnum skæri og hnífa
Opið
virka
daga
frá 9-
18
lau fr
á 10-
16
Alhliða skæri
4.995 kr.
Vinstri
handar skæri
4.995 kr.
Þynningarskæri
8.990 kr.
Hárskæri
6.490 kr.
Klæðskeraskæri
5.480 kr.
Bróderskæri
3.220 kr.
Storkaskæri
4.290 kr.
Klæðskeraskæri
Stærðir 8“-12“
Frá 7.370 - 9.980 kr.
Vefverslun brynja.is
„ÉG TRÚI ÞVÍ EKKI AÐ ÞÚ HAFIR KOMIST
FRAM HJÁ MÓTTÖKURITARANUM. HÚN ER
ALGER TÍK.“
„HVAÐ MEINARÐU MEÐ AÐ ÉG HAFI EKKI
LÖGSÖGU Í MÁLINU?“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... stundum andlegt
álag.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
VÚHÚ! MAMMA
MÍA!
VÍÍÍ!
ÞVÍLÍKT
FJÖR!
JÍ-HA!
ÞETTA ER SKO
STERKT KAFFI!
JÚ-HÚ!
ÉG ER FARINN
AÐ SJÁ ALLT Í
MÓÐU!
ÉG LÍKA! KANNSKI
ÆTTUM VIÐ AÐ FÁ
OKKUR GLERAUGU!
JÁ, ÉG SKIL HVAÐ ÞÚ
ÁTT VIÐ!
NEI! ÉG KANN BARA
VEL VIÐ ÞETTA!
VARÐHUNDAR
EHF.
Á síðasta hausti kom út ljóðabók-in „Segðu það steininum“ eftir
Jóhönnu Álfheiði Steingrímsdóttur,
sem bjó ásamt manni sínum Her-
móði Guðmundssyni frá Sandi í Ár-
nesi á bökkum Laxár. Eins og hún á
ætt til eru tök hennar sterk á mál-
inu. Bókin skiptist í „háttbundin
ljóð“ og „óbundin ljóð – svipmynd-
ir“. Jóhanna hefur fullkomið vald á
hinum ýmsu bragarháttum og þeg-
ar hún bregður fyrir sig „óbundn-
um ljóðum“ nýtur hún þess, hrynj-
andin er sterk og myndmálið skýrt.
„Öryggisleysi“ heitir þetta ljóð:
Yfir fjöllunum hrannast skýjabakkar,
kólga til hafsins.
Það er byrjað að snjóa.
Bráðum hyljast allar leiðir.
Þungur er hugur þess
sem er einn á ferð
og á langt heim.
Jóhanna ól allan aldur sinn á
bökkum Laxár og kallar þessa
stöku „Veiðihug“:
Frumstæð þráin feng að ná
fyllir veiðimannsins draum
þar sem leikur lax í á
við lygnu hyls og iðustraum.
„Aðlögunarhæfni“ kallast þessi
staka:
Mörgum lánast leikni að ná
lífs á báru kvikri,
sitja alltaf ofan á
eins og fluga á sykri.
Auðvitað yrkir Jóhanna um veðr-
ið. Það er stórhríð á fyrsta sum-
ardegi:
Dauf er þessi dagrenning
dynur hríð á glugga,
ljóssins fyrsta lífshræring
lögð í fanna skugga.
Og „í fyrstu leysingum 1997“
yrkir hún:
Hvítskyggndur vormáninn vakir í bjartri
nótt,
vefur húmblæ jörð sem er ung og ný,
vindarnir sofa vært og allt er hljótt,
í vötnunum perlast geislar og fiðuský.
Um kisu yrkir Jóhanna:
Í hretum eykur þor þol
það sem hugur geymir,
að þröstur kvaki og komi vor
kattarlúruna dreymir.
Jóhanna skrifaði í vísnabók Her-
móðs 1938:
Eg finn í draumi heitast handtak þitt,
eg heyri í draumi ástarorð þín blíðust,
eg lít í draumi ljúfast yndið mitt,
eg les í draumi gæfublómin fríðust.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Hér er vel kveðið
á bökkum Laxár