Morgunblaðið - 18.05.2021, Side 10

Morgunblaðið - 18.05.2021, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 2021 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Tálknafjarðarhreppur vinnur að at- hugun á fýsileika þess að virkja Hólsá sem rennur í þorpinu utan- verðu. Hugmyndir eru uppi um að nota orkuna til að koma upp fjar- varmaveitu til að hita upp húsin í þorpinu. „Þetta lítur ágætlega út. Vísbend- ingar eru um að áin sé raunhæfur virkjanakostur. Við vitum hins vegar ekki hvort það borgar sig að virkja, hvort fjárfestingin skilar sér til baka. Næsta skref er að kanna það,“ segir Ólafur Þór Ólafsson, sveitar- stjóri Tálknafjarðarhrepps. Sveitar- félagið fékk Veðurstofuna til að gera rennslismælingar í ánni og Verkís til að gera frumathugun á virkjun. Skýrslur um báðar þessar athuganir hafa verið til umfjöllunar í sveitar- stjórn en Ólafur á von á því að loka- skýrslu um frumathugunina verði skilað fljótlega. Hólsá kemur úr Hólsdal, ofan við þorpið á Tálknafirði, og rennur til sjávar rétt utan við þorpið, á milli íbúðabyggðarinnar og kirkjunnar. Hugmyndin er að gera stíflumann- virki ofarlega í dalnum og leiða vatn- ið niður að sjó þar sem stöðvarhús verði byggt. Ólafur segir að virkjun yrði aldrei stór en hún sé spennandi möguleiki. Sérstaklega er litið til þess hvort orkuna mætti nota til að keyra fjar- varmaveitu í byggðinni. Flestir íbú- arnir nota raforku til húshitunar. Ólafur segir einnig að virkjun á staðnum kunni að geta verið liður í að gera afhendingaröryggi raforku tryggara. Gróf áætlun sýnir að virkjun gæti kostað um 600 milljónir króna og önnur eins upphæð færi í að koma upp fjarvarmaveitu. „Þetta er stórt verkefni fyrir lítið sveitarfélag,“ seg- ir Ólafur Þór en bætir því við að sveitarstjórn telji þess virði að skoða málið nánar. Ef vel gangi með öflun upplýsinga gæti þurft að taka ákvarðanir um framhaldið í haust. Virkjað í þágu fjarvarmaveitu? - Tálknafjarðarhreppur undirbýr virkj- un Hólsár sem rennur um byggðina Morgunblaðið/Guðlaugur J. Albertsson Fossar Verði af fyrirhugaðri Hólsvirkjun í Tálknafirði mun vatnið verða leitt frá stíflu ofarlega í Hólsdal og að stöðvarhúsi niðri við sjó. Fossarnir eru ofan við þorpið og verður væntanlega minna vatn í þeim en nú er. Fjórir grásleppubátar hafa rofið 100 tonna múrinn á vertíðinni, en afli hefur í heild verið einstaklega góður. Sigurey ST frá Hólmavík er afla- hæst með 110,3 tonn, Hlökk ST með 107,2 tonn, Aþena ÞH með 103,4 tonn og Rán SH hefur landað 100 tonnum. Meðalafli á bát er sá hæsti í sögu grásleppuveiða og stendur í 39 tonnum, en í fyrra var meðalaflinn á bát 26 tonn á allri vertíðinni. 159 hafa fengið leyfi til veiða og hafa 152 landað afla. Gera má ráð fyrir að þeim fjölgi lítillega þegar veiðar mega hefjast í innanverðum Breiðafirði. Um nokkra fækkun er að ræða frá síðasta ári þegar alls landaði 201 bátur afla og árið 2019 voru bátarnir 250. Líklegasta skýr- ingin á mikilli fækkun báta er verð- lækkun, en 2019 fengust um 330 krónur fyrir kílóið, 230 krónur í fyrra og algengt verð í ár var 130 krónur á kíló af óskorinni grásleppu. Heimilt var að hefja grásleppu- veiðar 23. mars og eftir breytingar á reglugerð voru leyfðir 35 samfelldir veiðidagar. Flestir hafa lokið vertíð nema á innra svæði Breiðafjarðar, þar sem veiðar mega hefjast á fimmtudag. Ráðgjöf Hafrannsókna- stofnunar var upp á 9.040 tonn, þar af 22% á Breiðafirði. Afli er nú kom- inn í tæplega sex þúsund tonn. Í fyrra veiddust alls tæp 5.300 tonn. Langflestir bátar, eða 61, hafa róið frá svæði E á Norðausturlandi, en þaðan fóru 78 bátar á grásleppu í fyrra. 28 bátar hafa róið á svæði D frá Ströndum og öðrum höfnum við Húnaflóa eða 28 en voru 34 í fyrra. aij@mbl.is - Fjórir hafa rofið 100 tonna múrinn - Mikil verðlækkun Morgunblaðið/Eggert Grásleppa Landað í Reykjavík. Mesti meðalafli á hvern bát í sögu grásleppuveiðanna Katrín Jakobsdóttir forsætisráð- herra sagði á Alþingi í gær að hún myndi nota tækifærið þegar hún hittir utanríkisráðherra Bandaríkj- anna og Rússlands hér á landi í vik- unni og hvetja þessi ríki til að beita sér á alþjóðavettvangi til þess að ná fram friðsamlegri lausn í átökum Ísraelsmanna og Palestínumanna. „Það er mitt mat og mat ríkis- stjórnarinnar að öryggisráð Samein- uðu þjóðanna sé sá rétti vettvangur sem eigi að taka á þessum málum,“ sagði Katrín þegar hún svaraði fyrir- spurn frá Halldóru Mogensen, þing- manni Pírata, um afstöðu hennar til loftárása Ísraelsmanna á Gasasvæð- ið. Katrín sagði að fórnarlömb loft- árásanna væru almennir borgarar, konur og börn. „Það liggur algjörlega klárt fyrir af hálfu íslenskra stjórnvalda að þessar aðgerðir eru ólögmætar, þær brjóta í bága við alþjóðalög, alþjóð- legan mannúðarrétt og við höfum lýst þeirri afstöðu okkar,“ sagði Katrín. „Við höfum líka minnt á það að Ísland hefur viðurkennt sjálf- stæði Palestínu og lausn á þessum átökum verður að byggjast á tveggja ríkja lausn. Fyrir liggur að það er af- staða íslenskra stjórnvalda.“ Afstöðu komið skýrt á framfæri Hún sagði, þegar hún svaraði fyrirspurn frá Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, formanni Viðreisn- ar, um sama mál að afstöðu íslenskra stjórnvalda hefði verið komið skýrt á framfæri. „Það á að virða alþjóðalög og árásir á óbreytta borgara eru brot á alþjóðalögum. Þær eru óvið- unandi og mannfallið sem við sjáum í þessum átökum er fyrst og fremst meðal óbreyttra borgara. Þess vegna verður að koma á vopnahléi og síðan þarf auðvitað að reyna að finna friðsamlegar lausnir til lengri tíma. En við vitum líka að þessi landtaka er ekki ný af nálinni, hún hefur stað- ið árum og áratugum saman, og hún er ólögmæt. Það er líka afstaða Ís- lands.“ Ræðir um ástandið á Gasasvæði við ráðherra - Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna rétti vettvangurinn Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Á Alþingi Katrín Jakobsdóttir og Sigurður Ingi Jóhannsson á þingfundi. Rótin, félag um konur, áföll og vímugjafa, hlaut Mannréttinda- verðlaun Reykjavíkurborgar 2021 í gær, á mannréttindadegi borg- arinnar. Afhenti Dagur B. Eggerts- son borgarstjóri verðlaunin í gær og fær Rótin að launum 600.000 krónur. Mannréttindaverðlaunin eru veitt þeim einstaklingum, félaga- samtökum eða stofnunum sem hafa á eftirtektarverðan hátt staðið vörð um mannréttindi. Í umsögn valnefndar kemur fram að félagið hafi haft mikil áhrif á umræðu með uppbyggilegri og rök- studdri gagnrýni innan málaflokks- ins, ekki síst á „staðnað meðferðar- kerfi“. Félagið hafi hvatt hið opin- bera til nútímalegrar stefnu- mótunar og aukins gæðaeftirlits og skrifað fjölda erinda til stjórnvalda, eftirlitsaðila og annarra sem koma að þessum málaflokki. Markmið Rótarinnar er að stofna til umræðu um konur, fíkn, ofbeldi og geðheilbrigði auk þess að huga að sérstökum meðferðarúrræðum fyrir konur. Í tilkynningu frá borginni segir að félagið hafi unnið ötullega að mannréttindum kvenna með vímu- efnavanda og/eða áfallasögu. Þá fékk Hinsegin, félagsmiðstöð Samtakanna ’78 og Tjarnarinnar, Hvatningarverðlaun mannrétt- inda-, nýsköpunar- og lýðræðisráðs 2021. Markmið Hinsegin er að skapa öruggt rými fyrir þá sem sækja starfið og að þátttaka í því hvetji þá til þess að finna öryggi til að taka þátt í öðru skipulögðu frí- stundastarfi. Ljósmynd/Reykjavíkurborg Mannréttindi Rótin fékk verðlaun. Rótin fær mann- réttindaverðlaun - 600.000 krónur frá Reykjavíkurborg Vissir þú að r þína auglýsingu? Morgunblaðið er með 47% lengri lestrartíma að meðaltali og 106% lengri yfir vikuna * yfi * G a llu p Q 1 2 0 2 1

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.