Morgunblaðið - 26.05.2021, Page 4

Morgunblaðið - 26.05.2021, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 2021 Aðalfundur Aðalfundur Ísfélags Vestmannaeyja hf. fyrir árið 2020 verður haldinn á skrifstofu félagsins, Tangagötu 1 í Vestmannaeyjum, miðvikudaginn 9. júní 2021 kl. 16:00. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf og önnurmál. Fyrir liggur tillaga stjórnar um að kosnir verði fjórir stjórnarmenn. Óskað er eftir að framboð til stjórnar berist eigi síðar en fimmdögum fyrir aðalfund. Stjórn Ísfélags Vestmannaeyja hf. Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Árstíðasveiflur í ferðaþjónustunni hafa minnkað mikið hér á landi á síð- asta áratug og sker Ísland sig alger- lega úr meðal Evrópuþjóða þegar skoðað er hversu mikið árstíðasveifl- an hefur minnkað á undanförnum árum. „Ísland hefur […] farið frá því að vera það Norðurlandanna sem er með mesta árstíðasveiflu, til þess að vera það næststöðugasta,“ segir í umfjöllun á vef Ferðamálastofu um nýjar niðurstöður sem birtar eru úr skýrslu eftir Jóhann Viðar Ívarsson hjá Ferðamálastofu. Lækkaði um 44% á sex árum Þar kemur fram að leitt sé í ljós að hugmyndin um sveiflukennda ís- lenska ferðaþjónustu sé orðin mýta, að minnsta kosti í samanburði við aðrar þjóðir. Ýmsa mælikvarða má nota á árs- tíðasveiflur í ferðaþjónustunni. Jó- hann notar svokallað sveifluhlutfall gistinátta á hótelum þar sem kannað er hversu umfangsmikill mánuður með flestar gistinætur er í hlutfalli við meðaltal á mánuði yfir árið í heild. Þá kemur í ljós að sveifluhlut- fallið á Íslandi hefur lækkað um 44% á sex árum. Það fer úr 2,7 árið 2010 og nær jafnvægi við stuðulinn 1,5 á árinu 2017. „Það liggur því fyrir að mikill árangur hefur náðst í að minnka sveiflur,“ segir í skýrslunni. Sé litið á ferðaþjónustuna á Norður- löndunum þá var ferðaþjónustan á Íslandi fyrir tæpum áratug sú sveiflukenndasta af öllum löndunum en á seinustu árum er hún orðin ein sú stöðugasta. Sveifluhlutfallið milli árstíða er orðið lægst í Finnlandi eða 1,4 og á Íslandi 1,5. Norsk ferða- þjónusta er með 40% hærra hlutfall en sú íslenska og meðal Dana og Svía er hlutfallið 20% hærra en hér á landi. Í umfjöllun Ferðamálastofu er bent á að árstíðasveiflan hér á landi sé á líku róli og í mörgum Evr- ópulöndum sem við berum okkur gjarnan saman við. Fram kemur í skýrslunni að ágætur árangur hafi náðst í öllum landshlutum við að minnka árstíðasveifluna. Hún er minnst á höfuðborgarsvæðinu og mest á Austurlandi. Mest minnkun árstíðasveiflunnar á umliðnum ára- tug varð á Suðurlandi eða 36% en minnst á Suðurnesjum eða 16%. Þegar árstíðasveiflur í Evrópulönd- um eru bornar saman kemur í ljós að á árinu 2019 var sveiflan á Íslandi orðin 8% minni en sem nam með- altali í 28 ríkjum Evrópusambands- ins, sem „hefði einhvern tíma þótt saga til næsta bæjar“, eins og segir í skýrslunni. Ísland er í svipuðum flokki og Frakkland og Spánn en stöðugra en Ítalía, Bretland og t.a.m. ferða- mannalöndin Króatía og Slóvenía. Þegar dreifing gistinátta er skoð- uð má m.a. sjá að ferðamennskan byrjar fyrr á vorin á Íslandi en hjá Dönum, Svíum og Norðmönnum. Ís- land nær að teygja ferðamennskuna vel inn á haustmánuðina og er með hærra hlutfall í september og októ- ber en bæði Svíþjóð og Noregur. Árstíðasveifla ferðaþjónustu mýta - Ísland er næststöðugast meðal Norðurlandaþjóða skv. úttekt á sveiflum í ferðaþjónustu á milli árstíða - Úr sveiflukenndustu ferðaþjónustu Norðurlandanna fyrir áratug í þá stöðugustu ásamt Finnum Sveifluhlutfall ferðaþjónustu 2010-2019* Árstíðasveiflur miðað við fjölda gistinátta á hótelum 3,0 2,5 2,0 1,5 1,0 0,5 0 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 *Árinu 2020 sleppt vegna ódæmigerðra aðstæðna Heimild: Ferðamálastofa 2,7 2,5 2,2 1,8 1,5 1,5 „Þetta var skemmtilegur laumu- farþegi,“ sagði Kjartan Þór Ár- sælsson, kokkur á Víkingi AK. Laumufarþeginn umræddi var lít- il maríuerla sem smeygði sér um borð þegar skipið var á kol- munnaveiðum við strendur Fær- eyja. „Það koma oft litlir fuglar um borð sem eru eitthvað að vill- ast og sumir eitthvað laskaðir greyin, en fyrst hún komst í vatn og mat þá braggaðist hún og vildi ekkert fara.“ Maríuerlan graðgaði í sig hjónabandssælu sem boðið var upp á um borð, við litla hrifningu þeirra sem sátu að snæðingi. Kjartan bauð þá skip- verjum upp á skúffuköku og leyfði maríuerlunni að eiga sæl- una út af fyrir sig. „Hún var al- sæl með sæluna, síðan gaf ég henni hörfræ, rúsínur og ost og hún var einnig voða ánægð með það,“ sagði Kjartan. Maríuerlan var um borð allan túrinn, eða viku. Þá hlaut hún einnig nafnið Maríuerla Kjart- ansdóttir. „Þessir hörðu sjóarar um borð urðu voða mjúkir á með- an þeir fylgdust með henni, sem var fyndið að sjá,“ sagði Kjartan. „Þegar við vorum hættir veiðum fórum við að landi á Vopnafirði, við komum þó fyrst við í Nes- kaupstað til að setja trollinn á netaverkstæði og þá skellti maríuerlan sér í land. Hún er því orðin Norðfirðingur núna.“ Laumufarþegi á Víkingi AK - Víkingur AK var á kolmunnaveiðum þegar gestur laumaði sér um borð Ljósmynd/Kjartan Þór Ársælsson Gestur Maríuerla Kjartansdóttir fékk góðar móttökur hjá skipverjum. Dómsmálaráðuneytið hefur til at- hugunar að gera tvíhliða samning við Breta um gagnkvæma viður- kenningu og fullnustu dóma ríkisdómstóla í einkamálum á milli Bretlands og Íslands, en óvissa um það er ein af óvæntum afleiðingum úr- göngu Breta úr Evrópusamband- inu (ESB). „Það kemur sterklega til greina að gera tvíhliða samning við Breta, líkt og Norð- menn hafa gert, og þá mögulega á grundelli Lúganó-samningsins,“ segir Áslaug Arna Sigurbjörnsdótt- ir dómsmálaráðherra í samtali við Morgunblaðið. Fyrir úrgönguna, sem í daglegu tali er nefnd Brexit, voru bæði Bret- land (sem aðildarríki ESB) og Ís- land (sem aðildarríki EES) aðilar að Lúganó-samningnum um dómsvald og viðurkenningu og fullnustu dóma í einkamálum. Við Brexit féll aðild Bretlands að Lúganó-samningnum hins vegar niður, sem gerir það að verkum að eins og sakir standa ríkir óvissa um hvort íslenskir dómstólar munu veita enskum dómum fulln- ustu og þá jafnframt hvort enskir dómstólar munu veita íslenskum dómum fullnustu, líkt og tveir ís- lenskir lögmenn í Bretlandi, þeir Gunnar Þór Þórarinsson og Hafliði K. Lárusson, vöktu athygli á í grein í Morgunblaðinu á laugardag. Ísland studdi aðild Breta að Lúg- anó-samningnum um gagnkvæma viðurkenningu og dóma í einkamál- um. „Við bundum vonir við að ESB myndi samþykkja aðild Breta að samningnum eftir Brexit,“ segir Ás- laug Arna. „ESB ákvað hins vegar að styðja ekki aðild Breta að Lúg- anó-samningnum, heldur benti á að nota frekar Haag-samninginn frá 2005 um lögsöguval. Ísland á hins vegar ekki aðild að þeim samningi.“ „Nú þegar ljóst er að ekki verður af aðild Breta að Lúganó-samning- unum þarf að skoða og ákveða hvaða leið beri að fara,“ segir dóms- málaráðherra og þykir tvíhliða samningur milli ríkjanna á grund- velli Lúganó-samningsins, líkt og Norðmenn hafi gert, helst koma til greina. „Dómsmálaráðuneytið hefur þegar hafið þá skoðun.“ Ráðherra skoðar samning við Breta - Einkamáladómar í uppnámi eftir Brexit Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir Samningur um byggingu nýs hjúkr- unarheimilis við Mosaveg í Grafar- vogi var undirritaður í gær af Svan- dísi Svavarsdóttur heilbrigðisráð- herra og Degi B. Eggertssyni borgarstjóra. Hjúkrunarheimilið mun hýsa allt að 144 íbúa og er áætlaður kostn- aður við framkvæmdina 7,7 millj- arðar króna. Ríkið leggur til 85% þeirrar upphæðar á móti 15% fram- lagi Reykjavíkurborgar. Stefnt er að því að framkvæmdir hefjist um mitt ár og að heimilið verði tekið til notk- unar á síðari hluta árs 2026. Greint er frá þessu á vef Stjórnarráðsins. Ljósmynd/Heilbrigðisráðuneytið Samið Svandís Svavarsdóttir heilbrigð- isráðherra og Dagur B. Eggertsson. Byggja hjúkrunar- heimili fyrir 144

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.