Morgunblaðið - 18.05.2021, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 2021
FERSKT OG GOTT PASTA
TILBÚIÐ Á ÖRFÁUM MÍNÚTUM!
ÁReykjavíkurflugvelli er flug-braut sem búið er að skilgreina
sem ekki-flugbraut og til að tryggja
að enginn noti hana, ekki heldur í
neyð, er búið að koma þar fyrir
steypuklumpum og
malbikshrúgu. Það
dugði ekkert minna.
Þessi gjörningur er
ein af afleiðingum
þeirrar skoðunar
borgaryfirvalda að
borgarbúar vilji
hvorki ferðast með
flugvélum né fólks-
bílum, aðeins stræt-
isvögnum og ofur-
strætisvögnum.
- - -
Þess vegna hafaborgaryfirvöld
lagt áherslu á að
koma öllum flugbrautum út fyrir
borgarlandið og út á Reykjanes,
nánar tiltekið í Hvassahraun.
- - -
Njáll Trausti Friðbertsson al-þingismaður spurði sam-
gönguráðherra á Alþingi í gær út í
hugmyndir um flugvöll í Hvassa-
hrauni í ljósi eldgossins í Geldinga-
dölum. Mátti ljóst vera að fyrirspyrj-
anda þótti heldur ótryggt að ætla
með flugvöll nærri gossvæðinu,
meðal annars þegar haft væri í huga
að vísindamenn telji jarðhræringar
á Reykjanesi geta „staðið yfir næstu
200-300 árin“.
- - -
Og ráðherra virtist á sama máliog sagði að það „gæti verið
óskynsamlegt að fara í miklar fram-
kvæmdir rétt á meðan slík hrina
gengur yfir“, og vísaði þar til jarð-
hræringanna sem taldar eru geta
staðið um aldir.
- - -
Undir það má taka að eftir nokk-ur hundruð ár sé mögulegt að
huga að því hvort gosóróinn sé að
baki. En þangað til þarf að tryggja
flugvöll í Reykjavík.
Njáll Trausti
Friðbertsson
Til skoðunar – eftir
nokkur hundruð ár
STAKSTEINAR
Sigurður Ingi
Jóhannsson
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Stafræn smiðja Vesturlands, Fab-
Lab, mun opna móðurstöð á Akra-
nesi og hafa bæjaryfirvöld undirrit-
að samstarfssamning þess efnis við
atvinnu- og nýsköpunarráðuneytið
auk fjölda annarra samstarfsaðila.
Sævar Freyr Þráinsson bæjar-
stjóri á Akranesi segir í samtali við
Morgunblaðið að smiðjan hafi gríð-
arlega mikla þýðingu fyrir bæinn:
„Með þessu erum við á Akranesi að
stuðla að því að við náum að búa okk-
ur betur undir fjórðu iðnbyltinguna,
sem á eftir að hafa gríðarleg áhrif á
allt, til dæmis með gervigreind, sjálf-
virknivæðingu og fleiru.“
FabLab er smiðja búin tækjum og
tólum þar sem frumkvöðlum er gert
kleift að skapa nánast hvað sem er.
Þrjú fyrirtæki á Akranesi og ná-
grenni taka þátt í uppbyggingu og
þróun smiðjunnar með sérstöku
framlagi; ELKEM, Norðurál og
Skaginn 3X, en Brim leggur til að-
stöðuna. Samanlagt leggja þessi
fyrirtæki tólf milljónir til verkefnis-
ins á næstu þremur árum.
Smiðjan verður með aðsetur hjá
þróunarfélaginu Breið við Bárugötu
á Akranesi. Stefnt verður að því að
auglýsa opna tíma í smiðjunni um
næstu mánaðamót og í ágúst mun
stundatafla fyrir smiðjuna taka gildi,
þar sem hópum er úthlutað tímum.
Stafræn smiðja opnuð á Akranesi
- Móðurstöð FabLab opnuð á Bárugötu
- Búin tækjum og tólum til sköpunar
Ljósmynd/Akraneskaupstaður
Samstarf Atvinnu- og nýsköpunar-
ráðuneytið tekur þátt í verkefninu.
Umhverfisstofnun skoðar að áfrýja
dómi sem féll í Héraðsdómi Vest-
fjarða nýlega í máli þyrlufyrirtæk-
isins Reykjavík Helicopters ehf., þar
sem framkvæmdastjóri fyrir-
tækisins og tveir flugmenn voru
sýknaðir af ákæru fyrir brot gegn
náttúruverndarlögum með því að
selja þyrluferðir að friðlandinu á
Hornströndum og lenda þyrlum þar.
„Við þurfum að taka dóminn til
skoðunar með okkar ráðuneyti og
skoða hvernig sé rétt að bregðast við
honum,“ segir Eva B. Sólan lögfræð-
ingur Umhverfisstofnunar.
Sýknudómurinn byggðist m.a. á
því, að sú regla sem sett var í auglýs-
ingu ráðherra um verndaráætlun
friðlandsins á Hornströndum hefði
ekki haft fullnægjandi lagastoð í
náttúruverndarlögum.
Þorsteinn Sæmundsson, þingmað-
ur Miðflokksins, tók málið upp á Al-
þingi í gær og spurði Guðmund Inga
Guðbrandsson umhverfisráðherra
hvort hann teldi ástæðu til að herða
löggjöf. Ráðherra sagði að þetta yrði
skoðað í ráðuneytinu, en hann hefði
ekki svör við því hvað þetta þýddi
nákvæmlega eins og staðan væri
núna.
Þorsteinn spurði einnig hvernig
ráðherra og hans fólk hygðust fylgja
eftir reglum um hámark 50 farþega
sem mætti setja í land á Horn-
ströndum hverju sinni. Búið væri að
tilkynna að skemmtiferðaskip yrði á
ferðinni kringum Ísland og komið
hefði fyrir að þessi skip hefðu sett í
land farþega og fleiri en þá 50 sem
áskilið væri í reglum sem Umhverf-
isstofnun hefur sett. Guðmundur
Ingi sagði að landverðir eða aðrir að-
ilar myndu fylgjast með því að eftir
þessum reglum yrði farið.
Skoða að áfrýja dómi
vegna þyrluflugs
- Auglýsing um
verndaráætlun hafði
ekki næga lagastoð
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Friðland Horft frá Hornbjargsvita
að Fjölunum undir Hornbjargi.