Morgunblaðið - 26.05.2021, Síða 25
MENNING 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 2021
AF LISTUM
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
Allra veðra von nefnist sirkussýningsem sirkushópurinn Hringleikur ísamstarfi við leikhópinn Miðnætti
frumsýndi nýverið í Tjarnarbíói í leik-
stjórn Agnesar Wild. Líkt og titilinn gefur
til kynna leikur veðrið stórt hlutverk í
sýningunni. Tónninn er sleginn strax á
fyrstu mínútum þegar við sjáum veru
ganga á sviði og hefja flugdreka á loft og
fyrir vikið skynjum við nánast vindinn inn-
anhúss. Stuttu síðar birtist Nick Candy
okkur í hlutverki veðurfræðings sem
mundar undarlega og skemmtilega græju
sem hann notar til að mæla meðal annars
vindhraða, rakastig og loftþrýsting. Veð-
urgræjan getur líka nýst til að skapa
hljóðmyndir eins og þegar leikhópurinn
líkir eftir rigningu með fingrunum.
Sýningin ber þess merki að vera spuna-
sýning þar sem ein hugmynd kveikir aðra
með dýnamískum hætti. Rigning kallar
eðlilega á stígvél og regnhlíf, en snúið er
upp á skynjun áhorfenda með því að
standa á höndum í stígvélunum og með
regnhlífinni má sýna okkur séríslenska
rigningu sem fellur ekki beint niður held-
ur skellur á okkur frá hlið. Rigningin
tengist líka vindinum sem íslenskan á yfir
hundrað ólík orð yfir. Bráðskemmtilegt
var að fylgjast með tilraunum veðurfræð-
ingsins til að ná jakka sínum sem fauk til
fyrir tilverknað annarra þátttakenda í sýn-
ingunni, en auk sirkuslistamannsins Nicks
taka þátt í uppfærslunni Bryndís Torfa-
dóttir, Eyrún Ævarsdóttir, Jóakim Mey-
vant Kvaran og Thomas Burke.
Sýningin fór rólega af stað með vor í
lofti. Gaman var að fylgjast með hópnum
hlusta á veðurfréttir og frábært hvernig
blikkfata var notuð til að fanga rétta
hljóminn. Um leið og sumarið brast á fóru
leikar hins vegar fljótt að æsast. Hópurinn
sýndi sirkusfimi sína í stökkum um sviðið
og leik í kaðli sem fékk áhorfendur til að
grípa andann á lofti þegar listafólkið lét
sig falla hratt. En sem betur fer var allt
svo þaulæft að engin raunveruleg hætta
var á ferðinni. Verkið þræðir sig eftir árs-
tíðunum þar til eitt ár er liðið og aftur
komið vor. Sirkuslistahópurinn skapar
margar fallegar myndir á vegferð sinni
undir styrkri stjórn Agnesar Wild. Áhrifa-
mikið var að sjá veru birtast með
þrumuský á höfði og ferðast um sviðið
með aðstoð tveggja þátttakenda, en auð-
velt var að hafa þónokkrar áhyggjur af
þeim þyngslum sem þannig voru lögð ekki
á herðar heldur höfuð þátttakenda og þar
með viðkvæma hálsliðina.
Túlkun hópsins á haustinu og vetrinum
bauð upp á dramatíska spretti sem vel
voru nýttir. Appelsínugulir sjógallar leystu
léttan sumarfatnað af hólmi. Súla var reist
með tilþrifum á sviðinu sem virkaði eins og
mastur á skipi í ólgusjó. Í framhaldinu
mátti sjá skemmtilegan dúett þar sem
Jóakim lék listir sínar á súlunni sem kall-
aðist á við hreyfingar Bryndísar í kaðl-
inum. Við tók síðan fallegt samspil Bryn-
dísar, Eyrúnar og Thomasar í fimleikarólu.
Sjónræn umgjörð sýningarinnar þjónar
innihaldinu vel, en Eva Björg Harðardóttir
er sviðsmynda- og búningahöfundur og
Friðþjófur Þorsteinsson hannar vandaða
lýsingu. Tónlist Sigrúnar Harðardóttur
bætir miklu við upplifunina og býr til réttu
stemninguna þótt tæknin hafi örlítið verið
að stríða hópnum á sýningunni sem rýnir
sá.
Allra verða von er falleg og orkumikil
sýning þar sem unnendur sirkuslistarinnar
geta auðveldlega dáðst að fimi þátttak-
enda. Mikið mæðir á sýnendum og alveg
hreint ótrúlegt að þeir hafi úthald og styrk
til að framkvæma þær listir sem upp-
færslan krefst. Sýningin er að stærstum
hluta leikin án orða og hentar því breiðum
áhorfendahópi. Hér er boðið upp á ljóð-
rænar myndir, glens, loftfimleika og ak-
róbatík sem leið til að flétta saman sögum
af áhrifum veðursins á fólk.
Fram hefur komið að hópurinn muni,
þegar sýningum lýkur í Tjarnarbíói, leggja
land undir fót og sýna Allra veðra von
utandyra víðs vegar um landið í sumar.
Það verður áreiðanlega ekki síður for-
vitnilegt og gaman að upplifa sirkuslist-
irnar úti undir berum himni með sól-
argeisla, rigningarúða eða smá golu í
andliti.
Nú verða lesnar veðurfréttir
Ljósmynd/Lilja Draumland
Þrumuský „Allra verða von er falleg og orkumikil sýning þar sem unnendur sirkuslistarinnar geta
auðveldlega dáðst að fimi þátttakenda,“ segir í rýni um sirkussýningu Hringleiks og Miðnættis.
»
Hópurinn sýndi sirkusfimi
sína í stökkum um sviðið
og leik í kaðli sem fékk áhorf-
endur til að grípa andann á
lofti þegar listafólkið lét sig
falla hratt. En sem betur fer
var allt svo þaulæft að engin
raunveruleg hætta var á
ferðinni.