Morgunblaðið - 26.05.2021, Qupperneq 1
M I Ð V I K U D A G U R 2 6. M A Í 2 0 2 1
.Stofnað 1913 . 122. tölublað . 109. árgangur .
FYRSTA SÓLÓPLATA
KAKTUSAR EINARS-
SONAR GEFIN ÚT
MIKILL SAM-
DRÁTTUR Í
RÆKTINNI
MARÍUERLA
GERÐIST LAUMU-
FARÞEGI
VIÐSKIPTAMOGGINN SIGLDI FRÁ FÆREYJUM 4KICK THE LADDER 24
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Ef spár Íslandsbanka ganga eftir
mun verð íbúðarhúsnæðis hækka um
tæp 25% frá ársbyrjun 2021 til árs-
loka 2023. Þetta kemur fram í upp-
færðri hagspá bankans sem birt er í
dag. Jón Bjarki Bentsson, aðalhag-
fræðingur Íslandsbanka segir spána
gera ráð fyrir 11,3% hækkun á þessu
ári og að í því felist engin ofrausn.
„Rúmur helmingur þeirrar hækkun-
ar er nú þegar kominn fram og fátt
sem bendir til þess að dragi úr
spennunni á næstu fjórðungum.“
Hins vegar muni hækkunin verða
6,7% árið 2022 og 4,4% árið 2023.
„Við teljum að framboð á íbúðar-
húsnæði muni aukast eftir því sem
líður á spátímann og að þá muni
vaxtahækkanir Seðlabankans einnig
slá á hækkunarferlið,“ segir Jón
Bjarki.
Bendir bankinn á að framboð á
íbúðarhúsnæði, einkum á höfuðborg-
arsvæðinu, hafi ekki fylgt hinni
miklu eftirspurn og að íbúðatalning
Samtaka iðnaðarins bendi til að íbúð-
um í byggingu hafi fækkað verulega
þegar kórónufaraldurinn skall á.
„Það má því segja að eftirspurn-
arspenna ríki á markaðnum. Það
sem einnig ýtir verðinu upp er sá
mikli ófyrirsjáanleiki með þróun
markaðarins, þ.e. framboðið fram
undan,“ segir Jón Bjarki og bendir á
að hagsmunaaðilar, sveitarfélög, SI,
fjármögnunaraðilar og eftir atvikum
ríkið þyrftu að auka gagnaöflun,
samráð og gagnsæi varðandi fast-
eignamarkaðinn.
Fasteignaverð hækki frekar
- Íslandsbanki spáir því að íbúðaverð hækki um nærri fjórðung til ársloka 2023
M »ViðskiptaMogginn
Systurnar Lilja og Björk Grímsdætur heimsóttu Þorkelshól í
Vestur-Húnavatnssýslu um síðastliðna helgi. Þar fengu þær
að gefa nýfæddu lambi mjólk að drekka úr pela. Af myndinni
að dæma unir lambið, sem fengið hefur nafnið Haukur, sér vel
í fangi systranna sem sinna hlutverki sínu með sóma. Sauð-
burður er vel á veg kominn í sveitum landsins en hann nær
hámarki í maí. Sauðburðurinn er annasamur tími hjá sauð-
fjárbændum en nauðsynlegt er að þeir séu á vakt allan sólar-
hringinn enda geta lömbin fæðst á degi jafnt sem nóttu.
Lambið Haukur fær mjólk úr pela
Morgunblaðið/Eggert
Systur fengu skemmtilegt hlutverk í sveitaferð
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Við rannsóknir mála gripu lögregla
og héraðssaksóknari 388 sinnum til
símahlustunar eða skyldra aðgerða
í kjölfar dómsúrskurða í fyrra. Þar
af var hlustað á síma í 92 aðgerðum
skv. nýrri skýrslu ríkissaksóknara
um eftirlit með símahlustun og
skyldum úrræðum 2020. Í langflest-
um tilvikum eða 288 sinnum var
gripið til þessara úrræða hjá lög-
reglustjóranum á höfuðborgarsvæð-
inu, þar af símhlerana í 81 skipti,
hlustunarbúnaði komið fyrir í 28 til-
vikum og útskriftir á gagnanotkun
farsíma voru 29. Fjöldi símahlust-
unar og skyldra aðgerða í fyrra var
sá sami og á árinu á undan. Aðgerð-
um á vegum héraðssaksóknara
fækkaði þó mikið milli ára, voru 81
árið 2019 en aðeins sjö á seinasta
ári. Yfir landið allt var gripið til
þessara aðgerða í 295 tilvikum
vegna fíkniefnabrota í fyrra og 11
sinnum vegna kynferðisbrota. Líkt
og í fyrri skýrslum gagnrýnir rík-
issaksóknari að fá engin svör rík-
islögreglustjóra við fyrirspurnum
um meðferð upplýsinga, sem hamli
ríkissaksóknara í að sinna eftirlits-
skyldum sínum.
Yfir 90 símahleranir lögreglu
- 234 aðgerðir vegna fíkniefna og 11 í kynferðisbrotamálum
Fjöldi aðgerða í
dómsúrskurðum
Eftir tegund brots árið 2020
Auðgunarbrot/peningaþvætti 22
Fíkniefnabrot 295
Kynferðisbrot 11
Ærumeiðingar/friðhelgi
einkalífs
5
Ofbeldisbrot /frelsissvipting 40
Annað 15
Alls 388
_ Dr. Anthony Fauci, helsti læknis-
fræðilegi ráðgjafi Joe Biden Banda-
ríkjaforseta, segist „ekki sannfærð-
ur“ um að kórónuveiran hafi þróast
með náttúrulegum hætti utan Veiru-
rannsóknarstofnunarinnar í Wuhan í
Kína. Hann telur að rannsaka þurfi í
þaula hvernig veiran hafi orðið til.
Æ fleiri telja nú líklegt að veiran
hafi orðið til á veirurannsóknar-
stofnuninni, þar sem hún hafi verið
gerð í læknisfræðilegum tilgangi, en
síðan sloppið út. Kínversk stjórn-
völd þykja hafa verið naum á að-
gang að stofnuninni, en umfram allt
hafa ekki fundist nein sönnunar-
gögn, sem styðja tilgátur um nátt-
úrulega tilurð veirunnar og smit
hennar í menn. Eitt og hálft ár er
liðið frá því heimsfaraldurinn
braust út í Kína. »11
Kom kórónuveiran af
rannsóknarstofu?
AFP
Grunsemdir Smitsjúkdómalæknirinn
dr. Anthony Fauci útilokar tilgátuna ekki.