Morgunblaðið - 26.05.2021, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 26.05.2021, Blaðsíða 23
ÍÞRÓTTIR 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 2021 Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Meistaravellir KR-ingurinn Stefán Árni Geirsson og HK-ingurinn Atli Arn- arson í baráttu um boltann í leiknum í Vesturbænum í gærkvöld. FÓTBOLTINN Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Óvænt er orðið sem sameinar leikina þrjá í Pepsi Max-deild karla í gær- kvöld þegar sjöttu umferðinni lauk. Leiknismenn unnu óvæntan sigur á FH í „Gettóinu“, HK náði óvæntu stigi af KR í Vesturbænum og Fylk- ir tók frekar óvænt stig af Víkingum í Fossvogi og kom í veg fyrir að þeir héldu toppsæti deildarinnar að um- ferðinni lokinni. Leiknismenn ætla að verða mjög erfiðir heim að sækja því þeir hafa nú tekið sjö stig gegn Breiðabliki, Fylki og FH í þremur fyrstu heima- leikjum sínum. Frábær byrjun hjá nýliðunum sem nær allir spáðu falli áður en mótið hófst. Þeir unnu jafnframt FH í fyrsta sinn í sögunni í deildaleik. „Sann- gjarn sigur,“ sagði Stefán Stef- ánsson m.a. í grein um leikinn á mbl.is. _ Sævar Atli Magnússon fyrirliði Leiknismanna skoraði bæði mörk þeirra og er nú annar tveggja markahæstu manna deildarinnar með fimm mörk. _ Matthías Vilhjálmsson varð sjötti FH-ingurinn til að skora 40 mörk í efstu deild þegar hann kom FH yfir á 19. mínútu leiksins gegn Leikni. Víkingar ólíkir sjálfum sér Víkingar hefðu verið á toppnum á ný, með betri markatölu en Valur, með því að sigra Fylkismenn og Helgi Guðjónsson virtist hafa tryggt Víkingum fimmta sigur sinn í sex leikjum þegar hann kom þeim í 2:1 á 86. mínútu. Rétt á undan hafði Nikolaj Hansen jafnað fyrir Víking með sínu fjórða marki á tímabilinu. _ Nikulás Val Gunnarsson skor- aði hinsvegar sitt fyrsta mark í efstu deild þegar hann jafnaði fyrir Fylki, 2:2, á 89. mínútu. Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Víkingsvöllur Víkingurinn Kristall Máni Ingason í baráttu við Ragnar Braga Sveinsson fyrirliða Fylkis í leiknum í Fossvogi í gærkvöld. „Ef Víkingur ætlar sér að taka þátt í baráttunni um Íslandsmeist- aratitilinn verður liðið að vinna leiki sem þennan, sérstaklega á heima- velli. Víkingar voru hins vegar ólíkir sjálfum sér í kvöld, sérstaklega framan af í seinni hálfleik. Leikurinn er sá slakasti til þessa hjá liðinu í sumar. Það er hins vegar styrk- leikamerki hve nálægt þeir voru að vinna, þrátt fyrir ekki sérstaka frammistöðu,“ skrifaði Jóhann Ingi Hafþórsson m.a. í grein um leikinn á mbl.is. Ótrúlegt tak HK á KR Eins og leikur KR og HK þróað- ist var frekar óvænt að HK skyldi ná stigi þegar Stefan Ljubicic jafn- aði seint í leiknum, 1:1. En HK hefur ótrúlegt tak á KR og hefur nú ekki tapað í fjórum leikjum í röð gegn Vesturbæjarlið- inu í deildinni og er með markatöl- una 9:3 í þessum fjórum leikjum. KR hefur ekki enn náð að vinna heimaleik á þessu keppnistímabili og hefur aðeins unnið þrjá af síð- ustu þrettán leikjum á Meist- aravöllum í deildinni. _ Atli Sigurjónsson sýndi magn- aða skottækni þegar hann kom KR yfir með skoti í tómt markið, nánast frá hornfána hægra megin. _ Arnþór Ari Atlason miðjumað- ur HK lék sinn 200. leik í deilda- keppninni (þar af er 141 í efstu deild) og Alex Freyr Hilmarsson miðjumaður KR kom inn á í sínum 100. leik í efstu deild í leiknum á Meistaravöllum. „Sóknarleikur HK-inga var ekki upp á marga fiska. Þeir fengu eitt færi í hvorum hálfleiknum og skor- uðu úr því síðara. Spilamennska þeirra það sem af er sumri hefur verið ágæt en liðið lá í dvala löngum stundum í kvöld og það var ekki margt í kortunum sem benti til jöfnunarmarks,“ skrifaði Pétur Hreinsson m.a. í grein um leikinn á mbl.is. „Óvænt“ orð kvöldsins - Leiknismenn unnu FH - HK jafnaði gegn KR - Fylkir jafnaði gegn Víkingi Kári Árnason, fyrirliði Víkings, fer ekki með íslenska knattspyrnulands- liðinu til Texas í dag en þar mætir það Mexíkó í vináttulandsleik á laug- ardagskvöldið. Kári tilkynnti þessa ákvörðun sína í gærkvöld og sagði við Morgunblaðið eftir leik Víkings og Fylkis að hann hefði ákveðið að sleppa landsleikjunum þremur sem fram undan eru til að taka ekki áhættuna af því að smitast af kór- ónuveirunni, á væntanlega sínu síð- asta tímabili í fótboltanum, þar sem hann væri með astma og hefði ekki verið bólusettur. Kári ekki með í landsleikjunum Ljósmynd/Guðmundur Bjarki Halldórsson Landsliðið Kári Árnason tekur ekki þátt í leikjunum þremur. Guðlaugur Victor Pálsson lands- liðsmaður í knattspyrnu er genginn til liðs við þýska félagið Schalke sem keypti hann af Darmstadt og samdi við hann til tveggja ára. Guð- laugur Victor lék með Darmstadt í þýsku B-deildinni í hálft þriðja ár og verður áfram í sömu deild því Schalke féll úr 1. deildinni í vor. Schalke er eitt af stærri félögum Þýskalands og lék síðast í Meistara- deild Evrópu 2018-19. Þjálfari liðs- ins, Dimitrios Grammozis, var áður þjálfari Guðlaugs Victors hjá Darmstadt í hálft annað ár. Kominn til liðs við Schalke Morgunblaðið/Eggert Schalke Guðlaugur Victor Pálsson færir sig til í Þýskalandi. KR – HK 1:1 1:0 Atli Sigurjónsson 21. 1:1 Stefan Ljubicic 84. M Atli Sigurjónsson (KR) Stefán Árni Geirsson (KR) Kjartan Henry Finnbogason (KR) Pálmi Rafn Pálmason (KR) Stefan Ljubicic (HK) Guðmundur Þór Júlíusson (HK) Birnir Snær Ingason (HK) Dómari: Erlendur Eiríksson – 8. Áhorfendur: 662. LEIKNIR R. – FH 2:1 0:1 Matthías Vilhjálmsson 19. 1:1 Sævar Atli Magnússon 20. 2:1 Sævar Atli Magnússon 57.(v) M Bjarki Aðalsteinsson (Leikni) Árni Elvar Árnason (Leikni) Sævar Atli Magnússon (Leikni) Andrés Manga Escobar (Leikni) Brynjar Hlöðversson (Leikni) Guðmundur Kristjánsson (FH) Steven Lennon (FH) Matthías Vilhjálmsson (FH) Dómari: Pétur Guðmundsson – 8. Áhorfendur: 298. VÍKINGUR R. – FYLKIR 2:2 0:1 Djair Parfitt-Williams 43. 1:1 Nikolaj Hansen 81. 2:1 Helgi Guðjónsson 86. 2:2 Nikulás Val Gunnarsson 89. M Karl Friðleifur Gunnarsson (Víkingi) Nikolaj Hansen (Víkingi) Kwame Quee (Víkingi) Helgi Guðjónsson (Víkingi) Aron Snær Friðriksson (Fylki) Djair Parfitt-Williams (Fylki) Helgi Valur Daníelsson (Fylki) Nikulás Val Gunnarsson (Fylki) Dómari: Ívar Orri Kristjánsson – 8. Áhorfendur: Um 500. Eitt ogannað _ Allt bendir til þess að Harry Ma- guire, fyrirliði Manchester United, missi af úrslitaleik Evrópudeildarinnar gegn Villarreal í Gdansk í Póllandi í kvöld. Maguire hefur misst af fjórum leikjum vegna ökklameiðsla og gat ekki æft með liðinu á keppnisvellinum í Gdansk í gær. _ Uppgjöri Vals og Breiðabliks í úr- valsdeild kvenna í fótbolta, Pepsi Max- deildinni, sem fram fer annað kvöld, hefur verið flýtt um tvo tíma. Flautað verður til leiks á Hlíðarenda klukkan 18. Þetta er gert vegna þess að fyrsti úrslitaleikur Vals og Hauka um Ís- landsmeistaratitil kvenna í körfubolta fer líka fram á Hlíðarenda annað kvöld en sá leikur hefst klukkan 20.15. _ Ekki var farið rétt með frammistöðu Samúels Kára Friðjónssonar með Vik- ing í norsku úrvalsdeildinni í knatt- spyrnu á mánudag í blaðinu í gær. Það rétta er að Samúel lagði upp tvö marka Viking og skoraði svo það þriðja þegar lið hans vann góðan útisigur á Lilleström, 3:1. Samúel er í liði um- ferðarinnar hjá flestum norskum fjöl- miðlum vegna frammistöðunnar og er m.a. eini leikmaðurinn í deildinni sem NTB gefur 8 í einkunn. _ Handknattleiksmaðurinn Ágúst Birgisson hefur framlengt samning sinn við FH til næstu þriggja ára. Hann er að ljúka sínu sjötta tímabili með Hafnarfjarðarliðinu og hefur und- anfarin ár verið einn af bestu línu- og varnarmönnum úrvalsdeildarinnar. _ Gennaro Gattuso hefur verið ráð- inn knattspyrnustjóri ítalska félagsins Fiorentina. Hann hætti störfum hjá Napoli í gær eftir tvö ár þar. Gattuso tekur við af Giuseppei Iachini en undir hans stjórn hafnaði Fiorentina í 13. sæti A-deildarinnar í vetur. Napoli end- aði í fimmta sæti. _ Valsmaðurinn Kaj Leo i Bartals- stovu er í færeyska landsliðshópnum í knattspyrnu sem á að mæta Íslandi í vináttulandsleik í Þórshöfn 4. júní. Gunnar Nielsen markvörður FH og að- almarkvörður Færeyinga um langt skeið er hins vegar ekki í hópnum að þessu sinni. Þrír fyrrverandi leikmenn íslenskra liða eru í hópnum, Brandur Olsen sem spilar með Helsingborg í Svíþjóð, Sonni Ragnar Nattestad sem leikur með Dundalk á Írlandi og René Joensen sem leikur með HB í Þórs- höfn. _ Kvennalið Breiðabliks í knattspyrnu missir tvo af fastamönnum sínum í ágústmánuði. Áslaug Munda Gunn- laugsdóttir og Hildur Þóra Há- konardóttir fara þá til Bandaríkjanna en þær hafa báðar fengið skólastyrk hjá hinum virta Harvard-háskóla í Boston. Þær missa af síðustu fimm til sex umferðum Íslandsmótsins og væntanlega einnig af leikjum Blika í undankeppni Meistaradeild- arinnar sem hefst 18. ágúst.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.