Morgunblaðið - 26.05.2021, Side 22

Morgunblaðið - 26.05.2021, Side 22
22 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 2021 HK leikur áfram í úrvalsdeild kvenna í handknattleik á næsta tímabili eftir að hafa lagt Gróttu að velli, 19:17, í öðrum úrslitaleik lið- anna í umspilinu sem fram fór á Seltjarnarnesi í gærkvöld. HK, sem endaði í sjöunda og næstneðsta sæti úrvalsdeildarinnar í vetur, hafði unnið fyrsta leikinn á heimavelli 28:18. Jóhanna Margrét Sigurð- ardóttir skoraði 5 mörk fyrir HK og Þóra María Sigurjónsdóttir 3 en Tinna Valgerður Gísladóttir og Katrín Anna Ásmundsdóttir gerðu 4 mörk hvor fyrir Gróttu. HK heldur sæt- inu í efstu deild Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Fimm Jóhanna Margrét Sigurð- ardóttir var markahæst hjá HK. Víkingur og Kría mætast í úr- slitaeinvíginu um laust sæti í úr- valsdeild karla í handknattleik eft- ir að hafa unnið oddaleiki undanúrslitanna í gærkvöld. Vík- ingar lögðu Hörð frá Ísafirði, 39:32, í Víkinni og Kría sigraði Fjölni í Grafarvogi, 31:25. Liðin mætast í Víkinni á laugardaginn og á Seltjarnarnesi á þriðjudaginn kemur. Ef til oddaleiks kemur fer hann fram í Víkinni 4. júní. Vinni Kría einvígið leika tvö lið frá Sel- tjarnarnesi í úrvalsdeildinni næsta vetur. Víkingur og Kría í úrslitum Morgunblaðið/Eggert Víkingar Logi Snædal Jónsson og félagar eru komnir í úrslit. séð þetta allt áður. Það er því erfiðara að slá liðið út af laginu með hann í hópnum. Aðaláhyggjuefnið Eins vel og Grindavík hefur spilað í einvíginu í Grindavík hef- ur liðið verið langt frá sínu besta í Garðabænum og það er aðal- áhyggjuefni Grindvíkinga fyrir föstudaginn þegar oddaleikurinn fer fram. Spurningin er því hvort Grindavík getur haldið upp- teknum hætti í Garðabænum, á útivelli, eða hvort þeir brotni þegar þeir lenda undir eins og raunin hefur verið í síðustu tveimur leikjum liðanna í Garða- bænum. _ Amenhotep Abif skoraði 19 stig fyrir Grindavík og Joonas Järveläinen var með 19 stig og 11 fráköst. Þá skoraði Dagur Kár Jónsson 16 stig og átti 11 stoð- sendingar. _ Ægir Þór Steinarsson átti enn einn stórleikinn fyrir Stjörn- una en hann skoraði 34 stig og átti 13 stoðsendingar. Austin James Brodeur skoraði 18 stig og Gunnar Ólafsson 17. Oddaleikurinn í Garðabæ - Grindavík vann Stjörnuna öðru sinni á heimavelli og úrslit ráðast á föstudag Morgunblaðið/Sigurður Unnar Góðir Ægir Þór Steinarsson og Dagur Kár Jónsson létu báðir mikið að sér kveða í leik Grindavíkur og Stjörnunnar í gærkvöld. Í GRINDAVÍK Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Grindavík og Stjarnan þurfa að mætast í oddaleik í einvígi sínu í átta liða úrslitum Íslandsmóts karla en þetta varð ljóst eftir 95:92-sigur Grindavíkur gegn Stjörnunni í fjórða leik liðanna í Grindavík í gærkvöld. Staðan er 2:2 og oddaleikurinn fer fram í Garðabænum á föstu- daginn kemur þar sem sigurveg- arinn tryggir sér sæti í undan- úrslitum Íslandsmótsins. Stjörnumenn geta sjálfum sér um kennt að hafa ekki gengið frá einvíginu í gærkvöld. Þeir voru langt frá sínum besta degi en samt sem áður tókst þeim að halda leiknum jöfnum og spennandi allan tím- ann. Það munar ótrúlega miklu fyr- ir Grindavík að vera með Þorleif Ólafsson í leikmannahópnum því hann býr yfir reynslu sem fáir leikmenn liðsins búa yfir. Hann kemur með mikla ró inn á völlinn og á bekkinn og hefur Orri Hrafn Kjartansson, 19 ára miðjumaður Fylkis, er besti leikmaður 5. umferðar Pepsi Max-deildar karla í fótbolta að mati Morgunblaðsins. Orri Hrafn skoraði tvö mörk með góðum skotum frá vítateig þegar Fylkir vann sinn fyrsta sigur á tímabilinu síðasta föstudagskvöld, 4:2 gegn Keflavík, en hann fékk tvö M fyrir frammistöðu sína hjá Morgunblaðinu. Þá er hann efstur Fylkismanna í M-gjöfinni að fimm umferðum loknum. Orri og Höskuldur Gunnlaugsson úr Breiðabliki voru einu leikmennirnir sem fengu tvö M í fimmtu umferðinni en hún var leikin á föstudag og laug- ardag. Brynjar Ingi Bjarnason miðvörður KA er valinn í lið umferðarinnar í þriðja sinn og þrír aðrir leikmenn eru í liðinu í annað sinn. vs@mbl.is 5. umferð í Pepsi Max-deild karla 2021 Hversu oft leikmaður hefur verið valinn í lið umferðarinnar 24-4-2 Guy Smit Leiknir R. Brynjar Ingi Bjarnason KA Höskuldur Gunnlaugsson Breiðablik Ægir Jarl Jónasson KR Orri Hrafn Kjartansson Fylkir ErlingurAgnarsson Víkingur R. Orri Sveinn Stefánsson Fylkir Kristinn Steindórsson Breiðablik Patrick Pedersen Valur Grétar Snær Gunnarsson KR Óttar Bjarni Guðmundsson ÍA 2 2 2 3 Orri Hrafn bestur í 5. umferð Pepsi Max-deild karla Leiknir R. – FH........................................ 2:1 KR – HK.................................................... 1:1 Víkingur R. – Fylkir................................. 2:2 Staðan: Valur 6 5 1 0 12:6 16 Víkingur R. 6 4 2 0 11:5 14 KA 6 4 1 1 11:3 13 FH 6 3 1 2 12:7 10 Breiðablik 6 3 1 2 14:10 10 KR 6 2 2 2 9:8 8 Leiknir R. 6 2 2 2 8:8 8 Fylkir 6 1 3 2 9:12 6 ÍA 6 1 2 3 7:12 5 HK 6 0 3 3 7:12 3 Keflavík 6 1 0 5 6:15 3 Stjarnan 6 0 2 4 2:10 2 Markahæstir: Sævar Atli Magnússon, Leikni R .............. 5 Hallgrímur Mar Steingrímsson, KA ......... 5 Thomas Mikkelsen, Breiðabliki ................. 4 Ágúst Eðvald Hlynsson, FH...................... 4 Nikolaj Hansen, Víkingi R ......................... 4 Djair Parfitt-Williams, Fylki ..................... 4 Rúmenía CFR Cluj – FCSB ..................................... 2:0 - Rúnar Már Sigurjónsson var ekki í leik- mannahópi CFR. _ CFR er meistari með 54 stig og FCSB endar í öðru sæti með 45 stig. 0-'**5746-' Umspil kvenna Annar úrslitaleikur: Grótta – HK .......................................... 17:19 _ HK vann einvígið 2:0 og heldur sæti sínu í úrvalsdeildinni. Umspil karla Undanúrslit, oddaleikir: Víkingur – Hörður................................ 39:32 _ Víkingur sigraði 2:1. Fjölnir – Kría ........................................ 25:31 _ Kría sigraði 2:1. E(;R&:=/D Úrslitakeppni karla 8-liða úrslit, fjórði leikur: Grindavík – Stjarnan............................ 95:92 _ Staðan er 2:2 og oddaleikur í Garðabæ á föstudagskvöldið. Umspil kvenna Undanúrslit, þriðji leikur: Njarðvík – Ármann .............................. 76:56 _ Njarðvík vann einvígið 3:0. ÍR – Grindavík ...................................... 55:68 _ Grindavík vann einvígið 3:0. Spánn B-deild, umspil, 8-liða, annar leikur: Oviedo – Leyma Coruna ...................... 69:70 - Sigtryggur Arnar Björnsson kom ekkert við sögu hjá Coruna sem vann einvígið 2:0 og er komið í undanúrslit. Úrslitakeppni NBA Austurdeild, 8-liða úrslit: Milwaukee – Miami ............................ 132:98 _ Staðan er 2:0 fyrir Milwaukee. Vesturdeild, 8-liða úrslit: Denver – Portland............................ 128:109 _ Staðan er 1:1. >73G,&:=/D Knattspyrnumaðurinn César Az- pilicueta fékk beint rautt spjald í leik liðs hans Chelsea gegn Aston Villa í lokaumferð ensku úrvals- deildarinnar um liðna helgi. Chelsea áfrýjaði dómnum á þeim forsendum að ekki hefði verið um viljaverk að ræða, og hefur knatt- spyrnusambandið nú dregið spjald- ið til baka. Því þarf varnarmað- urinn ekki að hefja næsta tímabil á því að taka út þriggja leikja bann. Sleppur við leikbannið KÖRFUKNATTLEIKUR 8-liða úrslit karla, fjórði leikur: Höllin Ak.: Þór Ak. – Þór Þ.(1:2)......... 18.15 DHL-höllin: KR – Valur (2:1).............. 20.15 HANDKNATTLEIKUR Undanúrslit karla, annar leikur: Eyjar: ÍBV – KA/Þór (1:0)........................ 18 Origo-höll: Valur – Fram (1:0)............. 19.40 KNATTSPYRNA Úrvalsdeild kvenna, Pepsi Max-deildin: Samsungv.: Stjarnan – Þróttur R....... 19.15 BLAK Annar úrslitaleikur karla: KA-heimilið: KA – Hamar (0:1) .......... 19.15 Í KVÖLD! Hans-Dieter Flick verður næsti þjálfari þýska karla- landsliðsins í knattspyrnu. Þetta staðfesti þýska knatt- spyrnusambandið í gær. Flick, sem hefur stýrt Bayern München frá árinu 2019, mun taka við þýska landsliðinu eftir lokakeppni Evrópumótsins sem fram fer í sumar en þá hættir Joachim Löw störfum eftir að hafa stýrt liðinu í fimmtán ár. Flick er 56 ára gamall og gerði Bayern München tví- vegis að Þýskalandsmeisturum og einu sinni að Evr- ópumeisturum á tíma sínum hjá þýska stórliðinu. Flick var aðstoðarþjálfari hjá þýska landsliðinu frá 2006 til ársins 2014 og var því hægri hönd Löws um átta ára skeið, en Þjóðverjar urðu heimsmeistarar árið 2014 í Brasilíu með þá í þjálfarateyminu. Flick verður því við stjórnvölinn hjá þýska landsliðinu þegar það mætir Íslandi á Laugardalsvellinum í undankeppni HM hinn 8. september. Tveir fyrstu leikir hans eru gegn Liechtenstein og Armeníu 2. og 5. september. Flick tekur við í sumar Hans-Dieter Flick Aron Pálmarsson, landsliðsfyrirliði Íslands í handknattleik, og liðs- félagar hans í spænska meistaralið- inu Barcelona mæta Nantes frá Frakklandi í undanúrslitum Meist- aradeildar Evrópu en dregið var í höfuðstöðvum EHF í Vín í gær. Úr- slitahelgin verður í Köln 12. og 13. júní en Aron er kominn í þessa úr- slitahelgi í tíunda skiptið á ferl- inum. Arnór Atlason er aðstoðar- þjálfari dönsku meistaranna frá Álaborg en þeir drógust gegn París SG frá Frakklandi. Aron og Arnór í úrslitaleik? Morgunblaðið/Eggert Úrslitahelgi Mætast Arnór Atlason og Aron Pálmarsson í Köln?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.