Morgunblaðið - 21.05.2021, Qupperneq 18
Þ
órarinn Birgisson segir vinsælasta
gólfefnið klárlega vera harðparket
og að einstaklingar sem eru að gera
upp húsin sín velji meiri gæði en oft
áður.
„Við höfum fundið fyrir aukningu í eftirspurn
á betri gæðaflokkunum frá Swiss Krono. Þannig
parket eru rakavarin og með breiðari og lengri
fjalir. Vinsælustu litirnir eru ljós eik, hvíttuð eik
og gráir og grábrúnir tónar.
Í viðarparketinu gildir það sama um litapal-
lettuna. Það sem er vinsælt núna eru klassískir
náttúrulegri eikarlitir, hvíttuð eik og eins brún-
leitir jarðlitir og reykt eik. Hér hafa viðskipta-
vinir líka meira svigrúm með litaval. Ef liturinn
er ekki til frá framleiðanda eru fagaðilar sem
sérhæfa sig í að lita og yfirborðsmeðhöndla gólf-
efnin. Við eigum til bæði ómeðhöndlaða spón-
lagða eikarplanka og mikið úrval af ómeðhöndl-
uðu gegnheilu efni á lager sem er tilvalið fyrir
sérsniðið [e. custom] litaval.
Í flísunum er helsta breytingin stærðin á flís-
unum. Fyrir nokkrum árum var algengasta
stærðin 30 x 60 cm. Í dag eigum við meira magn
á lager af 60 x 60 cm og 80 x 80 cm og þessar
sömu flísar eru fáanlegar í allt að 160 x 320 cm.
Gráleitar og ljósar marmaraflísar og Terrazzo-
mynstur í nokkrum litbrigðum hefur notið vin-
sælda undanfarið í takt við klassískari flísar í
mismunandi gráum tónum. Þar sem hinn
milligrái steypugrái litur er alltaf vinsælastur.
Við notum aðallega vaxolíu frá Osmo til að lita
efnin.“
Hrífst af tímalausri hönnun
Hverju ert þú persónulega hrifnastur af?
„Sjálfur hrífst ég alltaf mest af því sem mér
finnst vera tímalaus hönnun. Hvort sem það eru
gólfefni, innréttingar eða húsgögn. Eins finnst
mér mikilvægt að gólfefnaval passi í þá húseign
sem verið er að innrétta.“
Hvernig verða tískustraumarnir á næstu
misserum?
„Ég horfi oft til þess sem er að gerast í inn-
réttingum. Við höfum séð mikið undanfarið af
sprautulökkuðum svörtum eikarinnréttingum
og eins brúnbæsaða og reykta eik. Ég hugsa að
við munum sjá meira af náttúrulegri viðar-
áferðum og að hnotan eigi eftir að koma sterk
inn aftur og meira um sprautulakkaðar innrétt-
ingar.“
Hvað er það allra fallegasta gólfefni sem þú
hefur séð?
„Viðargólf getur verið alls konar. Þegar kem-
ur að áferð þess getur það verið burstað, fasað,
heflað og bandsagað. Í útliti getur parket verið
planki, valin, natur, rustik, herringbone, chevr-
on, mosaik, „industrial“ parket og fleira.
Fallegasta parket sem ég hef séð nýlega var
gegnheilt burstað og fasað herringbone litað
svarbrúnt með Osmo-vaxolíu í fallegum sum-
arbústað.“
Dökkgráar marmaraflísar vinsælar
Er mikið úrval til af fallegum marmara núna?
„Við eigum til þó nokkrar týpur á lager, ljósan
og dökkan calacatta marmara, svartar og hvítar
[e. black&white marble] og mjög vinsælar
dökkgráar Amani Bronze-marmaraflísar.“
Áttu eitt gott ráð fyrir einstaklinga sem vilja
skipta um gólefni en eru óvissir um hvað þeir
eiga að velja sér?
„Mikilvægast er að átta sig á því að fólk er að
fjárfesta í gólfefnum á mismunandi skeiði í lífinu.
Við erum með alla verðflokka í boði í Birgisson.
Við getum verið með ungt par sem er að kaupa
sér sína fyrstu íbúð og sér fyrir sér að eignast
fjölskyldu saman og stækka við sig eftir fimm ár.
Hér myndi ég alltaf ráðleggja fólki fyrst hag-
stæðari valkosti. Sem dæmi slitsterkt vatnsþolið
harðparket eða vínylparket. Vonandi koma þau
síðan aftur seinna í lífinu, komin í endanlega
húseign og þá getum við skoðað fleiri valkosti.
Fyrir suma er nóg að gólfefnið líti ágætlega út
og þjóni helstu þörfum kaupanda og skiptir litlu
hvort varan sé ekta vara eða ekki. Aðrir eru
kannski með aðrar hugmyndir, vilja bara ekta
viðarparket, finna lyktina og finna fyrir viðnum
undir fótum sér og svo er sívaxandi hópur fólks
sem sækist eftir umhverfisvænum valkostum.
Eitt gott ráð er ég ekki með en ég er með ótal
spurningar sem sölumennirnir spyrja kúnnann
til að átta sig á því hvað hentar best hverju
sinni.“
Sprautulakkaðar hurðir í öllum litum
Hvað með hurðir – getur þú sagt mér aðeins
hvað er vinsælt í þeim?
„Hvítlakkaðar hurðir eru alltaf vinsælastar.
Eins höfum við tekið upp á þeirri nýbreytni að
panta hurðirnar á lager án lykillaufs og notast
þá við hurðarhúna með svokölluðum smart-lock
læsingum. Þetta gefur hurðinni aðeins stíl-
hreinna yfirbragð. Eins erum við líka að spautu-
lakka hurðir fyrir okkar viðskiptavini í öllum
regnbogans RAL-litum.“
Brúnbæsuð reykt eik vinsælasta gólfefnið
Þórarinn Gunnar Birgisson,
framkvæmdastjóri gólfefna-
verslunarinnar Birgisson,
staðfestir að landsmenn hafi
verið einstaklega duglegir að
huga að heimilinu að undan-
förnu. Hann er sérfræðingur í
gólfefnum og staðhæfir að Ís-
lendingar séu að fjárfesta í
meiri gæðum en oft áður.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Þórarinn Gunnar Birgisson er
mikið fyrir tímalausa hönnun
þegar kemur að gólfefni, inn-
réttingum og húsgögnum.
Bjelin-viðarparket
fer fallega með Acu-
wood-viðarrimlum.
Af hverju ekki að nota glæsilegar
Rock Salt-flísar á gólf og hluta af
vegg á baðherberginu?
Sensi-flísar frá Florim eru
glæsilegar á baðherbergið.
18 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. MAÍ 2021