Morgunblaðið - 18.05.2021, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 18.05.2021, Qupperneq 2
Bæjaryfirvöld Akraneskaupstaðar vonast eftir því að Guðlaug á Langasandi verði jafn vel sótt í sumar og seinasta sumar. Farald- urinn setti strik í reikninginn í vetur, að sögn Sævars Freys Þrá- inssonar bæjarstjóra Akraness. „Við höfum aðeins þurft að tak- marka aðgengi að Guðlaugu í far- aldrinum og stundum loka henni alveg,“ segir hann. Fyrir faraldurinn má gróflega ætla að þriðjungur gesta hafi ver- ið erlendir ferðamenn, þriðjungur innlendir ferðamenn og þriðj- ungur heimamenn. Að sögn Sævars stendur til að leggja á hóflegt gjald fyrir gesti Guðlaugar, en í dag er aðgang- urinn ókeypis. Afgreiðslutíminn er kominn í eðlilegt horf; opið mánudaga, þriðjudaga, fimmtu- daga og föstudaga frá 12.00 til 20.00, laugardaga 10.00 til 18.00 og sunnudaga 10.00 til 20.00. „Við erum ánægð með þessa aðstöðu,“ segir Sævar bæjar- stjóri. „Þetta þykir einn öruggasti staður í Evrópu til að stunda sjó- sund.“ Vonast eftir góðri aðsókn í sumar Morgunblaðið/Kristinn Magnússon 2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 2021 HURÐIR Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is • Stuttur afhendingartími • Hágæða íslensk framleiðsla • Val um fjölda lita í RAL-litakerfinu • Vindstyrktar hurðir Bílskúrs- og iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir með gönguhurð Bílskúrshurðir Hurðir í trékarma Tvískiptar hurðir Smíðað eftir máli Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Nokkuð stöðugur útflutningur er á ís- lenskum gúrkum og öðru grænmeti til Grænlands og Færeyja. Í sömu send- ingum fara ýmis önnur matvæli til Grænlands, meðal annars mjólkur- vörur og bananar, sem vitaskuld eru ekki íslenskir, og meira að segja al- íslenskur harðfiskur. Matvælaframleiðslu- og dreifing- arfyrirtækið Pure Arctic sem Sölu- félag garðyrkjumanna (SFG) á aðild að með öðrum hóf að flytja út íslenskar gúrkur fyrir tveimur árum. Sjónum var einkum beint að Danmörku þar sem gúrkurnar voru kynntar sem há- gæðaafurð í vefverslun. Einnig voru gúrkur seldar til Færeyja og Græn- lands. Fleiri vörur voru undir, meðal annars íslenskt lambakjöt. Stöðugur útflutningur Nú fer mest út af íslenskum gúrkum og er áherslan á Færeyjar og Grænland. Möguleikarnir í Danmörku eru aðallega í nóvember til janúar. „Þetta er orðið nokkuð stöðugt. Við flytjum út gúrkur til Færeyja og Grænlands í hverri viku. Magnið sveiflast nokkuð en er að meðaltali yfir tvö tonn á viku,“ segir Guðni Hólmar Kristinsson, framkvæmdastjóri af- urðasviðs SFG. Þrjár garðyrkjustöðv- ar framleiða og pakka gúrkunum. Guðni segir að nóg sé til en eins og fram hefur komið hefur verið mikil uppbygging í garðyrkjunni að undan- förnu. Vörurnar fara með flutninga- skipum Eimskips og grænlenska skipafélagsins Royal Arctic Line en fé- lögin hafa samvinnu um siglingar til Grænlands. Gúrkurnar og aðrar vörur sem Pure Arctic flytur út fara í versl- anir Brugsen sem er með verslanir í flestum stærstu byggðum Grænlands. Vörurnar til Færeyja fara með Nor- rænu og sér heildverslun um dreif- inguna þar. Aðrar vörur fljóta með „Þetta er ekki stór hluti fram- leiðslu íslenskrar garðyrkju en gaman að gera þetta,“ segir Guðni. Með í gúrkusendingunum fara ýmsar tegundir af grænmeti, eftir árs- tíðum. Guðni nefnir tómata, salat, kryddjurtir og kartöflur og eitthvað af jarðarberjum hafi einnig flotið með. Þá hefur Pure Arctic selt mjólkurvörur til Grænlands, bæði frá Örnu og MS, og banana og er aðeins byrjað að þreifa fyrir sér með útflutning á harðfiski. Vikulegur útflutningur á gúrkum Grænmeti Frændur okkar í Færeyjum og Grænlandi fá íslenskar gúrkur nýrri og betri en þær sem fluttar eru frá Danmörku. - Yfir tvö tonn af íslenskum gúrkum eru flutt vikulega til Færeyja og Græn- lands - Annað grænmeti, mjólkurvörur og harðfiskur fer með til Grænlands Þau þrettán úr íslenska Eurovision- hópnum sem gengust undir próf við kórónuveirusmiti í gær reyndust ekki smituð. Allur íslenski hópurinn verður einnig skimaður á miðviku- dags- og fimmtudagsmorgun. Ef sama niðurstaða fæst og eng- inn í hópnum sýnir einkenni munu Daði og Gagnamagnið stíga á svið á hinu svokallaða dómararennsli á miðvikudagskvöld og einnig í undan- úrslitunum á fimmtudagskvöldið. Í tilkynningu frá íslenska hópnum kemur fram að hópurinn sé að von- um mjög glaður með þessa þróun mála. Hann verður áfram í sóttkví fram á miðvikudagsmorgun. Aðrir ekki með veiruna Ljósmynd/Rúnar Freyr Gíslason Eurovision Daði og Gagnamagnið. Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins (ÁTVR) undirbýr nú lögbannskröfu, málshöfðun og lögreglukæru á hend- ur netverslunum með áfengi til neyt- enda. Í tilkynningu segir að þeirri starfsemi sé beint gegn lögbundnum einkarétti ÁTVR á smásölu áfengis, sem sé grunnstoð áfengisstefnu stjórnvalda með lýðheilsu að megin- markmiði og grunnforsenda fyrir rekstri fyrirtækisins að auki. Í tilkynningunni, sem Sigrún Ósk Sigurðardóttir aðstoðarforstjóri ÁTVR gaf út, segir að lagaákvæði um einkaleyfi ÁTVR séu afdráttar- laus, en þrátt fyrir það fullyrði rekstraraðilar netverslananna að starfsemi þeirra sé lögleg. Því sé óhjákvæmilegt fyrir ÁTVR að fá úr því skorið hjá til þess bærum aðilum. Annars séu bæði lýðheilsusjónarmið og rekstrargrundvöllur ÁTVR í upp- námi. Arnar Sigurðsson vínkaupmaður, sem opnaði netverslun með vín um fyrri helgi, segist ekki hafa ríkar áhyggjur af þessum tilburðum ÁTVR. „Við fögnum allri samkeppni og gleðilegt að Ríkið telji sig komið í samkeppni við allar áfengisnetversl- anir heimsins. En ég átta mig ekki á því hvort ÁTVR vill aðeins lögbann á mitt franska fyrirtæki eða loka öllu internetinu,“ segir Arnar og segir engan vafa leika á að viðskiptin eigi sér stað erlendis, sem sé fyllilega löglegt. Komi lögbannskrafa fram verði óskað tryggingar, sem að lík- indum muni hlaupa á hundruðum milljóna króna, enda viðbúið að málareksturinn taki langan tíma. Það einfaldi svo ekki málið að ÁTVR hafi sjálf opnað sams konar netverslun með áfengi, án þess að í lögunum sé að finna heimild til slíkr- ar útvíkkunar starfseminnar, um- fram hinar lögbundnu verslanir. Það veiki málatilbúnaðinn hvað skírskot- un til lýðheilsusjónarmiða áhrærir. Ríkið vill lögbann á netvínsölu Vínsala Málið mun snúast um hvort vínið sé selt á Íslandi eða ytra. - Vínkaupmaður alls óbanginn og segir lögin sín megin

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.